Morgunblaðið - 22.05.2008, Side 20
neytendur
20 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Þeir eru líklega ófáir krakk-arnir sem bíða þess meðóþreyju þessa dagana aðskólastarfinu ljúki. Sumarið
er jú á næsta leiti með sín fögru fyr-
irheit og enginn lærdómur í næstum
þrjá mánuði – bara leikur, útivera og
tóm sumarsæla. Eða hvað? Málin
snúa kannski öðruvísi við foreldrun-
um sem þurfa að púsla saman sumar-
dagskrá fyrir afkvæmin með tilheyr-
andi kostnaði á meðan að þeir sjálfir
fullnægja vinnuskyldunni.
Sá siður að senda börn í sveit yfir
sumartímann hefur að mestu lagst af.
Þess í stað sendum við þau nú á nám-
skeið og það verður að viðurkennast
að úrvalið þetta árið er ekkert til að
kvarta yfir. Er Ragna Rut grúskari?
Sindri Snær leikari? Egill Örn skap-
andi? Arna Ösp orkubolti? Ekkert
mál, það er hægt að finna námskeið
fyrir þau öll og upplýsingar um vel
flest þeirra er að finna á vefsíðu
Íþrótta- og tómstundasviðs Reykja-
víkurborgar.
Útivera og leikir
Hefðbundin leikjanámskeið eru sí-
gild sumarskemmtun og þetta árið
eru þau haldin á vegum frístunda-
heimila, félagsmiðstöðva og jafnvel
kirkjunnar, a.m.k. bæði Nes- og
Seljakirkju. Smíðaverkstæðin verða
einnig á sínum stað sem og skóla-
garðarnir, sem foreldrarnir muna
e.t.v. eftir frá eigin æsku.
Útilífsnámskeið skátafélaganna
geta þá líka verið góður kostur fyrir
vel virka krakka, en meðal viðfangs-
efna eru stangveiði, náttúruskoðun
og klifur. Það skyldi heldur ekki
gleyma sumarbúðunum, þó að raunar
sé þar víða fullbókað nú þegar.
Fyrir huga og hönd
Ekki hafa þó allir jafn gaman af
ærslum og útiveru og kjósa sum börn
að reyna frekar á hugann. Námskeið-
ið Vísindakrakkar sem haldið er í
húsdýragarðinum, þar sem hægt er
að taka þátt í einföldum vísinda-
tilraunum, höfðar þannig eflaust til
margra. Tækni-lego er annar
skemmtilegur möguleiki, en slík nám-
skeið verða haldin í nokkrum grunn-
skólum á höfuðborgarsvæðinu og
verður þar unnið með rúm 100 kíló af
tækni-legokubbum.
Ekki skyldi heldur gleyma Háskóla
unga fólksins sem er orðinn fastur
liður í sumardagskrá margra ung-
menna, þó strangt til tekið séu þátt-
takendur eldri en svo að þeir þurfi
gæslu.
Skapandi skemmtun
Margs konar listsköpun er þá ekki
síðri sumarskemmtun. Þannig geta
ritsmiðjur Borgarbókasafnsins reynst
áhugaverður kostur fyrir þá sem hafa
gaman af að tjá sig með rituðu máli
og myndlistarnámskeið sem m.a. eru
haldin á vegum Myndlistarskólans í
Reykjavík, Hálendisferða og Ker-
amiks fyrir alla henta líklega ekki síð-
ur vel upprennandi listamönnum.
Á námskeiðum fræðsludeildar
Listasafns Reykjavíkur verður fróð-
leik um listamennina Ásmund Sveins-
son og Jóhannes Kjarval fléttað sam-
an við dagskrána og Ljósmyndasafn
Reykjavíkur gefur börnunum færi á
að kynnast gömlum ljósmyndunar-
aðferðum og jafnvel búa til sína eigin
myndavél, Camera Obscura. Kvik-
myndaskóli krakkanna er ekki síður
spennandi kostur fyrir skapandi
krakka og ekki ætti upprennandi leik-
ara og söngvara að skorta tækifæri til
að láta ljós sitt skína á einhverju leik-
listarnámskeiðanna sem haldin verða
í sumar.
Saltur sær og dýralíf
Sjómannsblóðið blundar í mörgu
barninu og geta siglinganámskeið eins
og þau sem Siglunes og Brokey, Sigl-
ingafélag Reykjavíkur bjóða upp á
verið skemmtilegur kostur fyrir verð-
andi sægarpa.
Þeir eru líka eflaust margir dýra-
vinirnir sem njóta þess að taka þátt í
Hana, krumma, hundi, svíni í Hús-
dýragarðinum – en þegar er fullbókað
á þau námskeið – þar gefst krökkun-
um færi á að vinna með dýr garðsins
auk þess sem farið er í skemmtilega
umhverfisfræðslu. Reiðnámskeið
vekja oft ekki síður lukku, enda þrá
borgarbörnin mörg hver nánara sam-
neyti við dýr en þéttbýlið býður upp
á.
Spriklandi íþróttaálfar
Í huga vel flestra snýst sumar
barnæskunnar hins vegar um útiveru,
leiki og íþróttir. Íþróttafélögin sinna
þessari þörf vel og bjóða upp á leikja-
og íþróttanámskeið í vel flestum
bæjarhlutum. Þar er bæði um að ræða
íþrótta- og leikjanámskeið sem og
sérhæfðari námskeið þar sem athygl-
inni er beint að einhverri einni íþrótt
umfram aðrar, t.d. frjálsum íþróttum,
fimleikum, fótbolta eða sundi.
Séu áhugamálin ennþá sértækari
má síðan benda á golfnámskeið,
hafnabolta í bland við amerískan fána-
bolta, kínversku bardagaíþróttina
Wushu, línuskauta og jafnvel list-
skauta og íshokkínámskeið.
Skólahreysti er meira að segja
möguleiki fyrir börnin að spreyta sig
á, sem og og sirkuslistir, jóga og dans.
Það er ekki laust við að sumar-
dvölin í sveitinni hljómi frekar dauf-
lega hjá allri þessari upptalningu.
Morgunblaðið/Sverrir
Leiklist, hafnabolti
eða jóga í sumar?
Morgunblaðið/Jim Smart
Morgunblaðið/Eyþór
Í sól og sumri Þeir eru ófáir krakkarnir sem skemmta sér á leikjanámskeiðum yfir sumartímann.
www.itr.is/sumar
Fréttir í tölvupósti