Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 50

Morgunblaðið - 06.07.2008, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er sunnudagur 6. júlí, 188. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Víkverji er ekki fundaglaðurmaður. Hann mætir helst ekki á fundi því þeir taka tíma frá vinnu. Víkverji hefur komið víða við á starfsferli sínum og á sumum þeirra vinnustaða sem hann hefur haft viðkomu á má með sanni tala um fundafár. Þar er enginn maður með mönnum nema hann mæti á fundi þrisvar á dag, og þar af þarf einn fundurinn að vera að minnsta kosti klukkutíma langur svo fund- armenn finni virkilega til mikil- vægis síns. x x x Svo gerðist það eitt árið að Vík-verji fylltist óöryggi. Honum fannst eins og hann væri útundan á vinnustaðnum og ákvað að byrja að mæta á fundi. Víkverji minnist þess tíma enn með hryllingi. Eftir hálftíma sótti á hann syfja og eftir þrjú korter var hann búinn að gleyma öllu sem sagt hafði verið. Hann fór því af fundinum verr upplýstur en hann hafði verið fyrir fundinn. Eftir þriggja vikna reglubundna vinnufundi var skapandi hugsun Víkverja á hröðum flótta úr heila- búinu. Víkverji var líka orðinn geð- vondur og fannst ekkert gaman í vinnunni. Hann hætti stuttu síðar. x x x Víkverji lifir glaður í þeirri trúað meirihluti þeirra funda sem haldnir eru séu tímasóun. Vík- verji er ansi ánægður með sjálfan sig og litla þörf sína fyrir að sanna eigið mikilvægi á fundum. Reyndar taka fæstir eftir Víkverja á vinnu- stað hans og á veikleikastundum hvarflar að honum hvort hann eigi að bregða sér á fund til að láta samstarfsmenn taka eftir sér. Hann guggnar þó á þeirri hug- mynd vegna vondrar fortíð- arreynslu. Hann kærir sig ekki um að lokast inni í klukkutíma, tapa andagift og verða óvinnufær það sem eftir lifir dags. Hann einbeitir sér því að vinnu sinni – ófundafær – úti í horni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Keflavík Guðnýju Ósk Garðarsdóttur og Ólafi Ró- berti Rafnssyni fæddist dóttir 24. júní kl. 19.13. Hún vó 3.370 g og var 52 cm löng. Reykjavík Ólafur Ingi Berg- mann fæddist 25. maí. Hann vó 3.440 g og var 52 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Sveinn Bergmann Rúnarsson og Halldóra Ólafsdóttir. Reykjavík Júlía Mist fæddist 2. maí kl. 22.06. Hún vó 4.235 g, 17 merkur, og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Andri Viðar Sveinsson og Karen Gylfadóttir. Nýirborgarar Krossgáta Lárétt | 1 húfu, 8 messu- klæði, 9 tekur, 10 starf, 11 magran, 13 endur- skrift,15 él, 18 bjargbú- ar, 21 hrós, 22 hugleys- ingi, 23 mannsnafns, 24 gráti nær. Lóðrétt | 2 drykk- felldur, 3 reyfið, 4 snjóa, 5 fær af sér, 6 óblíður, 7 þurrð, 12 illdeila,14 ill- menni, 15 hrím, 16 logi, 17 kátt, 18 dögg, 19 hóp, 20 gangsetja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skrök, 4 fegin, 7 ríkur, 8 Regin, 9 tún, 11 port, 13 bana, 14 eyddi,15 þjöl, 17 káta, 20 hné, 22 negul, 23 tregt, 24 illur, 25 riðla. Lóðrétt: 1 skróp, 2 rýkur, 3 kort, 4 forn, 5 gegna, 6 nenna, 10 úldin, 12 tel, 13 bik,15 þandi, 16 öngul, 18 áreið, 19 aftra, 20 hlýr, 21 étur. