Morgunblaðið - 22.05.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 22.05.2008, Síða 44
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Rannsakar mál drengja  Barnaverndarstofa mun rannsaka framgöngu Barnaverndar Reykja- víkur í máli tveggja drengja, en ung móðir þeirra lést af völdum ofneyslu fíkniefna í byrjun mánaðarins. Til- kynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað gríðarlega á und- anförnum árum en starfsfólki fjölgar lítið sem ekkert. » Forsíða JPV annist áfram útgáfu  Guðný Halldórsdóttir segir erf- ingja Halldórs Laxness vilja að JPV sjái áfram um útgáfu verka Nób- elsskáldsins. Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að bókaútgáfan Forlagið verði að láta frá sér útgáfu á ýmsum verkum, m.a. á verkum Laxness, vegna samruna JPV út- gáfu og Máls og menningar. » 2 Úttekt á verkefnum REI  Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti einróma á aukafundi sín- um í gærkvöldi að beina því til stjórnar REI að unnin verði úttekt á verkefnum REI. » 2 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Búinn að missa þráðinn Staksteinar: Eyjan við heimskauts- baug Forystugrein: Nýting auðlinda UMRÆÐAN» Heilsa – leiðtogar – frumkvöðlar – stjórnun Lífið, fegurð þess og fjölbreytni Velkomin heim! Broddflugan Evelyn Y. Davis Borin von að binda bólurnar Gætum við grætt á Evróvisjón? Tíu milljarða hagnaður Baugs VIÐSKIPTI»    3 3 3  3 4! +5%& . %* + 6 %%$%! %    3 3 3  3 - 7 1 &  3 3  3 3 3  3 89::;<= &>?<:=@6&AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@&7%7<D@; @9<&7%7<D@; &E@&7%7<D@; &2=&&@$%F<;@7= G;A;@&7>%G?@ &8< ?2<; 6?@6=&2*&=>;:; Heitast 12° C | Kaldast 6° C Austan 10-13 m/s syðst á landinu en ann- ars hægari. Bjart norð- an og austan en skýjað sunnan og vestan » 10 Írar drekkja Evró- visjónsorgum í Guin- ness, finnskir metal- hausar eru ljúfir og Rússinn Bilan vill bara gleðja fólk. » 38 DAGUR Í EVRÓVISJÓN» Litrófið í Belgrad LJÓSMYNDUN» Ljósmyndasýning í barnaafmælisstíl. » 36 Valkyrjur heitir há- tíð sem haldin verð- ur í Hinu húsinu um helgina. Þar geta konur m.a. lært að skipta um dekk. » 36 FÓLK» Skipta um dekk TÓNLIST» Eyþór Ingi stekkur inn á Lagalistann. » 43 FÓLK» Samband Miller og Ifans hangir á bláþræði. » 37 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Sólarferðum aflýst 2. Um 20 fíklar látist frá börnum 3. Man Utd. Evrópumeistari 4. Hefðum átt að hlusta á Ísland  Íslenska krónan styrktist um 1,1% ÁHUGI á gömlum dráttarvélum hefur blossað upp hér á und- anförnum 3-5 árum, að sögn Bjarna Guðmundssonar hjá Landbún- aðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þessa aukna áhuga hefur orðið mik- ið vart á safninu. „Margir snúa sér til Landbún- aðarsafnsins til að spyrjast fyrir um einstök atriði varðandi gamlar vélar, liti, stillingar og varahluti. Það teng- ist því að við höfum safnað fróðleik um vélarnar, notkunarbæklingum o.fl. Menn bjóða einnig safninu upp- gerðar vélar eða merkilegar. Í þriðja lagi hafa nokkrir viljað kaupa af okk- ur safngripi,“ sagði Bjarni. Hann sagði að sýningargripir Landbún- aðarsafnsins væru þjóðarminjar og ekki til sölu. Bjarni sagði ánægjulegt að sjá