Morgunblaðið - 23.03.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 35
UMRÆÐAN
ALÞJÓÐAVEÐURDAGURINN
23. mars hefur verið haldinn hátíð-
legur hjá veðurstofum víða um heim
ár hvert frá stofndegi Alþjóðaveð-
urfræðistofnunarinnar WMO þenn-
an dag 1950. Í ár er dagurinn tileink-
aður veðurathugunum undir
kjörorðinu „Jörðin skráð og skoðuð
til bættrar framtíðar“ (Observing
our planet for a better future) og er
þá vísað til mikilvægis veðurathug-
ana og mælinga. Með þessu er WMO
að leggja áherslu á vísindalegt og
fjárhagslegt mikilvægi framlags
þeirra stofnana sem starfa að veður-
og vatnafræðilegum athugunum út
um allan heim.
Veðurathuganir í 350 ár
Fyrstu skrefin til kerfisbundinna
athugana og mælinga á veðrinu voru
stigin um miðja 17. öld og árið 1654
var fyrsta alþjóða veðurathug-
unarkerfið sett á laggirnar. Sjö
stöðvar, þar af þrjár á N-Ítalíu, auk
Parísar, Varsjár, Innsbruck og Osna-
bruck voru reknar í 12 ár með sam-
ræmdum aðferðum og mælitækjum
til veðurathugana. Mjög er mismun-
andi hversu lengi eða samfellt veð-
urathuganir voru gerðar á einstökum
stöðum víðs vegar um heiminn næstu
tvær aldirnar eða svo. Til eru staðir
sem eiga sér meira en 250 ára sam-
fellda veðurathuganasögu en segja
má að reglulegt og samhæft athug-
anakerfi í Evrópu fari ekki að byggj-
ast upp fyrr en um og eftir miðja 19.
öld. Hér á landi eru elstu heimildir
um reglubundnar veðurathuganir frá
1749 á Bessastöðum en þar voru þá
gerðar athuganir um tveggja ára
skeið. Allvíða á landinu var veðrið
mælt, skoðað og skráð um lengri eða
skemmri tíma þar til 1845 er mæl-
ingar hófust í Stykkishólmi. Síðan þá
hafa verið stundaðar samfelldar
mælinga þar og er sú mælingasaga
ein hin merkasta í náttúrufarssögu
Íslands.
Heimskerfi veðurathugana
Upp úr 1960 beitti WMO sér fyrir
samstarfi við ríkisveðurstofur heims-
ins um að setja upp samræmt heims-
kerfi veðurathugana World Weather
Watch. Þetta mikilvægasta verkefni
WMO nær yfir hvers kyns athuganir
og mælingar á veðri og eiginleikum
andrúmslofts. Það tekur einnig til
stöðlunar á mæliaðferðum og mæli-
tækjum, greiningu, úrvinnslu og
dreifingu gagna um veður og aðra
þætti sem falla að starfsemi veð-
urstofa. Öll 188 aðildarríki WMO
taka þátt í þessu verkefni sem hefur
þróast, stækkað og tekið breytingum
í takt við þá miklu byltingu sem orðið
hefur í upplýsingatækni á liðnum
áratugum. Innan Sameinuðu þjóð-
anna er WMO talin vera til fyr-
irmyndar um árangursríkt alþjóðlegt
samstarf. Á síðasta áratug eða svo
hafa mælingar og athuganir á veðri
og hinum ýmsu þáttum andrúmslofts
vaxið mjög. Sjálfvirkar veðurathug-
anir á landi og sjó gegna sífellt
stærra hlutverki og hafa víða tekið að
nokkru leyti við af mönnuðum athug-
unum. Samvirk veðurratsjárkerfi
skanna nú heilu löndin eða álfurnar
og veðurgervitungl senda sífellt ná-
kvæmari og víðtækari gögn til jarðar
um ástand lofthjúpsins og yfirborðs
jarðar. Þá sendir hluti af flugflota
heimsins upplýsingar um veður í há-
loftunum með sjálfvirkum hætti
Þátttaka Veðurstofu Íslands
Ísland er á einu veðurvirkasta
svæði norðurhvels jarðarinnar og
lætur því að líkum að Veðurstofan
tekur virkan þátt í alþjóðlegu sam-
starfi á sviði veðurathugana. Raunar
er það svo að Íslendingar, fámenn
þjóð í stóru landi með víðáttumikla
efnahagslögsögu, leggja meira til
veðurathugana en nokkur önnur þjóð
heimsins, sé tillit tekið til fólksfjölda.
Fyrir um 13 árum var stofnað til
formlegs athuganasamstarfs evr-
ópskra veðurstofa, EUCOS (EUmet-
net Composite Observing System),
um að auka veðurathuganir á haf-
svæðum Evrópu, einkum
N-Atlantshafi. Hefur
Veðurstofan lagt þessu
verkefni lið, einkum á
sviði athugana með rek-
duflum og veðurathug-
unum á skipum, ekki síst
háloftaathugunum frá
einu skipi Eimskipa-
félagsins. Þá er að hefj-
ast samstarf við Ice-
landair um athuganir úr
flugvélum félagsins.