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 Bb4 5. Rge2 dxe4 6. a3 Be7 7. Bxf6 gxf6 8. Rxe4 b6 9. g3 Bb7 10. Bg2 c6 11. c4 Rd7 12. O–O O–O 13. R4c3 Dc7 14. d5 Re5 15. Rd4 Had8 16. Dh5 f5 17. Had1 cxd5 18. cxd5 Bf6 19. Hfe1 a6 20. h3 Rc4 21. Re4 Bg7 22. Rg5 h6 23. dxe6 hxg5 24. e7 Bxg2 25. Dxg5 Hxd4 26. Hxd4 He8 27. Kxg2 Re5 28. Hxe5 Dxe5 29. Hd8 Db5 30. Kg1 Kh7 31. Dh5+ Kg8 32. Dg5 Kh7 33. b4 a5 34. g4 axb4 35. Dh5+ Kg8 36. Dxf5 Dc6 37. axb4 Dc1+ 38. Kg2 Dc6+ 39. Df3 Da4 Staðan kom upp á argentínska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Mendoza. Alþjóðlegi meist- arinn Diego Valerga (2482) hafði hvítt gegn kollega sínum Damian Lemos (2458). 40. b5! og svartur gafst upp enda fátt um varnir eftir 40… Dxb5 41. Da8. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tapspil í tapspil. Norður ♠10874 ♥Á54 ♦KD43 ♣84 Vestur Austur ♠G953 ♠-- ♥3 ♥KD10986 ♦G762 ♦1085 ♣ÁD73 ♣9652 Suður ♠ÁKD62 ♥G72 ♦Á9 ♣KG10 Suður spilar 4♠. Keppendur á EM fóru flestir niður á þessu spili, enda legan illskeytt, allur spaðinn í vestur og bæði háspilin í laufi. Austur vakti ýmist á tveimur eða þremur hjörtum og vestur kom út með ♥3, augljóst einspil. Flestir sagnhafar spiluðu beint af augum, tóku á ♥Á, könnuðu trompið og treystu svo blint á ♣D í austur. Einn niður. Nokkrir voru hugmyndaríkari og sáu möguleika á því að endaspila vestur. Þeir fóru í tíg- ulinn þegar spaðalegan kom í ljós og hentu niður tveimur hjörtum heima. Vestur sat inni á fjórða tíglinum og varð að spila frá ♠G eða ♣ÁD. Ekki góðir kostir það. – Þessi spilamennska er útgjaldalaus því ef austur reynist eiga fjórða tígulinn má trompa hátt og þá er nægur samgangur til að spila upp á ♣D rétta. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Val þitt í dag ræðst af viðurkenn- ingu þinni á því hve flókinn þú ert. Það leiðir til þess að þú finnur fyrir fyllingu í annars glæsilegu lífi þínu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú gefur ímyndunarafli þínu lausan tauminn. Sennilega er það merki um að þér finnist raunveruleikinn ekki ýkja spennandi og vilt hressa upp á hann. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Fólk hefur sínar ástæður til að dá þig. Þú yrðir hissa, upp með þér og stoltur ef þú vissir hverjar þessar ástæð- ur eru. Ekki spyrja. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þó að þú sért ánægður með venjur þínar og siði er enn hluti af þér sem þú ert ekki sáttur við. Hvað myndi gerast ef þú hættir að berjast? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Ástæða þess að þér finnst ákveðnar kringumstæður fyndnar þegar engum öðrum finnst það er sú að þú sérð sann- leika sem aðrir sjá ekki. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þetta er lukkudagurinn þinn og þú ættir að gefa stjórnina frá þér. Fleygðu draumum þínum upp í loft eins og fugl- sungum og sjáðu hvaða stefnu þeir taka. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Enginn er fullkominn og þú gerir þitt besta til að gera hæfilegar kröfur til þeirra sem þú umgengst. Þú gætir þurft að vísa leiðina í dag þegar freistingarnar kalla. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Umhverfi þitt kemur upp um alla þína galla, sérstaklega skipulags- leysið sem hrjáir þig. Sem betur fer þekk- ir þú meyju sem gjarnan vill hjálpa þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú einblínir af þráhyggju á eitt vandamál og það án þess að þreytast á því. Ef þú heldur áfram á sömu braut færðu orð á þig fyrir geggjaða snilligáfu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert bara sendiboðinn, ekki skilaboðin. Ef þú klúðrar einhverju er það frekar samskiptavandamál fremur en eitthvað sem þú hefur gert af þér. