Morgunblaðið - 18.07.2008, Page 13

Morgunblaðið - 18.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 13 FRÉTTIR LÖGREGLAN á höfuðborgar- svæðinu staðfestir það sem kom fram í frétt Morgunblaðsins um fjölda lögreglu- manna sem sinntu útköllum á vakt sl. laug- ardagskvöld. Á vaktinni voru sjö eftirlitsbifreiðar og hver bifreið mönnuð tveim lögreglumönn- um; alls 14 lög- reglumenn. Lögreglan vill hins vegar árétta að löggæsla í höf- uðborginni er framkvæmd af þremur deildum sem eru almenn deild, svæðisstöðvar og umferðar- deild. Almenna deildin vinnur á sólarhringsvöktum en svæðisstöðv- ar og umferðardeild á tvískiptum vöktum. Sl. laugardagskvöld voru 17 menn á vakt skv. varðskrá al- mennu deildarinnar, 1 á svæðisstöð og 6 í umferðardeild, samtals 24 lögreglumenn. Aðfaranótt sunnudags var 31 lögreglumaður á vakt frá 23 á laug- ardagskvöldi til 7:30 að sunnudags- morgni, en alls 35 í öllum deildum samtals þegar mest var. Lögreglan fagnar allri umræðu um málefni hennar, en embætti lögreglunnar glímir við mikinn fjárhagsvanda vegna aukins rekstrarkostnaðar sem hefur rask- að rekstraráætlunum. Yfir sumar- tímann hefur ekki tekist að full- manna allar vaktir, m.a vegna þess að ekki eru lengur ráðnir sérstakir sumarafleysingamenn. thorbjorn@mbl.is Lögreglan fagnar umræðu Ekki tekist að fullmanna vaktir Lögreglan fagnar umræðunni. NÝVERIÐ var undirritaður í Mexíkóborg loftferðasamningur milli Íslands og Mexíkó. Samning- urinn er fyrsti loftferðasamningur sem gerður er á milli ríkjanna. Í samningnum felast grunnflug- réttindi fyrir flugrekendur ríkjanna til og frá hvoru ríki. Samningurinn tekur til áætlunar- flugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda áfangastaða, flutnings- magni og tíðni. Samningurinn tek- ur til flugs til viðkomustaða handan áfangastaða í Mexíkó og á Íslandi að fengnu leyfi flugmálayfirvalda í hvoru ríki. Nýr loftferða- samningur Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is TILKYNNT var í gær að +Arki- tektar, með Pál Hjalta Hjaltason í forsvari, hefðu borið sigur úr býtum í samkeppni um hönnun Listahá- skóla Íslands á Frakkastígsreitnum svokallaða. Vonast er til þess að skólinn hefji starfsemi sína í bygg- ingunni haustið 2011. Að sögn Jóhannesar Þórðarsonar, annars fulltrúa Arkitektafélags Ís- lands í dómnefndinni, er um að ræða eina flóknustu hönnunarsamkeppni sem hér hefur verið haldin en þarfa- greiningin var afar umfangsmikil. „Lóðin er líka á viðkvæmum stað, í hjarta Reykjavíkur. Þá er mikill landhalli á lóðinni sem gerir þetta enn flóknara auk þess sem mikill lofthæðarmunur er milli rýma.“ Laugavegur 41 helst inni Um er að ræða 13.500 fm á reitn- um sjálfum auk 2.000 fm byggingar norðan Hverfisgötu. Húsin verða tengd saman með undirgöngum. Jóhannes segir að nú hefjist vinna við að breyta deiliskipulagi á reitn- um með tilliti til vinningstillögunnar. Hefja þurfi viðræður við borgina um byggingu á reitnum sem gæti tekið um sex mánuði. Að því loknu yrði farið í jarðvegsframkvæmdir og þá uppbyggingu hússins. Á lóð LHÍ standa byggingar við Laugaveg 41, 43 og 45. Til stendur að flytja burt húsið nr. 45, sem er bárujárnsklætt timburhús, en rífa nr. 43, þar sem Vínberið er til húsa. Fyrir liggur tillaga um friðun Laugavegar 41 og tóku +Arkitektar tillit til þess og sniðu nýbygginguna í kringum húsið. „Við gáfum kepp- endum frelsi til að vinna úr þessu á þessari lóð miðað við þetta. Við skip- uðum ekki keppendum fyrir, að taka hús eða halda húsum. Menn áttu að koma með tillögu að úrlausn á þessu verkefni á þessum reit í samræmi við þær aðstæður sem eru í dag og í samræmi við heildarborgarmynd- ina. Það held ég að hafi tekist vel í vinningstillögunni.“ Inniheldur listamiðstöð Eins og sjá má á efstu myndinni fær gaflinn á Laugavegi 41 að halda sér að mestu leyti. „+Arkitektar gera húsinu í raun hærra undir höfði með því að hopa til baka með ný- bygginguna. Þeir draga nýbygg- inguna til baka svo það myndast smá olnbogarými fyrir framan inngang- inn á húsinu.