Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við sjáum fyrir okkur tveggja til fjög-urra hæða byggð, með hugsanlegriinndreginni fimmtu hæðinni, allsekki meira. Til að ná upp þessari
stemningu þá þurfum við að ná upp ákveðnum
fjölda íbúa og gestkomandi,“ segir Birgir Sig-
urðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverf-
issviðs Kópavogs, um tillögur bæjarins að fyr-
irhugaðri byggð á Kársnesi.
Með þessari sýn er vikið frá eldri hugmynd-
um um hafnsækna starfsemi, hafskipahöfn og
tengda starfsemi, tillögu sem olli mikilli ólgu á
meðal íbúa í vesturbæ Kópavogs, þegar hún
var kynnt á opnum fundi. Sjónarmið andstæð-
inga gamla skipulagsins eru rakin á vefsíðu
samtakanna Betri byggð á Kársnesi.
Birgir segir að hafnsækin starfsemi muni
víkja strax, en vöruskemmurnar smátt og
smátt með tímanum. Ástandið á fasteigna-
markaðnum hægi á þessari þróun eins og stað-
an sé núna.
„Þetta er blönduð byggð, með atvinnu-
starfsemi og íbúum, eins og er í mörgum af
öðrum miðbæjum. Það sem kemur þarna að
auki er að við erum með höfnina og sjóinn,“
segir Birgir, sem ber tillögurnar saman við
sambærilega hafnarbyggð í öðrum ríkjum, í
takt við þær sem hér eru sýndar.
Fossvogurinn sé „týnda perlan“ í skipulag-
inu og með því að tengja byggðina betur við líf-
ríkið og þá starfsemi sem þar sé megi skapa
einstæða heild á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki liggur fyrir hversu margar íbúðir
verða reistar við hafnarsvæðið á Kársnesinu en
í fyrri tillögum hefur verið reiknað með um
1.000 íbúðum, allt eftir vægi og umfangi at-
vinnustarfsemi á svæðinu.
Veitingastaðir við sjávarsíðuna
Gert er ráð fyrir að boðið verði upp á ýmiss
konar afþreyingu á svæðinu og segir Birgir að-
spurður að of snemmt sé að segja til um hvort
t.d. skemmtistaðir verði opnaðir þar. Öðru máli
gegni um kaffihús og veitingastaði við sjávar-
síðuna, sem hann telur að verði hluti byggðar-
innar. Hann sjái fyrir sér að þar muni rísa þjón-
ustumiðstöðvar fyrir íbúana, en líkt og með
ýmis önnur atriði í skipulaginu sé of snemmt að
segja til um hver útfærslan verður.
Að mati Birgis mun skapast þrýstingur á
eigendur vöruskemma á svæðinu að selja lóð-
irnar og flytja starfsemina annað, eftir því sem
svæðið verður verðmætara með árunum.
„Það hefur enginn efni á því að vera með
lager miðsvæðis,“ segir Birgir, sem telur það
einnig afar slæma nýtingu á jafn góðu landi að
taka hluta þess undir hauga af rusli, sem ekki
sé líðandi að fyrirtæki skilji eftir sig.
Birgir kallar hafnarsvæði af þeim toga sem
fyrirhugað sé að byggja „geðprýðishafnir“ og
á þá við að ys og þys gámaflutninga og hafn-
sækinnar starfsemi víki fyrir umhverfi þar
sem fólki geti notið nálægðar við náttúruna.
„Við höfum ekki alveg náð þessu hérna á Ís-
landi. Nágrannaþjóðirnar hafa náð þessu. Gott
dæmi sem Íslendingar þekkja er Nýhöfn í
Kaupmannahöfn, þar sem fólk getur notið þess
að setjast niður og hafa það huggulegt part úr
degi eða skamma stund,“ segir Birgir og bend-
ir á að ásamt Dönum hafi Hollendingar, Norð-
menn, Svíar og Kanadamenn byggt upp slík
hafnarsvæði með góðum árangri. Borgin Hali-
fax í Kanada sé eitt af góðum dæmum, nú þeg-
ar Kaupmannahöfn hafi tekið forystuna í þró-
un og uppbyggingu byggðar á landfyllingum.
Ávinningur af þéttingu byggðarinnar
Ávinningurinn af byggð af þessu tagi sé
meðal annars sá að af því hljótist mikil hag-
kvæmni fyrir heildina að þétta byggðina á höf-
uðborgarsvæðinu, og það spari orku og tíma.
Víða á vestanverðu Kársnesinu sé frágangur
lóða óviðunandi og með nýrri byggð verði
svæðið meira aðlaðandi og fjölbreytni byggð-
arinnar meiri en verið hefur. Byggðin muni
auka atvinnu á svæðinu, bæta þjónustuna,
meðal annars í verslun, og efla tengslin við úti-
vistarsvæði. Fasteignaverðið muni hækka með
bættri byggð og tekjur bæjarins af svæðinu
þegar það verði fullbyggt eftir 15 til 25 ár
nema 1,5 milljörðum á ársgrundvelli.