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ef þú knýrð dyra nógu lengi verður opnað fyrir þér fyrr en síðar. Það gæti verið eitthvað athugavert við hurð- ina sem opnast um leið og þú bankar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú býrð yfir öllum þeim orðaforða sem þú þarft til að koma skilaboðunum á framfæri. Tónninn í máli þínu skiptir öllu og þú ættir að bíða þar til þú ert sann- færður um mál þitt. Stjörnuspá Holiday Mathis 6. júlí 1946 Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll við hátíð- lega athöfn. Breski herinn hafði vorið 1940 tekið grasvöll sem hafði verið í notkun í Vatnsmýrinni síðan 1919 og endurbyggt hann. Við afhend- inguna sagði breski sendiherr- ann að notkun þessa flugvallar hefði stuðlað mjög að sigri bandamanna í styrjöldinni um yfirráðin á Atlantshafinu. 6. júlí 1954 Skriða féll á bæinn Fremri- Kot í Norðurárdal í Skaga- firði. Hesthús, fjárhús og stór hluti túnsins grófust undir skriðunni. Íbúðarhúsið slapp naumlega, en í því var kona með fimm börn. 6. júlí 1958 Eyjólfur Jónsson, 33 ára lög- regluþjónn, synti frá Reykja- vík til Akraness, 22 kílómetra, á rúmum þrettán klukku- stundum. Ári síðar synti hann frá Vestmannaeyjum til lands og frá Kjalarnesi til Reykja- víkur. Einnig synti hann tví- vegis Drangeyjarsund. 6. júlí 1964 Togarinn Siglfirðingur kom til heimahafnar. Hann hefur verið talinn fyrsti íslenski skuttogarinn. Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist þá… Lýður Björns- son sagnfræð- ingur er 75 ára í dag, 6. júlí. Af því tilefni tekur hann á móti gest- um á veitinga- húsinu Carpe Diem, Rauð- arárstíg 18, milli kl. 16 og 18.30 í dag. 75 ára Lýður Bakkdal Björnsson, sagnfræðingur, fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Hann er búsettur að Star- hólma 4 í Kópavogi. Lýður hyggst hitta nánustu kunningja sína á veitingastaðnum Carpe Diem í miðborg Reykjavíkur í dag og kvöldinu ætlar hann að eyða í faðmi nánustu ættingja. Lýður segir engan sérstakan afmælisdag hafa rist dýpra í minni hans en aðrir í gegnum tíðina. „Þeir hafa þó flestir verið mjög ánægjulegir. Ég hef þó jafnan reynt að fara til útlanda á svona stó- rafmælum þó sú sé ekki raunin í ár.“ Aðspurður hver hans helstu áhugamál séu segir Lýður: „Sagnfræði, landafræði, þjóðsögur, náttúrufræði og alls kon- ar. Mér finnst gaman að lesa góð skáldverk og svo er ég alæta á tón- list - það er að segja gamla tónlist. Ég á svolítið erfitt með að þekkja muninn á þessum nýju lögum.“ Hann bætir við að sér líki sérstaklega vel við þjóðlög víðs vegar að úr heiminum og klassíska tónlist. Lýður lauk sagnfræðiprófi sínu frá Háskóla Íslands árið 1965. Hann segist löngum hafa einbeitt sér að Íslandssögunni og 18. öldin hafi ávallt verið honum hugleikin. Þá hefur hann einnig mikinn áhuga á sögu Reykjavíkur og Vestfjarða. Lýður ætlar að reyna að njóta góða veðursins eins og hann getur í sumar. haa@mbl.is Lýður Björnsson 75 ára í dag Einbeitir sér að Íslandssögu ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.