Morgunblaðið - 23.03.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 23
verkin verði enn ólíkari í framtíð-
inni.“
Sverrir hefur ekki leikið í leik-
húsi um hríð vegna verkefna í
sjónvarpi og kvikmyndum. En
núna leikur hann í borgarleikhús-
inu í Gautaborg, í bandarísku nú-
tímaverki, Lights eftir Howard
Corder, sem gerist á Manhattan.
Sverrir segir notalegt að ganga
aftur inn í leikhúsheiminn eftir
nokkurt hlé.
„Það er mjög góð stemning í
leikhúsinu í Gautaborg. Það er svo
gott að koma inn á stofnun þar
sem allir taka svo vel á móti
manni og fer vel um mann. Maður
kynnist líka öllum. Í kvikmynda-
tökum koma leikarar oft bara á
staðinn í 2-3 daga og eru kannski
óöruggir svo það er erfiðara að
kynnast fólki við þær aðstæður.“
Og hvað leikurðu í þessu verki í
Gautaborg?
„Ég er svona ungur drengur á
leið í ræsið,“ segir Sverrir og
hlær.
Lærdómsríkur samanburður
Sverrir hefur leikið í fjölda kvik-
mynda og sjónvarpsmynda til
þessa. En það verk sem hann
kveðst hvað ánægðastur með hing-
að til er sjónvarpsserían Upp til
kamp. Hún var byggð á sögu-
legum heimildum um þjóðfélags-
hræringar og tíðaranda í Gauta-
borg á árunum 1966-76.
„Þar var ég að vinna með besta
fólkinu í Svíþjóð,“ segir Sverrir.
„Leikstjórinn, Mikael Marcimain,
er ótrúlega klár og tökumaðurinn
á heimsmælikvarða. Þeir vinna
alltaf saman og eru mjög flinkir.
Þessir þættir byggðu á ýmsum
sögulegum atburðum í Gautaborg
á þessum árum. Svo var vafið inn í
söguna efni úr heimildarmyndum.
Þarna var verið að loka slippnum í
höfninni og vinsælum klúbbi og
brutust út óeirðir vegna þess. Við
hittum fullt af fólki sem sagði okk-
ur frá þessum tíma og það var
unnin mikil heimildavinna. Ég
vona að þessir þættir verði ein-
hvern tíma sýndir á Íslandi, þeir
eru mjög góðir.“
En þarna settirðu þig inn í póli-
tíska ólgu þess tíma, mótmæli og
verkalýðsbaráttu. Hvernig er að
bera þann tíma saman við tíð-
arandann í dag og það unga fólk
sem þú umgengst núna?
„Það er mjög athyglisverður
samanburður. Þetta var bara allt
annar tími. Það er svo sem ým-
islegt að gerast núna en allt í
minni hópum. Það voru stærri
hópar á þeim tíma sem voru að
vinna að sama markmiði. Núna
eru kannski miklu fleiri litlir
hópar að vinna að alls kyns hlut-
um en það er ekki sami stormur
eins og var þegar rokkið kom og
verið var að mótmæla alls kyns
hlutum ’68-’70. Ég held að marga
dreymi um að fá það aftur.“
Að fólk sé með sterkari mein-
ingar, láti meira í sér heyra?
„Einmitt.“
En ertu þá ekki búinn að læra
og temja þér annars konar hluti
en jafnaldrarnir sem þú um-
gengst dags daglega?
„Jú, jú. Í þessum þáttum
þurfti ég til dæmis að temja mér
að tala hægar. Fólk talaði hægar
á þessum tíma, ég veit ekki af
hverju. Þú sérð það bara á heim-
ildarmyndum frá þeim tíma. Svo
reykti það miklu meira. Maður
þarf að kynna sér hvernig allt
var hverju sinni og nýta sér
það.“
Sverrir kveðst hafa verið van-
ur að vinna meira út frá eðl-
isávísun sem leikari fram að
gerð þessara þátta. Við gerð
þeirra hafi hann hins vegar þurft
að temja sér önnur vinnubrögð.
„Þá þurfti ég meira að vera
með karakterinn á hreinu áður
en tökur byrjuðu svo að hann
væri réttur í hverri senu þar
sem serían spannar 10 ár. Ég lék
söngvara í rokkhljómsveit og
þurfti að vita hvað var að gerast
hjá honum hverju sinni.“
„Íslendingar eru brjálaðir!“
En þú hefur líka verið að
vinna með þekktum sænskum
leikurum af eldri kynslóðinni. Er
það ekki athyglisverður kúltúr
að kynnast?
„Maður kynnist auðvitað voða
mörgum leikurum og sífellt í
nýju umhverfi. Ég hef til dæmis
unnið mikið með Börje Alstedt
sem var í Fanny og Alexander.