Skatttekjur bæjarins af hverjum íbúa séu
um 400.000 krónur á ári og því jafngildi fjölgun
um 1.000 íbúa á svæðinu fjögur hundruð millj-
óna tekjuaukningu fyrir bæjarsjóð á ári.
Kársnesið hafi verið í sífelldri þróun í ár-
anna rás og hafnarbyggðin því rökrétt fram-
hald á skipulagi svæðisins. Hlutfall eldri borg-
ara hafi farið hækkandi og með nýjum íbúum
verði íbúasamsetningin dreifðari á ný.
Að lokum telur Birgir að eldsneytisverðið
muni þrýsta á um þéttingu byggðarinnar á
höfuðborgarsvæðinu. Komið sé að vissum
tímamótum í útþenslu Kópavogsbæjar í aust-
urátt og komið að því að þétta byggðina og
bæta nýtinguna á þjónustukerfunum sem þar
eru.
Hafnsækin starfsemi víkur fyrir blandaðri byggð í nýjum tillögum Kópavogsbæjar
Hafnarlíf Svo kann að fara að vestasta hluta Kársnessins muni
senn svipa til þessarar hafnarbyggðar í borginni Malmö.
Eftirsótt Þessi raðhús eru nú að hluta íbúðarhúsnæði, en eru
einnig notuð fyrir atvinnurekstur. Slíkt húsnæði er vinsælt.
Byr af hafi Þessi hafnarbyggð í Stokkhólmi í Svíþjóð er meðal
þess sem hefur verið skoðað í hugmyndavinnunni undanfarið.
Stemningin verði eins og í
Nýhöfn í Kaupmannahöfn
AÐ MATI skipulagsyfirvalda í Kópavogi er
brúartenging „forsenda aukinnar byggðar á
Kársnesi“ og eru því uppi hugmyndir um að
reisa göngubrú yfir Fossvoginn fyrir hjólandi
og gangandi vegfarendur, sem stytti leiðina í
miðbæ Reykjavíkur um fimm kílómetra.
Kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir en slík
brú myndi þvera voginn þar sem hann er
hvað mjóstur.
Sjá skipulagsyfirvöld fyrir sér að slík brú
gæti orðið liður í að efla Fossvoginn sem úti-
vistarsvæði, auk þess að tengja hina fyrir-
huguðu byggð á Kársnesi betur við byggðina
handa vogarins.
Göngubrú verði hluti af nýjum Fossvogi
Yfir voginn Hér gæti göngubrúin komið. Fyrirmynd Göngubrú frá Amsterdam.
Ljósmynd/Birgir Sigurðsson
ÁHUGAMENN um sjónlistir á Hornafirði
hafa nú í nógu að snúast við að sækja listsýn-
ingar í tengslum við Humarhátíðina í bænum,
enda úr mörgu að velja. Meðal þess sem boðið
er upp á er fyrsta einkasýning listakonunnar
Róslínar Ölmu Valdemarsdóttur í Gömlu búð.
Róslín þykir afar efnilegur ljósmyndari en
hún er aðeins fimmtán ára gömul.
Hún segir áhugann hafa kviknað í fyrra.
„Ég byrjaði í fyrra, í maí, þegar ég fékk
myndavélina í fermingargjöf og hef verið að
taka myndir síðan,“ segir Róslín, sem kveðst
helst taka ljósmyndir af náttúrunni í kringum
Hornafjörð. Aðspurð hvort hún gæti hugsað
sér að verða ljósmyndari síðar meir segir hún
að „það gæti alveg verið“. Hún hafi þó áhuga
á mörgu.
Meðal annarra listviðburða í bænum er
sýning á landslagsmyndum gömlu hornfirsku
meistaranna í gamla Ríkinu. baldura@mbl.is
Hrífst af náttúru fjarðarins
Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson
Efnileg Ljósmyndarinn Róslín Alma Valdemarsdóttir opnar sýningu aðeins 15 ára gömul.
15 ára stúlka opnar
sýningu á Hornafirði
Á STRÖNDUM standa
menn saman þegar áföll ber
að höndum og það er gömul
hefð að létta undir með
þeim sem eiga um sárt að
binda.
Nýlega vildi það óhapp til
að stórbruni varð á Finn-
bogastöðum á Ströndum,
þar sem Guðmundur Þor-
steinsson bóndi missti hús
sitt. Vinir og vandamenn
hafa því ákveðið að efna til hátíðar í Hótel
Glym, Hvalfirði, í dag kl. 14 til heiðurs Guð-
mundi bónda. Allir eru velkomnir og þar verða
seldar kökur, kaffi og listaverk í söfnun fyrir
nýju húsi handa Guðmundi.
Aðstandendur gefa vinnu sína og rennur allt
féð í söfnunina, en ætlunin er að húsið verði ris-
ið áður en vetur er genginn í garð á Ströndum.
Þeim sem vilja styðja Guðmund með beinu
fjárframlagi er bent á reikningsnúmerið 1161-
26-001050, kennitala 4510892509. Félag Árnes-
hreppsbúa annast söfnunina. baldura@mbl.is
Safnað fyrir
nýju húsi
Guðmundur
Þorsteinsson