Morgunblaðið - 18.07.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 18.07.2008, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Eiríkur Alex-andersson fædd- ist í Grindavík 13. júní 1936. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítala við Hringbraut föstu- daginn 11. júlí síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Al- exanders Georgs Sigurðssonar, f. í Pálsbæ í Seltjarn- arneshreppi 16. september 1893, d. 17. maí 1942, og Margrétar Eiríksdóttur, f. í Grindavík 31. janúar 1903, d. 27. október 1986. Systir Eiríks er Elín P., f. 1932, maki Edvard Júlíusson, f. 1933, sammæðra er Guðbrandur Eiríksson, f. 1926, maki Hrefna Guðmundsdóttir, f. 1936. Eiríkur kvæntist 2. október 1960 Hildi Júlíusdóttur, f. 1941. For- eldrar hennar voru Júlíus Hall- dórsson, f. í Brekkukoti í Svarf- aðadal 1911, d. 1983 og Kristín Sigmarsdóttir, f. á Hrafnkels- stöðum í N-Múlasýslu 1916, d. 1997. Börn Eiríks og Hildar eru: 1) Alm- ar, f. 1963, maki Kittý Magn- úsdóttir. Börn Almars af fyrra hjónabandi eru Anton, f. 1991 og Arna Björk 1992. 2) Leifur, f. 1965, gegndi hann til ársins 1983. Hann var varaþingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Reykjaneskjördæmi 1978-1979, einn af stofnendum Sjálfstæðisfélags Grindavíkur og Lionsklúbbs Grindavíkur. Frá árinu 1983-1988 var hann fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum er hann tók við útibússtjórastöðu hjá Útvegsbanka Íslands í Keflavík, síðar Íslands- banka hf. sem hann gegndi til árs- ins 2000. Eiríkur sat í mörgum nefndum og stjórnarnefndum á vegum sveitarfélaga, Sambands ísl. sveitarfélaga, Landshlutasamtaka sveitarfélaga og Alþingis. Árin 1972-78 sat hann í stjórn SASÍR (Samtaka sveitarfélaga í Reykja- neskjördæmi), þar af formaður 4 síðustu árin. 1971-1983 í stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, þar af formaður í nokkur ár og jafnframt framkvæmdastjóri 1983- 1988. Árin 1973-1974 formaður undirbúningsstjórnar Hitaveitu Suðurnesja, 1974-1983 í stjórn Hitaveitu Suðurnesja, þar af for- maður í 3 ár. Eiríkur lét af störfum árið 2000 og flutti til Spánar ásamt konu sinni Hildi en á sumrin bjuggu þau að Prestastíg í Reykja- vík. Útför Eiríks fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. maki Þórey G. Guð- mundsdóttir, börn þeirra eru Hildur María, f. 1992, Magdalena Sara, f. 1996, og Eiríkur Al- exander, f. 1998. Fyr- ir á Leifur Kristófer Júlíus, f. 1987. Áður átti Eiríkur Margréti B. (Gretu), f. 1954, maki Kristinn Óskar Magnússon, d. 2005, börn, a) Berglind María, f. 1977, börn hennar eru Sigríður Ólafía, f. 1999, og Eyjólfur, f. 2008, og b) Katrín Jóna, f. 1983, sonur hennar er Styrmir Snær, f. 2006. Eiríkur ólst upp í Grindavík og lauk þaðan fullnaðarprófi og Versl- unarskólaprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1954. Eiríkur vann sem ungur maður hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli sem vaktmað- ur, árið 1957 stofnaði hann versl- unina Eikabúð og rak til ársins 1968. Hann var starfsmaður Lands- banka Íslands í Grindavík á ár- unum 1968-1970. Eiríkur vann mik- ið að sveitarstjórnarmálum en 1962-1970 var hann hreppsnefnd- armaður, 1971 varð hann fyrsti sveitarstjórinn í Grindavík og 1974 fyrsti bæjarstjórinn en því starfi Nú hefur hann pabbi minn lotið í lægra haldi fyrir krabbameini sem hann greindist með fyrir rúmu ári, baráttan var hörð og snörp. Pabbi var mjög vel gefinn, ráðagóður og studdi okkur strákana alltaf með ráðum og dáð. Hagmæltur var hann og liggja eftir hann mörg ljóð og stökur sem hann orti fyrir hin