Morgunblaðið - 06.07.2008, Qupperneq 29
ir athöfnina fór brúðurin í bæinn
með krakkana á fótboltamót en
brúðguminn varð eftir, rak lestina
með Bjarna „breiða“ Einarssyni,
Tröðum í Staðarsveit, og sungu
þeir digrum rómi: „Óbyggðirnar
kalla!“
Reynir á knapana
Það leggjast allir út af um leið
og komið er í félagsheimilið í Ár-
gili, nema tveir næturhrafnar sem
spila fram á nótt. Í þessari ferð
vakna menn svo ekki fyrr en undir
hádegi. Og enginn er vakinn.
Seinni daginn liggur leiðin yfir
Haukadalsskarð. Þrír hestar fóru
framarlega í forreiðinni daginn áð-
ur og skiptu stóðinu, hlupu yfir á
og að girðingu fyrir annað stóð.
Það ætlaði aldrei að takast að
skilja stóðin, því hestarnir hlupu
bara í hringi. Og reyndi á knapana.
Daginn eftir er hnakkur settur á
merarnar tvær sem fremst fóru.
„Nú rennur af þeim lýsið,“ segir
ríkisstarfsmaðurinn.
Blaðamaður eltir stóðið í öðrum
trússbílanna. „Það er allt annað að
ríða land en keyra það,“ segir lög-
fræðingurinn við stýrið. Og bónd-
inn er sammála því sem stendur á
veginum með reiðtygin, hesturinn
stokkinn. „Svona hrossi ríð ég
ekki,“ segir hann önugur. „Það
verður sent í sláturhúsið í haust.“
Þetta kallast að „taka prestinn“.
Þannig var að í fyrri ferð reið
hestur prestsins mitt í rekstr-
arstóðið og skipti því, sem varð til
þess að presturinn steig af baki í
fússi, tók beisli og hnakk, og sagð-
ist ekki ætla að „ríða þessu helvíti
fetinu lengra“.
Þó að tíminn sé ekki til í sveit-
inni, menn elti ekki klukkuna, þá
tekst að ná úrslitaleiknum. En
tæpt skal það vera, þrjár mínútur
búnar af leiknum þegar stigið er af
baki í Hrútafirði. Hrossin smám
saman að komast í betri æfingu.
„En þá verða þau þreytt, þannig
að þau eru eiginlega aldrei al-
mennileg,“ segir Grafarbóndinn
brosandi.
Svo hreiðrar hann um sig í
Staðarskála. Spánverjar voru að
skora mark.
pebl@mbl.is
Hlátur Steinar Þór Sveinsson lengir lífið.
Hvíld Margrét sleppir hestinum í lok dags í Hrútafirði.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 29
Tískan lætur ekki að sér hæða. Hún fer sífellt nýj-ar leiðir og mennirnir hlaupa móðir á eftir.Núna lítur út fyrir að stóru jepparnir fari
halloka fyrir minni og sparneytnari bílum. Bílstjórar
sitja spenntir í bílbeltum og þótt margir láti sig hafa
það að aka einhentir á meðan gemsinn virðist gróinn í
hina höndina, þá fer þeim samt fjölgandi sem nota
handfrjálsan búnað.
Í Bandaríkjunum hafa menn áhyggjur af eldsneyt-
isverði og hættum sem stafa af farsímanotkun undir
stýri. Þar hefur hins vegar nýr ógnvaldur skotið upp
kollinum í umferðinni. Svo virðist sem margir kjósi að
hafa litla, sæta kjölturakkann, og jafnvel þá hunda sem
stærri eru, í fanginu á meðan þeir aka um.
Í Suður-Kaliforníu, heimkynnum Parísar Hilton og
annarra smáhundaeigenda, fer þessi vandi vaxandi.
Bandaríska dagblaðið Los Angeles Times sá ástæðu til
að fordæma þetta sérstaklega í leiðara á dögunum.
Skaðvaldar í umferðinni
Tilefni leiðaraskrifanna var að lagafrumvarp var
lagt fyrir þingið í Kaliforníu. Þar er lagt til að ólöglegt
verði að aka með hunda í fanginu. Margir hafa gert
grín að frumvarpinu og sagt það dæmi um for-
sjárhyggju.
Los Angeles Times er ekki á sama máli og bendir á
að tilgangurinn með banni sé ekki að vernda hundana
sjálfa og jafnvel ekki heldur eigendur þeirra. Aðal-
tilgangurinn sé að koma í veg fyrir að hundaeigendur
skapi stórhættu fyrir aðra í umferðinni. „Ef löggjafinn
hélt að það skapaði hættu að tala í síma undir stýri –
sem það gerir – þá er hættan ekki minni ef dýr skerðir
útsýni ökumanns og kemur í veg fyrir að hann geti
stýrt bílnum svo vel sé. Ökumenn, sem beindu athygli
sinni að gæludýrunum sínum í bílnum áttu sök á fleiri
en 100 slysum í umferðinni í Kaliforníu. En við þurfum
enga tölfræði til að átta okkur á að eigendur teygja sig
yfir, undir og í kringum gæludýrin til að ná taki á stýr-
inu, þeir taka víðar beygjur og sjá ekki bíla eða fólk til
vinstri af því að hundurinn slefar út um gluggann
þeirra. Eða þá að snögghemlun veldur því að bílstjór-
inn þarf annaðhvort að nota aðra höndina til að halda
við dýrið, eða fá óttasleginn loðboltann í andlitið.“
Leiðarahöfundurinn bendir á ósköp gamaldags
lausn: „Bílstjórar ættu að hafa báðar hendur á stýri og
athyglina bundna við að aka varlega. Við ættum ekki
að þurfa ný lög til að styrkja þessa gullnu reglu. En ef
almenn skynsemi getur ekki ýtt hundunum úr bíl-
stjórasætinu, gæti hótun um sektir gert það.“
Ekið í hundana
Gæludýr Skyldi Paris Hilton fara út að aka með gælu-
tíkina sína, hana Tinkerbell?
