Morgunblaðið - 26.10.2008, Síða 25

Morgunblaðið - 26.10.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 1. Af hverju ertu stoltust á ferlinum? Hápunktur ferilsins hingað til er þegar við urðum tvöfaldir meistarar 2006 með Val. Einnig er ég mjög stolt af árangri kvennalandsliðsins undanfarið og ég vona innilega að við getum gert þjóðina stolta með því að komast á EM 2009. 2. Hvaða áhugamál áttu fyrir utan knattspyrnu? Ég hef áhuga á rosalega mörgu en ég hef ekki mikinn tíma aflögu frá fótboltanum og skólanum. Ég hef mikinn áhuga á öllu íþróttatengdu, þá sérstaklega fimleikum og frjáls- um. 3. Við hvað ertu hræddust? Ég hef alltaf verið hrædd við dauð- ann af einhverri ástæðu, ætli mér finnist ekki bara svona skemmtilegt að lifa. 4. Hvaða manneskju (lífs eða liðinni) dáist þú mest að og hvers vegna? Lance Armstrong, hann er mikil fyrirmynd og hefur sýnt og sannað að það er hægt að ná sínum mark- miðum þrátt fyrir mikið mótlæti í lífinu. 5. Hvaða eiginleika metur þú mest í fari fólks? Heiðarleika og húmor, ég dáist að fólki sem þorir að vera það sjálft og kemur til dyranna eins og það er klætt. 6. Nefndu tvo helstu galla þína og tvo helstu kosti. Ég tel mig vera mjög jákvæða, lífs- glaða persónu, ætli það myndu ekki teljast mínir helstu kostir. Mínir helstu gallar eru líklega hvað ég á oft erfitt með að taka ákvarðanir og síðan get ég verið svolítið kröfuhörð gagnvart öðrum. 7. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Ég held það sé ekki sérlega margt sem fer í taugarnar á mér en ætli það sé ekki helst þegar fólk er falskt og kemur illa fram við aðra. 8. Ef þú endurfæddist til annars lífs, hver og hvar myndirðu vilja vera? Ég er mjög sátt við líf mitt eins og það er en ef ég þyrfti að velja þá held ég að ég myndi vilja vera Björgólfur Thor fyrir nokkrum mánuðum. Ég myndi selja öll hluta- bréfin mín og kaupa evrur, síðan myndi ég dunda mér við góðgerða- störf það sem eftir er. 9. Hvaða ráð hefur þú handa stjórnvöldum á þessum erfiðu tímum í efnahagslífi þjóð- arinnar? Fyrst og fremst að læra af reynsl- unni og byggja upp með það í huga að koma í veg fyrir að svona geti komið fyrir aftur. 10. Hvaða tvo hluti myndirðu hafa með þér á eyðieyju? Friðgeir kærastann minn og One o One lystisnekkju Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Pálma. 11. Hver er vandræðalegasta uppákoma sem þú hefur lent í? Það helsta sem mér dettur í hug er þegar ég hitti fyrrverandi vinnu- félaga sem ég á ekki mikil samskipti við dagsdaglega. Við fórum að spjalla og mér fannst hún vera búin að bæta eitthvað á sig. Án þess að hugsa óskaði ég henni til hamingju með að vera ólétt. Hún varð mjög skrýtin á svipin og sagði að hún væri ekki ólétt. Þessu fylgdi mjög vand- ræðaleg þögn og andlitið á mér tók upp ýmis litbrigði af rauðu áður en ég afsakaði mig og kvaddi. 12. Hver er besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar í karla- og kvennaflokki? Það er úr mjög breiðum og hæfi- leikaríkum hópi leikmanna að velja. Ég myndi segja að Eiður Smári Guð- johnsen stæði upp úr í karlaflokki og Margrét Lára Viðarsdóttir í kvenna- flokki enda bæði heimsklassa- leikmenn. 13. Kemst kvennalandsliðið okkar í lokakeppni Evrópumótsins? Það leikur enginn vafi á því, við erum ekki að fara í þessa leiki með neinu öðru hugarfari. Ég hvet alla til að styðja okkur og mæta á völlinn þeg- ar við tökum á móti Írunum hér heima á fimmtudaginn kl. 18.10. Áfram Ísland! Ásta Árnadóttir landsliðskona í knattspyrnu  Ásta Árnadóttir fæddist 9. júní 1983 á fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Foreldrar hennar eru Dagný Magnea Harðardóttir og Árni Þór Snorrason. Hún á einn bróður sem er 4 árum eldri og heitir Þorleifur Kristinn Árnason. Ásta er í sambúð með Friðgeiri Steinssyni.  Hún útskrifaðist úr Mennta- skólanum á Akureyri vorið 2003 af náttúrufræðibraut. Hún er nú á þriðja ári í sjúkra- þjálfun við Háskóla Íslands.  Sl. tvö sumur hefur Ásta unnið við málningarvinnu með bróður sínum sem er málari.  Fótboltaferillinn hófst þegar Ásta var 9 ára á Dalvík og æfði hún þar í eitt ár, þá flutti hún til Akureyrar þar sem hún æfði með Þór. Hún byrjaði sem markmaður en þegar mörkin tóku að stækka í 3. flokki fór hún að spila úti.  Ásta lék með Þór/KA þangað til hún flutti suður 2004. Hef- ur spilað með Val síðan þá.  