Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 41

Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 41 ✝ Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma, HELGA SIGURLÍNA MAGNÚSDÓTTIR, Faxabraut 13, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi, mánudaginn 30. júní. Helga verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00. Elín Ólöf Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI GUÐMUNDSSON, Sléttuvegi 23, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn 4. júlí. Dagbjört Ólafsdóttir, Svanbjörg Gísladóttir, Jón Hansson, Ester Gísladóttir, Viðar Gíslason, Kristín S. Svavarsdóttir, Þórir Gíslason, Sigrún Hinriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES HALLDÓR BENJAMÍNSSON frá Hallkelsstöðum, Melabraut 34, Seltjarnarnesi, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 1. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. júlí kl. 15.00. Ása Jóhanna Sanko, Elín Helga Jóhannesdóttir, Hallbjörn Ágústsson, Axel Hallkell Jóhannesson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þórhildur Guðný Jóhannesdóttir, Guðmundur Pétursson, Halldóra Jóhannesdóttir, Pétur Pétursson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SALLA SIGMARSDÓTTIR, Víðivangi 1, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 17. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sævar Þór Carlsson, Dagmar Jóhanna Heiðdal, Greta Carlsson, Jóhanna Carlsson, Þórhallur Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn.                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Klara BertínaSímonsen (Tryggvason) fædd- ist í Reykjavík 10. desember 1918. Hún lést á hjúkrunar- deild Hrafnistu í Reykjavík 9. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru John Martin Símonsen, bifreiða- stjóri í Reykjavík, f. í Noregi 25.7. 1889 og Þórunn Vilhjálms- dóttir frá Húnakoti í Þykkvabæ, f. 19.5. 1892. John og Þórunn slitu samvistir. Systkini Klöru voru Ottó Wilhelm Sím- onsen, f. 19.9. 1916, d. 22.8. 1979 og Guðrún Magnea Símonsen, f. 2.12. 1920, d. 13.1. 2000. Hálfsystir Klöru, sammæðra, er Jenný Jak- obsdóttir, f. 17.11. 1935. Fjölskylda Klöru fluttist til Berg- en í Noregi þegar hún var á þriðja ári. Tveimur árum síðar slitu for- eldrar hennar samvistir og fluttist Þórunn þá heim til Íslands ásamt börnum sínum. Klara ólst upp í Reykjavík og í uppvextinum sótti hún skóla Ingimars Jónssonar. Að grunnskólanámi loknu hélt hún út á vinnumarkaðinn og fékkst við ýmis störf, m.a. á saumastofu. Hinn 13. október 1938 gekk Klara að eiga Jóhann Tryggvason, f. 20.1. 1916, d. 26. 12. 1997, tónlistarkennara frá Ytra-Hvarfi; for- eldrar hans voru Guðrún Soffía Stefánsdóttir og Tryggvi Jóhannsson. Klara og Jóhann stofnuðu heimili í Reykjavík en fluttust árið 1945 til Lundúna, þar sem Jóhann nam hljómsveitarstjórn og starfaði við tónlist. Börn Klöru og Jóhanns eru: Þórunn Soffía, f. 1939; Tryggvi, f. 1942; Sólveig, f. 1944; Stefán, f. 1947; Sigrún, f. 1952; Kolbrún, f. 1955. Afkomendur Klöru eru nú orðnir 55, því auk barnanna 6 eru barnabörn þeirra 26 og lang- ömmubörn 23. Að eiginmanni sínum látnum fluttist Klara aftur til Íslands til Sigrúnar dóttur sinnar, en síðustu æviárin bjó hún á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Klöru fór fram 2. júlí. Það er með söknuð í hjarta og kæru þakklæti sem við kveðjum