Morgunblaðið - 23.03.2008, Side 54
... kjarnorkukraftur
og markviss festa, full
af myrkri og skuggum … 57
»
reykjavíkreykjavík
FRÆÐSLUDEILD Þjóðleikhúss-
ins og Bandalag íslenskra leikfélaga
ætla 29. mars nk. að halda eins dags
námskeið um uppsetningu á leikrit-
inu Baðstofunni eftir Hugleik Dags-
son. Á námskeiðinu er skyggnst bak
við tjöldin í leikhúsinu og fá leik-
húsáhugamenn tækifæri til að kynn-
ast þessari áhugaverðu sýningu bet-
ur, umgjörð sýningarinnar, hug-
myndavinnu og nálgun listrænna
stjórnenda.
Á vef Þjóðleikhússins segir að í
Baðstofunni sé ekki allt sem sýnist,
skuggarnir langir og skíman af
skornum skammti. „Þar hlustum við
á sögur af fólki og fyrirbærum. Við
syngjum og dönsum og drekkum.
Við fæðumst og deyjum. Þar ríkir
glaumur og gleði. En í lokrekkj-
unum leynast myrkraverk og úti
bíður andlit á glugga.“
Í verkinu beinir Hugleikur sjón-
um að fortíð Íslendinga og á verkið
að gerast í „kringum sautján hundr-
uð og súrkál“. Skepnu einni skolar á
land við bæinn Logn en sá atburður
hrindir af stað heldur óvenjulegri at-
burðarás því skepnan reynist enginn
aufúsugestur.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur
á námskeiðinu sjái sýningu á Bað-
stofunni föstudagskvöldið nk., 28.
mars, en næsta dag verður þeim svo
boðið í Kassann til kynningar á
verkinu og gefst þá tækifæri til að
ræða það við listræna hönnuði, leik-
stjóra og leikara.
Að Baðstofunni stendur hópur
listamanna sem áður hefur unnið
saman með góðum árangri. Stefán
Jónsson leikstýrir, Ilmur Stef-
ánsdóttir myndlistarkona sér um
leikmynd, Egill Ingibergsson um
lýsingu, Þórunn Elísabet Sveins-
dóttir um búninga og hljómsveitin
Flís sér um tónlistina auk þess sem
hljómborðsleikarinn Davíð Þór
Jónsson kemur fram í verkinu.
Ráðgert er að dagskrá standi frá
kl. 10-16 með matar- og kaffihléum
og þátttökugjald er kr.10.000 með
leikhúsmiða.
Tekið er við skráningum til 25.
mars. Áhugasamir sendi póst á net-
fangið info@leiklist.is eða hringi í
síma 551-6974.
Skyggnst inn í Baðstofuna
Úr Baðstofunni Skepnu einni kynlegri skolar á land við bæinn Logn. Bryn-
hildur Guðjónsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson í hlutverkum sínum.
Eins dags námskeið haldið um uppsetningu leikverksins
Eftir Gunnhildi Finnsdóttir
gunnhildur@mbl.is
„MAMMA yrði ekki hress ef ég kæmi aldrei
heim. En ég er búin að vera á svo miklu flakki
eitthvað að ég veit ekki lengur hvað er heima,“
segir Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir tón-
listarkona. Hildur útskrifaðist af nýmiðlabraut
tónlistardeildar LHÍ árið 2002 og hefur komið
víða við síðan, en er að festa rætur í Berlín.
„Þetta er besti staðurinn í heiminum til að búa
á. Það er svo ríkt mannlíf og virkt listalíf og
ódýrt að lifa og ferðast.“
Hún hefur bækistöðvar í Berlín, en ferðast
þaðan til þess að spila út um allan heim og
kann vel við flökkulífið. „Akkúrat núna er ég í
Ástralíu að túra með hljómsveitinni múm, við
erum búin að vera á tónleikaferðalagi síðasta
mánuðinn,“ segir Hildur. Ferðalagið hefur
gengið vel að hennar sögn. „Það hefur verið
mjög góð stemning og við höfum fengið fínar
viðtökur. Þetta er svo yndislegt fjölskyldulíf
hjá þessari hljómsveit og Ástralir hafa verið
mjög vinalegir. Við vorum að tala um það áðan
að við þyrftum að slaka aðeins á í gríninu, en
það eru bara allir svo fyndnir í þessari hljóm-
sveit.“
Hún var þó farin að sjá rúmið sitt í Berlín í
hillingum fyrir helgina. „Undir lokin á svona
mánaðartúr fer mann að klæja í puttana að
komast heim. En það eru svo mikil forréttindi
að fá að spila músík um allan heim, þannig að
maður getur varla kvartað yfir því.“
Sellósúpan væntanleg í haust
Meðfram því að starfa með múm er Hildur
að leggja drög að annarri sólóplötu sinni, en sú
fyrsta kom út árið 2006 og bar nafnið Mount A.
„Það er mikið selló í sólómúsíkinni minni. Það
á eftir að koma lokamynd á það hvernig þetta
verður, en sellóið verður í aðalhlutverki. Ég
kalla það sellósúpu, þá er ég að margtaka upp
þannig að ég verð eins manns sellóhljómsveit.“
Platan hefur ekki enn fengið nafn, en ef allt
gengur samkvæmt áætlun lýkur vinnu við
hana í sumarlok og hún verður þá komin í hill-
ur verslana í haust. Henni verður dreift um all-
an heim af breska útgáfufyrirtækinu Touch
sem hefur gefið út tónlist eftir fleiri íslenska
tónlistarmenn, til dæmis þá Jóhann Jóhanns-
son og Hilmar Örn Hilmarsson.
Það fyrsta sem liggur fyrir þegar Hildur
snýr aftur til vinnu eftir páskana er tónsmíðar
fyrir Listahátíð í Reykjavík. „Ég er að gera
músík ásamt Kiru Kiru og þýskum vini mínum,
Dirk Desselhaus, fyrir Íslenska dansflokkinn
og norskan dansflokk sem heitir Carte Blanche
og svo spila ég í sýningunni. Við semjum tón-
listina í kringum dansverkið og útgangspunkt-
urinn þar er hvalur. Það verður spennandi að
sjá hvernig það kemur út.“
Veit ekki lengur hvað er heima
Með sellóið úti í náttúrunni „Það eru
svo mikil forréttindi að fá að spila
músík um allan heim,“ segir Hildur
Ingveldardóttir Guðnadóttir.
Morgunblaðið/Golli
Múm-arar Hildur er á ferð um Ástralíu þessa dagana með þeim Örvari og Gunnari í múm.
Hildur Ingveldardóttir
Guðnadóttir býr í
Berlín en leikur tónlist
um allan heim