Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 37
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is
Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i
Krókamýri - góð staðsetning
Sérlega glæsilegt einnar hæðar einbýlishús með inn-
byggðum bílskúr. Húsið sem sem er samtals 217,8
fm að stærð er allt mjög snyrtilegt með sérsmíðuðum innréttingum og skápum frá Grind-
inni í Grindavík. Mjög góð staðsetning í botnlangagötu - veðursæld. V. 79,0 m. 7439
Reynimelur - einstök eign
Stórglæsileg 165,7 fm efri sérhæð auk 24,9 fm bílskúrs, samtals 190,6 fm Þar að auki er
óskráð rými í risi. Hæðin skiptist í forstofu, stórt hol, fjögur svefnherbergi, tvær samliggj-
andi stofur, eldhús og baðherbergi. Í risi er sjónvarps- og leikherbergi og í kjallara eru
geymslur og þvottahús. Íbúðin hefur nánast verið endurbyggð frá grunni á vandaðan og
glæsilegan hátt á sl. tveimur árum. 7616
Hverafold - laust strax
Glæsilegt rúmlega 260 fm einbýli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á sjávarlóð
í neðstu húsaröðinni við Grafarvoginn. Suðurgarður. Mikil lofthæð er í húsinu og arinn á
tveimur hæðum. Tvær glæsilegar verandir eru við suðurhlið eignarinnar. Heitur pottur.
UPPLÝSINGAR VEITIR MAGNEA FASTEIGNASALI Í SÍMA 861-8511. Verð 79,9 m.
Efstasund
Mjög falleg og mikið standsett 128 fm ein-
býlishús á tveimur hæðum. Auk þess til-
heyrir 39,6 fm bílskúr. Samtals 167,6 fm
Stór lóð með timburpalli. Húsið skiptist m.a.
í stofu, rúmgott eldhús og fjögur herbergi.
V. 47,9 m. 3616
Funalind - efsta hæð, tvennar svalir
Mjög góð og vel skipulögð 4ra til 5 her-
bergja íbúð á 4. hæð, góð lofthæð. Eignin
er á tveimur hæðum. Íbúðin skiptist í for-
stofu, þrjú svefnherbergi, tvær stofur, eld-
hús og tvö baðherbergi, tvennar svalir eru á
íbúðinni. 36,9 3592
Klapparstígur 35 - m/bílskýli
Glæsileg 56 fm íbúð ásamt bílskýli í nýlegu
hús. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnher-
bergi og baðherbergi. Vestur svalir. V. 21,9
m. 3611
Ennishvarf - glæsilegt ústýni
Stórglæsilegt 316 fm einbýlishús á tveimur
hæðum á stórri lóð við Ennishvarf. Glæsilegt
útsýni er frá húsinu út á vatnið og til fjalla.
Húsið er í Fúnkis-stíl og er staðsteypt. Húsið
er á byggingarstigi, fullbúið að utan og sallað
en rúmlega fokhelt að innan. Kominn er hiti á
húsið en ekki búið að setja gólfhita á efri
hæðina. Miklir möguleikar með innra skipu-
lag, meðal annars er mögulegt að skipta
húsinu í tvær íbúðir. V. 59,9 m. 7131
Eignir óskast
FOSSVOGUR - EINBÝLI ÓSKAST
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega rúmgott einbýlishús í Fossvogi.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson fasteignasali.
SELTJARNARNES - EINBÝLI ÓSKAST
Höfum verið beðin að útvega 300-400 fm einbýlishús á Nesinu.
Upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir í síma 861-8511.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
TIL SÖLU EÐA LEIGU:
URÐARHVARF 2, KÓPAVOGI
GLÆSILEGT NÝTT
ATVINNUHÚSNÆÐI
Í ALFARALEIÐ
Húsið samanstendur af verslunar-
húsnæði á jarðhæð ca. 1300 fm
og áfastri sex hæða skrifstofu-
byggingu samtals ca. 1675 fm.
