Morgunblaðið - 26.10.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 26.10.2008, Qupperneq 26
26 Matur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Morgunblaðið/Golli Íslenskt kaffihús Hrönn Vilhelmsdóttir gæðir sér á íslensku góðgæti á kaffihúsi sínu, Café Loka við Lokastíg til móts við Hallgrímskirkju, sem blasir við gestum í allri sinni dýrð. Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Í glaðlegu gulu húsi, á horni Lokastígs og Njarðargötu, hefur Hrönn Vil- helmsdóttir rekið Café Loka frá því í júlí. Kaffihúsið er gætt þeirri sér- stöðu að það býður einvörðungu upp á íslenskan mat; heimabökuðu flat- kökurnar og rúgbrauðið eru eyjur í hafsjó „ciabatta“-samloka og „bruschetta“ með mozzarella miðbæjarins. „Strax á fyrsta degi í sumar komu útlend- ingarnir. Margir virðast hafa beðið lengi eft- ir svona stað,“ segir Hrönn en tekið er á móti gestum með skilti sem býður þá vel- komna á 25 tungumálum. Íslendingar hafa líka tekið vel við sér. „Við finnum það vel hvað unga fólkið er hrifið af því sem við er- um að gera, ekki síður en eldra fólk,“ segir hún. Eiginmaður Hrannar, Þórólfur Már Ant- onsson fiskifræðingur, er bakarameistari hússins og þykir hann sérstaklega fær í að baka flatbrauð. „Maðurinn minn er snillingur í að gera flatbrauð. Tengdamamma kenndi honum handbragðið fyrir mörgum árum,“ segir Hrönn en Þórólfur er sonur Sig- urlaugar Sveinsdóttur og Antons Guðlaugs- sonar á Dalvík og er uppskriftin þaðan. Nágranninn Hallgrímskirkja „Við fengum þetta frábæra hús beint á móti Hallgrímskirkju fyrir reksturinn. Þarna í kring var engin þjónusta fyrir þá sem koma að skoða kirkjuna. Í erlendum borgum er alls staðar hægt að setjast niður á kaffihúsi við merkar kirkjur,“ segir Hrönn en Café Loki er á annarri hæð hússins með góðu út- sýni yfir Hallgrímskirkju og nágrenni. Kaffi- húsið er látlaust, bjart og létt en þó með persónulegum skreytingum. Gardínurnar eru í anda umhverfisins með myndum af Hall- grímskirkju, styttu Leifs heppna og rjúkandi heitum kaffibollum. Til viðbótar er lögð áhersla á tengingu við Hallgrímskirkju með því að bjóða til sölu póstkort með myndum af kirkjunni í hinum ýmsu birtu- og árstíð- arbúningum. Listrænu tilburðirnir skýrast af því að kaffihúsið er ekki eina starfsemin í húsinu því Hrönn, sem er textílhönnuður, rekur verslunina Textíl á jarðhæð hússins. Hún hefur rekið verkstæði og verslun um árabil og er m.a. þekkt fyrir litrík ungbarnasæng- urföt. Til að kóróna samhljóminn búa Hrönn og Þórólfur svo í risi hússins. Fagurfræðin í fyrirrúmi Café Loki leggur áherslu á íslenskt smur- brauð. „Við erum með okkar gamla góða rúg- og flatbrauð, smyrjum sneiðarnar með íslensku áleggi og útfærum þær á fallegan hátt,“ segir Hrönn og leggur áherslu á að maturinn eigi líka að vera fyrir augað. „Þetta er ekki gamaldags þó við notum gamla, góða hráefnið.