Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 35 UMRÆÐAN FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. ÆGISÍÐA- GLÆSILEG EFRI SÉRHÆÐ Glæsileg og mikið endurnýjuð 169 fm efri sérhæð með fernum svölum auk 32,8 fm sérstæðs bílskúrs við opna svæðið á Æg- isíðunni. Eldhús með nýjum sérsmíðuðum innréttingum, stórar samliggjandi stofur, þrjú herbergi og endurnýjað bað- herbergi með vönduðum tækjum. Ris yfir íbúðinni nýtt sem þvottaherbergi og geymsla auk sér geymslu í kjallara. Útsýnis nýtur úr stofum og af svölum út á sjóinn að Reykjanesi og víðar. Teikn. liggja fyrir að nýrri rishæð ofan á húsið. Verð 85,0 millj. TJARNARGATA Mjög fallegt og mikið uppruna- legt 232,1 fm einbýlishús á þessum fallega stað við Reykjavíkurtjörn. Húsið sem er kjallari, tvær hæðir og geymsl- uris er í dag innréttað sem tvær íbúðir. Eignin skiptist m.a. í samliggjandi skiptanlegar stof- ur með skála útaf og útgangi á lóð, 4 herbergi, eldhús og baðherbergi auk þvottaherbergis og sér 2ja herb. íbúðar í kjallara. SÓLEYJARGATA Virðulegt og glæsilegt einbýlis- hús á þessum eftirsótta stað í miðborginni. Eignin er 3 hæðir og kjallari um 365 fm auk 24 fm bílskúrs. Fjórar stórar stofur, tvö eldhús og fjöldi herbergja. Aukin lofthæð á aðalhæð um 2,75 metrar. Stórar svalir úr stofum aðalhæðar, svalir út af tveimur herbergjum 2. hæðar og útgangur á þrennar svalir úr stofum 3. hæðar. Lóðin er eign- arlóð 826 fm að stærð. GRENIMELUR - EFRI SÉRHÆÐ OG RIS Glæsileg 225 fm efri sérhæð og ris auk 26,8 fm bílskúrs á þess- um eftirsótta stað í vesturbæn- um. Eignin hefur nánast öll ver- ið endurnýjuð á sl. 3 árum m.a. nýlegt gler og gluggar, nýlegar raflagnir og tafla, gólfefni og bæði baðherbergi og eldhús. Stórar samliggjandi stofur, vandað eldhús og 6 herbergi. Fallegur bogadreginn veggur með miklum gluggum í stofum og útgangur á flísalagðar svalir til suð- vesturs. Bílskúr allur endurnýjaður.Verð 85,0 millj KIRKJUSANDUR - LÚXUSÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Glæsileg 195 fm íbúð á efstu hæð auk 37,2 fm geymslu og vínkjallara og tveggja sér bíla- stæða í bílakjallara. Íbúðin er innréttuð á afar vandaðan og smekklegan hátt. Glæsilegar, rúmgóðar stofur, arinstofa og borðstofa, sjónvarpshol, vel útbú- ið eldhús, 2 herbergi og baðherbergi auk gesta w.c. Tvennar flí- salagðar svalir. Útsýni yfir borgina, sundin og víðar. Húsvörð- ur.Eign sem vert er að skoða. Verðtilboð. BIRKIMELUR - 3JA HERB. M. AUKAHERB. Í RISI Falleg og vel skipulögð 80 fm íbúð á 3. hæð auk 8,9 fm íbúð- arherbergis í risi og sér geym- slu í kjallara. Öll herbergi eru björt og rúmgóð og allir glugg- ar í íbúð eru nýjir með sérstöku hljóðheldu gleri. Nýjar svalir og nýlega endurnýjaðar raflagnir. Hús í góðu ásigkomulagi að utan. Göngufæri við Háskólann. Verð 27,3 millj. FORSVARSMENN 365 hafa lengi haldið því fram að umsvif RÚV á auglýsingamarkaði séu mikil og þar af leiðandi óviðunandi fyrir þá. Þetta er undarleg stað- hæfing í ljósi þess að 365 miðlar eru með 50% markaðs- hlutdeild á íslenskum auglýs- ingamarkaði en RÚV aðeins með 12% eins og sjá má á skífuritinu að neðan. Þetta þýðir að 365 er mark- aðsráðandi aðili á auglýsingamark- aðnum og því tæplega viðeigandi að þeir kvarti undan samkeppninni, hvað þá undan „litlum“ aðila eins og RÚV. Fyrirferð 365 á auglýs- ingamarkaðnum er sem slík miklu stærra vandamál en vera RÚV á sama markaði. Það ættu alþing- ismenn að hafa í