Morgunblaðið - 06.07.2008, Side 20
20 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
F
immtíu ár eru síðan
bandaríski kvikmynda-
framleiðandinn Mike
Todd fórst í flugslysi.
„Hinn látni kvikmynda-
framleiðandi er mörgum harm-
dauði,“ sagði í frétt Morgunblaðsins.
„Todd var talinn mikill töframaður
og svo auðugur, að sagt var að hann
gæti veitt sér allt í þessum heimi.
Frægastur hefur hann orðið fyrir
hinar þrívíðu Cinerama kvikmynda-
tökur sínar, en auk þess kostaði
hann upptökur á kvikmyndum sem
hlutu frægð um allan heim. Nýlega
lét hann hefja tökur á stórkostlegri
kvikmynd um Don Quixote. Í tit-
ilhlutverki átti að vera franski leik-
arinn Fernandel. Er sagt að Fern-
andel hafi verið sem bugaður maður,
er hann frétti lát Mike Todds. – Nú
verður kvikmynd um Don Quixote
aldrei búin til, því enginn gat gert
hana nema Mike Todd, sagði Fern-
andel.“
Hann var allavega sannspár um
það að kvikmyndin um Don Quixote
sem Todd hafði í huga komst ekki á
hvíta tjaldið og hefur ekki enn, þótt
nokkrar atrennur hafi verið gerðar
að efninu og m.a. af ekki minni spá-
manni í kvikmyndabransanum en
Orson Welles.
Í frétt Morgunblaðsins segir að
dularfull sprenging hafi orðið í flug-
vél Mike Todd, Lucky Liz, yfir Nýju
Mexíkó laugardaginn 22. marz 1958
og þegar menn komu að flakinu var
það að mestu brunnið, nema væng-
broddar og stél. Með vélinni fórust
Mike Todd, handritshöfundurinn
Art Cohn og flugmennirnir Bill Ver-
ner og Tom Barclay. Orsök slyssins
var síðar sögð sú, að vélarbilun hefði
orðið, sem rekja mátti til fluglags og
mikillar yfirvigtar. „Mike Todd var
giftur kvikmyndaleikkonunni El-
isabeth Taylor. Ætlunin hafði verið í
fyrstu að hún kæmi með honum í
þessa ferð. En hún hætti við á síð-
ustu stundu vegna lasleika,“ segir í
Morgunblaðsfréttinni.
Uppátektarsamur
með afbrigðum
Þrennum sögum fer af fæðing-
ardegi Avrom Hirsch Goldbogen, en
hér skal haldið við 22. júní 1909.
Foreldrar hans voru Chaim Goldbo-
gen, rabbíi, og Sophia Hellerman,
bæði pólskir gyðingainnflytjendur.
Þau bjuggu fyrst í Minneapolis í
Minnesota, síðan Chicago, og eign-
uðust níu börn. Nafnið Todd sótti
hann til gælunafns, sem systkini
hans gáfu honum; kölluðu hann
„toat“ vegna erfiðleika hans við að
segja „coat“ (kápa, frakki).
Todd þótt snemma uppá-
tektarsamur með afbrigðum og var
barnaskólagangan nokkuð slitrótt
þess vegna. En þegar í framhalds-
skóla kom fékk hann m.a. útrás fyrir
athafnasemina með því að setja upp
skólasýningu; The Mikado, sem
þótti takast vel. Það dugði þó ekki til
þess að halda honum í skólanum, því
hann hætti til þess að fást við hitt og
þetta og svo tók byggingabransinn
við, þar sem hann bæði græddi stórt
og tapaði miklu. Fyrir tvítugt hafði
hann eignast fyrstu milljónina í doll-
urum talið og eytt henni aftur. Hann
hélt þeim hætti þegar hann var kom-
inn í skemmtanabransann og þegar
hann var eitt sinn spurður, hvað
hann hefði grætt mikið um ævina og
tapað, yppti hann öxlum og svaraði:
Heldur nokkur maður reikning yfir
það? Og öðru sinni bætti hann við:
Til þess að skapa eitthvað stórkost-
legt verða menn að tefla á tæpasta
vað. Þá er svo sem ekki við því að
búast að allt gangi upp, en kúnstin
er að láta fleira ganga upp en floppa.
