Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 8
8 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Enn liggur ekki fyrir hver verðamálalok um hlutverk Orkuveitu
Reykjavíkur í erlendum útrás-
arverkefnum, þar sem fé eigenda
OR er lagt í áhættufjárfestingar.
ÍMorgunblaðinu í gær birtist fréttum samstarf Reykjavík Energy
Invest, REI, og
fjárfesting-
arsjóðs á vegum
Alþjóðabankans,
í Djíbútí í Afríku.
HjörleifurKvaran, for-
stjóri OR (og
REI), segir „stór-
kostlegt“ að hafa
fengið þessa að-
ila með í að skoða möguleika á að
reisa jarðvarmavirkjun í landinu.
Eftir að Hanna Birna Kristjáns-dóttir var valin oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borginni sagði hún
í viðtali hér í blaðinu: „Stjórn REI
og stjórn Orkuveitunnar eru að
fara yfir málið og ég vonast til að
því verði lent farsællega sem fyrst.
Það á að lenda því þannig að stjórn-
málamenn í Reykjavík séu ekki
uppteknir við það að velta fyrir sér
fjárfestingartækifærum í öðrum
löndum. Á stjórnarfundum Orku-
veitu Reykjavíkur eiga menn fyrst
og fremst að ræða hvort verið sé að
veita borgarbúum nægilega góða
þjónustu fyrir nægilega sanngjarnt
verð. Viðskiptatækifærin á að ræða
annars staðar. Menn eiga sem
minnst að vera í áhætturekstri með
almannafé.“
Í frétt Morgunblaðsins í gær kem-ur hins vegar skýrt fram að um
áhættuverkefni er að ræða í Djí-
bútí. „Ég hef átt við þá símafundi
og Kjartan Magnússon [stjórn-
arformaður OR] hitti þá úti í Djí-
bútí,“ segir Hjörleifur Kvaran.
Er þetta í samræmi við stefnunasem Hanna Birna lýsir? Hvenær
á að pakka REI saman?
STAKSTEINAR
Kjartan
Magnússon
Hvenær verður pakkað saman?
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
!" #
$#
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
%
*$BCD
!
" ##
$"
*!
$$
B *!
& '
(
'
) *
<2
<! <2
<! <2
& )( +#,-" .
2E
<
F87
% $ &' (
&
'
!
B
F"
2
F
!
%
&
) * + !
" ##
$"
/0 11 2
"+#3 *
' Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Landsmót hestamanna
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
SÉRKENNILEG staða er uppi í
úrslitum A-flokks gæðinga nú á
lokadegi Landsmóts hestamanna
sem haldið er á Gaddstaðaflötum
við Hellu. Maðurinn sem eitt sinn
var nefndur gullbjörninn í hesta-
mennsku, Sigurbjörn Bárðarson,
er efstur inn í úrslit í A-flokki gæð-
inga með Kolskegg frá Oddhóli og
annar inn í úrslitin er tengdasonur
hans, Árni Björn Pálsson, með
hestinn Aris frá Akureyri.
Hestarnir frændur
„Ég held með báðum,“ segir
Sylvía, dóttirin og unnustan, „og
vona bara að þetta fari vel. Svarið
kemur ekki á óvart hjá sjóaðri
keppnismanneskjunni. Sigurbjörn
segir í gamansömum tón að þetta
reyni svakalega á. „Það þýðir að ég
þarf að bíta á jaxlinn og gera betur
en auðvitað er þetta líka mjög
gaman. Það er samkennd í því að
fá mann sem er kominn með annan
fótinn inn fyrir þröskuldinn,“ segir
hann.
Eins og þau feðgin benda á eru
báðir hestarnir úr þeirra ræktun
og því varla hægt að gera upp á
milli. Aris er undan Grun frá Odd-
hóli og Kolskeggur er bróðir hans,
sammæðra. „Þeir eru frændur,“
segir Sigurbjörn og hlær við.
Þegar Sylvía er spurð um hvern-
ig mótið leggist í hana segir hún
þetta algjöra veislu. Í stóðhesta-
sýningum hafi henni t.a.m. þótt
Auður frá Lundi vígalegur og Möll-
er frá Blesastöðum og Ómur frá
Kvistum séu spennandi.
„Heimaræktun í húð og hár“
Ekki verða síður spennandi úr-
slitin í B-flokki gæðinga í dag.
Röðull frá Kálfholti er efstur inn
hjá Ísleifi Jónassyni með ein-
kunnina 8,68 en skammt er í Eld-
járn frá Tjaldhólum og Akkur frá
Brautarholti sem eru hnífjafnir
með 8,66.