Lóðin er hornlóð við umferðargötu
sem gefur auglýsingagildi því
húsið stendur hátt og blasir við.
Mjög stutt er út á Breiðholtsbraut
og þaðan á Vesturlandsveg eða
Reykjanesbraut.
Nánari upplýsingar gefur
Ægir Breiðfjörð á skrifstofutíma
Almennings-
samgöngur eru sjálf-
sagður ferðamáti í nú-
tímasamfélagi. Þegar
Íslendingar tóku al-
mennt að efnast, á síð-
ari hluta 20. aldar, þótti
sjálfsagt að það væri bíll
á hverju heimili. Fyrst
einn, síðan tveir og nú
jafnvel þrír eða fleiri.
Enginn var sérstaklega
að velta fyrir sér um-
hverfisáhrifunum eða
kostnaðinum. Bílarnir
urðu stöðutákn. Það fór
úr tísku að taka strætó
og þeim sem fóru leiðar
sinnar hjólandi var veitt
sérstök athygli.
Ný samgöngustefna
Í löndunum í kring-
um okkur hefur hlut-
deild almennings-
samgangna ávallt verið umtalsverð
og hin síðari ár miklu meiri en hér á
höfuðborgarsvæðinu. Margt kemur
þar vafalaust til, m.a. að víðast eru al-
menningssamgöngur afar öflugar og
ódýrar og þar að auki er hvarvetna
rekin bílastæðastefna sem frekar let-
ur til notkunar einkabílsins í þéttbýl-
inu. Hér á Íslandi hefur þessu verið
öfugt farið. Undanfarin misseri hefur
þó mátt sjá breyttar áherslur, bæði í
hinni almennu umræðu en einnig í að-
gerðum stjórnvalda. Til að mynda
hefur nú tekist ágætt samstaða í
borgarstjórn Reykjavíkur um nýjar
áherslur í samgöngumálum, en fyrsta
samgöngustefna borgarinnar var
mótuð og samþykkt
undir lok síðasta kjör-
tímabils (þá var
Reykjavíkurlistinn enn
í meirihluta). Þar var í
fyrsta sinn kveðið á um
jafnrétti samgöngu-
máta, þ.e. að hjólandi
og gangandi vegfar-
endur, auk þeirra sem
nota strætó, eigi sama
rétt og þeir sem fara
leiðar sinnar í einka-
bílnum. Einnig var
mörkuð sú stefna að
draga út hlutdeild
einkabílsins en auka að
sama skapi aðra ferða-
máta innan borg-
armarkanna. Sjálf-
stæðismenn í
borgarstjórn hafa nú
tekið undir meginstefin
í þessari samgöngu-
stefnu.
Minnkum mengun
Nú um stundir er
umræðan um loftslags-
breytingar og losun
gróðurhúsaáhrifa í algleymingi. Við
það bætist nú gríðarlega hátt olíu-
verð og fátt sem bendir til að það
muni lækka svo nokkru nemi á kom-
andi tíð. Þess vegna er óhjá-
kvæmilegt að leita nýrra leiða í sam-
göngum, en mengun frá þeim er
helsta umhverfisógnin hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Hlutverk op-
inberra aðila er ríkt í því sambandi og
þeir eiga að ganga á undan með góðu
fordæmi. Það á ekki bara við um rík-
ið, sveitarfélögin eru þar ekki undan-
skilin. Öflugar og skilvirkar almenn-
ingssamgöngur geta verið lykillinn að
bættu umhverfi og eiga líka sinn þátt
í sparnaði heimilanna. Þess vegna
skýtur það óneitanlega skökku við að
Strætó bs. skuli nú tilkynna um veru-
lega skerta þjónustu yfir sumartím-
ann. Er sú ráðstöfun útskýrð með því
að farþegum fækki iðulega að sum-
arlagi og að fjárhagslegan sparnað af
skertri þjónustu megi nýta til að auka
þjónustu að vetrarlagi.