Og Harriet Anderson og svo
Reine Brynjolfsson.“
Hvernig hafa þessir eldri jaxl-
ar tekið ungum kollega frá Ís-
landi?
„Mjög vel. Oft þegar maður
vinnur með þessum eldri þá taka
þeir mann að sér og hjálpa
manni. Stundum þegar ég var
yngri kom reyndar fyrir ef ég
lék á móti eldri leikara að þegar
hann var búinn að taka sitt skot
í senu þá bara fór hann. Og ég
þurfti kannski að leika á móti
límbandi. Þá lærði ég að maður
verður að setja kröfur. Ekki bara
að taka svona hlutum brosandi.
Maður lærir smám saman að
segja já og nei. Án þess að vera
með frekju.“
Nú eiga Svíar mun meiri og
lengri hefð fyrir bæði kvik-
myndagerð og gerð leikins sjón-
varpsefnis en við. Hvernig er að
komast í návígi við þessa hefð
fyrir strák frá Íslandi eins og
þig?
„Það er bæði gott og vont.
Stundum er allt gert í gamalli
rútínu. Ég hef rekið áróður fyrir
meiri æfingum fyrir kvikmynda-
tökur í Svíþjóð. Enda oft miklu
fleiri sem sjá sjónvarpsmyndir
eða kvikmyndir en leiksýningar,
áhorfendur geta hæglega verið
500 þúsund eða milljón. Samt er
ekkert sérstaklega mikið æft áð-
ur en tökur byrja. Ég held að
tökur þurfi meiri undirbúnings-
tíma. Það myndi hjálpa sænskum
kvikmyndum mikið.“
En hefurðu lent í slíku?
„Í Upp til kamp fengum við
ágætis undirbúningstíma en síðan
hittumst við þremur vikum fyrir
tökur enda vildum við það. Okkur
fannst það mikilvægt. Þetta varð
líka á endanum meira en bara
sjónvarpsmyndatökur, þetta varð
meira eins og lífsstíll í fjóra mán-
uði. Það var mjög sérstakt. En
það borgaði sig. Þetta ætti að
vera innbyggt í starf leikarans.“
Sverrir kveðst annars oft hafa
lent í því, sér í lagi í leikhúsinu,
að vera lengi að komast „inn í
persónu“ sem hann eigi að leika.
„Maður er alltaf að undirbúa
sig og undirbúa en svo smellur
persónan ekki saman fyrr en í
lokin. Mér hefur stundum ekki
staðið á sama. En svo kemur það
allt saman á endanum. Kannski
er þetta bara mín aðferð við að
ná tökum á viðkomandi persónu.“
Nú hafa Íslendingar gaman af
að rækta með sér fordóma um
Svía. Hefurðu kynnst einhverju
viðlíka hjá Svíum um Íslendinga?
„Nei, alls ekki. Svíar virðast
halda mikið upp á Íslendinga og
Ísland. Ef þú segist vera Íslend-
ingur í Svíþjóð finnst öllum það
bara gaman og spennandi og þeir
segjast ætla að koma til Íslands.“
En þú hefur unnið með nokkr-
um sænskum leikurum sem hafa
komið til Íslands og leikið í ís-
lenskum kvikmyndum, fólki eins
og Reine Brynjolfsson og líka
Alexöndru Rapaport. Hvernig
láta þau af þeirri reynslu?
„Þegar maður talar við Svía
sem hafa unnið á Íslandi segja
þeir oft „Íslendingar eru brjál-
aðir!“ Þeir tala mikið um það
hvernig Íslendingar skemmti sér
og þeim virðist finnast Íslend-
ingar mjög skemmtilegir. Og svo-
lítið bilaðir líka. Á góðan hátt. Ég
hef annars fylgst aðeins með ís-
lenskum kvikmyndum síðustu ár
og mér finnst Íslendingar yfirleitt
rosalega duglegir við að reyna sí-
fellt eitthvað nýtt, bæði í tónlist
og kvikmyndum. Það er eins og
það sé allt í lagi að vera „listrænn
og öðruvísi“ á Íslandi og reyna
nýja hluti sem geta síðan heppn-
ast alla vega. Það mætti stundum
vera meira af því í Svíþjóð.“
Væri ríkari en ekki jafn
hamingjusamur
Sverrir býr allajafna í Stokk-
hólmi. Hann á unnustu þar og tvö
börn og vinahópurinn telur bæði
fólk úr leikhús- og kvikmynda-
geiranum og aðra.
Hvað heldurðu að þú værir að
gera ef þú hefðir ekki farið í leik-
listina?
„Ég væri örugglega mjög rík-
ur.“
Af hverju heldurðu það?
