Morgunblaðið - 18.07.2008, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„STOÐNETIN
eru mjög dýr,
bæði hefðbundin
stoðnet og lyfja-
húðuð stoðnet,
sem eru notuð
erlendis í mjög
miklum mæli.
Hér er heilbrigð
skynsemi látin
ráða. Við notum
minna af þessum
dýru, lyfja-
húðuðu stoðnetum en Bandaríkja-
menn,“ segir Þorbjörn Guðjónsson
hjartasérfræðingur hjá LSH. Hann
segir hjáveituaðgerðir henta fólki
með sykursýki og þrengingar í
fleiri en einni æð, svo dæmi sé tek-
ið. „Þetta er samt mjög persónu-
bundið. Einföld þrengsl eru oftast
mjög vel meðhöndluð með víkk-
unum. Þær breyta hins vegar ekki
lífslíkum fólks með langvinna
brjóstverki og kransæðasjúkdóma
umfram hjáveituaðgerð.“
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
KRANSÆÐAVÍKKUN með stoð-
netsísetningu eða hjáveituaðgerð?
Það er vandi sem læknar standa
frammi fyrir hjá sjúklingum með
kransæðaþrengsl.
David P. Taggart, prófessor í
hjarta- og æðaskurðlækningum við
læknadeild Oxford-háskóla, fullyrðir í
grein í British Medical Journal, að
reynslan af stoðnetsísetningum í stað
skurðaðgerðar hjá sjúklingum með
kransæðasjúkdóma sýni að þær hafi
ekki haft í för með sér auknar lífs-
líkur fyrir sjúklinga. Í grein hans
kemur jafnframt fram að skurð-
aðgerð sé bæði hagkvæmari og ár-
angursríkari en stoðnetsísetning.
Um er að ræða tvær ólíkar aðgerð-
ir. Kransæðahjáveituaðgerð er stærri
aðgerð. Brjóstholið er opnað, fólk er
lengur að jafna sig inni á spítala og er
tvo til þrjá mánuði að ná fyrri starfs-
getu. „Henni fylgir því umtalsvert
rask fyrir sjúklinginn. Hins vegar
þegar um víkkun á æðum með stoð-
neti er að ræða er sjúklingurinn út-
skriftarfær daginn eftir og getur ver-
ið eftir atvikum kominn til vinnu
nokkrum dögum síðar,“ segir Davíð
Ó. Arnar hjartasérfræðingur á Land-
spítala háskólasjúkrahúsi (LSH).
Fleiri stoðnetsvíkkanir en áður
Að öllu jöfnu er það svo að krans-
æðavíkkun með stoðneti hefur verið
talin henta sjúklingum með eina eða
tvær ákveðnar æðaþrengingar en
hjáveituaðgerð talin henta þeim sem
eru með tvenn til þrenn þrengsli eða
þrengsli á mjög mikilvægum stöðum.
„Það hefur verið ágætis samkomulag
um hvernig að þessu hefur verið stað-
ið hérlendis. Það er stigsmunur á því
hvaða sjúklingar fari í krans-
æðavíkkun með ísetningu stoðnets og
svo á hinn bóginn hverjir fari í hjá-
veitu. Árangurinn hefur verið góður
af stoðnetsísetningum og þróunin
hefur verið á þann veg að víkka frek-
ar fleiri þrengsl en færri í stað opinn-
ar skurðaðgerðar áður. Stoðnets-
ísetningar virka hins vegar ekki alveg
jafnvel til lengri tíma eins og hjá-
veituaðgerð,“ segir Davíð.
Ekki ágreiningur meðal lækna
„Yfirleitt er ekki ágreiningur um
hvaða meðferðarúrræði skuli velja,
hjáveituaðgerð eða stoðnetsísetn-
ingu,“ segir Þórarinn Guðnason,
hjartasérfræðingur á LSH.
Það skiptir miklu máli í þessu sam-
hengi hvernig þrengsl eru valin.
„Sum æðaþrengsl eru einföld, stutt
svæði með þrengslum, og þá er til-
tölulega auðvelt að víkka út krans-
æðar. Hins vegar eru dæmi um löng
þrengsl eða þrengsl á flóknum stöð-
um þar sem árangur af stoðnetsísetn-
ingu er ekki jafn góður,“ segir Davíð.
Í um það bil 10% tilfella koma end-
urþrengsl í stoðnet vegna örmynd-
unar því þegar víkkað er með stoð-
netsísetningu þá eru ýfðir upp
ákveðnir vaxtarþættir í krans-
æðaveggnum. Oftast gerist þetta inn-
an fjögurra mánaða og þá þarf að
framkvæma aðra víkkun, hún heppn-
ast í 90% tilvika.
Segir stoðnet ekki auka lífslíkur
Hjáveituaðgerð umfangsmeiri
Stoðnet heppileg í ákveðnum tilvikum
Morgunblaðið/Ásdís
Lækna Víkka fleiri þrengsl en færri
í stað opinnar skurðaðgerðar.
FREGNIR af makrílsleysi á höf-
uðborgarsvæðinu virðast vera orð-
um auknar því í Fiskbúðinni á
Trönuhrauni 9 í Hafnarfirði hefur
ferskur makríll fengist undanfarnar
tvær vikur.
