Morgunblaðið - 23.03.2008, Page 39

Morgunblaðið - 23.03.2008, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 39 Ný hugsun –nýjar íbúðir www.arnarneshaed.is BAKKASMÁRI - KÓPAVOGUR Glæsilegt 6 herbergja parhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr með glæsilegu útsýni á vinsælum stað, alls 182,7 fm. Tvær samliggjandi stofur og fjögur rúmgóð svefnherbergi. Tvö baðherbergi. Sérsmíðaðar innréttingar og vandaður frágangur. Hvítur carera marmari á gólfum. Garður í rækt og hellulagt bílaplan. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþrótta- aðstöðu, verslanir og fl. Verð 69,9 millj. Þverholt 14 l 105 Reykjavík l Sími 595 9000 l holl@holl.is l www.holl.is Björn Daníelsson Löggildur fasteignasali Gsm: 849 4477 Eyjabúð, ein elsta starfandi verslun í Vestmannaeyjum er til sölu. Eignin sem er 172,6m2 stendur á góðum stað í Vestmannaeyjum á horni Strandvegar og Skildingavegar. Húsnæði á besta stað í bænum, og býður upp á mikla möguleika. Til greina kemur að selja hús- næðið án lagers. Verð er þá kr. 15.000.000.- Friðfinnur Finnbogason gefur nánari upplýsingar í s. 699 1166 og Heimaey fasteignasala c/o Guðjón Hjörleifsson s. 481 1114 TIL SÖLU - EYJABÚÐ SÖLUTURN TIL SÖLU Bílalúga, grill, pylsur, video, lotto, spilakassar, ís, ofl. Góður rekstur, góð afkoma.Halldór s. 897 3196, halldor@firmus.is SUMIR segja að trúarbrögðin séu rætur alls ills í heiminum og ákjósanleg átylla öfgamanna víðs vegar um heim til að fylkja liði í ofbeldis- aðgerðum sem ekki sér fyrir endann á. Aðrir segja að trú manna flytji fjöll og geri venjulegu fólki um allan heim kleift að lifa í friði og kær- leika og sigrast á ýmsum vandamálum sem daglegu lífi fylgir. Hvað sem þessum andstæðu sjónarmiðum líður er það jafnsláandi að þeir sem ann- aðhvort berjast hatrammast fyrir málstað ákveðinna trúarhugmynda eða hinir sem segjast vera trú- lausir eða gagnrýna trúarbrögðin hvað mest gera sér ekki grein fyr- ir tvennum sannindum: Annars vegar að núríkjandi trúarbrögð heims hafa því miður vikið í allt of mörgum atriðum frá upphaflegum boðskap sínum. Hins vegar að öll helstu trúar- brögð heims, þ.e. þau sem flestir vilja taka alvarlega, eiga einn sameiginlegan kjarna sem allir hljóta og verða að virða, hvort þeir eru trúaðir eður ei. Ekki veit ég hvort allir eru mér sammála um fyrri sannindin en ég býst við að flestir lesendur átti sig á því hvað ég eigi við þegar ég tala um sameiginlegan kjarna allra trúarbragða. Þessi sameig- inlegi kjarni felur ekki í sér ein- hvern huglægan heimspekilegan vísdóm sem við getum rætt um á góðri stundu og litið á sem æski- lega fyrirmynd sem við höfum ímyndað okkur að æði erfitt sé að tileinka sér að fullu þegar á reyn- ir. Hann er eins jarðbundinn og nálægt okkur og hugsast getur. Hann er vissulega guðdómlegur en um leið hagnýtasta líffræðilega niðurstaða mannlegrar þróunar sem til er. Án hans fær ekkert líf þrifist eða þroskast í heild sinni á þessari jörð. Í heilögum ritum er víða fjallað um þennan sameig- inlega kjarna á einn eða annan hátt. En það er sama hvað við endurtökum hann oft í hljóði eða upphátt, reynum að berja hann inn í hausinn eða hjartað með valdi eða með lævísum aðferðum, hann smýgur ekki varanlega í vit- und okkar nema við berjum fyrir tilvist hans af einlægni og til- einkum okkur hann á lifandi hátt. Hugsanir okkar, viðmið, hug- myndir og vilji lúta mannlegum takmörkunum. Okkur skortir heildarmyndina af tilveru okkar, tilgangi og lífsstefnu. Tímabundn- ar ástríður, óskir, þrár eftir við- urkenningu, vani, aðstæður sem við annaðhvort setjum okkur sjálf í eða okkur eru áskapaðar sem og hugmyndafræðilegur ásetningur hvers og eins hafa ekki þá heild- arsýn sem hinn guðlegi máttur hefur. Og þá erum við loksins komin að kjarnanum, hinum sam- eiginlega kjarna allra trúarbragða, eins og þið hafið eflaust getið ykk- ur réttilega til um. Þessi sameig- inlegi kjarni er nefnilega ekki eitt- hvert óhöndlanlegt dulspekilegt fyrirbæri sem er að finna langt í burtu, kannski á einhverri annarri plánetu eða langt aftur í tímann. Þessi sameiginlegi kjarni er þvert á móti í hjörtum okkar sjálfra hér og nú. Hann er alltumlykjandi og alls staðar. Hann er í senn móð- urlegur og föðurlegur, hann er bæði vitni og þátttakandi, en hann er umfram allt hérna en ekki ann- ars staðar. Hann er núna en ekki á öðrum tíma. Og hann er full- komlega hreinn og óskilyrtur. Hann fer ekki í manngreinarálit. Hann bara er, alveg eins og nátt- úran sem faðmar okkur að sér óháð því hver við erum og hvað við höfum gert um dagana. Hann lokar aldrei gáttum sínum á okkur heldur vinnur kaup- laust allan sólarhring- inn alla daga, jafnvel á jólunum og á mestu hátíðisdögum og hvíldarstundum, við að reyna að hjálpa okkur á allan hátt og gera okkur að betri og hamingjusamari einstaklingum. Það eina sem við þurfum að gera er að leyfa honum að breiða út kraft sinn um alla lík- amsvessa okkar. Leyfa honum að opna orkustöðvar okkar og breiða út ljós sitt um allar frumur og hugarkima … Og umfram allt: Leyfa honum að taka völdin, svo við fáum þjónað honum út í ystu æsar og notið á þann hátt æðstu blessunar í mannlegri tilveru, frið- ar og jafnvægis. Já, þið gátuð rétt: Hann er kærleikurinn, Kun- dalini – undir öðrum nöfnum hinna ýmsu trúarbragða: Heilagur andi – Atma Sakshat Kara – upp- ljómun – Ruah – Tao – Ass- is … Hann er uppspretta alls lífs, kærleika og friðar á jörðu. Kjarni allra trúar- bragða sá hinn sami Megininntak trúarbragðanna er fyrst og síðast kærleikur, segir Benedikt S. Lafleur. »Ég býst við að flestir lesendur átti sig á því hvað ég eigi við þeg- ar ég tala um sameig- inlegan kjarna allra trúarbragða. Höfundur er listamaður, útgefandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.