Þrjátíu Broadway-sýningar
Áhuginn á leikhúsinu leiddi Todd
til kvikmyndanna og hann komst
með annan fótinn inn í Hollywood
með framleiðslu á atriðum fyrir
kvikmyndverin. Þar ákvað hann að
gerast framleiðandi og hann kom
sér á kortið með danssýningu sem
hann setti upp í Chicago 1933 og í
framhaldinu fór hann í leikför með
flokk frá óperunni og sýndi fram-
haldsskóladjásnið sitt; The Mikado.
Frá Chicago lá leiðin á Broadway,
sem tók honum opnum örmum, en
hann framleiddi um 30 Broadway-
sýningar áður en yfir lauk, aðallega
revíur og söngleiki, þar sem létt-
klæddar konur fóru oft mikinn, m.a.
jazzaði hann The Mikado upp í Hot
Mikado til sýninga í tengslum við
Heimssýninguna í New York 1939.
Eitt sinn átti hann fjórar sýningar á
Broadway samtímis. Hugdirfska
hans í að setja saman stórbrotin at-
riði á sviðinu tók öllu fram og sá
stórhugur varð hans aðalsmerki. Í
byrjun sjötta áratugarins, þegar
umsvif hans voru hvað affarasælust,
var hann fenginn til að setja upp í
Jones Beach-leikhúsinu í New York
sýningu á óperettu Strauss; Nótt í
Feneyjum, og Todd tjaldaði öllu til
með siglandi gondólum. Sýningin
gekk í tvö leikár.
Velgengnin á Broadway opnaði
Todd stóru dyrnar að Hollywood.
Hann seldi kvikmyndaréttinn að
sumum vinsælustu Broadway-
stykkjunum, en einhvern gekk allt á
afturfótunum í kvikmyndaborginni,
þótt sýningar hans möluðu gull í
New York.
Árið 1946 var þrátt fyrir allt svo
komið að lánardrottnar hans gengu
að honum og settu hann í gjaldþrot.
Sagt var að skuldir hans næmu þá
hálfri annarri milljón dollara meðan
aðgangseyririnn að sýningum hans á
Braodway var sagður hafa verið 15
milljónir dollara. Todd barðist gegn
gjaldþrotaúrskurðinum með kjafti
og klóm, en það tók hann fjögur ár
að borga sig frá honum.
Umhverfis jörðina í Todd-Ao
Ein hlið Mike Todd var áhugi
hans á tækni í kvikmyndagerð.
Hann tók höndum saman við Lowell
Thomas jr., sem hann kynntist við
uppsetninguna á Nótt í Feneyjum,
og þeir stofnuðu fyrirtæki um þróun
nýrrar kvikmyndatökutækni; cine-
rama, sem byggðist á notkun
þriggja myndavéla. Todd þótti þetta
fullumsvifamikið og hann vildi leita
leiða til þess að komast af með eina
tökuvél. En viðskiptafélagar hans
töldu það óþarft. Cinerama hefur
sigrað, sögðu þeir. Hvers þurfum við
meira við? Einhvers betra, svaraði
Todd að bragði, seldi þeim hlut sinn
og fann nýjan félaga; ljósfræðinginn
Brian ÓBrian, sem taldi mögulegt
að smíða kvikmyndatökuvélina, sem
Todd dreymdi um. O’Brian spýtti í
lófana og Todd útvegaði fé í fyr-
irtækið; Todd-AO-tæknin leit dags-
ins ljós og var fyrst notuð við kvik-
myndina Oklahoma 1955.
Árið eftir framleiddi Todd þá
kvikmynd, sem hefur haldið nafni
hans hæst á lofti; Umhverfis jörðina
á 80 dögum eftir sögu Jules Verne.
Todd hafði sett söguna upp sem leik-
rit á Broadway og alltaf dreymt um
að koma henni í kvikmynd.
