Morgunblaðið - 23.03.2008, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 23.03.2008, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is SKÓLABÖLL, pólitík í skólum og önnur hags- munamál fram- haldsskólanema voru rædd á fulltrúafundi Sambands ís- lenskra fram- haldsskólanema aðra helgi þessa mánaðar. Sam- bandið var stofnað í nóvember, en heildarsamtök framhaldsskóla- nema hafa ekki verið starfandi síðustu árin. „Við erum stórt og mikið afl og ætlum að veita stjórn- völdum aðhald,“ segir Ásgeir Guð- mundsson, framkvæmdastjóri SÍF, og minnir á að framhalds- skólanemar séu um 24.000 á land- inu og stór hluti þeirra hafi kosn- ingarétt. „Við viljum ekki vera neikvæð og tala alltaf um það sem er að, heldur frekar að einbeita okkur að því að vera þeim innan handar við að byggja upp.“ Ekki sama hver bannar Miklir fjármunir fara til spillis þegar nemendur eru ekki hafðir með í ráðum, að mati Ásgeirs. „Eitt af því sem við ætlum að gera er að stuðla að forvörnum í skól- um landsins. Við erum að reyna að fá skólameistara og aðra til að átta sig á því að allar aðgerðir sem koma að ofan, þær virka ekki. Þær verða að koma frá okkur, frá jafningjum.“ Hann nefnir sem dæmi reyk- ingabann á skólaböllum sem tók gildi í nokkrum skólum áður en það varð almennt á skemmtistöð- um. „Í þeim skólum þar sem skóla- stjórnin bannaði reykingar þá gekk það ekki upp, fólk var að laumast til að reykja og það var vesen og læti. Þar sem nemenda- félögin ákváðu að banna reykingar þá gekk það hins vegar snurðu- laust fyrir sig.“ Ásgeir segir að nú standi til að herða reglur um skólaböllin og samræma þær milli skóla og ekki sé haft samráð um breytingarnar við nemendafélögin. „Skólameistararnir hafa verið að gera þetta svona í laumi, sem er náttúrulega til háborinnar skammar og á bara ekkert að þekkjast.“ Þær tillögur sem Ásgeir hefur fengið í hendur fela meðal annars í sér að skólaböll verði færri og styttri. „Þetta er barnaleg lausn á vandamáli sem er miklu djúpstæð- ara.“ Það hafa komið upp ýmiss konar vandamál á skólaböllum síð- ustu ár, en Ásgeir segir ástandið hafa batnað mikið. „Eftirlitið er orðið betra, það eru sjúkraliðar á böllunum, það er öryggisgæsla, það er allt til alls. Við viljum hafa öll böll vímulaus, en við viljum ekki gera það þannig að vanda- málið færist bara eitthvert annað, að fólk hætti bara að mæta á böll- in og fari í eftirlitslaus partý. Svona breytingar virka ekki þegar þær koma svona að ofan.“ Baldur Gíslason, skólameistari í Iðnskólanum í Reykjavík og for- maður Félags íslenskra fram- haldsskóla, staðfestir að vinna sé í gangi hjá skólastjórnendum og Framhaldsskólanemar fylkja liði  Ætla að veita stjórnvöldum aðhald  Vilja ekki að reglur um skólaböll verði hertar án samráðs Ásgeir Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.