Morgunblaðið - 22.05.2008, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„NÝR kafli í sögu Líbanons“ og „einstakt sam-
komulag á einstökum tímum“ voru orð líbanskra
stjórnmálamanna um nýtt samkomulag sem náð-
ist í gær. Ríkisstjórn og stjórnarandstaða Líb-
anons hafa komist að samkomulagi eftir samn-
ingaviðræður í Katar undanfarna daga. Vonast
er til að með sáttunum náist að leysa stjórn-
arkreppu sem nú hefur staðið í 18 mánuði.
Helstu þættir samkomulagsins fela í sér kjör
Michels Suleimans, leiðtoga líbanska hersins, í
embætti forseta landsins, myndun þjóðstjórnar
og bann við notkun vopna í innanríkisdeilum.
Vegna deilnanna hefur þingið ekki getað kosið
forseta þó samstaða hafi verið um Suleiman í
embættið. Áætlað er að hann verði kjörinn nú
um helgina.
Samkomulagið er talið fela í sér aukið vægi
Hizbollah-hreyfingarinnar á þingi, en hún mynd-
ar öflugasta hluta stjórnarandstöðunnar. Með
auknum sætafjölda í þinginu verður stjórnarand-
stöðunni gert kleift að beita neitunarvaldi gegn
ákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Einnig gerir
samkomulagið ráð fyrir breytingum á kosninga-
lögum sem gætu haft afgerandi áhrif í þingkosn-
ingum á næsta ári.
Ánægja beggja fylkinga
Fulltrúar beggja fylkinga hafa lýst sig ánægða
með niðurstöður sáttaviðræðnanna. Vonir standa
til að með samkomulaginu verði bundinn endi á
átök undanfarinna vikna, sem talin eru þau
skæðustu í Líbanon frá því á tímum borgara-
styrjaldarinnar er lauk árið 1990. Talið er að 65
manns hafi látist í átökunum.
Eftir að tilkynnt hafði verið um niðurstöður
viðræðnanna sagði talsmaður stjórnarandstöð-
unnar að 18 mánaða mótmælum sem hafa lamað
starfsemi í miðborg Beirút verði hætt. Þegar var
hafist handa við að fjarlægja tjaldbúðir mótmæl-
enda sem komið hafði verið upp í miðborginni.
Líbanar vongóðir um
lausn stjórnarkreppunnar
AP
Gleði Líbanar fagna nýrri málamiðlun með
mynd af Michel Suleiman, tilvonandi forseta.
Mynduð verður þjóðstjórn og lagt bann við notkun vopna í innanríkisdeilum
FRANSKIR lögreglumenn leiða á brott mann sem tal-
inn er vera Javier Lopez Pena, öðru nafni „Thierry“,
leiðtogi basknesku hryðjuverkasamtakanna ETA.
Hann var handtekinn ásamt þrem félögum sínum er
lögreglan réðst inn í íbúð í Bordeaux rétt fyrir mið-
nætti á þriðjudagskvöld. ETA starfar aðallega á Spáni
og krefst sjálfstæðis héraðsins Baskalands. Talið er að
alls hafi 823 látið lífið í morðum og sprengjutilræðum
samtakanna á þeim fjórum áratugum sem þau hafa
starfað. Handtakan er sögð vera mikið áfall fyrir sam-
tökin sem er kennt um sex morð frá því í desember
2006 en fáir búast þó við að blóðug saga ETA sé á enda.
Reuters
Handsömuðu leiðtoga ETA
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama sagði í
fyrrakvöld að fullnaðarsigur
væri „innan seilingar“ í fimm
mánaða langri baráttu hans
við Hillary Clinton í forkosn-
ingum bandarískra demó-
krata. Obama hefur fengið
stuðning meirihluta kjörinna
fulltrúa á flokksþingi demó-
krata í ágúst, þegar forseta-
efni demókrata verður valið
formlega. Hann þarf nú að-
eins að tryggja sér 70 fulltrúa
til viðbótar til að vera örugg-
ur um sigur á Clinton og eiga
þar með möguleika á að verða
fyrsti blökkumaðurinn til að
verða kjörinn í embætti for-
seta Bandaríkjanna.
Segja má að það myndi
ganga kraftaverki næst ef
Hillary Clinton tækist að ná
því markmiði sínu að verða
næsta forsetaefni demókrata.
Til þess þyrftu margir af svo-
nefndum „ofurfulltrúum“ að
hætta við að styðja Obama og
snúast á sveif með Clinton.
Alls fá 796 ofurfulltrúar sjálf-
krafa atkvæðisrétt á flokks-
þinginu og þeir eru ekki
bundnir af niðurstöðu for-
kosninganna.
Clinton kvaðst þó ekki ætla
að hætta baráttunni við
Obama fyrr en forkosning-
unum lyki 3. júní. „Ég ætla að
halda áfram að berjast fyrir
málstað okkar þar til við fáum
forsetaefni, hver sem hún
verður,“ sagði forsetafrúin
fyrrverandi og brosti breitt.
Obama hefur nú fengið
1.650 kjörna fulltrúa í for-
kosningunum, en til að fá
meirihluta þeirra þurfti að
hann að fá alls 1.627. Obama
hefur fengið alls 1.957 full-
trúa, að meðtöldum 305 ofur-
fulltrúum, en Clinton 1.775
(þar af 279 ofurfulltrúa). 212
ofurfulltrúar hafa ekki enn
gefið upp afstöðu sína.
Clinton sigraði í forkosn-
ingum demókrata í Kentucky
í fyrradag með 65% atkvæða.
