Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 23

Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 23
uðnautum Bjarki segir einna sísta hættu stafa af sauðnautum eða ísbjörn- um. Þó geti hætta skapast einkum þegar dýrin verði á vegi manna í myrkri eða slæmu skyggni. Menn verði þá ekki varir við þau fyrr en komið sé býsna nærri þeim. Við- brögðin geti þá orðið óvænt og skammur tími til stefnu. Fyrirvaralaust í Norðursetu Föstudag nokkurn í mars 2005, skömmu áður en Síríus-námskeið- inu lauk, hringdi yfirmaður Bjarka til hans. Einn varðliða Síríus- flokksins hafði kalið illa á fótum og þurfti að senda hann heim. Bjarka var sagt að búa sig þegar til ferðar. Hann hafði snör handtök, fór til Óslóar að kveðja fjölskyldu sína og var kominn til Íslands á mánudags- morgni. Þaðan hélt hann til Norð- ursetu (Station Nord) sem er næst- um á 82. gr. norðlægrar breiddar. Þar var 40 stiga frost, en hitinn í Kaupmannahöfn hafði verið 15 stig. 55 stiga munur. Í Norðursetu tók við 12 daga þjálfun og viðgerðir á búnaðinum. Síðan hófst hin langa ferð suður á bóginn sem stóð í 3 mánuði. Hvítabjörn lítur í heimsókn „Dag nokkurn, á meðan á ferð- inni stóð, höfðum við Jesper, félagi minn, loksins náð háttum í gömlum veiðikofa, en þeir eru notaðir sem hvíldar- og birgðastöðvar. Færið hafði verið óvenjuslæmt og við því lengi á ferðinni þann daginn. Við tjóðruðum hundana, fengum okkur í svanginn og höfðum tal- stöðvarsamband við Danaborg eins og við gerðum á kvöldin. Allt í einu fóru hundarnir að gelta. Það þýddi að einhver eða eitthvað var í nánd. Þar sem óra- langt var til næstu stöðvar og fáir menn á ferli um þessar slóðir greip ég byssu og þaut út. Jesper kom á eftir með myndavél og byssu. Hundarnir sátu og horfðu allir í sömu átt. Viti menn. Þarna kom stóreflis hvítabjörn röltandi og stefndi í áttina til okkar. Við byrjuðum að hrópa og kalla og skutum nokkrum neyðarblysum að birninum. Hann virtist ekki taka eftir þeim. Þá skutum við nokkrum blysum í feld bjarnarins en hann lét sig þau engu máli skipta heldur hélt áfram í áttina að okkur. Þegar 5-10 metrar voru eftir til hundanna skaut ég síðasta blysinu og lenti það í síðu bjarnarins. Ekki virtist hann láta það á sig fá. Ótal hugsanir flugu um hugann. Ætti ég að skjóta hann? Hvað myndi þá gerast? Ætli hann félli strax við fyrsta skot eða næði hann að ráðast á okkur? Bangsi skipti allt í einu um skoð- un, sneri við og rölti á brott. Innan skamms var hann horfinn sjónum og sameinaðist landslaginu.“ Enginn dagur öðrum líkur Bjarki segir að oft séu dagarnir þreytandi og reyni mjög á menn og hunda. „Skömmu fyrir jólin 2005 vorum við á leið heim til Danaborgar. Við þurftum að fara yfir dálítið skarð. Á leiðinni upp skarðið fór að snjóa svo að brátt sá ekki út úr aug- unum. Við urðum því að tjalda á ný. Um nóttina glaðnaði til og við héldum áfram. Snjórinn var hálfur metri á dýpt og færið skelfilegt. Eftir 7 tíma strit höfðum við ein- ungis farið 4 km og vorum orðnir uppgefnir. Við tjölduðum því 3 km frá há- skarðinu. Þarna urðum við að láta fyrirberast í tvö dægur vegna ill- viðris. Loksins létti til og við héldum áfram. Þegar komið var upp í skarðið var veðrið yndislegt. Mán- inn varpaði fölu skini á stórbrotið landið og norðurljósin skörtuðu sínu fegursta, margvíslegum til- brigðum í rauðu og grænu. Hund- arnir voru viljugir og við heimfúsir. Eftir 12 stunda akstur vorum við í Danaborg á meðal vina okkar og félaga. Þar beið okkar veislumatur og jólagjafir frá ættingjum og vin- um.“ arnthorh@mbl.is Kalt Bjarki Friis og félagar hans þurfa að búa sig vel í kuldanum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 23 Bjarki Friis fæddist í Danmörku árið 1974. Móðir hans, Karen Ok- tavía Kaldalóns, er íslensk. Faðir Bjarka, Henrik Friis, er danskur en fæddist á Grænlandi og ólst þar upp. Bjarki ólst upp í Meistaravík á Grænlandi og í Noregi. Hann hef- ur verið í danska landhernum og flotanum í 5 ár. Í rúm 2 ár var hann í Síríus-eftirlitssveitinni á Norðaustur-Grænlandi. Hann hef- ur verið stöðvarstjóri í Meist- aravík síðan í ágúst í fyrra en lætur af störfum þar í ágúst. Bjarki er trésmiður og jarð- fræðingur. Hann vann á Sval- barða í tvö ár og í haust ætlar hann að hefja meistaranám í jarðfræði við Háskóla Íslands. Afkomandi Kaldalóns Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2008 Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingum um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2008. Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og verður útnefning tilkynnt í tengslum við bæjarhátíðina ,,Í túninu heima” í ár. Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið ,,Bæjarlistamaður ársins 2008”. Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjar- félaginu koma til greina. Þá setur Menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni. Eftirtaldir aðilar hafa hlotið sæmdarheitið Bæjarlistamenn Mosfellsbæjar: Skólahljómsveit Mosfellsbæjar (1995), Leikfélag Mosfellssveitar (1996), Inga Elín, myndlistarmaður (1997), Sigrún Hjálmtýsdóttir, söngkona (1998), Sigurður Þórólfsson, silfursmiður (1999), Karlakórinn Stefnir (2000), hljómsveitin Sigur Rós (2001), Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari (2002), Steinunn Marteinsdóttir, myndlistarmaður (2003), Guðrún Tómasdóttir, söngkona og Frank Ponzi, bóka- og myndlistarmaður (2004), Símon H. Ívarsson, gítarleikari (2005), Jóhann Hjálmarsson, rithöfundur (2006). Núverandi bæjarlistamaður er Ólöf Oddgeirsdóttir, myndlistarmaður. Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 24. júlí 2008 og skulu sendast á: Menningarsvið, Bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á bth@mos.is Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Sími 588-9900 ganga@itferdir.is Aconcagua (Argentína) 4.-23. janúar 2009. Mjög krefjandi ferð. Gengin svokölluð “Normal Route” á norðvestur hlið Aconcagua, hæsta fjall heims utan Asíu. Hjördís Hilmarsdóttir, setur upp og stýrir. Örfá sæti laus! Grand Canyon 7. - 17. apríl 2009. Ævintýraferð fyrir göngufólk. Ganga, sigling, skemmtun. Ævintýraferð sem sló í gegn í mars 2008. Nokkur sæti laus! Nánari upplýsingar á www.itferdir.is , ,ímorgungjöf?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.