ömmu okkar, Klöru Tryggvason, en nú hefur viðburðarík ævi hennar runnið sitt skeið. Hún tók það hugaða skref að flytjast með afa okkar, Jó- hanni Tryggvasyni, til London í stríðslok til þess að afi gæti hlotið framhaldsmenntun í tónlist. Það var einmitt tónlistin sem leiddi þau sam- an, því þau kynntust þegar amma söng í kór sem afi stjórnaði. Fjöl- skyldan ílentist í London en þræðir örlaganna leiddu móður okkar, Sig- rúnu, aftur til Íslands þar sem hún hóf búskap með föður okkar, Einari Arnalds. Við systurnar nutum því ekki þeirra forréttinda að alast upp með ömmu og afa, en stuttar heim- sóknir, bréfaskriftir og símtöl voru okkur afar dýrmæt. Að vissu leyti varpaði fjarlægðin á þau ákveðnum ævintýraljóma og þrátt fyrir langar vegalengdir, lengri í þá daga, voru amma og afi í London alltaf mikilvæg í okkar lífi. Minningar okkar af heimili þeirra tengjast líflegum umræðum um lífið og listina, kveðskap, söng og hljóð- færaslætti, en fyrst og fremst geisl- andi lífsgleði, húmor og hlýju sem einkenndi þau bæði. Þau hjónin voru mjög samrýmd og eftir fráfall afa fannst ömmu erfitt að aðlagast lífinu án hans og heilsu hennar hrakaði ört. Hún ákvað þá að flytjast heim til Ís- lands eftir ríflega hálfrar aldar bú- setu á Englandi og setjast að á heimili foreldra okkar í Reykjavík. Amma náði smám saman heilsunni aftur og gat því notið vel síðustu ævi- áranna hér heima á Íslandi. Hún tók þátt í félagsstarfi eldri borgara í Múlabæ og eignaðist þar marga góða vini og kunningja. Hún fluttist síðar á Hrafnistu í Reykjavík og var virkur þátttakandi í margvíslegu félagsstarfi þar, meðal annars í kórnum. Amma var alltaf mikill fagurkeri og smekkkona og vildi njóta alls hins góða sem lífið hefur upp á að bjóða. Viðmót hennar og öll framkoma ein- kenndist af lífsgleði og hlýju og nær- vera hennar hafði uppörvandi áhrif á starfsmenn sem heimilisfólk, eins og alla samferðarmenn hennar, enda naut hún kærleiksríkra samskipta og einstakrar umhyggjusemi og vináttu þeirra sem önnuðust hana og það var henni dýrmætt. Þó afkomendurnir byggju víðsvegar um heiminn hélt hún alltaf góðu sambandi við þá og fylgdist af umhyggju og áhuga með lífi og starfi hvers og eins. Lengst af sendi hún öllum börnum sínum og barnabörnum afmæliskort sem hún skrifaði með sinni fallegu rithönd. Við þökkum ömmu samfylgdina og öll lögin sem hún kenndi okkur að syngja. Minning hennar lifir í hjört- um okkar. Dagný, Ólöf og Klara Arnalds. Klöru Tryggvason þekkti ég aðeins af afspurn þar til við tengdumst fjöl- skylduböndum við giftingu Sigrúnar dóttur hennar og Einars sonar míns. Þau Klara og Jóhann, maður hennar, komu nokkrum sinnum til Íslands um þær mundir, enda bjuggu þá tvær dætur þeirra aðrar hér á landi. Sig- rún og Einar heimsóttu þau líka á Englandi og sonardætur mínar sögðu við heimkomuna sögur af fjörugum koddaslag við „ömmu í London“ og söng og glensi með þeim Jóhanni. Eftir lát Jóhanns 1997 hrakaði heilsu Klöru og það varð úr að hún flutti alkomin heim til Íslands eftir meira en hálfrar aldar búsetu erlend- is. Hún dvaldi í fyrstu á heimili Sig- rúnar og Einars í Bugðulæk 6 og kynntist ég henni þá nánar. Klara var glæsileg og glaðsinna kona og ungir sem aldnir löðuðust að henni. Þau Einar áttu það til að gantast dálítið og mátti þá ekki á milli sjá hvort þeirra var orðheppnara. Húmorinn var henni