Morgunblaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.05.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 13 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is KOLMUNNAVERTÍÐIN er búin hjá íslensku skipunum, að minnsta kosti í bili. Í gær var Hoffell SU-80 frá Fáskrúðsfirði eina skipið á mið- unum við Færeyjar, allur flotinn var farinn heim. „Þetta er mjög dapurt, nánast engin veiði,“ sagði Páll Rúnarsson skipstjóri á Hoffelli í gær. Skipið var þá á öðrum degi á miðunum ásamt þremur til fjórum færeyskum skipum en öll hin íslensku skipin bú- in að gefast upp. Hoffell var að reyna fyrir sér 30 til 40 mílur vestur af Færeyjum með litlum árangri. „Ætli við verðum ekki við þetta í tvo til þrjá daga í viðbót,“ sagði Páll í gær. Hækkun olíuverðs hefur áhrif Tólf til fimmtán íslensk skip voru við kolmunnaveiðar við Færeyjar í apríl og fram í maí. Fín veiði var syðst í færeysku lögsögunni. Fyrir viku datt botninn alveg úr veið- unum. „Kolmunninn þokaðist norð- ur og gufaði nánast upp. Hann er alltaf að flýta sér. Þetta er mánuði fyrr en undanfarin ár,“ sagði Páll. Búið er að leita alla færeysku lög- söguna en kolmunninn er svo dreifð- ur að varla borgar sig að veiða. Hækkun olíuverðs hefur áhrif á þessar veiðar, eins og aðrar. Ekki borgar sig að eltast við kolmunnann nema tiltekinn lágmarksafli fáist. Páll Rúnarsson nefndi að það þyrfti 300 tonn á dag til að veiðarnar stæðu undir sér. 114 þúsund lestir á land Kolmunnaafli íslenskra skipa í færeyskri lögsögu og á alþjóðlegu hafsvæði var tæplega 75 þúsund lestir í aprílmánuði, samkvæmt yf- irliti Fiskistofu. Fyrstu fjóra mán- uði ársins var heildaraflinn liðlega 110 þúsund lestir. Er það heldur meira en á sama tíma á síðasta ári og svipað og árið 2006. Eitthvað hef- ur bæst við í maí. Samkvæmt yfirliti Samtaka fiskvinnslunnar um til- kynntar landanir að undanförnu er heildaraflinn komin yfir 114 þúsund tonn. Að auki hefur verið landað 55 þúsund tonnum úr erlendum fiski- skipum, samkvæmt sömu heim- ildum. Íslensk skip hafa heimildir til að veiða um 232 þúsund tonn af kol- munna í ár. Í lok apríl höfðu skipin lokið við að veiða tæplega helming kvótans og að teknu tilliti til ann- arra landana eru eftirstöðvar útgef- ins kolmunnakvóta um 75 þúsund lestir. Nokkuð ljóst er að veiðunum við Færeyjar er lokið. Undanfarin ár hafa skipin náð afla í íslenskri lög- sögu á sumrin, einkum í júní. Óvissa ríkir um það nú. Að minnsta kosti er Páll Rúnarsson skipstjóri á Hoffelli ekki bjartsýnn á framhaldið: „Þetta lítur illa út eins og er. Það hefur far- ið stigminnkandi ár frá ári sem fæst í íslensku lögsögunni. Það má vera að eitthvað skili sér en þetta er orðið svo dreift.“ Kolmunninn gufaði upp                                                Í HNOTSKURN »Verksmiðja Síldarvinnsl-unnar hf. á Seyðisfirði hefur tekið við mestum kolmunnaafla, tæpum 43 þúsund tonnum sam- tals af íslenskum og erlendum skipum. Verksmiðja Síld- arvinnslunnar í Neskaupstað hefur tekið við liðlega 28 þúsund tonnum. »Eskja á Eskifirði hefur tekiðvið liðlega 32 þúsund tonnum af kolmunna það sem af er ver- tíð. Loðnuvinnslan á Fáskrúðs- firði hefur tekið við rúmum 26 þúsund tonnum og Ísfélag Vest- mannaeyja hf. (FES) hefur tekið við rúmum 24 þúsund tonnum. Hoffell SU er eitt eftir á miðunum ÚR VERINU „ÞAÐ er kropp, eitthvað að hafa,“ segir Ingi Jó- hann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gjög- urs ehf., útgerðar Há- konar EA-148. Hákon er kominn til síldveiða úr norsk-íslenska