Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 1
S U N N U D A G U R 6. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
183. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
VIÐ MANNINN MÆLT
JÓN KALMAN SKRIFAR
MARGT FYRIR VINDINN
PALESTÍNSKIR FLÓTTAMENN
Óska einskis frekar
en að snúa aftur
. . . en ekki ef það missir „einungis“ hluta af sjón eða heldur sjón
á öðru auga. Blinda er skilgreind sem algjör, varanlegur og
óafturkræfur missir sjónar á báðum augum. Eigi þessi skilyrði
ekki við á fólk ekki rétt á bótum samkvæmt skilmálum
sjúkdómatrygginga sem íslensk tryggingafélög selja.
. . . en ekki ef það missir „einungis“ einn útlim. Ekki heldur ef
það missir „bara“ fingur og tær. Útlimamissir er skilgreindur
sem varanlegur missir tveggja eða fleiri útlima ofan úlnliðs eða
ofan ökklaliðar. Þessa skilgreiningu á útlimamissi er að finna í
skilmálum sjúkratrygginga hjá íslenskum tryggingafélögum.
. . . en ekki ef Alzheimer greinist eftir sextugt. Auk þess þurfa
veikindi að vera með þeim hætti að sjúklingurinn hafi verið ófær
um að framkvæma vissar daglegar athafnir, sem kveðið er ná-
kvæmlega á um í skilmálum sjúkratryggingarinnar, án aðstoðar
í a.m.k. þrjá mánuði. Þangað til eru bætur ekki tryggðar. | 12
Stórmál í smáa letrinu
Blinda Sjúkdómatrygging færir
fólki bætur missi það sjónina . . .
Útlimamissir Greiddar eru bætur
ef fólk missir útlimi . . .
Alzheimer Fái fólk Alzheimer
eru því tryggðar bætur . . .
Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Árni Torfason Morgunblaðið/RAX
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Á SUÐURLANDI er víða að finna forna, mann-
gerða hella á jörðum og frásagnir eru til af búsetu
í þeim allt frá landnámsöld. Hér er því um að ræða
stórmerkar heimildir um búsetu í árdaga Íslands-
sögunnar.
Hellum þessum hefur á hinn bóginn lítið verið
sinnt síðustu ár og ástand þeirra hefur versnað
töluvert. Þórður Tómasson, safnvörður á byggða-
safninu í Skógum, segir að hellarnir séu meðal
merkustu menningarsögulegu menja Íslendinga
og að þeim beri að sýna virðingu og sóma.
Téðir hellar voru friðlýstir árið 1927 en þær
upplýsingar fengust hjá Fornleifavernd ríkisins
að mikið fjármagn vanti til að hægt sé að halda
þeim í góðu ástandi.
Hellarnir eru grafnir inn í móberg og sandstein
og eru nánast óþekktir í öðrum landshlutum. Þeir
hafa í gegnum tíðina ýmist verið nýttir sem svefn-
staðir manna eða undir skepnur og í gömlum
jarðabókum voru þeir iðulega taldir til mestu
hlunninda.
Tilurð hellanna er ekki þekkt og hefur ýmsum
kenningum verið haldið á lofti um hverjir hafi
upphaflega grafið þá út. Einar Benediktsson
skáld taldi til að mynda fullvíst að írskir papar
hefðu mótað hellana fyrir norrænt landnám.
Engar sannanir hafa þó fundist til þessa. | 6
Morgunblaðið/RAX
Mannabústaður Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum, bendir á krossmark í Kverkahelli. Fyrir nokkrum árum fannst forn skörungur í hellinum sem
bendir til að þar hafi eitt sinn verið bústaður manna. Á 19. öld var hellirinn þingsalur Vestur-Eyjafjallahrepps.
Merkar menjar um mannavist
VIKULOK
Obama er búinn að skipta svo oft
um skoðun að menn standa á önd-
inni, jafnvel demókratar á miðj-
unni, sem hafa óttast að hann væri
of einstrengingslegur vinstrisinni.
Hægrisveifla
Baracks Obama
Kvikmyndaframleiðandinn Mike
Todd lést í flugslysi fyrir 50 árum.
Hans er minnst fyrir að hafa þróað
kvikmyndatækni, cinerama, sem
byggðist á þremur myndavélum.
Hugdjarfur kvik-
myndaframleiðandi
Fyrsta helgin í júlí er næstvinsæl-
asta ferðahelgi ársins. Þar sem júlí
er einn sólríkasti mánuður ársins
viðrar vel til hátíðahalda, sem eng-
inn hörgull er á.
Stemmning fyrir
ferðalögum
Leikhús
í sumar >> 53