Morgunblaðið - 02.08.2008, Side 28

Morgunblaðið - 02.08.2008, Side 28
28 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÁkvörðunÞórunnarSveinbjarn- ardóttur umhverf- isráðherra um að meta skuli umhverfisáhrif ál- vers Alcoa á Bakka við Húsavík og tengdra virkjana í samein- ingu hefur valdið uppnámi. En er raunverulega ástæða til að hafa áhyggjur af því að gert verði heildarmat á umhverfis- áhrifum álvers á Bakka og tengdum framkvæmdum? Viðhorf almennings til um- hverfismála hafa breyst á und- anförnum árum. Umræðan og deilurnar um Kárahnjúkavirkj- un og álverið á Reyðarfirði báru því vitni. Það er nauðsynlegt að fagleg- ur undirbúningur jafn umfangs- mikillar framkvæmdar standist ýtrustu kröfur. Ljóst er að meta þarf um- hverfisáhrif hvers hluta fram- kvæmdarinnar fyrir sig, hvort sem um er að ræða álverið, virkjanir eða rafmagnslínur. Er ekki skynsamlegast að meta umhverfisáhrif allra þessara þátta í einu? Er ekki full ástæða til þess að fyrir liggi vitneskja um heildaráhrifin áður en farið er af stað? Ísland er opið samfélag og á að vera upplýst. Forsenda þess að borgararnir geti metið ákvarðanir, sem skipta alla þjóðina máli, er aðgangur að upplýsingum. Nefnt hefur verið að ekki hafi verið farið fram á heildarmat á fyrirhuguðu álveri í Helguvík og eðlilegt væri að álykta sem svo að þar væri komið fordæmi. Á móti má spyrja hvort þar hafi verið komið fordæmi til eftirbreytni. Er kannski frekar ástæða til að sýta að ekki skuli hafa verið gert heildarmat á þeirri framkvæmd? Eins og fram kemur í máli umhverfis- ráðherra í Morgunblaðinu í gær hefði ákvörðun um sameiginlegt mat á framkvæmdum í Helgu- vík talist of íþyngjandi vegna þess hvað undirbúningur var langt kominn. Hins vegar eigi það ekki við nú og það megi rekja til þess að stjórnsýslu- kæran, sem Landvernd lagði fram vegna úrskurðar Skipu- lagsstofnunar, kom fram á rétt- um tíma. Þórunn segir að það muni taka nokkrar vikur að gera heildarmat. Er ástæða til að ætla að þessar vikur muni skipta sköpum varðandi álver, sem gert er ráð fyrir að taki til starfa í lok árs 2012? Gagnrýnendur ákvörðunar umhverfisráðherra hljóta að gera sér grein fyrir því að heild- armat snýst ekki um það hvort eigi að banna eða leyfa, heldur að átta sig á því hvaða áhrif framkvæmdin í heild sinni gæti haft á umhverfið. Heildarmat veldur ef til vill einhverjum töf- um nú, en það gæti líka orðið til þess að greiða fyrir fram- kvæmdum síðar meir. Í opnu samfélagi eiga upplýsingar um framkvæmdir, sem varða þjóð- arhag, að liggja fyrir og vera öllum aðgengilegar. Það er öll- um í hag að framkvæmdin hafi verið metin í heild sinni. Skynsamlegt að krefjast heildarmats}Áhrifin öll L yginni er líkast hvað ferðalög inn- fæddra hafa færst í aukana inn- anlands. Af fréttum að dæma eru sex af hverjum tíu ferðamönnum hérlendis landsmenn sjálfir. Hér er það sem landsbyggðin á leik. Nú er ekki þorp með þorpum nema státað geti af sögu- frægum minjum. Menn hlaupa í skrápana og gera upp timburhjallinn sem fórst fyrir að rífa – eða endurreisa, ef því hafði verið komið í verk. Og þær byggðir sem eru svo heppnar að vera sögusvið einhverrar Íslendingasögu slá því upp. Eða menn sviðsetja tiltekinn þátt Ís- landssögunnar, samanber Vesturfarasetrið á Hofsósi. Og nú síðast eru fornleifarnar mættar til leiks. Einhver mestu tíðindi sem orðið hafa á Íslandi á undanförnum árum er hin ævintýra- lega gróska sem hlaupin er í uppgröft og rannsóknir á fornminjum. Upp úr moldinni rísa heilu klaustrin, kirkjur allt aftur til fyrstu kristni, fornmenn vakna upp í kumlum sínum og miðaldaþjóðin gengur í endurnýjun lífdaga í síðbúinni læknisskoðun og lífskjaramælingu. Sumsstaðar hafa rannsóknirnar getið af sér vísi að söfnum, t.d. á Sauðárkróki þar sem gerð er grein fyrir hinum