Hann lagði drögin að kvikmynd-
inni fyrir félaga sína í Todd-AO, en
þeim leizt ekkert á blikuna, fannst
hann alltof djarfur og stórtækur.
Þegar honum tókst ekki að sann-
færa þá um ágæti hugmyndar sinn-
ar, seldi hann lungann af hlutabréf-
um sínum í Todd-AO og réðist einn
og óstuddur í gerð kvikmyndarinn-
ar. Og eins og svo oft áður veðjaði
hann á réttan hest.
Hann fékk brezka leikarann Dav-
id Niven til að leika Phileas Fogg,
Cantinflas (Mario Moreno) lék þjón
hans, Passepartout, Shirley Mac-
Laine var Aouda prinsessa og Ro-
bert Newton Fix rannsóknarlög-
reglumaður. Ótal stjörnur komu
fram í litlum hlutverkum; Ava Gar-
dner, Charles Boyer, Fernandel,
Marlene Dietrich, John Gielgud,
Buster Keaton, Frank Sinatra og
Robert Morley svo einhverjar séu
nefndar, en þessi stjörnufans átti
sér engan líka í litlum kvikmynda-
hlutverkum í einni mynd og var
Todd talið til tekna að hafa fengið
allar þessar stjörnur til liðs við sig
og ekki síður að fá þær til að leika
saman!
Og Todd hélt mönnum við efnið
með stöðugum flugeldasýningum í
kringum gerð kvikmyndarinnar.
Hann bjó til „fréttnæma“ atburði
fyrir blaðamennina og dældi út alls
kyns upplýsingum til að undirstrika
hversu stórfenglegt verk væri þarna
á ferðinni. Tæplega 70 þúsund
manns frá 13 löndum komu að gerð
myndarinnar, myndin var tekin upp
á 140 stöðum og leikararnir borðuðu
hvorki meira né minna en 100 þús-
und máltíðir og drukku 4500 tebolla
og 10 þúsund lítra af kaffi. Og svo
þurfti auðvitað líka að fóðra þær 34
dýrategundir, sem komu fram í
kvikmyndinni. Þegar Todd hafði tí-
undað þetta og margt fleira, bætti
hann við: „Ég verð alveg hlessa ef ég
fæ ekki Óskar fyrir þessa mynd.“ Og
það gekk eftir eins og svo margt
annað sem Todd óskaði sér þessa
dagana.
Kvikmyndin Umhverfis jörðina á
80 dögum var tilnefnd til átta Ósk-
arsverðlauna og fékk fimm, þ. á m.
sem bezta kvikmyndin og bar þar
sigurorð af Risanum, sem Elizabeth
Taylor lék í með Rock Hudson og
James Dean, en myndin var svana-
söngur Deans á hvíta tjaldinu, Kon-
ungurinn og ég, sem Yul Brenner
lék í og fékk Óskarsverðlaun fyrir,
og Boðorðin tíu, síðasta mynd Cecil
B. DeMille, þar sem Charlton He-
ston fór með hlutverk Móse.
Til að halda upp á ársafmæli
frumsýningar Umhverfis jörðina á
80 dögum, leigði Todd Madison
Square Garden í New York. „Þessi
veizla verður bara fyrir nánustu
vini,“ sagði hann. „Ég býð ekki
nema fimm til tíu þúsund manns.“
Alltaf riddaralegur
við ungu konuna sína
Todd var þríkvæntur; fyrsta kona
hans var Bertha Freeman, sem ól
honum soninn Mike Todd, Jr.. Hann
var aðstoðarmaður föður síns og
varaformaður fyrirtækis hans og tók
við því, þegar faðir hans dó. Ekki
reyndist hann föðurbetrungur sem
kvikmyndaframleiðandi. Hann þró-
aði áfram lyktartækni, sem faðir
hans hafði byrjað á, og framleiddi
eina slíka kvikmynd. Lykt sem átti
við atburði á tjaldinu; t.d. rósailmur,
ilmvatnslykt og vínberjaangan,
barst úr pípum í sætisbökunum.
