Morgunblaðið - 18.07.2008, Síða 19
matur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 19
Mér finnst grænmeti frábært ágrillið og nota það sjálfurmun meira en kjöt. Stóran
hluta ævinnar hef ég verið búsettur í
Danmörku og þar er grænmeti notað
mjög mikið á grillið,“ segir Pálmi Jóns-
son yfirmatreiðslumeistari í Veislu-
turninum á Smáratorgi.
„Ég hef hugsað mér að bjóða les-
endum Morgunblaðsins upp á græn-
metisborgara sem er í miklu uppáhaldi
hjá mínu fólki. Ég bjó hann einhvern
tímann til úr því sem ég átti til í skápn-
um og hann sló svo í gegn að hann er
síðan hafður reglulega hjá okkur í mat-
inn.“ Pálmi segist oft grilla grænmeti
og þá sé leyndardómurinn að velgengni
með grænmetið að hafa það ferskt og
elda það ekki of mikið. „Ferskur maís
er í miklu uppáhaldi hjá mér og eggald-
in líka. Ég grilla maísinn alltaf í hýðinu,
við lágan hita og í frekar langan tíma.
Þannig er hann bestur og safinn helst í
maísbaununum.“ Þegar Pálmi er
spurður hvort þeir grilli í Veisluturn-
inum segir hann að bannað sé að vera
með gas svona hátt uppi en þeir noti
grillplötur sem reynast frábærlega.
Grænmetisborgari með sellerírót
og sólþurrkuðum tómötum
Brauð
250 g vatn
100 ml súrmjólk
400 g hveiti
200 g durum-hveiti
50 ml ólífuolía
20 g salt
Best er að byrja undirbúning máltíðarinnar á
að undirbúa brauðbaksturinn. Finnið til hráefn-
ið og setjið í skál í þeirri röð sem kemur fram í
uppskriftinni. Hnoðið og formið sex brauð. Lát-
ið hefast á volgum stað í um hálftíma. Bakið svo
í 15-20 mínútur við 175°C.
Grænmetisborgari
Fyrir 6
500 g sellerírót
200 g ferskur maís,
eða lífrænt ræktaður maís frá Ora
100 g sólþurkaðir tómatar
50 g brauðraspur
3 egg
salt og pipar
Nokkrir dropar af tabasco
Sellerírót er skorin í litla teninga og þeir eru
soðnir í vatni með salti. Kælt þegar teningarnir
eru orðnir meyrir. Maís er grillaður með hýðinu
við lágan hita. Þá eru baunirnar skornar af
stilkinum, sólþurrkuðu tómatarnir saxaðir í
teninga og blandað saman í skál með eggjum,
salti, pipar og raspi. Mótið 6 hamborgara. Setið
hamborgarana í eldfast mót og bakið í ofni í 12
mín. við 175°C. Þegar hamborgarnir eru bornir
fram eru þeir steiktir á grillinu.
Skerið niður tómata, agúrkur og romaine-
salat og berið fram með sem meðlæti.
Sósa
majónes
ferskt basil
ferskur chili
salt og pipar
Saxið basil og hrærið saman við majónes.
Smakkið til með salti/pipar og fínt söxuðum
ferskum chili.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pálmi Jónsson Grænmetisborgarinn er oft á borðum.
Borgarinn sló í gegn
hjá fjölskyldunni
Lokkandi Grænmetisborgari með sellerírót.
VEISLUTURNINN
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Ómar
Umhverfiskisur Ylma og Flöffí njóta krásanna eftir erfiðan sorphirðudag.
Eggaldinsteik
2 eggaldin frekar stór
8 msk. sólþurkaðir tómatar
2 msk. saxað basil
3 msk. kapers
Eggaldinið er skorið eftir endilöngu og
skornir ofan í það smá krossar með litlum hníf.
Penslað með olíu, kryddað með salti og pipar
og grillað með sárið niður þar til fallegar grill-
rendur eru komnar í það, þá má snúa því og
grilla á dökku hliðinni þar til það er allt orðið
mjúkt.
Á meðan eru sólþurrkuðu tómatarnir mauk-
aðir ásamt basilinu, þeim smurt ofan á eggald-
inið um það leyti sem það er að verða tilbúið og
kapersinu stráð yfir.
Innigrillaðir bananar
2 bananar
2 smjördeigsarkir
4 msk. gróft saxað gott súkkulaði
Afþýðið smjördeigið og skerið örkina í
tvennt. Afhýðið banana og brjótið í tvennt,
skerið þá síðan eftir endilöngu og setjið súkku-
laðið á milli. Vefjið inn í smjördeigið og teygið
það þannig að það hylji allan bananann. Grillið
á miðlungsheitu grilli. Ágætt er að leyfa ban-
önunum síðan að jafna sig á efri grind grillsins.
Berið fram með rjóma eða ís.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dóra Svavarsdóttir Segir grillaða græn-
metissalatið vera í uppáhaldi á sínu heimili.
Freistandi Innigrillaðir bananar.
Ljúffengt Eggaldinsteik með grænmeti
eldar Dóra á ítalska vísu.
!
!
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍK
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
ÍTR námskeið
í fullum gangi.
Velkomin(n) að
skrá þig núna.