ýmsu tilefni. Hann var lítið fyrir að kasta til höndunum við hvaða verkefni sem hann tók sér fyrir hendur enda náði hann langt bæði í leik og starfi. Fljót- lega eftir að hann lauk námi í Verzl- unarskóla Íslands stofnaði hann verslunina Eikabúð í Grindavík, og þaðan lá leiðin í stjórnmálin sem sveitarstjóri og síðan bæjarstjóri í Grindavík. Hann endaði starfsævina síðustu 12 árin sem útibússtjóri Ís- landsbanka í Keflavík. Hvar sem hann starfaði aflaði hann sér virðing- ar og velvildar viðskiptavina sinna og samstarfsmanna. Hann varð fyrir miklum missi þeg- ar hann missti föður sinn ungur að ár- um og ólst hann upp hjá móður sinni og tveimur eldri systkinum, oft við kröpp kjör. En þau stóðu vel saman og komust öll vel til manns og nú kveður hann þeirra fyrstur. Alltaf þegar maður þurfti ráð og stuðning við þau verkefni sem unnið var að gat maður leitað í smiðu pabba, hvort sem það var í námi eða starfi, hann hafði einstakt lag á að sjá auð- velda leið að settu marki og leiðbeina. Nú er komið að kveðjustundinni og fyrir okkur öll er missirinn mikill en þó sérstaklega fyrir mömmu því þau höfðu síðustu 8 árin haft vetursetu á Spáni þar sem þau byggðu sér fallegt hreiður til þess að njóta saman efri áranna. Almar. Að missa föður sinn barn að aldri af slysförum er þungur kross að bera og án efa eitthvað sem leggur mark sitt á barn fyrir lífstíð. Faðir minn var að- eins 6 ára þegar afi drukknaði fyrir utan heimili þeirra, Sjávarhóla í Grindavík, en við tók basl og erfiði einstæðrar móður að ala upp þrjú börn. Þessi atburður setti mark sitt á pabba og gerði honum erfitt fyrir að mennta sig eins og hugur stóð til. Hann var vel gefinn, vandvirkur með mikinn metnað og fór því eins langt menntaveginn og efni fjölskyldunnar leyfðu. Hann bjó undir súð við Grett- isgötuna í lítilli skonsu sem notuð var sem þurrkherbergi og sótti þaðan nám í Verzlunarskóla Íslands og lauk Verslunarskólaprófi 18 ára með ágætiseinkunn. Á þessum árum kom skáldagáfan fram en hann orti í skóla- blöðin undir skáldanafni en þessi áhugi hans á kveðskap átti eftir að koma fram í vinnu jafnt sem leik allt hans líf. Pabbi gerði miklar kröfur til sjálf síns og annarra og slugs eða hroð- virkni áttu ekki við hann. Hann var bestur í skóla, ótrúlegur íslenskumað- ur og talaði ensku betur en margur sem átti hana fyrir móðurmál, talaði dönsku og þýsku prýðilega og að síð- ustu gerði hann atlögu að spænsku máli en varð frá að hverfa, enda betra að sleppa því en slugsa. Hann fór að spila golf og vann fljótt til verðlauna, stofnaði Lionsklúbb Grindavíkur og endaði ferilinn þar með æðstu orðu Lions-hreyfingarinnar, Melvin Jones- meðlimur. Hann starfaði bæði sem sveitar- og bæjarstjóri í Grindavík og eftir ára- tugavinnu að sveitarstjórnarmálum tók hann krók á leið sína og tók við útibúi Útvegsbankans í Keflavík, síð- ar Íslandsbanka. Útibúið varð undir hans stjórn kosið besta útibú landsins innan bankans en lýsir það vel hans metnaði í leik og starfi. Tímamót urðu í hans lífi þegar hann og mamma ákváðu að njóta efri áranna á Spáni. Árin urðu átta áður en yfir lauk og undi hann hag sínum vel þar syðra enda hafði hann mömmu sér við hlið sem og sól og yl. Pabbi greindist með krabbamein fyrir um ári síðan og gekk þokkalega að eiga við það. Fyrir um fjórum mánuðum fór að halla und- an fæti og voru örlögin ráðin viku fyr- ir andlátið. Mamma hefur nú misst lífsförunaut síðustu 50 ára en minn- ingin um góðan eiginmann og föður lifir. Leifur. Kynni mín af Eiríki heitnum hófust fyrir tæpum tuttugu árum eða þegar ég kynntist