Morgunblaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 31 ENN og aftur eru uppi harðar deilur milli íbúasamtakanna Betri byggðar á Kársnesi (BBK) og Kópavogs- bæjar vegna hug- mynda þess síð- arnefnda um framtíðarskipulag vestast á Kársnesi. Yf- irstandandi deila er í raun tvískipt, því annarsvegar er deilt um skipu- lagið sem slíkt og hinsvegar er deilt um það hvort samráð sem samtök- unum hafði verið lofað hafi í raun og veru átt sér stað. Ef við rifjum aðeins upp söguna þá féll bæjarstjórn frá skipulagstil- lögum sem lagðar voru fram á síð- asta sumri í kjölfar kröftugra mót- mæla íbúa. Í kjölfar þessarar ákvörðunar var það gefið út að unn- ið yrði að nýju skipulagi að hverfinu í náinni samvinnu við hags- munaaðila og þá sérílagi samtökin BBK. Nú eru komnar fram nýjar til- lögur og skilur Gunnar Birgisson bæjarstjóri Kópavogs ekkert í óánægju bæjarbúa og forsvars- manna BBK með hugmyndirnar, enda hafi þær verið unnar í samráði við samtökin og að hann hafi fund- argerðir frá fjölmörgum samráðs- fundum, því til staðfestingar. Það er ekkert nýtt að Gunnar standi í hár- togunum við viðdeilendur sína og beri fyrir sig ósannindi í málflutn- ingi sínum, enda virðist tilgangurinn ávallt helga meðalið hjá Gunnari, sama hversu lágt sem hann þarf að leggjast. Greinarhöfundur er vara- formaður samtakanna BBK og hef- ur sem slíkur setið þá fundi sem samtökin hafa verið boðuð á. Fund- irnir hafa alls verið þrír og hafa þeir að mestu verið kynning bæjaryf- irvalda á hugmyndum sem virðast hafa verið fullmótaðar þegar sam- tökunum var boðið að borðinu. Birg- ir Sigurðsson nýráðinn sviðstjóri skipulags og umhverfissviðs stýrði þessum fundum af röggsemi og verður að segjast að hann er tals- vert áferðarfegurri og þægilegri í viðmóti en yfirmaður hans. Það kom því miður berlega í ljós strax í upphafi þessarar fundalotu sem stóð í nokkrar vikur að Birgir hafði ekki séð ástæðu til að lesa at- hugasemdir samtakanna við fyrri skipulagstillögur, en mikil vinna hafði verið lögð í það að gera vand- aðar athugasemdir sem tóku á flest- öllu því sem áhyggjufullir bæj- arbúar höfðu við fyrri tillöguna að athuga. Það að þykjast vera að starfa að heilindum með samtökum á borð við BBK sem hafa einungis eðlilega hagsmuni bæjarbúa að leið- arljósi en nenna ekki einu sinni að kynna sér baráttumál viðsemjand- ans lýsir dómgreindarbresti og virð- ingarleysi, svo ekki sé meira sagt. Samráðið var sem sé það að við fengum tækifæri til að hlusta á sviðsstjórann útlista fyrir okkur hvað allt yrði nú gott þegar flugvöll- urinn færi og brýr yrðu byggðar yfir Fossvoginn. Vatnsmýrarmegin var svo ansi fallegur grænn reitur sem við afæturnar Kópavogsbúar gætum nýtt okkur til útivistar, en grænt framlag Kópavogs var að mestu fal- ið í frjálslegri notkun Birgis á græn- um yfirstrikunarpenna eftir norð- anverðri strandlengju Fossvogs. Á þessum 3 fundum var stjórn BBK sýnd ein fundargerð og gerði stjórn BBK við hana alvarlega at- hugasemd. Ekki var ein einasta fundargerð samþykkt af samtök- unum og er allt tal Gunnars Birg- issonar um að hann hafi fund- argerðir máli sínu til sönnunar jafn marktækt og annað sem kemur frá honum. Það getur hver sem er skrif- að það sem honum sýnist og kallað það fundargerð en það er marklaust ef það er ekki lesið yfir og samþykkt af þeim sem fundinn sitja. Óundirrituð fund- argerð er jafn mikils virði, Gunnar, og ef ég kæmi heim til þín með afsal af húsinu þínu óundirritað. Vandamálið er að til- lögurnar sem lagðar hafa verið fram eru langt frá því að vera ásættanlegar. Ef Gunnar, Birgir og aðrir embætt- ismenn bæjarins hefðu haft fyrir því að lesa yfir athugasemdir BBK þá ætti það ekki að koma þeim á óvart. Stóri munurinn nú er að það hefur verið skipt um verkfræðistofu og all- ar þær upplýsingar sem fyrir ári síð- an þótti afar trúverðugar og óum- deilanlegar af hálfu bæjarins eru nú allt í einu ónothæfar. Ný stofa gerir ráð fyrir að eintómir geldingar búi á nesinu og stundi síðan vinnu á suð- urhluta höfuðborgarsvæðisins. Þetta skilar því að Kársnesbraut er allt í einu komin niður i 14.000 bíla á sólarhring í stað 19–20.000 eins og tölur síðasta árs gáfu til kynna, þrátt fyrir aukinn fjölda íbúða. Not- að er sem viðmið nýtt hverfi í Garða- bæ, en bent á það í framhjáhlaupi að það geti verið að það sé búið að skrá þar íbúðir í fasteignamat en að það sé enn ekki búið að selja íbúðirnar. Sé það málið þá lækkar hlutfall íbúa auðvitað verulega á svæðinu og er það þá ómarktækt til viðmiðunar. Það að bera síðan þessar tilllögur saman við upprunalegar tillögur Kópavogsbæjar frá árinu 2006, sem bærinn hafði sjálfur fallið frá, er ekkert annað en hneyksli. Samtökin BBK voru stofnuð í kjölfar tillagna frá apríl 2007. Það eru tillögurnar sem samtökin börðust á móti og ætti að sjálfsögðu að bera nýjar tillögur saman við þær. Þessi kynning og þetta mál allt er hroðvirknislega unnið og þeim sem að því komu til minnkunar. Hér er ekki verið að huga að hagsmunum íbúanna frekar en í síðustu tilraun. Ég legg til að það verði byrjað aftur á núllpunkti og að þessu sinni verði tekið eitthvert tillit til þeirra sem búa á svæðinu. Um samráð Kópavogsbæjar við íbúastamtök Þórarinn H. Ævars- son skrifar um skipulagsmál í Kópavogi »En að nenna ekki einu sinni að kynna sér baráttumál við- semjandans lýsir dóm- greindarbresti og virðingarleysi, svo ekki sé meira sagt. Þórarinn H. Ævarsson Höfundur er íbúi á Kársnesi. 30 milljónir E N N E M M / S ÍA / N M 3 4 8 2 2 Taktu Lottó í áskrift! Sölusta›ir lotto.is Nú er potturinn fimmfaldur og stefnir í 30 milljónir. Ná›u flér í Lottómi›a fyrir kl. 18.40 í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.