Morgunblaðið - 23.03.2008, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Í
langhlaupi þarf góðan héra
til að halda uppi hraðanum,“
sagði gallharður stuðnings-
maður Manchester United í
vikunni og horfði kíminn á
félaga sinn sem fylgir Arsenal að
málum. Það var blik í augum. Sá síð-
arnefndi kreisti fram bros en gætti
þess að missa engin orð af vörum
enda upplitið á hans mönnum ekki
djarft um þessar mundir. Upp í hug-
ann komu þó ein fleygustu ummæli
enskrar knattspyrnusögu: Það yrði
dásamlegt að leggja þá (e. I’d luv it if
we beat them), sem höfð voru eftir
Kevin Keegan, knattspyrnustjóra
Newcastle, fyrir meira en áratug.
Eftir fjögur jafntefli Arsenal í
jafnmörgum leikjum er staða meist-
aranna frá Manchester vænleg þeg-
ar átta umferðir eru óleiknar í ensku
úrvalsdeildinni. Eftir átta stiga
sveiflu hafa þeir þriggja stiga for-
ystu og mun hagstæðari markamun
en keppinautarnir. United og Arsen-
al hafa borist á banaspjót á toppnum
í mestallan vetur en margt bendir nú
til þess að þeir Fergusynir séu út-
haldsbetri en hið unga lið Arsènes
Wengers.
Skrapp milli sólkerfa
Munar þar verulega um Cristiano
Ronaldo sem borið hefur ægishjálm
yfir aðra leikmenn deildarinnar und-
anfarin tvö ár. Ekki er útlit fyrir að
það breytist á komandi árum nema
kappinn ákveði óvænt að snúa heim
til þess sólkerfis sem hann kom frá
upprunalega. 33 mörk hefur Ronaldo
skorað af hægri kantinum í vetur.
Vörn United er líka sterkari en vörn
Arsenal sem á það til að missa ein-
beitinguna á ögurstundu, svo sem
menn sáu í leiknum gegn Middles-
brough um liðna helgi. Breiddin er
einfaldlega meiri hjá United en Ars-
enal. Þá tapa meistararnir helst ekki
ef lukkutröllið Wayne Rooney skrýð-
ist híalíni á leikdegi. Þeir Ronaldo
eru eitt mergjaðasta tvíeyki sem um
getur í ensku knattspyrnunni.
United hlaut 89 stig í fyrra og gæti
að hámarki náð 94 stigum nú, mis-
stigi liðið sig ekki á lokasprettinum.
Það verður þó að teljast líklegt að
deildin vinnist á færri stigum nú en
nokkur undanfarin ár, þar sem topp-
liðin eiga eftir að taka hvert á öðru á
víxl næstu vikurnar.
Í dag tekur United á móti spræk-
asta liði deildarinnar þessa dagana,
Liverpool, í Leikhúsi draumanna.
Það verður enginn gamanleikur.
Rauði herinn hefur unnið sjö leiki í
röð eftir axarskaftið gegn Barnsley,
marga með yfirburðum, og hefur
ekki í langan tíma verið líklegri til að
láta United-liðinu blæða. „En svo
steinliggja þeir kannski,“ velti eld-
heitur Púlari fyrir sér í vikunni.
Ýmsu vanur.
Liverpool vann síðast á Old Traf-
ford 25. apríl 2004 með marki Dan-
nys Murphys úr vítaspyrnu.
Máttur Mídasar
Fyrir Liverpool fer Mídas kon-
ungur, sem raunar leikur knatt-
spyrnu undir dulnefninu Fernando
Torres. Allt sem hann snertir verður
að gulli. Ár og dagur er síðan leik-
maður hefur stimplað sig jafnræki-
lega inn í úrvalsdeildina á sínu fyrsta
tímabili. Það er eins og spænski mið-
herjinn hafi verið sogaður út úr
tölvuleik, hann hefur enga augljósa
ókosti. Mídas hefur gert níu mörk í
síðustu sex leikjum og netmöskvarn-
ir á Old Trafford skjálfa nú á saum-
unum.
Ber er hver að baki nema sér
bróður eigi og Steven Gerrard hefur
ekki látið sitt eftir liggja fremur en
endranær. Talandi um mergjuð
tvíeyki! Svo mikið er sjálfstraustið í
liðinu þessa stundina að meira að
segja túrbóryksugan Javier Masc-
herano er farin að þruma knettinum
í bláhornið. Rafa Benítez virðist líka
loksins hafa gert sér grein fyrir því
að það er í raun vænlegt til árangurs
að breyta liðinu lítið sem ekkert þeg-
ar vel gengur. Fyrir vikið eru far-
þegar á borð við John Arne Riise og
Jermaine Pennant komnir til síns
heima – á varamannabekkinn. Þá
hefur það gefið góða raun að færa
upplituðu útgáfuna af Emile He-
skey, Dirk Kuyt, fjær markinu.