Leifi, syni hans. Í upphafi varð mér strax ljóst að þar fór heil- steyptur og fróður maður sem hafði sterka nærveru. Hvort sem það voru gráu hárin, framkoman eða eitthvað annað sem skapaði hans virðulega yf- irbragð þá bar Eiríkur tengdafaðir minn alltaf af. Það hafa verið forrétt- indi að vera samferða honum þessi tuttugu ár. Íslenskt mál og málfar var Eiríki mjög hugleikið og bar hann hag ís- lenskrar tungu mjög fyrir brjósti. Oft gat hann bent á málvillur sem þjóðin virtist vera búin að temja sér og var lítt hrifinn af enskum slettum í okkar ylhýra máli. Ósagt skal látið hvað honum hefur fundist um málfar þeirr- ar sem þetta skrifar. Kannski það hafi verið tilefni einhverrar þeirrar um- ræðu um íslenskt mál sem hann hafði svo gaman af. Oft fengum við einnig að njóta skemmtilegra vísna og orða- leikja sem hann fór með án þess að hafa nokkurt efni á blaði en hann var einnig nokkuð lunkinn sjálfur við kveðskap og eftir hann liggur þó- nokkuð af vísum sem hann orti af hin- um ýmsu tilefnum. Eftir að Eiríkur lét af störfum ákváðu þau hjónin að láta draum sinn rætast og festu kaup á fasteign á Spáni. Þar hafa þau unað hag sínum vel síðustu átta árin og hafa bæði end- urnýjað gömul kynni við fyrrverandi samferðamenn og eignast fjölda nýrra vina. Fyrir tveimur árum eða þegar Eiríkur varð sjötugur buðu þau börnum sínum og fjölskyldum að koma og dvelja hjá þeim á Spáni. Þeim hjónum var mikið í mun að allir nytu dvalarinnar og var dagskrá ferð- arinnar þétt skipuð af uppákomum. Eitt atriði á dagskránni stóð sérstak- lega upp úr hjá yngri kynslóðinni en það var útreiðartúr á smáhestum og þar sem hestarnir voru misjafnlega frísklegir í framgöngu vakti útreiðar- túrinn ekki síður kátínu fullorðna fólksins. Óhætt er að segja að þessi ferð muni lifa í minningunni um ókomin ár. Eftir erfið veikindi er nú komið að kveðjustund. Ég kveð Eirík með söknuði en geymi í huga mínum minn- ingu um góðan mann. Missir Hildar er mikill nú þegar hún sér á eftir lífs- förunaut sínum til 50 ára. Megi góður Guð styrkja hana í sorginni. Hvíl í friði. Þórey G. Guðmundsdóttir. Elsku afi, við eigum svo margar góðar minningar um þig. Afmælið þitt á Spáni þegar öll fjölskyldan var sam- an komin til að fagna með þér og ömmu. Áramótin þegar þú passaðir að við héldum okkur í fjarlægð frá flugeldunum. Heimsóknirnar í sum- arbústaðinn austur í sveit. Þegar þú mættir á pallana í Laugardalshöllinni í vor til að hvetja Hildi Maríu og liðið hennar til sigurs, þá kominn með staf til að styðja þig. Við söknum þín mikið og munum reyna að styrkja ömmu í sorginni. Hildur María, Magdalena Sara og Eiríkur Alexander. Í dag kveðjum við Eirík móður- bróðir okkar sem einnig var kvæntur föðursystur okkar. Við vorum alla tíð stolt af Eiríki, eða Eika eins og við kölluðum hann, og þessum skemmti- legu fjölskyldutengslum sem við vor- um alla tíð óþreytandi að segja frá. Fyrstu árin í uppvexti okkar bjuggu báðar fjölskyldur okkar í Grindavík. Vegna náinna tengsla var mikill samgangur milli heimilanna og segja má að heimili Eika og Hildar hafi verið okkar annað heimili. Eiki var mikill hagleiksmaður og hafði gaman af smíðum og var hann ávallt hjálpfús við okkur strákana þegar við vorum að smíða bíla, báta og önnur leiktæki. Ein fyrsta bernskuminning Alexanders er þegar hann fékk að vera með Eika í kjörbúðinni Eikabúð þegar hann tók til pantanir og keyrði þær út til viðskiptavina á gamla Volvo skutbílnum. Þessi kynni af verslunar- rekstri urðu til þess að Alexander ákvað ungur að feta í fótspor frænda síns og fara í Verslunarskólann. Því