Obama fékk aðeins 30% at-
kvæða í Kentucky en sigraði í
Oregon með 58% atkvæða
gegn 42%, samkvæmt síðustu
tölum þegar 88% atkvæðanna
höfðu verið talin.
Þarf að fá hvíta
kjósendur á sitt band
Kjósendurnir þykja mun
íhaldssamari í Kentucky en í
Oregon. Nær 90% þeirra, sem
greiddu atkvæði í Kentucky,
eru hvítir og mikill meirihluti
þeirra kaus Hillary Clinton.
Úrslitin í Kentucky stað-
festa að Obama á í erf-
iðleikum með að tryggja sér
stuðning hvítra kjósenda af
verkalýðsstétt, hóps sem gæti
reynst mjög mikilvægur í
komandi kosningabaráttu
demókrata við John McCain,
forsetaefni repúblikana.
Skoðanakönnun fyrir utan
kjörstaði í Kentucky bendir
til þess að 41% stuðnings-
manna Clinton í ríkinu myndi
kjósa McCain fremur en
Obama.
Könnun meðal kjósenda
demókrata í Oregon bendir
þó til þess að Obama hafi
fengið jafnmikið fylgi og Clin-
ton meðal hvítra kjósenda
með minna en sem svarar 3,7
milljónum króna í árstekjur
og án háskólamenntunar.
Þótt Hillary Clinton sé ekki
enn tilbúin til að játa sig sigr-
aða hefur hún dregið úr gagn-
rýni sinni á Obama og gefið til
kynna að hún vilji ekki segja
neitt sem gæti skaðað hann í
forsetakosningum verði hann
forsetaefni demókrata eins og
flest bendir nú til.
Obama hefur tryggt sér stuðning meirihluta kjörinna fulltrúa í baráttunni við Hillary Clinton
Segir lokasigur „innan seilingar“
Reuters
Sigurviss Barack Obama með eiginkonu sinni, Michelle, eftir
að hafa flutt ræðu í Des Moines í Iowa í fyrrakvöld.
Boston. AP. | Edward M. Kennedy
öldungadeildarþingmaður fór af
sjúkrahúsi í Boston í gær, daginn
eftir að hann greindist með heila-
æxli.
Kennedy er með illkynja tróð-
æxli í vinstra hvirfilblaði. Sérfræð-
ingar segja að slík æxli séu nær
alltaf banvæn.
Læknar sögðu að Kennedy hefði
fengið að fara heim fyrr en gert
hafði verið ráð fyrir þar sem hann
hefði náð sér mjög fljótt eftir vef-
sýnatöku úr heila. Hann á að hvíla
sig heima hjá sér fram yfir helgi á
meðan hann bíður eftir frekari nið-
urstöðum rannsókna. Þegar þær
liggja fyrir verður ákveðið hvers
konar meðferð hann eigi að fá, að
sögn lækna hans í gær.
Kennedy er 76 ára og áttunda
kjörtímabili hans lýkur árið 2012.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
kvaðst biðja fyrir bata Kennedys
og lýsti honum sem „manni með
mikið hugrekki og ótrúlegan
styrk“.
Kennedy
heim af
sjúkrahúsi
Með æxli sem er
nær alltaf banvænt
ÚTGÖNGUSPÁR í Georgíu bentu
til þess að Sameinaða ættjarðarfylk-
ingin, flokkur Mikheils Saakashvilis
forseta, myndi
vinna yfirburða-
sigur í þingkosn-
ingum sem fram
fóru í gær. Var
flokknum spáð
63% fylgi en sá
sem var næstur,
Sameinaða
stjórnarand-
stöðuráðið, var
með aðeins 14%.
„Útgönguspárnar eru fyrsta
merkið um að framin hafi verið kosn-
ingasvik,“ sagði helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Levan Gac-
hechiladze. Hann tapaði fyrir Saa-
kashvili í forsetakosningunum sem
fram fóru í janúar. Stjórnarandstað-
an hvatti liðsmenn sína til að safnast
saman og mótmæla í gærkvöld við
aðalstöðvar kjörstjórnar í höfuð-
borginni Tbilisi.
Georgía hefur átt í hörðum deilum
við Rússland vegna stuðnings Rússa
við aðskilnaðarsinna sem hafa í hálf-
an annan áratug ráðið í reynd yfir
tveim héruðum landsins, Abkhaziu
og Suður-Ossetíu. Rússar hafa þar
herlið sem þeir segja að gegni hlut-
verki friðargæsluliðs.
Georgíumenn telja á hinn bóginn
að markmið Rússa sé að innlima hér-
uðin en Georgía var í eina tíð eitt af
lýðveldum Sovétríkjanna gömlu.
Rússakeisari lagði Kákasuslandið
undir sig þegar á 19. öld. Saakashvili
vill auka sem mest samstarf við
Vesturlönd og vill að landið gangi í
Atlantshafsbandalagið.
Stjórnar-
flokki
spáð sigri
Mikheil
Saakashvili
Var með yfir 60% í út-
gönguspám í Georgíu
STEPHEN Mathew Claussen, sem
þjálfaði háhyrninginn Keikó í Ore-
gon og á Íslandi, fórst í flugslysi í
New Jersey á laugardaginn var.
Claussen lést ásamt flugmanni og
eiganda Cessna-vélar sem hrapaði í
skógi í New Jersey. Tveir aðrir far-
þegar vélarinnar slösuðust alvar-
lega.
Claussen og hinir farþegarnir
tveir voru að safna upplýsingum um
það hvaða áhrif sjávarvindorkuver
gætu haft á sjávarspendýr og fugla.
Þjálfari
Keikós látinn
♦♦♦