Morgunblaðið - 23.03.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 15
Þ
að færist bros yfir andlit Halldórs
Fannars Guðjónssonar, sem er yfir
tæknimálum CCP, þegar hann heyr-
ir að borðtennisborð hafi verið sett
upp í afþreyingarherberginu. „Það var ein-
mitt borðtennisborð hjá Atari í Bandaríkj-
unum þegar ég og Snorri Sturluson unnum
þar. Við fundum borðtennisborð, þetta var
mjög stór bygging, og við eignuðum okkur
það, drógum það inn í svæðið sem leikja-
hópurinn okkar var. Það var fínt að geta
tekið leik og leik. Maður vann mikið á þess-
um árum, var ekki með konu og börn, og
við vorum þarna bókstaflega daginn út og
daginn inn.“
CCP vinnur að þróun á nýjum tölvuleik á
svæði sem heitir Stone Mountain, rétt fyrir
utan Atlanta, en þar er White Wolf til stað-
ar, sem CCP sameinaðist og er búið að vera
um tvo áratugi í hlutverkaspilum. Kunnast
er fyrirtækið fyrir spilið World of Dark-
ness. „Hlutverkaspilamarkaður hefur verið
að minnka,“ segir Halldór Fannar. „Það er
minna um að menn spili saman á eldhús-
borðinu, leikirnir eru meira að færast yfir í
tölvur og við sjáum fyrir okkur að fjölspil-
unarleikir eigi eftir að renna saman við þá
hefðbundnu. Þegar við runnum saman voru
25 starfsmenn í höfuðstöðvum White Wolf,
en nú eru þeir orðnir 70 og stefnan er að
þeir verði rétt yfir 100. Það er það sem við
þurfum til að geta búið til leik þarna.“
Hugmyndin er sú að meginstarfsemi
skrifstofunnar á Íslandi felist í að þróa og
viðhalda EVE Online og þá þykir sniðug
lausn að skrifstofa í annarri heimsálfu fái
frið og ró til að skapa nýjan leik. „Við get-
um ekki verið með öll eggin í einni körfu
til lengdar og þurfum að þróa nýjan leik,“
segir Halldór Fannar. „Ekkert útlit er fyrir
að það dragi úr vextinum á EVE Online,
sem gengur vel, en það tekur fjögur ár að
búa til fjölspilunarleik sem líklegur er til
vinsælda, þannig að það er eins gott að
byrja snemma. Við erum líka búin að
byggja upp sérþekkingu innan fyrirtæk-
isins, sem væri sorglegt að nýta ekki bet-
ur.“
Það verður erfiðara að búa til nýja leik-
inn en EVE Online á sínum tíma, því fólk
gerði minni kröfur þá og samkeppnin var
minni, að sögn Halldórs Fannars. „Þá var
hægt að gefa út leik sem var aðeins byrj-
unin, ekki með öllum hlutunum sem hafa
bæst við síðan. Ástæðan fólst líka í því, að
vélbúnaðurinn var mun síðri og minni
möguleikar. Töluverðar framfarir hafa orð-
ið í hugbúnaði, sem neyðir okkur til að
leggja meiri vinnu í útlitið, bæði í forritun
og hönnun. Geimskipin í fyrstu útgáfunni
árið 2003 voru til dæmis 3.000 til 7.000 þrí-
hyrningar, en fyrir jólin í fyrra voru þau
komin upp í 1 til 3 milljónir þríhyrninga.
Menn þurfa því að temja sér betri og
háþróaðri aðferðir til að koma þessu sam-
an.“
– Mynduð þið koma þessum geimskipum
á loft í raunveruleikanum?
„Hent hefur verið gaman af því innan
CCP að við séum stuðningsaðili íslensku
geimferðaáætlunarinnar, en hún er reyndar
ekki stór – stendur saman af áhugamanna-
félagi sem skýtur upp flugeldum. Við höf-
um stutt við bakið á þeim gegnum tíðina,
enda erum við miklir áhugamenn um geim-
ferðir. Þegar Richard Branson tilkynnti að
Virgin hygðist efna til farþegaferða feng-
um við þá hugmynd að einn heppinn við-
skiptavinur fengi sæti í jómfrúrferðinni, en
því miður er fyrirtækjum bannað að panta
sæti. Það hefur líka verið grínast með það
hvort geimskipin í leiknum væru flughæf.
Ég hef svarað því til, að framtíðin verði að
leiða það í ljós, en við séum spennt fyrir
þeim möguleika. Þau líta allavega vel út –
maður myndi alveg láta sjá sig á svona
geimskipi.“
MYNDI LÁTA SJÁ SIG Á SVONA GEIMSKIPI
Geimferðir Halldór Fannar Guðjónsson segir
starfsmenn mikla áhugamenn um geimferðir.
Á ÞRIÐJUDAGINN
FJÖLGAR ÍSLENSKUM
MILLJÓNAMÆRINGUM
UM 30
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.