Morgunblaðið - 02.08.2008, Side 50
50 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Á miðviku-daginn var hlýjasti
dagurinn á Íslandi í mörg ár.
Hvert hita-metið á fætur öðru
var slegið, en hitinn mældist
mestur á Þing-völlum eða
29,7 stig. Það er hæsti hiti
sem mælst hefur á staðl-aðri
sjálf-virkri stöð á Íslandi, að
því er segir á vef
Veður-stofunnar. Þetta er
aðeins 0,8°C lægra en
lands-metið frá Teigar-horni
árið 1939 (30,5°C).
Lands-menn kunnu vel að
meta hlýindin enda ekki oft
sem þeir fá að upp-lifa daga
sem þennan. Fullt var í
Nauthóls-vík og í
sund-laugum landsins.
Alls voru um 10 hita-met
slegin, flest frá ágúst-mánuði
ársins 2004. Það gerðist
m.a. í Reykjavík þar sem
hitinn komst upp í 25 gráður.
Elsta hita-metið sem féll var
á Stór-höfða í
Vestmanna-eyjum en það
hafði staðið síðan 1924. Þá
var ekki aðeins heitt við
sjávar-málið heldur líka upp
til fjalla. Efst á Skála-felli, í
700 metra hæð, mældist
hitinn 23,1 gráða.
Mörg hita-met slegin á landinu
Morgunblaðið/Ómar
Radovan
Karadzic,
fyrrverandi
leið-togi
Bosníu-Serba,
kom fyrir
Alþjóða-
-sakamála-
-dómstólinn
fyrir Júgó-
slavíu (ICTY) fyrr-verandi í
Haag á fimmtu-dag.
Hann var fluttur með flugi
til Hollands á miðviku-dag.
Fyrir dómnum neitaði
Karadzic að lýsa yfir sekt eða
sak-leysi. Hann sagði að
Bandaríkja-stjórn hefði lofað
því að hann kæmist hjá
réttar-höldum Alþjóð-lega
stríðsglæpa-dómstólsins í
Haag ef hann léti sig hverfa.
Hann sagði að Richard
Holbrooke, þá-verandi
samninga-maður
Bandaríkja-stjórnar, hafi gert
honum þetta til-boð árið
1996. Holbrooke neitar
þessum ásökunum.
Karadzic
kom fyrir
dóm-stóla
Radovan
Karadzic
Mest verð-bólga á Íslandi
Verð-bólga var mest á
Íslandi í júní-mánuði af
aðildar-ríkjum Efnahags- og
framfara-stofnunarinnar,
OECD. Tólf mánaða
verð-bólga mældist 12,8% í
júní á Íslandi. Næst-mest
var verð-bólgan í Tyrklandi,
10,6% og þar á eftir kom
Ungverja-land með 6,7%.
Or-sakir geð-klofa fundnar?
Vísinda-menn Íslenskrar
erfða-greiningar greindu í
tíma-ritinu Nature frá
upp-götvun úr-fellinga í
erfða-mengi manna sem
tengjast geð-klofa. Slíkt
tengsl hafa hingað til verið
óþekkt. Kári Stefánson
segist vonast til að þessi
upp-götvun leiði til þess að
hægt verði að greina
ein-staklinga og hefja
með-ferð við geð-klofa fyrr
en áður.
Vinnings-tillaga að LHÍ
Mikið hefur verið deilt um
ágæti vinnings-tillögu
í sam-keppni um hönnun
Lista-háskóla Íslands á
Frakkastígs-reitnum. Eftir
mikla um-fjöllun fjöl-miðla
um sjónar-mið
borgar-yfirvalda og
að-standenda var fundað um
málið á þriðju-dag.
Ákveðið var að vinna
til-löguna áfram en hún
verður lögð fyrir
skipu-lagsráð í næstu viku.
Stutt
Sam-kvæmt nýrri rann-sókn
sem unnin var við Long
Island-háskóla í
Banda-ríkjunum eru lífs-gæði
í heiminum mest hér á landi.
Náði rann-sóknin til 120
landa víðs vegar um heiminn.
Ísland kom einnig best út
hvað varðaði efnahags-leg
tæki-færi. Í rann-sókninni eru
Ísland og önnur lönd sem
komu vel út sögð hafa
blandað sér gott „hana-stél“
efnahags-frelsis, menntunar,
almanna-heilsu og
alþjóða-væðingar. Ekki er
sama að segja um
Simbabve, Eþíópíu og Tsjad
en þeim er lýst sem
harðstjórnar-ríkjum og
inn-viðir þeirra þykja letj-andi
fyrir þjóðir þeirra.
Mestu
lífs-gæðin
Alþjóða-viðskipta-stofnunin stóð fyrir
við-ræðum um Doha-samn-ingana í Genf.
Þessar við-ræður stóðu í níu daga en þá fóru
þær út um þúfur. Mark-mið þeirra var að
auð-velda alþjóða-viðskipti með
landbúnaðar-vörur með tolla-lækkunum og
auð-velda að-gang annarra vara á
alþjóða-markað.
Haraldur Benediktsson for-maður
Bænda-samtaka Íslands segir enga sér-staka
gleði í því að upp úr við-ræðunum hafi slitnað.
Hann segir að þó mark-mið við-ræðnanna séu
bændum ekki endi-lega hag-stæð þá sé
óvissan í land-búnaðnum litlu skárri.
Bænda-samtökin fá nú betri tíma til að
að-laga bændur að breytingunum sem munu
verða.
For-maður Neytenda-samtakanna,
Jóhannes Gunnarsson, segir það mikil
vonbrigði að ekkert verði af þeim miklu
tolla-lækkunum sem sam-tökin hafa vonast
eftir.
Slitnaði upp úr
Doha-viðræðum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ástralska leik-konan Cate
Blanchett, ein virtasta
kvikmynda-leikkona heims,
hefur boðið leik-hópnum
Vestur-porti að setja leik-verkið
Ham-skiptin eftir Franz Kafka
upp í leik-húsinu í Sydney í
Ástralíu í mars og apríl á næsta
ári. Blanchett er list-rænn
stjórnandi leik-hússins ásamt
eigin-manni sínum,
leik-stjóranum Andrew Upton.
Rakel Garðarsdóttir,
framkvæmda-stjóri
Vestur-ports, segir að trú-lega
hafi það haft sín áhrif að
ástralski tónlistar-maðurinn
Nick Cave samdi tón-list við
verkið.
Blanchett vill
fá Vestur-port
Reuters
Cate Blanchett
Á sunnu-daginn
urðu Kristján Þór
Kristjánsson, úr
Kili í Mosfellsbæ,
og Helena
Árnadóttir úr
Golf-klúbbi
Reykjavíkur
Íslands-meistarar
í golfi. Helena
varð einnig
meistari árið
2006.
Íslands-mótið var haldið í
Vestmanna-eyjum, og það
þótti gífur-lega spennandi
og úr-slit réðust í
bráða-bana, bæði hjá
konum og körlum.
„Til-finningin þegar boltinn
datt í síðasta púttinu er
ólýsan-leg. Hún var
frá-bær,“ sagði Kristján Þór
al-sæll með sigurinn sem
kom mörgum mjög á óvart.
Kristján og Helena
Íslands-meistarar
Kristján og Helena.
Netfang: auefni@mbl.is