Þetta bragð kolféll og var ekki notað
aftur. Mike Todd Jr. skrifaði ævi-
sögu föður síns. Hann var tvíkvænt-
ur og eignaðist átta börn. Hann lézt
á Írlandi 2002.
Bertha Freeman lézt 1946 og árið
eftir kvæntist Mike Todd leikkon-
unni Joan Blondell. Þau skildu eftir
ásakanir hennar um misnotkun hans
og ofbeldi.
Þriðja eiginkonan (1957) var
Elizabeth Taylor. Með sex hjóna-
bönd að baki sagði hún, að sá tími
sem hún var gift Mike Todd hafi
verið einhver hamingjusamasti tím-
inn í hennar lífi. Fjölmiðlar voru
ósparir á fréttir af þeim hjónum og
það er blítt yfir vötnunum í frásögn
Morgunblaðsins í Fólki í fréttunum í
apríllok 1958. „Hann var fimmtugur,
hún er 26 ára. Bæði höfðu verið gift
tvisvar áður. Þau voru mjög ham-
ingjusöm. Mike gaf Liz á hverjum
laugardegi dýrar gjafir í tilefni af
því að þau höfðu kynnzt á laug-
ardegi. (Í annarri frásögn Morg-
unblaðsins segir að Todd hafi gefið
Taylor forkunnarfagra demants-
eyrnalokka og nýjustu gerð af Rolls
Royce en á númeri bifreiðarinnar
eru stafirnir ETT (Elizabeth Taylor
Todd)) Mike Todd var alltaf riddara-
legur við ungu konuna sína. Sl. sum-
ar eignuðust þau dóttur og hamingja
þeirra var fullkomnuð. En þessi
mikla hamingja stóð aðeins í sjö
mánuði, þá fórst Mike Todd í flug-
slysi.
Í erfðaskrá sinni mælti Mike
Todd svo fyrir að eigum hans skyldi
skipt milli ekkju hans og sonar hans
(af fyrra hjónabandi), Mikes yngri.
Eigur hans eru taldar nema millj-
ónum dala.“ Og samkvæmt Morg-
unblaðinu nokkru síðar eru þau
Elizabeth Taylor og Mike Todd Jr.
„sögð mjög góðir vinir.“
Dóttir Elizbeth Taylor og Mike
Todd er Elizabeth Frances (Liza)
Todd, sem Richard Burton ættleiddi
svo og hún tók upp nafn hans; Liza
Todd Burton. Hún hefur fengizt við
myndhöggvaralist, er gift listamanni
og eiga þau tvö börn.
Líkræningjar
í leit að hringi
Mike Todd hvílir í Beth Aaron
Cemetery í Chicago. Eddie Fisher,
vinur Todd, og næsti eiginmaður
Elizabeth Tayolor, sagði í ævisögu
sinni, að engar líkamsleifar hefðu
fundizt eftir flugslysið og í kistu
Todd væri ekkert annað en hring-
urinn hans. Los Angelses Times
skýrði frá því 1977 að frásögn Fis-
her væri röng, jarðneskar leifar
Todd hefðu fundizt og verið jarð-
settar. Sagan varð hins vegar til
þess að líkræningjar rufu gröf Todd
til þess að hirða hringinn. Jarð-
neskar leifar hans fundust þá undir
tré nálægt gröfinni og var komið á
sinn stað aftur.
Töframaður leiktjaldanna
Mike Todd var stórhuga framleiðandi skemmtisýninga Hann betrumbætti tæknina þegar hún
svaraði ekki kröfum hans Kvikmyndin Umhverfis jörðina á 80 dögum er talin meistaraverk hans
Áræðinn Mike Todd lét sér fátt fyr-
ir brjósti brenna og áræðnin borg-
aði sig oftar en ekki.
Hamingjan Mike Todd og Elizbeth
Taylor skera brúðskaupskökuna.
Kvikmyndatakan Við töku kvikmyndarinnar Umhverfis Jörðina á 80 dögum var ýsmum brellum beitt. Loftbelg-
urinn var sjaldnast fjær jörðu og þó var þessi hæð nóg fyrir David Niven sem þjáðist af mikilli lofthræðslu.
Kvikmyndir