makalausa fundi sem varð í Keldudal í Hegranesi þar sem sakleysileg fyrsta vélskóflustunga að ferðaþjón- ustuhúsi afhjúpaði heilan kirkjugarð frá miðöldum og í framhaldinu kumlateig frá því í heiðni. Og fyrirsjáanlegt er að varanleg söfn muni rísa á Hólum og í Skálholti sem ótaldar þúsundir muni sækja heim á komandi árum. Sömuleiðis í Reykholti með samfellda kirkju- röð aftur til ársins þúsund, á Kirkjubæjar- klaustri þar sem moðað er úr gripafjölda sem þar hefur komið á daginn og enn frekar á Skriðuklaustri þar sem langt er komið að leiða í ljós fullbúið evrópskt klaustur sem fengið hafði að dorma óhreyft í moldinni síð- an um siðaskipti – með manni og mús! Hvað hefur valdið þessari byltingu og af hverju núna? Svarið er menntun. Ungmenni sem lögðu stund á að því er virtist gersam- lega óhagnýt vísindi („ætlarðu í forn- leifafræði?“). Og eldhugar sem lögðu út í það tímafrekasta og stirfnasta: að særa pening út úr hinu opinbera og einkageiranum. Uns undrið mikla gerðist: hið opinbera lagði 500 milljónir í púkk í tilefni af þúsund ára kristni í landinu, fjárframlag sem deildist á fimm ár og dreifðist á milli fræða og fornleifarannsókna. Hefur fjárveiting í annan tíma borið jafn-ríkulegan ávöxt? Mikið sem væri nú gaman ef sjónvarp allra lands- manna segði okkur frá þessu ævintýri (erlendar sjón- varpsstöðvar eru þegar búnar að gera því skil að hluta). Mér er að vísu ljóst að þetta myndi flokkast undir „ís- lenskt efni“, og ekki að vita nema þjóðin hrykki við ef hún færi allt í einu að sjá sjálfa sig í sjónvarpinu. En það ætti að vera óhætt að gera undantekningu þegar allra stærstu atburðir gerast. Þáttaröðin gæti til dæmis heit- ið: „Sagan, hið svarta gull Íslendinga.“ peturgun@centrum.is Pétur Gunnarsson Pistill Fundið fé FRÉTTASKÝRING Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is D júpstæð ferðaþrá til framandi landa hefur löngum fylgt Íslend- ingum. Landið var enda upphaflega num- ið af ferðaglöðum mönnum sem hér eygðu betra og náðugra líf en fyrr og síðar streymdu afkomendur þeirra frá Íslandi til vesturs í sama augnamiði. Seinni ár hefur þessi þrá þó ef til vill að mestu helgast af land- fræðilegri einangrun, veðurfari og ekki síst hagstæðu gengi krónu gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Í lagi sínu Á Spáni greindu Stuðmenn þessa viðteknu hugsun – að allt sé ódýrara erlendis: „Á Spáni get ég skemmt mér fyrir lítið fé / Á Spáni kostar sjússinn ekki neitt.“ En nú er öldin önnur og Íslend- ingar horfast í augu við nýjan veru- leika. Uppsveiflunni er lokið og lífs- hættir þjóðarinnar breytast um leið. Gengi íslensku krónunnar er í sumar um það bil 40% lægra en fyr- ir ári síðan. Verðlag hækkar í Evrópu Reikningsdæmið er auðvelt. Við getum séð fyrir okkur vöðvastæltan og útitekinn íslenskan karlmann stika ákveðið inn í tröllaukna fata- verslun í Barcelona í sumarhitunum í júlí. Markmiðið er skýrt – að njóta loftkælingarinnar og fjárfesta í snoturri skyrtuflík á sanngjörnu verði. 50 evru skyrtan sem mað- urinn velur sér hefði kostað hann 4.150 krónur í júlí í fyrra. Nú kostar hún 6.250 krónur, sem verður að teljast öllu þjóðlegra verð. En með gengisfallinu er ekki öll sagan sögð. Á sama tíma og stoðir krónunnar hafa hrunið hér á landi hefur verðlag á Evrópska efnahags- svæðinu hækkað. Verð á hvers kyns ferðaþjónustu þar hefur hækkað um 7,2% á einu ári. Hótelgistingar og kvöldstundir á veitingastöðum hafa hækkað að meðaltali um 3,9% og matvælaverð hefur rokið upp um að meðaltali 7%. Sé tillit tekið til þessara stað- reynda er ekki öldungis fjarri lagi að halda því fram að hefðbundin ferðalög út fyrir landsteinana séu nú allt að því helmingi dýrari en fyrir ári síðan. Áhrifin eru þó fjarri því að vera öll komin fram. „Pakkaferðirnar hafa ekki enn hækkað mikið