Þeir voru glaðbeittir Kálfholts-
feðgarnir Ísleifur og Jónas Jóns-
son þegar blaðamaður tók þá tali
niðri við fagra Ytra-Rangána að
lokinni vel heppnaðri rækt-
unarbússýningu fjölskyldunnar í
Kálfholti í Ásahreppi í Rangárþingi
á laugardagskvöldið. Öll fimm sýn-
ingarhrossin eru undan Asa frá
Kálfholti, háreist og framfalleg
undir forystu Röðuls og Ísleifs.
„Það er ekki alltaf magnið sem
ræður,“ segir Jónas. „Þetta er
heimaræktun í húð og hár. Flest
þessara hrossa eru ræktuð undan
mínum gömlu hryssum en við eig-
um mikið út af Flugu frá Voðmúla-
stöðum og Hylling hefur líka skilað
mörgu góðu en hún var undan
hryssu frá Eiríksstöðum í Húna-
vatnssýslu. Röðull er kominn úr
þeirri ræktunarlínu,“ segir hann og
Ísleifur bætir við að móðir Röðuls
sé undan Mána frá Ketilsstöðum.
„Fargi af mér létt“
Röðull varð þriðji á síðasta
landsmóti á Vindheimamelum í
Skagafirði í B-flokknum og munaði
mjög litlu á milli þriggja efstu
hesta. Í ljósi þess er ljúft að vera
kominn aftur með hestinn á sama
stað tveimur árum síðar.
„Nú er bara gaman það sem eftir
er,“ segir Ísleifur um keppnina í
dag. „Fargi er af mér létt að vera
kominn yfir þessi tvö þrep,“ segir
hann hógvær en eins og liggur í
augum uppi komst hann gott betur
en yfir þrepin. „Ég tel að Röðull sé
sterkur í samanburði og allar for-
sendur til að þetta gangi vel,“ við-
urkennir hann. „Við höfum stefnt
lengi að þessu,“ botnar Jónas en
hann segist telja Röðul betri í dag
en 2006 og vonast eftir því besta.
Feðgin og feðgar í eldlínunni
Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson efstir inn í A-flokk gæðinga
Röðull frá Kálfholti og Ísleifur Jónasson efstir inn í B-flokk gæðinga í dag
Morgunblaðið/Ómar
Frændur berjast „Ég held með báðum,“ segir Sylvía
Sigurbjörnsdóttir en pabbi hennar etur kappi m.a. við
tengdason sinn í dag á Kolskegg (sjá fyrir neðan).
Morgunblaðið/hag
Ljósmynd/Hestafréttir.is Ljósmynd/Hestafréttir.is
Þegar rými er nefnt … Röðull frá Kálfholti sem fer á tölti
hér fyrir neðan er fæddur Jónasi Jónssyni (t.h.) í Kálfholti
sem á hann nú til helminga með Ísleifi, syni sínum.
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
BORÐI frá Fellskoti og Sigursteinn
Sumarliðason tryggðu sér sæti í A-
úrslitum með stórkostlegri sýningu
á yfirferðartölti í B-flokki. Þeir
hlutu í lokaeinkunn 8,76. Borði og
Sigursteinn uppskáru mikinn fögn-
uð þegar ljóst var að þeir hefðu skot-
ið öðrum keppendum ref fyrir rass.
Í unglingaflokki varð Hanna Rún
Ingibergsdóttir efst á Hjörvari frá
Flögu fyrir flotta sýningu en athygli
vakti að Hanna Rún valdi að sýna
brokk sem yfirferðargang, ein kepp-
enda í úrslitunum.
Grettir Jónasson á Gusti frá Lækj-
arbakka hlaut sæti í A-úrslitum í
ungmennaflokki. Þeir fengu 8,68 í
lokaeinkunn.
Miklar sviptingar urðu í barna-
flokki en Svandís Lilja Stefánsdóttir
vann sig inn í A-úrslitin með til-
burðum, hún sat Glað frá Skipanesi
og fengu þau 8,73 í einkunn fyrir
örugga sýningu.
Í A-flokki stóðu Stakkur frá Hall-
dórsstöðum og Sigurbjörn Bárð-
arson uppi sem sigurvegarar og er
því ljóst að Sigurbjörn hefur tryggt
annan hest inn í A-úrslitin auk Kol-
skeggs frá Oddhóli sem rætt er um í
viðtalinu hér að ofan.
Morgunblaðið/hag
Flottur knapi Svandís Lilja Stefánsdóttir frá hestamannafélaginu Dyra
kom, sá og sigraði í B-úrslitum í barnaflokki á Glaði frá Skipanesi.
Sviptingar í B-úrslitum