Morgunblaðið - 18.07.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 18.07.2008, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Á Íslandi er mönnum frjálst að hafaþær skoðanir sem þeim sýnist. Á Morgunblaðinu hefur ekki tíðkast að gera upp á milli þeirra skoðana sem birtast í aðsendum greinum og gildir þá vitaskuld einu hvort þær ganga þvert á stefnu blaðsins. Stefna Morg- unblaðsins hefur verið að birta skoð- anir – jafnvel þótt þær kunni að vera ógeðfelldar – ef þær eru innan marka laganna en ekki persónuníð.     Tjáningar- ogskoðanafrelsi eru meðal horn- steina lýðræðis og opins samfélags. Ef eitthvað á heima á frjálsum markaði eru það hugmyndir. Markaðstorg hug- myndanna er fólgið í frjálsum skoðanaskiptum.     Um leið og farið er að ritskoðaskoðanir og hugmyndir er voð- inn vís. Hver á að ákveða hvort ein skoðun er rétthærri en önnur? Hvað ætlar ritskoðarinn að segja þegar hann verður ritskoðaður?     ÍMorgunblaðinu á miðvikudag birt-ist grein eftir Gest Kristinsson um málefni innflytjenda. Höfundur er andvígur innflytjendum og notar hann mál Pauls Ramses Odours frá Kenýa til að koma skoðunum sínum á framfæri.     Þorgrímur Gestsson finnur að því ígrein í Morgunblaðinu í gær að greinin skuli hafa verið birt.     Morgunblaðið mun aldrei verjamálflutning Gests Krist- inssonar eða skoðanabræðra hans og -systra.     Morgunblaðið mun hins vegar allt-af verja rétt hans til að koma skoðunum sínum á framfæri, hversu mjög sem þær kunna að vera blaðinu á móti skapi. STAKSTEINAR Þorgrímur Gestsson Skoðanafrelsi og ritskoðun                      ! " #$    %&'  (  )              *(!  + ,- .  & / 0    + -                         ! 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (     "         # "$  :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                           *$BC                   !" ! "#  $ %  %   &  *! $$ B *! % & '    &  "  ( ! )! <2 <! <2 <! <2 %( ' * $ +,#!-   2D                  B  ' (         ) $  (     &   *  $  *+! , "& ! )"+ #     !   -*""../0  !. $     1  /       !    2  , "& !        $  (  1   &  / !  ./  !00  !   1" ! # !* $ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is DEILURNAR sem nú standa um hvort rukka eigi ferðamenn fyrir að- gang að Kerinu gætu markað tíma- mót ef af gjaldtökunni verður og sett fordæmi um hvernig brugðist skuli við auknum ágangi ferðamanna við aðrar náttúruperlur. Hingað til hafa úrbætur og við- hald á ferðamannasvæðum verið nær eingöngu greidd með opinberu fé en þær upphæðir sem veittar hafa verið úr ríkissjóði hafa tæpast dugað til. Aðrar leiðir til fjármögnunar hafa verið til umræðu í mörg ár við misjafnar undirtektir. „Góngjald“ fyrir að glápa Hugmyndin um aðgangseyri, eða „góngjald“ eins og gárungarnir kalla það er einna óvinsælust, enda virðist það ekki eiga upp á pallborðið hjá Ís- lendingum að þurfa að borga fyrir það eitt að horfa á náttúruna. Í frumvarpi til fjárlaga árið 2000 lagði Geir H. Haarde til að tekjur til uppbyggingar á friðlýstum svæðum yrðu fengnar með innheimtu að- gangseyris og var í kjölfarið skipuð nefnd til að fjalla um málið. Meiri- hluti nefndarinnar lýsti sig andvígan gjaldtökunni og var tillagan felld á Alþingi. Þremur árum síðar lagði svo Ásta Möller, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, fram tillögu til þingsályktunar um þjónustugjald á fjölsóttum náttúrusvæðum en sú ályktun var heldur ekki samþykkt. Ferðaþjónustufólk hefur þó lagt áherslu á að aðgangseyrir og þjón- ustugjald séu ekki sami hluturinn. Eðlilegt sé að taka gjald fyrir afnot af aðstöðu eins og tíðkast almennt erlendis, þar sem ekki er um