má segja með sanni að Eiki hafi haft mikil og mótandi áhrif á hann. Það voru ófáir sunnudagsbíltúrar sem farnir voru þar sem fjölskyldur okkar fóru saman með ömmu Mar- gréti og Gugga frænda. Þá var ekið um nágrenni Grindavíkur þar sem sagan var rifjuð upp eða eitthvað út í sveitir. Oft var sest niður á góðum stað þar sem nesti var borðað. Einnig má nefna ánægjulegar samveru- stundir á aðventunni þegar fjölskyld- ur okkar komu saman þar sem bakað var og föndrað. Einnig var venja í fjöl- skyldunni að hittast á jóladag og taka í spil. Síðar þegar Eiki og fjölskylda flutt- ust frá Grindavík breyttust samskipt- in og urðu ekki eins mikil. Þó vorum við alltaf nátengd og aldrei bar skugga á samskipti okkar við hann og hans fjölskyldu. Eiki var einn af þess- um rólegu og traustu mönnum sem sjaldan skipti skapi og alltaf var gott að leita til hans um öll mál. Eins og ævistarf hans gefur til kynna var hann óþreytandi í að þjóna og liðsinna fólki og nutum við þess ekki síður en aðrir. Síðust árin bjuggu Eiki og Hildur stóran hluta ársins á Spáni. Við heim- sóttum þau nokkrum sinnum þangað og nutum gestrisni þeirra þar. Þegar við ásamt foreldrum okkar vorum að leita að íbúð til kaups á Spáni voru þau óþreytandi að aðstoða við þá leit og miðla af þekkingu og reynslu sinni þar. Við eigum margar góðar minningar um samverustundir og samskipti okkar við Eika og fjölskyldu sem við metum mikils. Þegar við fréttum af veikindum Eika kom það okkur á óvart þar sem hann hafði alla tíð verið meðvitaður um mikilvægi góðrar heilsu og ástundað heilbrigt líferni. Um leið og við kveðjum Eika með söknuði vottum við Hildi frænku, Al- mari, Leifi, Margréti og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúð á þessum erfiðu tímum. Alexander, Kristín og Sigmar. Góður vinur er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við krabbamein, sem hefur lagt margan góðan dreng að velli. Ég kynntist Eiríki skömmu eftir að ég flutti til Suðurnesja 1970 enda störfuðum við þá á sama vett- vangi, þ.e. að sveitarstjórnarmálum. Starfsferill hans var fjölbreyttur. Hann starfaði sem bankamaður, kaupmaður, sveitarstjóri, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Mér er vel kunnugt um að í öllum þessum störfum kom hann sér vel og ræktaði vel tengslin við umbjóðendur sína. Á fyrstu árum Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum sátu í stjórn þess bæjar- og sveitarstjórar þeirra sjö sveitarfélaga sem að því stóðu. Sam- starfið var mjög náið og vakti verð- skuldaða eftirtekt hjá öðrum lands- hlutasamtökum. Staða Eiríks í bæjarstjórahópnum var nokkuð sér- stök enda Grindavík nokkuð úr leið frá hinum sveitarfélögunum. En hann tók heilshugar þátt í samstarfinu og get ég fullyrt að við stofnun Hitaveitu Suðurnesja 1974 átti hann ekki minnsta þáttinn og sennilega þann mest afgerandi. Hann var formaður undirbúningsnefndar að stofnun Hitaveitunnnar, enda Grindavíkur- bær þá þegar látið bora eftir heitu vatni við Svartsengi. Störf hans og nefndarinnar urðu grunnurinn að samstarfinu um Hitaveitu Suður- nesja, sem hefur fram til dagsins í dag verið happadrjúgt fyrir Suðurnesin. Eiríkur tók virkan þátt í félagstörf- um. Hann var umdæmisstjóri Lions- hreyfingarinnar og var um tíma félagi í Oddfellowreglunni, svo eitthvað sé nefnt. Ég læt ótalin störf hans fyrir Sjálfstæðisflokkinn en hann hefði sannarlega, að mínu mati, orðið flokknum til sóma á Alþingi. Eiríkur var ljúfur drengur, skemmtilegur félagi og frábær sögu- maður. Samvinna á starfsvettvangi og góð kynni í hartnær fjóra áratugi þróaðist í