„Ég bara hef það á tilfinning-
unni. En ég væri ekki jafn ham-
ingjusamur. Það var reyndar allt-
af sagt við mig þegar ég var
yngri að ég ætti ekki að loka
neinum dyrum, ég ætti að sjá til
þess að geta valið þegar ég yrði
eldri en ekki bara að kasta mér
út í leiklistina. En einhvern veg-
inn gat ég það aldrei.“
En með leiklistinni ertu
kannski að rækta hliðar á þér
sem þú hefðir ekki gert annars?
„Já, örugglega. Ég er nátt-
úrlega ekki dópisti. Og ég er ekki
bara engill. En það er ágætt að fá
að spreyta sig á því í hlutverkum
að prófa hvort tveggja. Ég man
að þegar mamma hafði séð annan
þáttinn af Upp til kamp, þar sem
ég fer alveg í ræsið þá hringdi
hún strax og sagði „Ó, Guð, svona
hefði getað farið fyrir þér!““
Og hefði það getað gert það?
Ertu „ræsiskandídat“ í þér?
„Ég held reyndar ekki. Ég hef
alla vega aldrei fundið að ég hefði
í alvöru tilhneigingu til að fara í
ræsið.“
Aftur á leiksviðið Sverrir fyrir miðri mynd í leikritinu Storstadsljus (The
Lights) sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu í Gautaborg í síðustu viku.
Persónan þróuð Sverrir markaður
af reynslunni en persónan sem
hann leikur í Upp til kamp eldist
um tíu ár í þáttunum.
»Mér fór að líða miklu betur í Svíþjóð eftir að
ég byrjaði að leika. Í gaggó vissi ég ekki alveg
hvað ég var að gera hér. Ég fór hægt í gegnum
lífið og var ekkert sérstakt að gera, en með leik-
listinni var ég kominn með markmið.
Skáldið í farteskinu Sverrir sem
Ólafur Kárason Ljósvíkingur í Ljósi
heimsins, opnunarsýningu Borg-
arleikhússins 1989.
Rokkuð hlutverk Sverrir fyrir miðri mynd sem rokksöngvarinn Tommy
Berggren í þáttunum Upp til kamp.
WWW.EBK.DK
Á þessum fundi þar sem hægt er að fá einkaviðtöl getum við kynnt þig fyrir þeim byggingarmöguleikum sem í boði
eru fyrir þig miðað við húsin okkar, byggingaraðferðir og afgreiðsluskilyrði við að reisa hús á Íslandi. Gerum tilboð
samkvæmt ykkar hugmyndum og óskum.
Skráning í einkaviðtal á www.ebk.dk eða beint hjá söluráðgjafa: Trine Lundgaard Olsen - farsími nr. +45 61 62 05 25 –
netfang: tlo@ebk.dk – Anders Ingemann Jensen - farsími nr. +45 40 20 32 38 – netfang: aj@ebk.dk
Vinsamlegast virðið tímaskráningu.
OPIÐ HÚS – Sunnudaginn 30. mars kl. 13.00-16.00 Refsholt 10 í Hálsaskógi, Skorradal
Komdu og kynnstu danskri hágæðaframleiðslu, orlofshúsum sem teiknuð eru af arkitektum og sniðin að óskum
viðskiptavinarins sem og íslenskri veðráttu. Sort Søholm húsið er 87 fm og býður upp á spennandi og opinn
arkitektúr með 16 fm yfirbyggðri verönd, 3 herbergjum og stóru og björtu stofu- og borðstofurými. Tveir sölu- og
byggingaráðgjafar okkar sem eru dönsku- og enskumælandi, verða á staðnum og veita þér nánari upplýsingar um
möguleika og tilhögun. Ef þú ert með ákveðnar byggingarhugmyndir um orlofshús getur þú einnig rætt þær við okkur.
Húsið sem er til sýnis er í einkaeign og ekki til sölu.
EBK Huse A/S hefur meira en 30 ára reynslu af því að byggja og reisa sumarbústaði úr tré.
Þekkt dönsk gæðahönnun. EBK Huse er meðal leiðandi fyrirtækja á markaðinum, með
4 útibú í Danmörku og 4 útibú í Þýskalandi. Höfum einnig margra ára reynslu af
sumarhúsbyggingum á Íslandi, Þýskalandi og Færeyjum.
EBK Huse A/S býður hér með til byggingarfundar 29. mars 2008 í Reykjavík
V/ BELLA CENTER: +45-32 52 46 54, C.F. Møllers Allé, Ørestaden, København
Mán.- mið. og lau. kl. 13-17, Sun. og helgidaga kl. 11-17
8
1
5
7
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
DANSKIR GÆÐASUMARBÚSTAÐIR (HEILSÁRSBÚSTAÐIR)