Hvað ef Liverpool hefði leikið
svona í allan vetur? Þá væri liðið all-
tént ekki að keppa um fjórða sætið
við frændur sína í Everton.
En eins og maðurinn sagði, það
kemur ár eftir þetta ár.
Rjóminn varð að undanrennu
Eftir ófarir síðustu vikna hafa sig-
urvonir Arsenal dvínað til muna. Það
er eins og allur kraftur hafi verið
kreistur úr liðinu sem unnið hefur
hug og hjörtu sparkelskra með
hröðu og hugmyndaríku spili í vetur.
Þeir sem vanir eru rjóma fúlsa við
undanrennu.
Burðarásarnir í sóknarleiknum,
Emmanuel Adebayor, Cesc Fàbre-
gas og Aliaksandr Hleb, eru heillum
horfnir og það háir Arsenal að knatt-
spyrna skuli ekki vera spiluð með
mörkum í Hvíta-Rússlandi. Hleb
hefur enn ekki áttað sig á tilgangi
hvíta rammans við enda vallarins.
Herdeildin er sögð göngulúin en
deila má um þá afsökun. Alltént lék
Brian gamli Talbot sjötíu leiki fyrir
Arsenal veturinn 1979-80 og blés
ekki úr nös. Og eiga menn ekki að
vera betur þjálfaðir í dag og mat-
aræðið úthugsað? Í þá daga voru líka
ekki nema tveir til þrír brúklegir
menn til skiptanna, ekki tíu til fimm-
tán eins og nú.
Hvernig getur lið sem leikur sjálfa
Evrópumeistarana, AC Milan, sund-
ur og saman í þeirra eigin bakgarði
breyst í fálmandi flækjufætur gegn
Wigan og Middlesbrough?
Mögulega vegna þess að þessi lið
fóru aldrei úr skotgröfunum, vörðust
af guðjónskri list með ellefu menn
fyrir aftan boltann. Fimm af næstu
sex leikjum Arsenal eru gegn Liver-
pool (þrisvar), Manchester United
og Chelsea og ljóst er að þessi lið
munu ekki reisa tjaldbúðir í eigin
vítateig. Hentar það Cesc og fé-
lögum til að þræða knöttinn gegnum
nálaraugað eða er liðið endanlega
sprungið á limminu?
Það verður við ramman reip að
draga hjá Arsenal í dag en liðið mæt-
ir Chelsea á Brúnni, þar sem blá-
stakkarnir hafa ekki lotið í gras í
fjögur ár eða í 77 deildarleikjum. Það
er einstakt afrek og vitaskuld löngu
orðið met. Ef til vill stappar það þó
stálinu í Arsenal að þeir voru síðasta
liðið til að leggja Chelsea á heima-
velli, 21. febrúar 2004. Í fyrra voru
þeir heldur ekki langt frá því að
stöðva sigurgönguna en Michael Es-
sien jafnaði á elleftu stundu fyrir
heimamenn. Síðan mátti Arsenal að
vísu þakka fyrir að fá ekki á sig tvö
til þrjú mörk í uppbótartíma þegar
Chelsea sat um mark þeirra. Tjöld-
uðu öllu til nema eldhúsvaskinum,
eins og sagt er í Englandi.
Það er engu líkara en kastljósið
hafi horfið á braut frá Brúnni með
hinum tungulipra José Mourinho,
enginn hefur velt meistaramöguleik-
um Chelsea fyrir sér í vetur enda
þótt liðið hafi lengst af komið í hum-
átt eftir toppliðunum. Nema vita-
skuld stuðningsmenn þess. Chelsea
hefur þrifist ágætlega í skugganum
og þegar Arsenal hóf skothríðina í
eigin fót á dögunum gengu þeir bláu
á lagið og eru komnir af nokkrum
þunga inn í baráttuna, ekki síst í ljósi
þess að liðið á ekki bara eftir á kljást
við Arsenal á heimavelli heldur Man-
chester United líka. Jafnteflið gegn
Sirkus Billys Smart, þ.e. Tottenham,
í vikunni var þó vont.
Engum blöðum er um það að fletta
að lið Chelsea hefur verið ógnar-
sterkt á umliðnum árum en flugelda-
sýningarnar fóru eigi að síður aðal-
lega fram á fréttamannafundum í tíð
Mourinhos. Hans er sárt saknað.
Þetta er að breytast undir stjórn
Avrams Grant og hokkíleikurinn
gegn Tottenham í vikunni, eins og
Mourinho hefði kallað hann, undir-
strikaði hvers vegna enska úrvals-
deildin ber af öðrum deildum.
Liðið hefur samt ekki fært fjöll í
vetur. Didier Drogba er fjarri sínu
besta og tilþrif Nicolas Anelkas
mælast enn ekki á Richters-kvarða.