Nú er það vissulega svo að fólk
þarf að fara í vinnu og komast al-
mennt leiðar sinnar, jafnt sumar sem
vetur. Þótt farþegum Strætó fækki
eitthvað að sumarlagi, vegna skóla-
leyfa, er síst ástæða til að draga úr
ferðatíðni og knýja þannig margan
góðan strætófarþegann til að velja
einkabílinn frekar. Og þá er ekki víst
að farþegarnir skili sér aftur til
Strætó þegar haustar. Þetta heitir að
pissa í skóinn sinn.
Eflum strætó –
aukum kaupmátt
Strætó bs., sem er í eigu sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu, verð-
ur að taka sér tak og stórbæta þjón-
ustuna. Fjölga þarf leiðum þar sem
helstu gloppurnar í kerfinu eru í dag,
auka tíðni og hún má gjarnan vera
mismunandi eftir leiðum en á aldrei
að vera minni en 15-20 mínútur og
helst 7-10 mínútur á annatímum.
Einnig þarf að halda áfram nýbyrj-
uðu átaki við að tryggja strætó for-
gang í umferðinni. Svona aðgerðir
munu vissulega kosta umtalsvert
fjármagn fyrst í stað, en mun skila
sér til lengri tíma litið. Farþegar,
Strætó bs. og sveitarfélögin munu
hagnast og sömu sögu er að segja um
samfélagið í heild. Þess vegna verður
að berjast áfram fyrir því að ríkið
komi að fjármögnun almennings-
samgangna í þéttbýli, rétt eins og það
gerir gagnvart dreifbýlissam-
göngum.
Við megum engan tíma missa í
þessu efni og nú er sannarlega lag.
Nýtum það – notum strætó.
Strætó á rangri leið
Árni Þór Sigurðsson
skrifar um skerta
þjónustu strætó yfir
sumartímann
Árni Þór Sigurðsson
» Öflugar og
skilvirkar al-
mennings-
samgöngur geta
verið lykillinn
að bættu um-
hverfi og eiga
líka sinn þátt í
sparnaði heim-
ilanna.
Höfundur er þingmaður VG.
ÞAÐ er komið sumar, sól, hiti, sum-
arfrí, náttúran byrjuð að blómstra,
skartar síðan sínu fegursta. Ísland
verður á stundum eins og heit eyja
í suðurhöfum.
Þá eiga allir að verða glaðir, kát-
ir, virkir o.fl. jákvætt.
En því miður er hængur þar á
hjá margri manneskjunni, t.d.
breytist þunglyndi ekki, kvíðinn
ekki heldur. Vanmáttur er til fram-
kvæmda, þá hefst næsta „pressa“.
Margur skilur ekki þessar að-
stæður fólks og segir t.d.:
„Ertu ekki hress?“ Ætlarðu ekki
í ferðalag? Sjáðu veðrið úti o.fl. í
þessum dúr.
Við þetta eykst spennan, sem
magnar síðan upp kvíðann, vegna
þess að þessi orð hafa þannig áhrif
á þá sem hafa þunglyndi og kvíða
allt árið um kring, að þeir upplifa
enn meiri vanlíðan, margur hnút-
urinn kemur í magann. Reynt er að
bera sig vel við aðstæður þar sem
eina hugsunin er að forða sér bara
heim. Þá er vanlíðan orðin afar
sterk því margur í umhverfinu sem
þunglyndir þurfa að umgangast
ætlast til þess að sjúkdómarnir
hreinlega hverfi bara því að – jú
það er komið sumar og sól. Vet-
urinn er liðinn.
Með vinsemd og trú um að sífellt
bætist fleiri í hóp þeirra sem vilja
skilja þessar aðstæður.
HANNA RÚNA
JÓHANNSDÓTTIR,
Akureyri.
Myrkur – birta
Frá Hönnu Rúnu Jóhannsdóttur
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is