Morgunblaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 21
MENNING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„FJÖLHÆFNIN sem gaf honum
viðurnefnið „lærði“ í lifanda lífi og
geysileg fróðleiksfýsn og forvitni,“
segir Hjörleifur Guttormsson spurð-
ur um gildi ævi og starfa Jóns Guð-
mundssonar lærða fyrir nútímann.
Sunnudaginn 10. ágúst verður
haldin hátíð austur í Hjalta-
staðaþinghá, til að minnast 350 ára
ártíðar Jóns lærða, og kalla þeir
sem að henni standa þennan dag,
Dag Jóns lærða. „Jón virðist hafa
horft mjög vítt,“ segir Hjörleifur.
„Hann bast ekki neinni einni
kreddu, heldur hélt hann til haga og
safnaði upplýsingum um íslenska
þjóðtrú og hugmyndaheim fortíð-
arinnar. Hann skrifaði til dæmis
samantektir um Eddu fyrir Brynjólf
biskup, og um það ritaði Einar
Gunnar Pétursson, þekktasti fræði-
maður okkar í Jóni lærða, sína dokt-
orsritgerð. Hann flytur aðalerindi
dagsins.
Svo má ekki gleyma því að Jón
var talinn fremsti rúnafræðingur
landsins á sínum tíma. Það er ekki
bara dókúmenterað í bréfum ann-
arra sem þekktu til rúna, heldur
vissi Ole Worm í háskólanum í
Kaupmannahöfn líka af færni Jóns
og hafði augastað á honum. Orðspor
hans fór því víða.“
Rússneskur fræðimaður kemur
Hugmyndin að því að halda ártíð
Jóns í heiðri nú, fæddist fyrir um
ári, að sögn Hjörleifs. Með honum í
því að gera daginn að veruleika er
fólk sem hefur unnið að uppbygg-
ingu kirkjunnar og kirkjugarðsins
að Hjaltastað, Hjörleifur Stefánsson
arkitekt og Guðmundur Rafn Sig-
urðsson hjá kirkjugarðaráði, en til
Jón fæðst 20 árum síðar hefði hann
líklega endað á báli.
„En Jón bjargaðist austur á land.
Í staðinn fyrir að vera sendur á
Brimarhólm samkvæmt dómi 1631,
var fallist á að hann fengi að dúsa á
Austfjörðum. Þar voru menn um-
burðarlyndari, og þar naut hann
skjóls valdamanna, til dæmis sýslu-
mannsins á Burstafelli, Bjarna
Oddssonar og prestsins á Kirkjubæ
á Héraði, Ólafs Einarssonar. Hann
fékk vist í Bjarnarey, og var þar á
fjórða áratugnum. Hins vegar fennti
mjög yfir spor hans næstu 20 árin í
Útmannasveit.“
Hjörleifur komst á bragðið þegar
hann skrifaði grein um svæðið í Ár-
bók Ferðafélagsins. „Þegar ég fór
að grúska, fann ég æ fleiri spor. Það
urðu þáttaskil í lífi Jóns og fjöl-
skyldu þegar Brynjólfur Sveinsson
varð biskup í Skálholti, því biskup
setti honum fyrir hvert verkefnið á
fætur öðru, og mörg þeirra hafa
varðveist. Þetta er mikil saga sem
tengist átökum aldarinnar í kjölfar
siðaskipta, áður en mest fór að
sverfa að Íslendingum með einveldi
og einokunarverslun Dana.“
stendur að afhjúpa legstein og
minningartöflur í kirkjunni. Hildi-
gunnur Sigþórsdóttir formaður
sóknarnefndar, og Jóhanna Sig-
marsdóttir sóknarprestur og pró-
fastur hafa líka lagt hönd á plóg.
Ýmsir hafa svo hjálpað til með
styrkjum, þar á meðal sveitarfélag-
ið. Menntamálaráðuneytið styrkir
svo komu rússneska fræðimannsins
Leonids Korablevs, sem er fluglæs á
íslensku og hefur gefið út bækur um
íslensk fræði á móðurmáli sínu,
meðal annars ævisögu Jóns lærða.
En hver var Jón Guðmundsson
sem var svo snjall að samferða-
mönnum þótti við hæfi að gefa hon-
um viðurnefnið lærði?