Þá fellur Andriy Shevchenko hraðar
en íslenska krónan.
List einfaldleikans
Stígur þá inn á sviðið Frank nokk-
ur Lampard. Miðvellingur sem gert
hefur að meðaltali tuttugu mörk á
vetri undanfarin þrjú ár. Hann er
kominn í sautján nú þrátt fyrir að
hafa verið lengi frá vegna meiðsla og
er hvergi nærri hættur. Lampard er
ekki maður regnboga, skæra og hvað
þessar kúnstir allar heita. Hann
skýtur bara á markið – og skorar. Þá
er enginn núlifandi maður klókari að
nýta andstæðinginn sem batta.
Lampard er holdgervingur einfald-
leikans og gróflega vanmetinn.
Annar sigurvegari frá náttúrunn-
ar hendi, John Terry, rekur trippin
sem fyrr og járnvilji hans verður að
líkindum drjúgur á lokasprettinum.
Þriðji Englendingurinn, Joe Cole, er
hugmyndaríkastur leikmanna
Chelsea og hefur verið í fínu formi að
undanförnu. Gekk á vatni gegn Tott-
enham. Þá er dýptin mikil í leik-
mannahópnum, ekki síst á miðjunni.
Allt er sumsé klárt fyrir vortörnina
og enginn skyldi því afskrifa þá bláu.
Af öðrum stórleikjum framundan
má nefna Arsenal - Liverpool 5. apr-
íl, Man. Utd - Arsenal 12. apríl og
Chelsea - Man. Utd 26. apríl.
Báðir leikir dagsins verða að sjálf-
sögðu í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport 2. Manchester United tekur á
móti Liverpool kl. hálf 2 og Chelsea
fær Arsenal í heimsókn kl. 4.
Hvað eru mörg 2 í því?
Er hérinn
genginn úr
skaftinu?
KNATTSPYRNA»
Reuters
Liverpool Gerrard og Torres.
Reuters
Arsenal Fàbregas og Adebayor.
Páskadagur er dagur uppgjörs í Eng-
landi – toppliðin fjögur kljást innbyrðis
Reuters
Chelsea Lampard og Drogba.
Reuters
Man. Utd Ronaldo og Rooney.
»United hlaut 89 stig ífyrra og gæti að
hámarki náð 94 stigum
nú, misstigi liðið sig
ekki á lokasprettinum.
Það verður þó að teljast
líklegt að deildin vinnist
á færri stigum nú en
nokkur undanfarin ár,
þar sem toppliðin eiga
eftir að taka hvert á
öðru á víxl næstu vik-
urnar.
» Tími háspennulína er liðinn.
Ásta Þorleifsdóttir , varaformaður stjórn-
ar Orkuveitunnar sem jafnframt er for-
maður stjórnar Reykjanesfólksvangs, en
stjórnin telur að háspennulínulagnir muni
skerða upplifun og ánægju almennings af
útivist í fólkvanginum.
» Þetta virkar eins og þingflokkurinn sé ekki í
miklu jafnvægi.
Guðlaugur Þór Þórðarson , heilbrigð-
isráðherra, um ályktun þingflokks Vinstri
grænna um stöðu heilbrigðiskerfisins.
» Við verðum að undirbúaokkur eins og við værum
örugglega að fara inn í örygg-
isráðið.
Nikulás Hannigan , skrifstofustjóri al-
þjóðamálaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins.
» Hamas og aðrir hryðju-verkahópar á þeirra vegum
standa fyrir daglegum árásum á
ísraelsk heimili,
skóla, sjúkrahús, trúarskóla
og barnaheimili með það eitt
að markmiði að drepa sem
flesta.
Miryam Shomrat , sendiherra Ísraels á Ís-
landi með aðsetur í Osló, í aðsendri grein í
Morgunblaðinu.
» Ef áfengi verður sett í versl-anir verður það fyrst og
fremst þetta fólk [gamla fólkið]
sem eykur neysluna, ekki ung-
lingarnir.
Þórarinn Tyrfingsson , yfirlæknir á Vogi,
kynnti umfang og starfsemi SÁÁ þegar
nýtt húsnæði göngudeildar SÁÁ á Ak-
ureyri var tekið í notkun. Í máli hans kom
fram að áfengissjúkum eldri en 55 ára
hefði fjölgað.
» Vangaveltur manna um aðSeðlabankinn sé líklegur til
þess að lækka vexti á næsta
fundi sínum í apríl eru mun ólík-
legri en áður, held ég að flestir
hljóti að sjá.
Ummæli vikunnar
Skiptir liturinn máli? Ungmennahreyfing Rauða krossins stóð fyrir uppá-
komu í Smáralind sem var þáttur í Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti.
Morgunblaðið/Ómar