enda eru þar inni alls konar vetrarferðir og ferðir sem fólk hefur pantað fyr- ir margt löngu síðan. Við munum væntanlega sjá hækkanir þar á næstu mánuðum. Flugfargjöld hafa þó hækkað um 18,5% frá sama tíma í fyrra,“ segir Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, deildarstjóri á vísitölu- deild Hagstofunnar. Deilt með 125 en ekki 85 Á meðan Íslendingar gnísta tönn- um og stappa niður fótum þegar þeir borga 8 evrur (1000 íslenskar krónur) fyrir kaffibolla og magakút í miðborg Parísar, liggur straumur brosmildra ferðamanna hingað til lands. Á fyrstu sex mánuðum ársins komu hingað 189.500 útlendingar og það er 6% aukning frá því á sama tíma í fyrra. Aukningin er þó minni en síðustu ár. Fjöldi þeirra ferða- manna sem heimsækja Ísland hefur aukist mikið ár frá ári en slæmt efnahagsástand um víða veröld er ef til vill ástæða þess að dregið hef- ur úr ásókninni hingað til lands. Þeir sem þó hingað koma njóta góðs af gríðarlegu falli krónu síð- ustu mánuði. „Það munar geysimiklu fyrir þá sem hingað koma frá evru- löndunum að deila með 125 en ekki 85 eins og áður. Skyndilega erum við farin að heyra frásagnir útlend- inga sem segja Ísland ekki vera svo dýrt land. Það eru nýmæli,“ segir Guðrún. Er Ísland ekki lengur dýrt land?     ()* (+* ((* (** ,* -* .* /* 0* K        1'  ' 1'  #!           #" MORGUNBLAÐIÐ heyrði af fjöl- skyldu einni sem skellti sér í sum- arferð til Parísar í júlí. Eftir að hafa drukkið í sig menninguna í miðborginni var komið að því að neyta efnislegra drykkja. Fjögur kókglös voru keypt á 4 evrur stykk- ið eða samtals 2000 krónur. Morgunblaðið/Þorkell HELGI Egilsson, 22 ára stærð- fræðikennari úr Hafnarfirði,var nýlega staddur á danskri grund. Þar gekk hann í sumarblíðunni upp Strikið og settist á kaffihús á Ama- ger-torgi. Þar keypti hann sér bjór- glas á 75 danskar krónur eða litlar 1275 íslenskar krónur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ólafur RagnarGrímsson var settur inn í emb- ætti forseta í fjórða sinn í gær. Í innsetning- arræðu sinni sló hann tón bjartsýni og ítrekaði að þótt á móti blési um þessar mundir hefði Ísland „aldrei fyrr haft slíka kjörstöðu í veröldinni né búið að jafn öflugum auðlind- um“. Ólafur Ragnar dró fram sjö þætti, sem hann nefndi efnivið í þjóðarheill: „Fjölþætt menntun, gróskurík menning, fiskistofnar, búskapur í eigin landi, orkulindir, forðabúr neysluvatns og sköpunarverk náttúrunnar eru verðmæti sem aðrir myndu fagna að eiga í sínum ranni, auðlindir og eiginleikar sem geta gert okkur alla vegi færa.“ Ólafur Ragnar var kjörinn forseti árið 1996 og hlaut þá 41% atkvæða. Að þessu sinni var hann sjálfkjörinn. Forset- inn stendur fyrir utan hið pólitíska valdakerfi á Íslandi. Hann er sameiningartákn þjóðarinnar. Ólafur Ragnar hefur gert embættið póli- tískara en for- verar hans og því ekki setið óum- deildur á Bessa- stöðum. Það er hins vegar mik- ilvægt að forsetinn sitji í sátt við alla þjóðina og Ólafur Ragnar kom inn á það í ræðu sinni: „Samband forseta við almenning, alþýðu til sjávar og sveita, er sú kjölfesta sem mestu ræður um fararheill, hin sterka taug sem tryggir lifandi tengsl, gæðir ákvæði stjórnarskrár frjóum anda.“ Í lok ræðunnar biðlaði hann til þjóðarinnar: „Forsetinn ber á sínum herðum ríkar skyldur, mikla ábyrgð. Vonandi tekst mér með hjálp ykkar allra að sinna þeim verkum á farsælan hátt.“ Tveir forsetar aðrir, Ásgeir Ásgeirsson og Vigdís Finn- bogadóttir, hafa setið fjögur kjörtímabil. Ólafur Ragnar hefur sinnt forsetaembættinu af metnaði og eljusemi. Í við- tali í Morgunblaðinu í dag úti- lokar hann ekki að hann muni sækjast eftir því að sitja eitt kjörtímabil til viðbótar. Ólafur Ragnar Grímsson settur í embætti } Allir vegir færir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.