vináttu sem haldist hefur fram á þennan dag. Við gætum rifjað upp ótal margt frá liðnum árum. Minningar sem gott er að eiga. En við nefnum hér sérstaklega heimsóknir okkar hjóna til Eiríks og Hildar á Spáni. Þar hafa þau undan- farin ár komið sér mjög vel fyrir og dvalið yfir vetrarmánuðina, en verið hér heima á Íslandi á sumrin. Það var ávallt vel tekið á móti okkur í Casa Hildur og minnumst við margra ferða sem Eiríkur ók okkur um Spán og alltaf hafði hann uppi fróðleik um hvern stað fyrir sig. Hann var víðles- inn og kunni góð skil á sögu Spánar. Ógleymanlegust er ferð okkar fyrir 2 árum um Norður-Spán, Andorra, Suður-Frakkland og Mónakó, ferð sem verður aldrei „toppuð“. En ekki má gleyma manninum Eiríki. Hann var hvers manns hugljúfi og ekki nóg með það, hann var einkar góður hag- yrðingur þó að hann bæri það ekki á borð. Við hjónin þökkum Eiríki fyrir samfylgdina og vonum, að á hinum björtu grundum eilífðarinnar farnist honum jafn vel og á jarðríki. Kæra Hildur, við sendum þér og fjölskyldu ykkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guðný og Jóhann Einvarðsson. Í dag kveðjum við okkar kæra fermingarbróður, Eirík Alexand- ersson. Það er sárt að sjá á eftir hon- um svo fljótt. Eiki var fremstur meðal okkar í skóla og leik. Einkum þegar kom að skáldskap. Í skólanum vorum við með kvöldvökur og þar var kveðist á. Þá kepptu strákar á móti stelpum og var hart barist og bjargaði hann oft sínu liði með því að kasta fram vísu sem hann orti í hita leiksins. Þegar unglingsárunum lauk fór Eiki í Versl- unarskólann og gerðist svo kaupmað- ur í Grindavík. Þegar við náðum fimmtugsaldrinum tókum við upp á því að hittast á fimm ára fresti og voru þær stundir mjög ánægjulegar. Á þessum stundum var Eika oftast falið að sjá um erindi í samkvæminu og stóð ekki á því. Alltaf kom eitthvað fróðlegt í bundnu og óbundnu máli. Nú er skarð fyrir skildi. Eiki er annar af 12 fermingarsystk- inum sem hverfur á braut. Við kveðj- um hann með söknuði og óskum Hildi og fjölskyldunni guðs blessunar á þessum erfiðu tímum. Fyrir hönd okkar fermingarsystk- ina, Esther, Guðbjörg og Dagbjartur. Eiríkur Alexandersson fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesj- um er látinn. Eiríkur setti mikinn svip á sveitarstjórnarmál hér á Suðurnesj- um í um tveggja áratuga skeið fyrst sem bæjarfulltrúi, sveitarstjóri og bæjarstjóri í Grindavík. Hann vann ötullega að samvinnu sveitarfélag- anna fyrst í gegnum samstarfsnefnd sveitarfélaganna og síðar eftir að Samband sveitarfélaga á Suðurnesj- um (SSS) var stofnað 1978 fyrst sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri frá 1983 til 1988. Á þessum árum var mikil vakning á samvinnu sveitarfélaganna og marg- ar af sameiginlegum stofnunum sveit- arfélaganna hófu starfsemi sína á þessum árum. Má þar m.a. nefna Hitaveituna, Fjölbrautaskólann og Sorpeyðingarstöðina. Kynni okkar endurnýjuðust er ég tók við starfi Ei- ríks hjá SSS 1988 og fann ég strax hvað góður andi ríkti meðal starfs- fólksins og hvað gott veganesti hann gaf okkur af reynslu sinni. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum vill Eiríkur Alexandersson Elsku afi. Okkur langar svo mikið að þakka þér fyrir all- ar samverustundirnar og minningar þeim tengdar. Jólin og áramótin, þegar þú komst með flugeldana líka til að skjóta upp. Þegar við hitt- umst á Spáni á afmælinu ykkar ömmu. Þegar við fór- um saman yfir Sprengisand. Nú munum við vera með ömmu og hjálpa henni að komast yfir sorgina. Anton og Arna Björk. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.