Morgunblaðið - 06.07.2008, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 59
• Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr.
• Góður hagnaður. Gæti hentað til flutnings út á land.
• Lítil heildverslun með matvæli.
• Þjónustufyrirtæki með rekstrarvörur. Ársvelta 450 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að stóru bílaþjónustufyrirtæki.
EBITDA 17 mkr.
• Traust heildverslun með neytendavörur. Ársvelta 140 mkr.
EBITDA 20 mkr.
• Fjöldi góðra fyrirtækja í Danmörku.
• Heildverslun með varahluti fyrir vinnuvélar og bíla.
Ársvelta 140 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að fyrirtæki á heilbrigðissviði.
• Æskilegt að viðkomandi sé hjúkrunarfræðingur.
• Meðalstór heildverslun með tæknivörur óskar eftir sameiningu við
annað fyrirtæki á því sviði. Ársvelta 140 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að góðu útgáfufyrirtæki í
stöðugum vexti. Ársvelta 200 mkr.
• Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 130 mkr.
• Rótgróin bílaleiga með 21 bíl. Auðveld kaup.
• Heildverslun með bílavörur. EBITDA 25 mkr.
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Salou
11. - 25. júlí
frá kr. 49.995
Tveggja vikna ferð - síðustu sætin!
Terra Nova býður frábært tilboð til Salou og Pineda í tveggja vikna
ferð 11. júlí. Salou og Pineda eru fallegir bæir á Costa Dorada
ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og
glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur,
fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 49.995
- 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára í íbúð með 2 svefn-
herbergjum í 2 vikur, 11. júlí.
Kr. 59.995
- 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 saman í herbergi /
stúdíó / íbúð í 2 vikur, 11. júlí.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
ÁSTRALSKA poppdívan Kylie Min-
ogue tók við OBE-orðunni frá Karli
Bretaprins við athöfn í Buck-
ingham-höll í vikunni.
Á ferli sem spannar þrjá áratugi
hefur hún gefið út fjölda breiðskífa
og smáskífa sem hafa náð metsölu
um allan heim. Þegar söngkonan
frétti af heiðrinum sagði hún: „Ég
er mjög snortin yfir því að Bret-
land, sem hefur fóstrað mig eftir að
ég flutti frá Ástralíu, skuli veita
mér þennan heiður.“
Þá eru Frakkar ekki síður hrifnir
af henni, en þeir veittu henni orðu
listamanna fyrir framlag hennar til
franskrar menningar.
Söngkonan gat sér fyrst gott orð
í sjónvarpsseríunni Nágrönnum og
hefur átt marga smelli síðan. Eft-
irminnilegastur er þó mörgum dú-
ett hennar með Nick Cave í „Where
the Wild Roses Grow“. Þá samdi
Emilíana okkar Torrini eitt sinn tvö
lög fyrir hana, „Slow“ og „Some-
day“.
Stolt Kylie með OBE-orðuna.
Kylie
heiðruð
KUNG Fu Panda er flott mynd. Frá
byrjun grípur hún augað. Hún er lif-
andi og litrík. Heimurinn sem
pandabjörninn Po (Hjálmar Hjálm-
arsson) á heima í er fallega útfærð-
ur. Allt frá draumkenndum stjörnu-
björtum himni og dularfullu
plómutré til hörkulegasta sjálfs-
varnarbardaga lítur vel út. Mark-
aðsdeildin hjá DreamWorks hefur
líka viðrað það við fjölmiðla vest-
anhafs að mikil rannsóknarvinna
liggi að baki útliti myndarinnar. Hún
sé ekkert einfalt barnaglingur. Ætla
ég ekkert að efast um það. Raymond
Zibach og Tang Heng sem höfðu yf-
irumsjón með útlitinu eiga pottþétt
heiður skilinn.
Það er bara spurning um hvað út-
litið rammar af. Einhver staðar var
ýjað að því að upphaflega hefði verið
lagt af stað með Kung Fu Pöndu
sem algera paródíu á þær myndir
sem hún er að stæla en frá því hafi
verið horfið og í staðinn hafi verið
gerð einföld gamanmynd. Það eru
kannski helstu vonbrigðin með
myndina, hversu hefðbundin hún er í
alla staði þegar kemur að sögu og
persónusköpun. Po á að upplifa am-
eríska drauminn hvað sem tautar og
raular. Hann er hæfileikalaus Rocky
sem ætlar að halda áfram að éta
kökuna en sigrar samt.
Það er best að benda á að myndin
er ekki fyrir þau allra yngstu þó að
pandan sé knúsleg, fyndin og sæt.
Po er líka einstaklega vinalegur
bangsi sem Hjálmar sprellar með á
íslensku en Jack Black í ensku út-
gáfunni. Íslenska talsetningin var
ágætlega skemmtileg. Jafnvel þegar
leikararnir þurftu að fást við að
flytja missmellnar línur.
Panda í
vanda
Ameríski draumurinn „Kung fu Panda Po á að upplifa ameríska drauminn
hvað sem tautar og raular. Hann er hæfileikalaus Rocky sem ætlar að halda
áfram að éta kökuna en sigrar samt,“ segir í dómnum.
KVIKMYND
Smárabíó, Háskólabíó, Laug-
arásbíó, Sambíóin Álfabakka,
Kringlunni, Selfossi, Akureyri,
Keflavík
Leikstjórar: Mark Osborne og John Stev-
enson. Íslensk talsetning: Hjálmar
Hjálmarsson, Arnar Jónsson, Ólafur Darri
Ólafsson, Guðmundur Ólafsson, Haraldur
Haraldsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Val-
ur Freyr Einarsson, Valdimar Flygering,
Inga Lind Karlsdóttir, Björn Thorarensen.
88 mín. Bandaríkin. 2008
Kung Fu Panda
bbbnn
Anna Sveinbjarnardóttir
ÞEIR félagar í Bon Jovi virðast hafa verið innblásnir af stórtónleikum
Bjarkar og Sigur Rósar í Laugardal, því nú hefur Jon Bon Jovi lýst því yfir
að þeir muni ljúka tónleikaferðinni með ókeypis tónleikum í Central Park í
New York, en sveitin hefur hingað til ávallt lokið sínum túrum á Giants-
leikvanginum í sömu borg. Það er spurning hvort þeir nái að toppa frá-
bæra aðsókn Simon & Garfunkels árið 1981, en þá hélt söngparið, sem
hafði þá hætt eiginlegu samstarfi fyrir ellefu árum, fræga tónleika í Cent-
ral Park sem 750 þúsund manns sóttu. Ef Bon Jovi-menn ætla sér svo að
keppa við Björk og Sigur Rós (ef margfaldað er með höfðatölu að þjóð-
legum íslenskum sið) þá þurfa þeir svo náttúrulega að draga tvær milljónir
borgarbúa í garðinn – hvort það sé pláss fyrir slíkan fjölda er svo annað
mál.
Reuters
Tvöfaldur Jon Bon Jovi stekkur upp fyrir framan sjálfan sig í beinni.
Frítónleikar Bon Jovi
í Central Park