Titlar: Íslandsmeistari með Þór í 1. deild kvenna árið 1999. Hefur orðið fjórum sinnum Ís- landsmeistari og einu sinni bikarmeistari með Val.  Ásta hefur leikið 29 A- landsleiki, 22 U21, 13 U19 og 4 U17. LÍFSHLAUP ÁSTU Kvennaliðið fer alla leið í lokakeppnina Maður eins og ég 25 VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD HAGFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS www.vidskipti.hi.is Ákveðið hefur verið að taka inn nemendur í grunnnám, meistaranám og doktorsnám í viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands á vormisseri 2009. Nánari upplýsingar um nám í viðskiptafræði er á vidskipti.hi.is og í hagfræði á hag.hi.is Umsóknarfrestur í meistaranám rennur út 15. nóvember. Tekið verður við umsóknum í grunnnám um áramótin. Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu Háskóla Íslands www.hi.is Námslínur í viðskiptafræði: BS í fjármálum BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum BS í reikningshaldi BS í stjórnun og forystu MS í fjármálum fyrirtækja MS í mannauðsstjórnun MS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum MS í stjórnun og stefnumótun MS í viðskiptafræði Reikningsskil og endurskoðun, M.Acc. (byrjar 14. nóv.) Námslínur í hagfræði: BS í hagfræði BA í hagfræði MS í fjármálahagfræði MS í hagfræði MS í heilsuhagfræði www.hag.hi.is Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur gudrung@mbl.is Þegar harðnar á dalnum faralandar síður til útlanda þarsem þeir hafa dansað ogsungið af hjartans lyst í góðærinu og þeir óbundnu gjarnan fundið sér maka í áhyggjuleysi frí- daganna. En það þýðir ekki að láta hugfallast þótt dragi úr þessu gamni. Í þessu sem öðru má sækja í sjóð gamallar reynslu. Á árum áð- ur voru starfandi stór danshús, svo sem Broadway, Súlnasalur Hótel Sögu, Hótel Borg og þannig mætti telja. Þar var mikill markaður fyrir náin kynni kynjanna. Það verður ábyggilega markaður fyrir svona staði þegar fólk dregur úr utan- landsferðum vegna efnahagsþreng- inga. Mannlegt eðli er samt við sig, fólk þarf að kynnast og bindast hvers kyns böndum. En það er raunar allur gangur á því hvernig fólk kynnist og stofnar til vináttu- og ástarsambanda. Einu sinni las ég frásögn konu sem sá mann á húsþaki að mála. Hún opn- aði gluggann sinn og spurði mál- arann, sem henni leist mætavel á, hvort hann væri ekki til í að mála þakið fyrir hana. Hann hélt nú það og nokkru síðar hóf hann það starf og þáði margan kaffisopann á með- an. Þetta málningarsamband leiddi til sambúðar sem vonandi stendur enn. Í samtali sem ég átti við Báru Ólafsdóttur um gardínusaum, og birtist fyrir skömmu í sunnudags- blaðinu, sagði hún mér í framhjá- hlaupi skemmtilega sögu um hvern- ig hún kynntist núverandi sambýlismanni sínum og ég læt söguna hér flakka með leyfi Báru. Hún var þá nýlega farin að vinna í gluggatjaldaverslun, var fráskilin kona með uppkomin börn og saum- aði gardínur í frístundum til að drýgja tekjurnar. „Vinkona mín þekkti banka- manninn Kristin Jónsson,“ sagði Bára. „Kristinn var nýlega orðinn ekkjumaður, hafði selt hús sitt og keypt íbúð. Hann vantaði gardínur fyrir nýju íbúðina. Ég mældi fyrir gardínunum í maí, en Kristinn fékk þær ekki fyrr en í júlí, því pöntun á efninu tók sinn tíma. Loks kom að því að ég setti gardínurnar upp. Hann var heima og notaði tímann til að stríða mér heilmikið á meðan ég var að vinna. Þetta var á laug- ardegi og ég var langt fram eftir degi að koma gardínunum fyrir. Þegar því var loks lokið og ég var að kveðja þá spurði hann hvort hann mætti ekki bjóða mér á Naustið um kvöldið að borða. Ég þáði það.“ Þau hafa verið saman síðan, í íbúðinni sem hún saumaði gard- ínurnar í forðum. „Hann segir stundum til að stríða mér að ég hafi komið að minnsta kosti tíu sinnum að mæla fyrir gardínunum en það er alls ekki rétt,“ lauk Bára sögunni. Nú renna upp tímar þar sem alls kyns vinnuskipti verða vinsæl, slíkt fylgir harðæristímum. Við það skapast samgangur við ýmislegt fólk og því má næstum bóka að ekki þarf að leita endilega á dans- eða veitingastaði, nú eða þá netið, til þess að kynnast hugsanlegum maka. Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. Mannlegu sam- skiptin blómgast á ýmsa vísu þegar hart er í heimi – sem betur fer. Þjóðlífsþankar Mældi sambýlis- manninn út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.