Veður og vatn
WMO er ekki einungis al-
þjóðastofnun um samstarf í veð-
urfræði, heldur einnig
í vatnafræði. Ein-
kunnarorð stofnunar-
innar eru veður, vatn
og loftslag og vísar
þar til stærstu mála-
flokka sem undir
stofnunina heyra. Al-
þjóðadagur vatna-
fræðinnar er 22. mars
og liggja því dagar
vatns og veðurs sam-
an. Eins og alþekkt er
vefjast þræðir vatns
og veðurs náið saman
í náttúrunni og móta þannig allt líf á
jörðinni. Þá má rekja um 90% allra
náttúruhamfara í heiminum til veð-
urs, vatns og vatnsleysis. Með þetta í
huga er sérstakt fagnaðarefni að hér
á landi skuli hafa verið ákveðið að
sameina Veðurstofu Íslands og
Vatnamælingar frá næstu áramót-
um. Slík sameining gefur tækifæri til
samlegðar og aukins ávinnings á fjöl-
mörgum sviðum náttúruvöktunar,
þjónustu, rannsókna og ráðgjafar. Þá
skiptir máli að nánast öll náttúruvá
verður vöktuð af sameinaðri stofnun
þar sem fyrir er á Veðurstofunni
rekstur á kerfum sem fylgjast með
jarðhræringum og eldsumbrotum.
Lokaorð
Ísland býr við miklar auðlindir
sem tengjast veðri og vatni. Sjálfbær
nýting þeirra byggist m.a. á athug-
unum og mælingum, rannsóknum og
ráðgjöf. Stjórnvöld hafa lagt áherslu
á að efla á næstu árum gagnaöflun
um umhverfi og náttúru Íslands. Því
ber að fagna á dögum vatns og veð-
urs.
Mikilvægi veðurathugana og mælinga
Magnús Jónsson skrifar í tilefni
af alþjóðaveðurdeginum »Raunar er það svo að
Íslendingar leggja
meira til veðurathugana
en nokkur önnur þjóð
heimsins, sé tillit tekið
til fólksfjölda.
Magnús Jónsson
Höfundur er veðurstofustjóri.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Skúlatúni 2 ı 105 Reykjavík. Sími þjónustuvers er 411 1111. www.reykjavik.is/fs
Framkvæmdir eru hafnar við ofanverðan Skólavörðustíg, en um er að ræða 2. áfanga í endurnýjun götunnar.
Framkvæmdasvæðið nær frá Týsgötu upp að Njarðargötu og er áætlað er að framkvæmdum verði lokið fyrir 31. júlí og
gróðursetning fari fram í lok september.
Þetta er umfangsmikil framkvæmd og því biðjum við borgarbúa að sýna okkur skilning og þolinmæði. Allt yfirborð götu
og gangstétta verður endurnýjað ásamt lögnum veitufyrirtækja, skipt um jarðveg og snjóbræðsla sett í götu og gangstéttar.
Í yfirborðsfrágang verður notað íslenskt efni eins og kostur er, þar með talinn grásteinskantur, grásteinspollar og hellur,
ásamt trjágróðri. Akbrautir verða malbikaðar, en gangstéttir og upphækkanir á gatnamótum verða stein- og hellulagðar.
Opið fyrir gangandi umferð
Lokað er fyrir bílaumferð en haldið verður opinni gönguleið
um svæðið á verktímanum. Framkvæmdir eru þegar hafnar á
svæðinu frá Týsgötu upp að Kárastíg, en frá og með 25. mars
nær framkvæmdasvæðið alla leið upp að Njarðargötu. Fram
yfir páska verður því opið fyrir bílaumferð frá Njarðargötu
niður að Kárastíg. Framkvæmdir hefjast í akbrautinni, með
endurnýjun frárennslis- og vatnslagna.
Þegar vinna við götuna er langt komin, hefst vinna í
gangstéttum af fullum krafti, en umferð gangandi vegfarenda
verður þá beint á götuna. Þannig er reiknað með að slík
umferð verði að mestu á varanlegu yfirborði þótt á einhverjum
tíma geti brugðið út af því.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Framkvæmda- og eignasviðs: www.reykjavik.is/fs og
ábendingum má koma til skila á vefslóðinni: 12og.reykjavik.is
Þessa teikningu má sækja sem pdf-skjal á vefsíðunni www.reykjavik.is/fs
FR
A
03
08
-0
6
ve
rk
Framkvæmdir eru hafnar við
endurbyggingu efri hluta Skólavörðustígs
Áætluð verklok eru 31. júlí
Opnum í sumar
nýjan og glæsilegan
Skólavörðustíg