Þeir sem hafa gaman af tísku og leiðist að vera alltafmeð sömu fylgihlutina geta nú sparað skildinginnmeð því að leigja í stað þess að kaupa alltaf nýtt.
Á netinu er fyrirtækið Bag Borrow or Steal með
heimasíðu, www.bagborroworsteal.com, sem sérhæfir
sig í að leigja út eða selja fylgihluti eftir heimsþekkta
hönnuði. Á boðstólum eru meðal annars fylgihlutir hann-
aðir af Jimmy Choo og Balenciaga, en einnig svokallaðar
„vintage“-vörur. Heimasíðan er aðgengileg og auðvelt er
að leita í gríðarlegu úrvali sem í boði er. Hægt er að
leigja vörur úr öllum áttum, svo síðan höfðar til breiðs
hóps kvenna.
Hægt er að leita að vörum eftir tilefni, til dæmis því
sem passar fyrir þá sem eru að fara út á lífið, á róm-
antískt stefnumót, strandferð eða jafnvel passandi fylgi-
hluti til að vera með í ræktinni. Einnig geta aðdáendur
Sex and the City skoðað hvað þykir henta smekk vin-
kvennanna fjögurra. Inni á síðunni má líka leigja fylgi-
hluti sem þær stöllur skörtuðu í myndinni sjálfri. Ef ein-
hver á erfitt með að velja býður heimasíðan þar að auki
upp á ráðgjöf stílista, sé þess óskað.
Leiguverð er misjafnt eftir vörum, en þó aðeins brot af
því sem þessar gæðavörur kosta séu þær keyptar. Til
dæmis er hægt að leigja rauða Fendi-tösku, eins og sést í
myndinni Sex and the City. Leigan er rúmar tíu þúsund
krónur á viku og tæplega þrjátíu þúsund á mánuði. Ein-
hverjum gæti þótt þetta hátt leiguverð, en taskan kostar
þó rúmar hundrað og tuttugu þúsund krónur, sé hún
keypt úti í búð.
Fyrir þá sem nota síðuna mikið gæti verið hagstætt að
gerast félagi, en félagar fá tuttugu prósent afslátt af
leiguverði. Þeir fá einnig forgang að nýjum vörum og
annað slagið eru haldnar sérstakar útsölur fyrir þá. Að
gerast félagi í einn mánuð kostar um átta hundruð krón-
ur, en ársgjaldið er tæplega fimm þúsund krónur.
Sá sem leigir vöru má hafa hana eins lengi og hann kýs
og greiðir þá leigu eftir því. Einnig er í boði trygging fyr-
ir þá sem óttast að geta ekki haldið vörunni í ágætu
standi, en engum er þó skylt að kaupa þá tryggingu. Bag
Borrow and Steal ábyrgist að vörur sem leigðar eru séu í
fullkomnu standi og alveg eins og nýjar. Ef leigjandi á
erfitt með að skilja við vöruna stendur til boða að kaupa
hana. Fyrirtækið metur þá hversu gömul og vel farin
varan er og hversu auðvelt verður að kaupa nýja til út-
leigu.
Bag Borrow and Steal hefur þó ekki fengið sérlega
góða dóma fyrir þjónustu sína. Bandaríska dagblaðið
LA-Times reyndi þjónustu þeirra og leigði Tom Ford
sólgleraugu. Þegar gleraugun komu í hendur leigjanda
var sjónin þó ekki fögur. Þrátt fyrir að fyrirtækið lofi að
leigja fylgihlutina út í toppstandi, var gleraugnahulstrið
þakið litlum hárum og meira að segja kexmylsnu.
Eins og fyrr hefur komið fram er hægt að kaupa fylgi-
hlutina og var kaupverðið á gleraugunum rúmar þrjátíu
og sjö þúsund krónur. Kemur það verð á óvart, því eins
gleraugu kosta ekki nema tæpar þrjátíu þúsund úti í búð
í Bandaríkjunum. Hversu margir vilja borga nær tíu
þúsund krónum meira fyrir notuð gleraugu og mylsnu?
gudnyh@mbl.is
Sparað með því að leigja
Hátíska Nýjustu sólgleraugun frá hönnuðinum Tom
Ford eru leigð á tæpar 4.200 krónur á viku.
Útsalan hefst á morgun
mánudaginn 7.júlí
v/Laugalæk • sími 553 3755