eig- inlegan aðgangseyri að ræða. Þjón- ustugjöld eru reyndar víða rukkuð hérlendis, s.s. fyrir tjaldgistingu í þjóðgörðum, en í litlum mæli þó. Lögin heimila gjaldtöku Þótt hún hafi ekki verið notuð hingað til er lagaheimild fyrir því, í 32. gr. laga um náttúruvernd, að rekstraraðilar friðlýstra svæða ákveði aðgangseyri, líkt og eigendur Kersins vilja gera. Sá fyrirvari er samt settur að landið hafi ann- aðhvort orðið fyrir spjöllum vegna ferðamanna eða að hætta sé á slík- um spjöllum. Hins vegar er þörf á lagabreyt- ingu ef ætlunin er að innheimta bara gjöld á vinsælustu stöðunum en nýta hagnaðinn til uppbyggingar á fá- farnari svæðum líka, því samkvæmt núverandi lögum má eingöngu nýta aðgangseyri á því svæði sem hann innheimtist á. Gistináttagjald eða nefskattur Sú útfærsla sem hvað mest hefur verið rædd hérlendis ásamt þjón- ustugjöldunum er gistináttagjald, þ.e. föst krónutala sem innheimt er af hverri gistinótt. Sú hugmynd er helst gagnrýnd fyrir að vera í raun skattlagning á eina atvinnugrein umfram aðrar, auk þess sem stór hluti gesta á hótelum nýti sér ekki náttúru landsins, heldur sé hér í öðr- um erindagjörðum. Slík álagning hefði því fælandi áhrif á ferðamenn. Nýleg hugmynd iðnaðarráðherra um lögbundið gjald eða nefskatt af ferðamönnum við komu eða brottför hefur fengið svipaða gagnrýni. Deilurnar um Kerið gætu haft úr- slitaáhrif á rekstur náttúruperlna á Íslandi og ljóst er að fjármögnun þeirra mun breytast á næstu árum, þótt enn sé óvíst með hvaða hætti. Náttúruperlurnar kosta Umræða um gjöld á friðlýstum svæðum er ekki ný af nálinni. Ljóst er að ríkið mun ekki standa eitt að fjármögnun þeirra í framtíðinni en deilt er um útfærslu MIKILL meirihluti ferðamanna á Íslandi eða 92% er tilbúinn til að greiða aðgangseyri eða einhvers konar gjald að vinsælustu náttúruperlum lands- ins að því gefnu að peningarnir renni til viðhalds staðanna. Þetta segja nið- urstöður könnunar sem María Reynisdóttir ferðamálafræðingur lagði fyrir ferðamenn við Gullfoss og Skaftafell árið 2004 í tengslum við mast- ersritgerð sína í ferðamálafræði. Þessi vilji ferðamanna til að taka þátt í viðhaldi náttúrunnar bendir einn- ig til að grundvöllur sé fyrir frjálsum framlögum á vinsælustu svæðunum. Samkvæmt upplýsingum úr iðnaðarráðuneytinu hefur sú hugmynd verið rædd, ásamt mörgum öðrum, en ekki látið reyna á hana. Ferðamenn tilbúnir að borga Umdeilt Gullfoss er eitt frægasta kennileiti Íslands og spurning hvort ekki sé eðlilegt að ferðamenn leggi sitt fram við að varðveita hann og viðhalda góðu aðgengi. Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | Á Húnavöku 2008, árlegri bæjarhátíð á Blönduósi, var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum sund- laugarmannvirkjum við íþróttamið- stöðina á Blönduósi. Héðinn Sigurðs- son, formaður bæjarráðs Blönduóssbæjar, sagði við það tæki- færi að „þar með hefjum við einhverj- ar mestu framkvæmdir sem sveitar- félagið hefur ráðist í um langa hríð.“ Og til þess að taka fyrstu skóflustung- una voru „kallaðir til tveir þaulreynd- ir afreksmenn sem markað hafa djúp spor í sögu þessa bæjar,“ sagði Héð- inn ennfremur. Þeir sem um ræðir voru heiðursborgari Blönduóss, Jón Ísberg, fyrrum sýslumaður Húnvetn- inga og oddviti sveitarstjórnar um árabil, og Einar Þorláksson, fyrrum sveitarstjóri, en þeir tveir hafa verið nánir samverkamenn um langa hríð í félagsmálum og sveitarstjórn. Fyrsta skóflustungan að nýrri sundlaug Moka Einar Þorláksson og Jón Ísberg tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri sundlaug á Blönduósi. Morgunblaðið/Jón Sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.