Morgunblaðið - 06.07.2008, Qupperneq 60
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Sunnlenskar fornleifar
sem lítið er gert fyrir
Manngerðir hellar á Suðurlandi
eru merkar menjar um lifnaðarhætti
Íslendinga frá landnámi. Skv. upp-
lýsingum frá Fornleifavernd ríkisins
vantar mikið fjármagn til að hægt sé
að halda þeim í góðu ástandi. Hellar
þessir eru grafnir inn í móberg og
sandstein og eru nánast óþekktir í
öðrum landshlutum.
» Forsíða
Sjúkrastofnun mismunað
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er
mismunað í greiðslum fyrir aukna
þjónustu í heimabyggð, sem heil-
brigðisráðuneytið greiðir nágranna-
sjúkrahúsum Landspítalans til að
létta af honum álagi. Árni Sigfússon
bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir
þetta ástand óviðunandi. » 2
Blönduð byggð í Kársnesi
Kópavogsbær gerir nú nýjar til-
lögur að skipulagi byggðar í Kárs-
nesi og leggur til að þar verði blönd-
uð byggð. Tillögurnar koma í stað
eldri hugmynda um hafnsækna
starfsemi á nesinu. » 4
Elsta sængurkona heims
Sjötug indversk amma, Omkari
Panwar að nafni, eignaðist tvíbura
einum mánuði fyrir tímann, eftir að
hafa farið í tæknifrjóvgun. Ætlunin
var að eignast karlkyns erfingja og
gekk það eftir. Eiginmaður Panwar
kostaði miklu til. » 2
Með tengdapabba í úrslit
Sigurbjörn Bárðarson var efstur
inn í úrslit A-flokks gæðinga á
Landsmóti hestamanna, með Kol-
skegg frá Oddhóli. Annar inn í úr-
slitin var tengdasonur hans, Árni
Björn Pálsson, á hestinum Aris frá
Akureyri. » 8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hvenær verður pakkað
saman?
Forystugrein: Þriðji geirinn
Ljósvaki: Bolti á landsbyggðinni
UMRÆÐAN»
Framsækið samfélag í
Þingeyjarsýslum
Ríkisútvarpið á braut einkavæðingar
Strætó á rangri leið
Myrkur – birta
Heitast 20°C | Kaldast 13°C
Hægviðri og skýjað
með köflum. Sums stað-
ar þokuloft við strönd-
ina. Hlýjast í upp-
sveitum suðvestanlands. » 8
Getur pandabjörn-
inn Po upplifað am-
eríska drauminn –
og orðið jafn góður í
kung-fu og hann
dreymir um? » 59
KVIKMYNDIR»
Ameríski
draumurinn
TÓNLIST»
Bon Jovi treður upp í Mið-
garði í New York. » 59
Benni Hemm Hemm
og félagar spila á
Siglufirði þar sem
Þjóðlagahátíðin nær
hæstu hæðum um
helgina. » 53
TÓNLIST»
Þjóðlaga-
stuð á Sigló
TÓNLIST»
Linda Draper syngur súr-
realískar smásögur. » 54
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Skeggjaðar konur, risar
og dvergar. » 56
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Paul Ramses farinn af flugvellinum
2. Barnaði 11 ára stúlku
3. Eiga erfitt með að borga
4. Kaupmenn ævareiðir
KRISTÍN Anna Valtýsdóttir gekk
úr hljómsveitinni múm fyrir tveim-
ur árum og hefur sinnt eigin tón-
listarsköpun síðan undir lista-
mannsheitinu Kria Brekkan.
Kristín, sem býr nú í New York,
rifjar upp í samtali við Morg-
unblaðið veru sína í múm, segir frá
glímutökum við listgyðjuna og sam-
starfinu við eiginmanninn Dave
Portner, sem leiðir hina virtu
neðanjarðarsveit Animal Coll-
ective. | 52
Inn í
tónlistina
Morgunblaðið/Golli
GARÐAGRÓÐUR og villtar plöntur dafna vel
þessa dagana. Veðurskilyrði eru hagstæð þegar
vætu gefur annað slagið og lífríkið getur tekið
vaxtarkipp. Það væsir heldur ekki um ferfæt-
lingana meðal gróskumikilla plantna, eins og
þessi bangsalegi hvutti veit mætavel.
Innan um burkna og blómjurtir í veðurblíðunni
Morgunblaðið/RAX
Eftir Arnþór Helgason
arnthorh@mbl.is
BJARKI Friis er íslenskur í móð-
urætt. Hann er stöðvarstjóri í
Meistaravík á Norðaustur-Græn-
landi. Árin 2005-2007 var hann í
Síríus-varðflokknum sem hefur
eftirlit með þjóðgarðinum á svæð-
inu og gætir þar hagsmuna danska
ríkisins. Hann fetar þar í fótspor
föður síns sem var í Síríus-varð-
flokknum á 7. og 8. áratugnum.
Einungis ókvæntir, ungir karl-
menn eru teknir inn í Síríusflokk-
inn og gegna þjónustu í 26 mánuði
samfleytt. Eina fríið er ferð til
tannlæknis í Reykjavík.
Hvítabjörn í heimsókn
Bjarki segir að helstu hætturnar
stafi af ótraustum ís, fimbulkulda
og hvítabjörnum ásamt sauðnaut-
um. Stundum komist menn í návígi
við þessi dýr vegna myrkurs og
slæms skyggnis og geti þá dýrin
brugðist við á mjög óvæntan hátt.
„Einu sinni, þegar við vorum ný-
komnir í náttstað, fóru hundarnir
að gelta og við félagarnir þutum
út. Þá sáum við að stór hvítabjörn
kom röltandi í áttina til okkar. Við
skutum að honum neyðarblysum
og loks sendi ég eitt í síðuna á hon-
um.
Hann lét sem hann tæki ekki
eftir því.
Björninn var aðeins 5-10 m frá
okkur þegar ég sá mér ekki annað
fært en að skjóta hann. En þá
sneri bangsi við og rölti eitthvað út
í auðnina þar sem hann hvarf.“
Síríus-varðflokkurinn var stofn-
aður árið 1950 og í honum eru 12
varðliðar og 100 sleðahundar.
Með hvítabjörnum | 22
Barátta við birni
Hinn hálfíslenski Bjarki Friis var í Síríus-varðflokknum sem
hefur eftirlit með þjóðgarðinum á Norðaustur-Grænlandi
Bjarki Friis Hafði snör handtök
þegar kallið í Grænlandsför kom.
Í HNOTSKURN
»Gæslusvæði flokksins er160.000 km2 fyrir norðan
74. breiddargráðu og stærsta
óbyggða svæði heims.
»Norðaustur-Grænland erstærsti þjóðgarður heims,
972.000 ferkílómetrar.
»Frostið getur orðið allt að50 stigum á vetrum.
»27 menn á fjórum stöðvumeru á svæðinu að vetr-
arlagi.