„Hann var eitt af stærri nöfn-
unum á Íslandi á fyrri hluta 17. ald-
ar,“ segir Hjörleifur. „Hann var
þekktur að mörgu, en í seinni tíð
hefur hann ekki verið í brenni-
punkti. Hann var upp runninn á
Vestfjörðum, og var kenndur við
galdra af þeim sem tortryggnir voru
á hin fornu fræði. Hann var ekki
skólagenginn, var sjálfmenntaður
og ótrúlega fjölhæfur. Fyrir utan
ritstörfin, var hann málari og skurð-
hagur var mjög vel gerður til hugar
og handa. Hann endurritaði handrit
í ríkum mæli og á Landsbókasafn-
inu eru til handrit sem hann skrifaði
upp og útfærði með skrautstöfum.
Síðarmeir skreytti hann kirkjuna á
Hjaltastað og skreyting hans var
þar í 200 ár.“
Hefði líklega lent á báli
Jón komst í kast við yfirvöld á
Vestfjörðum og syðra, bæði andleg
og veraldleg og segir Hjörleifur að
tortryggnir prestar hafi sótt að hon-
um. Hann var sagður fjölkunnugur,
og þá var galdrafárið á Íslandi í upp-
siglingu. Hjörleifur telur, að hefði
350. ártíð Jóns lærða Guðmundssonar minnst í Hjaltalundi Fjölbreytt dagskrá í boði sunnudaginn 10. ágúst
Nýuppgerð Jón lærði og Sigríður kona hans voru jarðsett við inngang kirkjunnar á Hjaltastað.
BANDARÍSKI listamaðurinn
Creighton Michael sýnir teikningar í
Hafnarborg, tvívíðar og þrívíðar.
Hann hefur um árabil unnið að verk-
um er einkennast af síbyljumynstri,
með vísunum í ósjálfráða teikningu
súrrealistanna sem reyndu að skapa
línur á myndfleti óháð skynjun okk-
ar á raunveruleikanum umhverfis,
en í beinu sambandi við undir-
meðvitundina. Einnig vísar Michael
í kínverska skrift og austurlenskt
letur sem og abstrakt málverk frá
miðri síðustu öld sem einkenndust af
samspili tilviljunar og ætlun lista-
mannsins meðal annars með þeirri
aðferð að sletta litum á strigann eða
pappírinn.
Michael kom hingað til lands og
hreifst af íslensku landslagi en þrí-
víðar skúlptúrteikningar hans á efri
hæð Hafnarborgar minna einmitt á
hraunlandslag, strýtur og hrauka,
en líka á net eða reipi sjómanna og
það er því líklegt að við Íslendingar
sjáum í þeim tvöfalda vísun í sögu
landsins, jarðfræðilega og menning-
arlega. Myndband varpar ágætu
ljósi á vinnuaðferðir listamannsins
og veitir áhorfandanum þannig inn-
sýn í hugmyndaheim hans. Vegg-
verk hans eru sambland af þrykki og
teikningu, þar sem áferð, lína, tví-
vídd og þrívídd spila saman á fág-
aðan máta. Smáatriði yfirborðs eins
og möl, smásteinar eða sandur eru
endurtekin mótíf sem ummyndast í
túlkun listamannsins.
Nálgun Michael er fáguð og hóf-
stillt, sem og sýningin í heild, sterk-
asta hlið hennar eru teikningar og
þrykk listamannsins en hér má finna
fjölbreytileika sem leynir á sér.
Ummyndun lands í línur
MYNDLIST
Hafnarborg
Til 24. ágúst. Opið alla daga nema þri.
11–17 og til 21. á fim. Aðgangur ókeyp-
is.
Bylgjulengdir, Creighton Michael
bbbnn
Ragna Sigurðardóttir
Teikning Verk eftir Creighton Michael.
Dagur Jóns lærða,
sunnudaginn 10. ágúst
Samkoma í Hjaltalundi kl. 13-17
Jón lærði - ævi og störf
Einar G. Pétursson
Málarinn Jón lærði
Hjörleifur Stefánsson
Söngur og langspilsleikur Sigrún Gestsdóttir og Sig-
ursveinn Magnússon.
Jón lærði í Rússlandi Leonid Krablev
Skáldið Jón lærði Sævar Sigbjarnarson
Náttúrufræðingurinn
Jón lærði
Helgi Hallgrímsson
Á eintali við Jón lærða Ásdís Thoroddsen
Um afkomendur
Jóns og Sigríðar
Guðmundur H. Beck
Dvalarstaðir Jóns á Úthéraði
Hjörleifur Guttormsson
Kl. 17.30 verða minningamörk afhjúpuð við kirkjuna á
Hjaltastað. Ávörp. Gengið að Dalaseli í dagslok ef veð-
ur leyfir.Steypireyður Teikning eftir Jón lærða.
Úr „Íslands aðskiljanlegar náttúrur“.
Lærður og
vel gerður
jafnt til hug-
ar og handa