huga þegar kemur að lagasetningu og öðru sem snýr að stefnumörkun á íslenskum fjölmiðla- markaði. Sjónvarpið (RÚV) nýtur mikilla vinsælda og er í viku hverri með áhorfsmestu dagskrárliðina skv. mælingum Capacent. Sjónvarpið er til dæmis með 45-50% hlutdeild í heildaráhorfi landsmanna en hlut- deild þess í auglýsingatekjum á sjón- varpsmarkaði er hins vegar aðeins 28%. Eðlilegt væri að hlutdeild Sjón- varpsins í auglýsingatekjum end- urspeglaði betur hlutdeild þess í áhorfi. Sama gildir um útvarpsmark- aðinn þar sem hlutdeild RÚV í aug- lýsingatekjum er mun minni en hlut- deild þess í hlustun. Í þessu ljósi eru nýleg ummæli forstjóra 365 um að RÚV sé að „ryksuga auglýsingamarkaðinn“ vægast sagt sér- kennileg. Önnur staðhæfing forsvarsmanna 365 er sú að afnotagjöldin skekki samkeppni- stöðu á markaðnum. Samt sem áður er það svo að í flestum ríkj- um Evrópu er afnota- gjald við lýði til að fjármagna ríkisfjöl- miðla. Afnotagjöld RÚV eru hins vegar svo lág að tekjur 365 af sjónvarps- rekstri eru hærri en sam- anlagðar tekjur RÚV af afnotagjöldum og auglýs- ingum. Þó fer verulegur hluti af afnotagjöldum RÚV í útvarpsrekstur. Þetta þýðir að fjárhags- legur styrkur 365 á sjón- varpsmarkaði er mun meiri en styrkur Sjón- varpsins (RÚV) svo að ekki liggur vandamálið þar. Þrátt fyrir þetta nýtur dagskrá Sjónvarpsins mestra vinsælda í landinu sem væntanlega stafar af því hvernig dagskrárféð er nýtt á þeim bæ. Af þessu mætti 365 draga nokkurn lærdóm. Hvað vakir þá fyrir forsvars- mönnum 365? Það er augljóst að það hefur lengi verið á stefnuskrá þeirra að fá RÚV út af auglýsingamark- aðnum svo þeir geti sjálfir sótt stærri hlutdeild þangað. Samtök ís- lenskra auglýsingastofa og Samtök auglýsenda hafa margoft ályktað að þau vilji að RÚV sé áfram á auglýs- ingamarkaði enda blasir við einok- unarstaða 365 á þeim markaði ef RÚV hverfur af honum. Sú staða er engum að skapi nema þá ef vera skyldi forsvarsmönnum 365. Hvað afnotagjöldin varðar gildir það sama. Af þessu má ráða að for- svarsmenn 365 stefna að því bæði leynt og ljóst að fá ráðamenn þjóð- arinnar til þess að kippa öllum fjár- hagslegum stoðum undan RÚV. Þetta er gert með því að láta í veðri vaka að samkeppni 365 miðla við RÚV sé ójöfn. Ekkert er fjær lagi. Þegar grannt er skoðað er því helsti vandi 365 miðla ekki erfiðar mark- aðsaðstæður eða ósanngjörn sam- keppni, heldur heimatilbúinn og upp- blásinn hugarburður sem er notaður í áróðursskyni til að klekkja á RÚV. Fyrirferð 365 miðla á íslenskum auglýsingamarkaði Einokunarstaða blasir við á auglýs- ingamarkaði ef RÚV hverfur af honum segir Þorsteinn Þorsteinsson »Helmingur alls aug- lýsingafjár í landinu rennur til 365 miðla. Tekjur 365 af sjónvarps- rekstri eru hærri en samsvarandi tekjur RÚV. Höfundur er markaðsstjóri RÚV. Þorsteinn Þorsteinsson HINN 26. júní und- irrituðu fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnar Íslands og Norðurþings framleng- ingu á viljayfirlýsingu um rannsóknir á hag- kvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík. Meðal þess sem aðilar viljayfirlýs- ingarinnar munu vinna að á tímabilinu má nefna að mati á umhverfisáhrifum álvers verður lokið og viðræðum við orkufyrirtæki verð- ur haldið áfram. Reiknað er með að álverið á Bakka nái fullum afköstum árið 2015, verði niðurstaða athugana jákvæð. Verkefninu miðar sem sagt vel áfram og eru Húsvíkingar bjart- sýnir á að framundan sé betri tíð með