Morgunblaðið - 23.03.2008, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 55
Laugardagslögin hafa verið vinsæl-
asta sjónvarpsefni landsins það sem
af er ári enda mikið rými fyrir áhorf-
endur til að hafa áhrif á framvinduna
og nóg af frægu fólki til að fylgjast
með og hafa skoðun á. Nú eru öll lög-
in sem tóku þátt í keppninni, 33 tals-
ins, komin út á tvöfaldri geislaplötu.
Flækjum ekki málin: Lang-
stærstur hluti þessara laga er væm-
inn, gersneyddur því sem gæti talist
listræn úrvinnsla, klisjukenndur,
hræðilega útsettur og hreinlega fyrir
neðan allar hellur. Ef lögin hér eiga
að vera einhvers konar rjómi þess
sem íslenskir höfundar eru færir um
þá er íslensk tón-
list í mjög vond-
um málum. Hins
vegar er rétt að
taka fram að
söngvarar standa
sig nær und-
antekningarlaust vel.
Lögin á diski A, þ.e. lögin 12 sem
komust í lokakeppnina, eru þó
skömminni skárri heldur en hin sem
sátu eftir og lögin þrjú sem komust á
pall standa vissulega upp úr, þó einn-
ig megi telja til hið ágæta og hressi-
lega „Don’t Wake Me Up“ með Ragn-
heiði Gröndal sem er með smekklegri
og djarfari lögum plötunnar þegar
kemur að útsetningu og er bara ansi
grípandi. Jólateknósmellurinn „Ho,
Ho, Ho, We Say Hey, Hey, Hey“ er
þó besta lag plötunnar; ótrúlega gríp-
andi og það er óhrætt við að gangast
við eigin einfeldni og hallærisleika.
Lagið hefur húmor fyrir sjálfu sér,
sem á grátlega sjaldan við þótt sum
lögin séu ekki mikið meira en vondur
brandari, t.d. „Lullaby to Peace“ eftir
Magnús Þór Sigmundsson og kraft-
ballaðan „Núna veit ég“ sem Birgitta
og Magni syngja. Sigurlagið „Full-
komið líf“ er líka ágætt þótt það sjái
ekki júróbjálkann í eigin auga. Það
mætti segja að það sé taktískt nokkuð
snjallt gagnvart lokakeppni Eurovisi-
on í Serbíu, allar júróklisjurnar eru á
sínum stað og vel útfærðar og aust-
rænir skalar eru nýttir til að höfða til
hópa sem sagan segir að séu áhrifa-
miklir í atkvæðagreiðslunni. Eina
lagið sem mætti beinlínis telja frum-
legt eða spennandi í sjálfu sér er lagið
„Hvar ertu nú?“ í flutningi Dr. Spock,
þar sem graðhestarokki er spyrt
saman við klisjukennt og væmið við-
lag og heiltónshækkanir og öllu er
slegið upp í grín. Furðulegasta fram-
lagið er „The Wiggle Wiggle Song“
eftir Svölu Björgvins í flutningi Haffa
Haff. Þetta er old-school-hardcore
sem gæti hafa komið út 1991 og er allt
í lagi sem slíkt.
Á diski B er flatneskjan allsráðandi
og maður veitir því eftirtekt að flytj-
endur standa sig ekki jafnvel eða eru
hreinlega ekki jafnsterkir þegar á
heildina er litið. Inn á milli leynast þó
ágætis smíðar; besta lagið er pönk-
poppsmellurinn „Ísinn“ eftir Dr.
Gunna í flutningi Heiðu. Raunar er
það betra en langflest lögin á diski A.
Hið glettilega „I Wanna Manicure“
með Hara er hressilega klikkað, til-
raun Andreu Gylfadóttur með texta-
leysi góðra gjalda verð og framlag
Fabúlu „Bigger Shoes“ er sömuleiðis
skemmtilega öðruvísi.
Þegar allt er talið saman eru Laug-
ardagslögin 2008 einhver versta safn-
plata sem undirritaður hefur heyrt.
Sem betur fer endurspeglar hún eng-
an veginn þá fjölbreytni og þá frá-
bæru hluti sem gerast í bílskúrum,
svefnherbergjum og á stórum og
smáum tónleikastöðum víða um land-
ið. Hún er fyrst og síðast vitnisburður
um lygina sem er stundum haldið að
fólki í ljósvakamiðlum um hvað sé ný
og spennandi tónlist og þörf áminn-
ing um að leyfa okkur að ganga svo-
lítið lengra og vera svolítið djarfari
svo slys af þessu tagi endurtaki sig
ekki.
Laugardagslygin
TÓNLIST
Geisladiskur
Ýmsir – Laugardagslögin
2008bnnnn
Atli Bollason
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Aldrei fór
ég suður hófst með látum á Ísafirði í
fyrrakvöld, föstudaginn langa, með
tónleikum Bob Justman og hljóm-
sveitar hans. Framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, Hálfdán Bjarki Hálf-
dánarson, segir mætingu líklega
betri en nokkru sinni. Í það minnsta
var skemma útgerðarfyrirtækisins
AÓÁ útgerðar á Ásgeirsbakka
sneisafull af tónleikagestum og öll
gistiheimili full- bókuð. Hálfdán
segir aðsóknina slíka á tónleikana
að tónleikastaðurinn sé að sprengja
hátíðina utan af sér og ekki loku
fyrir það skotið að byggja þurfi sér-
stakt hús undir hátíðina. Seinna tón-
leikakvöldið var í gær og kom þar
fram mikill fjöldi sveita og tónlistar-
manna.
Þeir sem komu fram á hátíðinni,
auk fyrrnefnds Justman, eru
Hjaltalín, Ben Frost, Vax, Stein-
tryggur, Morðingjarnir, Biogen,
Skakkamanage, Hjálmar, Megas,
Mugison, Abbababb, Retro Stefson,
Vilhelm, Hellvar, Johnny Sexual,
Hálfkák, Lára Rúnars, Prinsinn og
Rattó, Benny Crespos Gang, diagon,
Sudden weather change, Sprengju-
höllin, Eivör, Karlakórinn og Ótt-
arr, Mysterious Marta, Skátar, Múg-
sefjun, Dísa, Hraun, UMTS, XXX
Rottweilerhundar, Sign og SSSól.
Myndasyrpa frá hátíðinni verður í
Morgunblaðinu á þriðjudaginn.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Kraftur Moogison bræðir hljóðnem-
ann á Aldrei fór ég suður 2008.
Fullt út úr
skemmu
DEILAN um notkun á nafni hljóm-
sveitarinnar Beach Boys hefur loks
verið leyst fyrir dómstólum í Los
Angeles, deila tveggja upphaflegra
liðsmanna sveitarinnar, Als Jardin-
es og Mikes Loves. Love lögsótti
Jardine fyrir að nota nafn sveit-
arinnar í tengslum við aðra hljóm-
sveit sem hann stofnaði og féll sá
dómur fyrir átta árum að Jardine
bryti gegn höfundarréttarlögum
með því að nota nafn Beach Boys.
Love er höfundarréttarhafi að
nafninu. Love og dánarbú Carls
Wilsons, eins stofnenda Beach
Boys, lögsóttu Jardine aftur árið
2004 fyrir sama brot og fóru fram
á 2,2 milljóna dollara skaðabætur.
Hefur nú loks náðst sátt í því máli.
Í hverju hún felst er ekki upp gefið.
Strandar-
strákar deila
ei lengur