“ Á horni Laugavegar og Frakka- stígs verður sýningarsalur þar sem hægt verður að sýna myndlist, hönn- un og arkitektúr. Suðurhlið salarins verður úr stórum gluggum sem hægt verður að opna út á götu. Á Laugavegi 41 er gert ráð fyrir kaffi- húsi sem hefur hurð út úr gaflinum og á torgið sem er aðalinngangur hússins. Í aðalanddyrinu er opið rými baðað dagsbirtu og þaðan má sjá meira og minna alla starfsemi skólans á efri hæðunum. Niðri verð- ur listamiðstöð, opin almenningi. Í notkun 2011 Nýja byggingin verður 13.500 fm en tekið er tillit til hússins á Laugavegi 41 sem verður hugsanlega friðað. Í því verður kaffihús. Háskóli í hjarta borgar Anddyrið Rýmið verður baðað dagsbirtu. „Það eru forréttindi að komast í húsnæði sem er smíðað sér- staklega fyrir okkur,“ segir Hjálm- ar H. Ragnarsson, rektor Listahá- skóla Íslands (LHÍ). „Þetta er stór áfangi fyrir skólann og verður meginbygging í íslenskri menn- ingu. Þetta er listverksmiðja í mið- borginni sem á eftir að hafa gíf- urleg áhrif á Íslandi.“ Hjálmar segist starfsemi skól- ans afar fjölbreytta en þar fer fram kennsla í fjórum listgreinum. Hann viti ekki um nokkurn listaháskóla í nálægum löndum sem búi yfir jafnmikilli fjölbreytni og LHÍ. Kennsla hefur hingað til farið fram á fimm stöðum en Hjálmar segir það breyta gríðarlega miklu fyrir skólann að komast undir eitt þak. Samvinna milli listgreina muni gjörbreytast og leysa nýja orku úr læðingi. „Það verður til meiri sprengikraftur í skólanum.“ Hjálmar segir að til standi að fjölga deildum, t.d. með stofnun kvikmyndadeildar. Þá mun hefjast kennsla á meistarastigi auk þess sem í undirbúningi er þverfaglegt nám. Er himinsæll með nýja húsnæðið Norskir plastbátar Sterkir, stöðugir og öruggir. Þola vel grófa meðferðÞola vel grófa meðferðeru upplagðir á sjó og vötn Notendur eru meðal annars. Bátaleigur, Björgunaraðilar og sportveiðimenn. m einnig með 500 L og 1.000 L vatnstan Notendur eru meðal annars bátaleigur, björgunaraðilar og sportveiðimenn. Erum einnig með 500 L og 1.000 L vatnstanka fyrir sumarbústaði og fl. Uppl. í síma 697 4900 og á www.svansson.is taði og fl. fyrir sumarbú Þola vel grófa meðferð eru upplagðir á sjó og vötnog eru upplagðir á sjó og vötn. MJÖG illa gengur að ráða í stöðu yf- irlæknis á réttargeðdeildinni að Sogni. Ein staða geðlæknis sem starfar á Sogni, á Litla-Hrauni og að geðlækningum fyrir almenning hef- ur verið auglýst í nokkurn tíma en enginn hefur enn sótt um, að sögn Óskars Reykdalssonar, fram- kvæmdastjóra lækninga á Heil- brigðisstofnun Suðurlands. Einn geðlæknir sýndi þeim hluta sem sneri að almennum geðlækning- um áhuga, en sá hætti við af per- sónulegum ástæðum. Sigurður Guð- mundsson, landlæknir, segir vonbrigði að enginn sækist eftir stöðunni og telur margar ástæður kunna að liggja þar að baki. „Ein af ástæðunum fyrir því að þetta vefst fyrir mönnum, og þetta er algjör ágiskun, er að þetta fólk sem við er- um að tala um, bæði fangar niðri á Litla-Hrauni og þessir ósakhæfu menn á Sogni, er sennilega með erf- iðustu sjúklingum sem heilbrigðis- þjónustan þarf að sinna,“ útskýrir Sigurður. „Við verðum að leita ann- arra leiða til að leysa þennan vanda,“ bætir hann við og á þá meðal annars við að geðdeild Landspítalans geti hugsanlega komið betur að eflingu geðþjónustu fanga á Litla-Hrauni og vistmanna á Sogni. andresth@mbl.is Enginn vill verða læknir á Sogni Í HNOTSKURN »Skjólstæðingar Sogns eruósakhæfir brotamenn. »Um 50 hafa verið útskrif-aðir þaðan frá 1992. DAGLEGA sækja um 100 gestir kynningar- og fræðsluskála Hellis- heiðarvirkjunar og er fjöldi gesta á þessu ári kominn upp í 15.000. Út- lendingar eru í meirihluta á meðal skráðra gesta og eru frá um 40 löndum. Kynningarskálinn er opin frá kl. 9:00-18:00 alla daga vikunnar. Þar er að finna upplýsinga- og fræðslu- efni um jarðhitanýtingu á Hengils- svæðinu og sögu jarðhitanýtingar hér á landi. jonhelgi@mbl.is 100 gestir á heiðina á dag Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.