álveri á Bakka. Þar vegur þungt áhugi Alcoa á verkefninu, afstaða heimamanna og góður stuðningur stjórnvalda, ekki síst Össurar Skarp- héðinssonar iðnaðarráðherra. Bræður kenndir við Bakka Vinstri-grænir hafa verið áberandi undanfarið í greinarskrifum um ál- verið á Bakka. Því miður hefur mál- flutningur þeirra verið afar lágkúru- legur svo ekki sé meira sagt. Í grein sem Jón Bjarnason skrifar í Morg- unblaðið sunnudaginn 29. júní líkir hann Húsvíkingum við Bakkabræður og leyfir sér að rangtúlka hugmyndir samstarfsaðila um orkuöflun fyrir ál- verið. Eins og alþjóð veit verður ork- an tekin úr háhitasvæðum í næsta ná- grenni við Bakka til hagsbóta fyrir samfélagið og með virðingu fyrir um- hverfinu. Það stendur ekki til að virkja Skjálf- andafljót eða aðrar jök- ulsár fyrir álverið. Þetta á Jón að vita, ef ekki ætti hann að kynna sér betur áform um orkuöfl- un fyrir álverið. Honum væri nær að tala við okkur í stað þess að tala um okkur. Reyndar þarf það ekki að vera svo bölvað að vera líkt við Bakkabræður þar sem það er ekki þeirra stíll að deyja ráðalausir frekar en okkar Húsvíkinga. En sá hæðnistónn og þær rangfærslur sem eru í skrifum Jóns eru ekki sæmandi þingmanni landsbyggðarinnar sem vill láta taka sig alvarlega. Það liggur hins vegar ljóst fyrir nú að Vinstri- grænir leggjast gegn áformum um uppbygginu álvers við Húsavík og vilja þar með leggja stein í götu áframhaldandi búsetu á svæðinu. Hins vegar má geta þess að Vinstri- grænir voru aðilar að H-listanum á Húsavík sem tók ákvörðun um að skoða kosti þess að byggja álverið á Bakka. Viljum tryggja velferð Í Norðurþingi hefur verið unnið skipulega og markvisst í mörg ár að undirbúningi nýsköpunar í atvinnulíf- inu með áherslu á frumvinnslu áls á Bakka, sem nýta mun orku úr iðrum landshlutans. Auk þess hefur skipu- lega verið lögð áhersla á aðra at- vinnuskapandi starfsemi sem því miður hefur þó engan veginn nægt til þess að vega upp á móti fjölda starfa sem tapast hefur af svæðinu við brotthvarf stórra fyrirtækja og þá hefur kvótakerfið komið illa við sveit- arfélagið eins og mörg önnur sveit- arfélög. Því miður er það svo að íbú- um á fyrirhuguðu atvinnusvæði álvers á Bakka hefur fækkað um 12,5% á síðasta áratug. Á sama tíma fjölgaði íbúum landsins hins vegar um 12%. Þetta er sláandi dæmi um hve mikilvægt er að byggja álver á Norðausturlandi sem mun tryggja vöxt, velferð og stöðugleika í atvinnu- málum til framtíðar. Enda er það svo að íbúar á Norðausturlandi telja álver við Bakka almennt mjög góðan kost fyrir samfélagið því samkvæmt skoð- anakönnunum telja yfir 80% íbúa að bygging álvers myndi hafa jákvæð áhrif á búsetuskilyrði til lengri tíma á Norðurlandi. Þurfum kjölfestu Með álverinu á Bakka verður til kjölfesta fyrir byggð og mannlíf á svæðinu með stóriðju sem að mestu verður knúin vistvænni orku frá aft- urkræfum gufuaflsvirkjunum. Það er alveg ljóst að við lifum ekki á ljóðum og lofti þrátt fyrir að loftið sé hvergi betra en í Þingeyjarsýslum. Þess vegna ekki síst þurfum við á öflugu atvinnulífi að halda. Liður í því er ál- ver á Bakka. Framsækið samfélag í Þingeyjarsýslum Aðalsteinn Á. Baldursson fjallar um væntanlegt álver á Bakka Aðalsteinn Á. Baldursson » Vinstri-grænir leggj- ast gegn áformum um uppbyggingu álvers við Húsavík og vilja þar með leggja stein í götu áframhaldandi búsetu á svæðinu. Höfundur er form. Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.