stofninum, fyrstur íslenskra skipa á þessari vertíð. Áður var færeyskt skip byrjað. Síldin er komin inn í íslensku landhelgina og var Hákon að veiðum norðaustan við landið í gær. Kroppið sem útgerðarmaðurinn talar um dugar fyrir lítið skip eins og Hákon, að hans sögn. Fara eftir sjómannadag Þótt skipin séu flest hætt kol- munnaveiðum í færeysku lögsög- unni er ekki reiknað með að þau fari almennt til síldveiða fyrr en eftir sjó- mannadag sem er eftir rúma viku og sum seinna. Veiðar á síld úr norsk-íslenska stofninum hafa byrjað í íslensku lög- sögunni í maí undanfarin ár en þó ekki fyrir alvöru fyrr en í júní. Þann- ig veiddust 3500 til 4000 tonn í maí í fyrra og hitteðfyrra. Sjómenn hafa verið að bíða eftir því að fiskurinn fitnaði svo hann hentaði betur til manneldisvinnslu. „Það er alveg klárt að menn hefðu viljað sjá hærra fituhlutfall – en við höfum líka oft byrjað með Hákon á þessum veiðum á þessum tíma,“ seg- ir Ingi. Síldin er fryst um borð og fer öll til manneldis. Hákon EA byrjaður á norsk-íslensku síldinni HAGSMUNAAÐILAR í sjávarút- vegi fagna þeirri ákvörðun sjávar- útvegsráðherra að heimila hrefnu- veiðar í ár. Sú ákvörðun er í samræmi við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999, segir í yfirlýsingu sem Landssamband ís- lenskra útvegsmanna, Sjómanna- samband Íslands, Félag skipstjórn- armanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér. Rifjað er upp að ástand hvala- stofna við Ísland er talið gott og það staðfest af helstu vísindamönn- um á sviði hvalarannsókna. Stærð hrefnustofnsins hafi verið talin ná- lægt sögulegu hámarki, en sam- kvæmt nýjustu talningu voru um 44.000 hrefnur á landgrunninu við Ísland. Hafrannsóknastofnunin hafi lagt til veiðar á allt að 400 hrefnum og bent á það mat stofn- unarinnar að slíkur fjöldi samrým- ist markmiðum um sjálfbæra nýt- ingu. „Ekki er annað hægt en að lýsa yfir undrun á þeirri afstöðu sem komið hefur fram af hálfu forystu- manna Samfylkingarinnar í málinu um að meiri hagsmunum sé fórnað fyrir minni. Þar vega hagsmunir helsta útflutningsatvinnuvegar þjóðarinnar, sjávarútvegsins, lítið.“ Atkvæðamesti afræninginn „Hrefnur og aðrir hvalir sem halda til hér við land éta um sex milljónir tonna af fæðu á ári hverju, en af þessari fæðu eru rúmlega tvær milljónir tonna fiskur. Hrefn- an er atkvæðamesti afræninginn, bæði hvað varðar heildarmagn, sem er um tvær milljónir tonna og fiskát, en talið er að hrefnur éti um eina milljón tonna af fiski á ári, m.a umtalsvert magn af loðnu og þorski en ýmislegt bendir til að hlutdeild eldri þorsks í fæðu hrefnunnar sé meiri en gert var ráð fyrir áður. Ár hvert fer fram lífleg umræða um heildarveiði þar sem oft er tek- ist á um hvort veiða eigi nokkrum tugum þúsunda tonna meira eða minna af helstu nytjategundum. Því er ljóst að hagsmunir Íslend- inga af því að veiða hvali eru miklir. Rétt þjóðarinnar til þess að nýta og ráðstafa eigin auðlindum getur svo reynst erfitt að verðleggja,“ segir í yfirlýsingu hagsmunasamtakanna. Fagna ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra vi lb or ga @ ce nt ru m .is GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir -hágæðaheimilistæki Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is Amerískir GE kæliskápar *Tilboðið gildir meðan birgðir endast. GCE21LGWFS – Stærð: h 176 x b 90,9 x d 60,7 sm – Með ryðfríum stálhurðum 381 ltr. kælir og 173 ltr. frystir – Orkunotkun: A TILBOÐ kr.: 219.900*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.