hve menn vönduðu sig vel við gera upp vélarnar. Viðamesta viðgerðin á dráttarvél í eigu safnsins tók t.d. 700-800 vinnustundir fagmanns. Agnar Hjartar, innkaupastjóri hjá Poulsen, sagði eftirspurn eftir vara- hlutum í gamlar dráttarvélar hafa aukist mjög mikið. Fyrirspurnir koma jafnt frá mönnum sem eru að gera vélarnar upp fyrir söfn og þeim sem ætla að eiga þær sjálfir. Sumir þeirra ætla að nota vélarnar við frí- stundahús eða á jörðum sem þeir eiga. „Þetta eru langmest gamlir Fergusonar, en líka Farmall og Ford,“ sagði Agnar. Hann þekkti t.d. til einstaklings sem á 4-5 gamlar dráttarvélar og er að gera þær upp. Agnar taldi að það yrði sífellt erf- iðara að komast yfir gamlan traktor. Það væri helst ef menn þekktu til í sveitum að þeir gætu grafið upp slík- ar vélar. Margar séu mjög illa farnar eftir að hafa staðið úti árum saman. Mikill áhugi er á gömlum dráttarvélum og að gera þær upp í upprunalegri mynd Gamalt gert eins og nýtt Ljósmynd/Landbúnaðarsafnið Fjórdrifinn Bræðurnir Guðmundur og Þorsteinn Kjartanssynir frá Svelgsá í Helgafellssveit með nýuppgerðan fer- tugan Deutz-traktor við Landbúnaðarsafnið. Talið er að þetta sé fyrsta framdrifna dráttarvélin sem hingað kom. SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR Landhelgisgæslu Íslands gerðu fimmtíu kílóa flugvélasprengju, sem fannst í húsgrunni við Furu- grund í Kópavogi, óvirka um miðj- an dag í gær. Sprengjan kom í ljós þegar verið var að grafa grunn fyr- ir íþróttahús og félagsaðstöðu íþróttafélagsins HK. „Það var skotið á kveikibúnað sprengjunnar og hann með því gerður óvirkur,“ sagði Guðmundur Ingi Rúnarsson, varðstjóri hjá lög- reglu höfuðborgarsvæðisins, í sam- tali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Að því loknu var sprengjan flutt á brott og verður henni eytt á næstunni. | 2 Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvirk Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslu Íslands flytja sprengjuna á brott eftir að hún var gerð óvirk. Lög- reglan girti af stórt svæði til öryggis. Þurfti meðal annars að rýma Snælandsskóla sem er í grennd við svæðið. Fimmtíu kílóa flugvélasprengja fannst HVAÐ myndi það kosta Íslendinga að vinna Evróv- isjón? Hver væri ávinningurinn? Erum við tilbúin að halda keppn- ina ef til kastanna kemur? Alþjóðlegur sjónvarpsvið- burður, sem á sama tíma er glæsisýning af því tagi sem Evróvisjón er, hefur aldrei átt sér stað á Íslandi. Aðstoðardag- skrárstjóri Sjónvarpsins segir að leyst yrði úr málinu þegar þar að kæmi, rétt eins og gert var með HM í handbolta á sínum tíma. Kostnaður Finna við að halda Evróvisjón-keppnina í fyrra var 1,4 milljarðar króna. Til samanburðar kosta rokktónleikar með stórstjörnu í Egils- eða Laugardalshöll á að giska 40–50 milljónir króna. Finnska ríkissjónvarpið, gestgjaf- inn í fyrra, fékk lítið fyrir sinn snúð í krónum talið, en á móti voru tekjur höfuðborgarsvæðisins af keppninni metnar á 1,5 milljarða. Þar má nefna tekjur af ferðaþjónustu, auk þess sem keppnin þótti hafa jákvæð ímyndaráhrif. | Viðskipti Hvað kostar Evróvisjón? Evróvisjón er glamúrsýning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.