mikill styrkur í lífinu og hjálp- aði henni m.a. í glímunni við þrálát og erfið veikindi síðustu árin. Klara dvaldist um skeið í dagvist í Múlabæ og eignaðist hún þar góða vini og við „stelpurnar“, vinkonur mínar, nutum samvista við hana meðan hún treysti sér til að taka þátt í ýmiss konar dægrastyttingu með okkur og sækja tónleika. Hún var afar söngvin og unni tónlist og ljóðlist og gat raunar þulið heilu ljóðabálkana eftir minni. Gott var því að leita til hennar til að rifja upp texta við gömul lög sem við höfðum lært í æsku. Eftir að Klara flutti á dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík tók hún mikinn þátt í félagslífinu þar og átti vinsæld- um að fagna meðal vistmanna og starfsfólks. Betri talsmann hefði Hrafnista ekki getað kosið sér, svo mikils mat hún alla aðhlynningu þar. Sigrún, elskuleg tengdadóttir mín, varð aðalstoð og stytta móður sinnar síðustu árin, en hún er nú sú eina af börnum Klöru sem búsett er hér á landi. Klara átti sex börn sem öll voru henni jafnkær og hinum systkinunum tókst að halda góðu sambandi við móður sína þessi síðustu ár hennar, oftast fyrir tilstuðlan pósts og síma þar eð þau eru búsett víðs vegar um heiminn. Klara kunni góð skil á öllum barnabörnum sínum og sífjölgandi barnabarnabörnum, enda var minni hennar óbrigðult allt til síðustu stundar. Klara Tryggvason skilur eft- ir góðar minningar hjá öllum sem kynntust henni. Aðstandendum hennar votta ég einlæga samúð. Ásdís Arnalds. Klara Tryggvason Við viljum minnast vinar okkar Kristjáns sem hefur reynst okkur svo vel. Við kynntumst Kristjáni þegar við vor- um starfsstúlkur í eldri borgara hóp á Vestmannsvatni. Kristján var ein- stakur maður, ótrúlega duglegur og ómissandi í sínum hóp á Vestmanns- vatni. Þó að aldursmunurinn hafi verið um 65 ár þá leið okkur ekki þannig þegar við töluðum við hann. Þarna eignuðumst við góðan vin sem að við eigum eftir að sakna mik- ið. Honum fannst hann oft vera byrði Kristján Tryggvason ✝ KristjánTryggvason fæddist á Meyjar- hóli á Svalbarðs- strönd 24. apríl 1920. Hann lést á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri 28. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 5. júní. á okkur þegar við vor- um að stússast í kring- um hann á Vest- mannsvatni, en það var sko ekki þannig, það var alltaf aðalstuð- ið í kringum Kristján, enda sóttum við líka mikið í því að vera í kringum hann. Alltaf hugsaði hann til okkar og þegar við eignuð- umst börnin okkar fengum við báðar vöggur sem hann gerði handa okkur. Það var okkur mikils virði að kynn- ast svo frábærum manni og er hann okkur fyrirmynd því hann lét ekkert stoppa sig. Elsku Kristján, hefðum við vilja eyða meiri tíma með þér. Þú verður alltaf ofarlega í hugum okkar. Það er sárt að kveðja góðan vin. Með virðingu og söknuði, þínar vinkonur, Rebekka Ásgeirsdóttir og Sigrún Gyða Matthíasdóttir. varst alltaf í góðu skapi og sagðir aldrei neitt slæmt um nokkurn mann. Þótt ég hafi verið nokkuð mikið hjá þér þegar ég var krakki man ég ekki eftir því að þú hafir í eitt skipti hastað á mig, hvað þá skammað mig. Þú varst alveg sér- stök. Elsku amma, ég þakka þér fyrir alla umhyggjuna og hlýjuna. Minn- ingin um yndislega ömmu mína lifir í mínu hjarta. Guð geymi þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hulda. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.