Ágúst Sveinsson, eigandi Fiskbúð-
arinnar, segir makrílinn koma frá
Dalvík, en nýlunda sé að hann
veiðist við Norðurland. Áður hefur
Ágúst fengið makrílinn frá Vest-
mannaeyjum og hann segir hann
seljast ágætlega. „Hann er vinsæll
hjá fólki sem hefur verið búsett á
Norðurlöndunum. Þeir sem hafa
verið í námi í Danmörku, Svíþjóð og
þessum löndum eru hrifnir af makr-
ílnum,“ segir Ágúst.
Fiskurinn er að sögn Ágústs
bragðgóður og ódýr. „Ég steikti
makríl um daginn og hann var mjög
góður, betri en síld ef eitthvað er. Ég
sel hann á 415 kr. kílóið og var að fá
nokkur kíló í gær svo það er nóg til.“
Fyrst makríllinn leynist í Hafn-
arfirði er aldrei að vita nema áhuga-
samir tilraunakokkar geti nálgast
hann víðar. liljath@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fisksali Ágúst Tómasson fisksali
selur makríl í Hafnarfirði.
Lumar
á makríl
LÖGREGLAN á Akureyri fékk í gær
ábendingu um að par frá Þýska-
landi, sem lagði af stað frá Grenivík
norður Látraströnd á sunnudag,
hefði enn ekki skilað sér til baka. Að
sögn lögreglu kom ábendingin í kjöl-
far þess að bíll parsins vakti athygli
heimamanna, auk þess sem búnaður
ferðamannanna vakti áhyggjur.
Flogið var yfir svæðið og varð fólks-
ins vart í skýlinu í Látrum. Björg-
unarbátur frá Björgunarsveitinni
Ægi á Grenivík fór í framhaldinu út
í Látur og kom að fólkinu þar sem
það var vel haldið. Hugðist það
dveljast lengur í skálanum.
andresth@mbl.is
Leitað á
Látraströnd
Ferðamenn fund-
ust heilir á húfi
NAUTHÓLSVÍKIN hefur verið mjög vel sótt í
allt sumar enda hefur sólin ekki sparað við sig
geislaflóðið á Suður- og Vesturlandi. Þó var dá-
lítill hryssingur í honum þegar myndin var tekin.
Víkin, sem kennd er við bæinn Nauthól, hjáleigu
frá Skildinganesi, var aðsetur sjóflugvéla í orr-
ustunni um Atlantshafið, meðal annars norskrar
flugsveitar, en hugmyndir um að nýta hana til
sjóbaða komu upp strax eftir styrjaldarlok.
Nauthólsvíkin mikið sótt í allt sumar
Morgunblaðið/Ómar
Ylströnd fyrir unga sem aldna
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
OLÍUFÉLÖG lækkuðu í gær elds-
neytisverð um 5 krónur á hvern
lítra. Hjá stóru olíufélögunum kost-
aði lítri af bensíni 170,70 krónur og
dísilolíulítrinn 188,60 krónur.
Spurður um tilefni lækkunarinnar
sagði Magnús Ásgeirsson, inn-
kaupastjóri eldsneytis hjá N1, að
um tilboð – 5 króna afslátt í sjálfs-
afgreiðslu – væri að ræða sem fólki
byðist út daginn í dag. Hjá N1 kost-
aði lítrinn af 95 oktana bensíni 170,6
krónur í sjálfsafgreiðslu í gær en
lítri af dísilolíu kostaði 188,6 krónur.
Magnús sagðist ennfremur telja að
samkeppnisaðilar hefðu lækkað sitt
verð til að bregðast við tilboði
þeirra.
„Ég held að við séum í ágætum
málum í augnablikinu og allir geti
verið sáttir. Það sem ég myndi síst
vilja sjá núna væri það að heims-
markaðsverðið færi að rjúka upp
aftur og krónan að veikjast.“
Í gær lækkaði Orkan einnig elds-
neytisverð sitt um 5 krónur og bens-
ínlítrinn kostaði þar 168,8 krónur.
Fimm króna afsláttur
á eldsneytisverði
Tilboð hjá N1 leiddi til lækkana hjá öllum olíufélögunum
Í HNOTSKURN
»N1 seldi eldsneyti með 5króna afslætti í gær og til-
boðið gildir út daginn í dag.
»Olíufélögin lækkuðu verðhjá sér í kjölfarið til að
bregðast við samkeppni.
»Meðalverð hjá stóru olíufé-lögunum í gær var 170,70
krónur fyrir bensínlítrann.
Afar persónu-
bundið
Þorbjörn
Guðjónsson
MEÐLIMIR í Félagi háskólakenn-
ara og Kennarafélagi KHÍ sam-
þykktu kjarasamning sem und-
irritaður var 28. júní sl. með um
70% atkvæða. Í Félagi háskóla-
kennara vildu 77,5% samþykkja en
16,5% fella. 72,5% félaga í Kenn-
arafélagi KHÍ greiddu atkvæði
með en 21,6% á móti. Kjörsókn
var 41,7% kjörgengra í Félagi há-
skólakennara og 30% í Kenn-
arafélagi KHÍ.
Samþykktu
kjarasamning