“ Meðal rétta á matseðlinum er heimabakað rúgbrauð með plokkfiski og graslauk, flat- kaka bökuð yfir eldi með sviðasultu, róf- ustöppu og baunasalati, íslensk kjötsúpa, skyr með rjómablandi, kleinur og ást- arpungar. „Ég held að það sé minnimáttarkennd hjá Íslendingum að bjóða alltaf upp á þetta „panini“. Við erum sífellt að horfa út á við. Nú er tíminn til að líta sér nær og hlúa að því sem íslenskt er,“ segir Hrönn og útskýrir nánar: „Ég held að Íslendingar eigi eftir að standa þéttar saman. Ég held að við verðum heilsteyptari þjóð ef við sinnum menningar- arfleifð okkar betur.“ Brauðsúpa og fiskibollur Á kaffihúsinu við Lokastíg er líka hægt að fá rétt dagsins en í vikunni sem blaðamaður leit inn var boðið upp á brauðsúpu, saltfisk, ofnbakaðan þorsk, fiskisúpu og fiskibollur með meðlæti. „Við höfum fengið góðar viðtökur hjá fólki í nágrenninu og fyrirtækjunum hérna í kring.“ Á Loka er enginn „brunch“ heldur „helg- arverður“, sem Hrönn segir hafa mælst vel fyrir og eru réttirnir mismunandi eftir því hvort fólk heimsækir kaffihúsið á laugardegi eða sunnudegi. Til dæmis eru lummur með á laugardögum en rjómapönnukaka á sunnu- dögum. Kaffihúsið er jafnframt gallerí en í októ- ber skreyta myndir listakonunnar Að- albjargar Erlendsdóttur veggina en hún sýn- ir íslensk fjöll, máluð á silki í sterkum litum, sem undirstrika tengsl Loka við hefðina. Hefðin yljar hjartarótum Alíslenskt kaffihús við Lokastíg hefur fengið góðar við- tökur frá því það var opnað í sumar. Ilminn af íslenskri kjötsúpu og nýbökuðu brauði leggur langar leiðir Pönnukökur Með sykri eða rjóma og sultu.Rúgbrauð Falleg framsetning og litrík. Góðgæti Alls konar íslenskt góðgæti. Ljósmynd/Jón Páll Vilhelmsson Flatkaka Eldbökuð með silungi og kotasælu. Sýningin Reykvíska eldhúsið – Matur ogmannlíf í 100 ár stendur nú yfir í Að-alstræti 10 og er vel hægt að mæla með henni fyrir þá sem hafa áhuga á matarmenn- ingu og líka sögu höfuðborgarinnar á 20. öld- inni. Á sýningunni eru dregnar upp svipmyndir af þeim umskiptum sem urðu á matarmenn- ingu, mataræði, matvælaframleiðslu og versl- un með mat í Reykjavík á þessum tíma. Á árunum 1900-1930 var mikið um fiskmeti á borðum bæjarbúa. Dagleg fæða alþýðu manna var fiskur, rúgbrauð, smjörlíki og kaffi en efnafólk gerði vel við sig og sína á danska matarvísu. Til dæmis var algengur miðdeg- ismatur vatnsgrautur með rófum í með skyri eða súrmjólk út á. Oft var haft súrt gulrófukál út á grautinn. Svo má líka nefna að með kvöldmat fékk fullorðið fólk eina flatköku með matnum en unglingar hálfa köku. Algengur Matur og menning matur var þá harðfiskur eða harðir hausar þó nýr fiskur hafi stundum verið á borðum. Innflutningshöft og innlend framleiðsla Meðal þess sem kemur fram á sýningunni er að vegna innflutningshafta, sem stóðu fram yfir 1960, hafi margar útlendar vörur horfið af borðum Reykvíkinga og þeir því snú- ið sér meira að innlendum mat en áður. Í kjöl- farið efldist innlend matvælaframleiðsla veru- lega. Hugsanlega verður einhverja samlíkingu við þetta að finna í yfirstandandi kreppu. And- inn virðist að minnsta kosti vera sá að fólk hefur meiri áhuga á íslenskum vörum en áður. Síðan var verslun gefin frjáls á viðreisn- arárunum og vöruúrval í verslunum jókst. Áhrifa alþjóðlegrar matarmenningar fór að gæta og ýmsar sérverslanir með mat spruttu upp. Frystikistur og önnur heimilistæki ollu þáttaskilum í matargerð og drógu úr vinsæld- um súrmetis og saltkjöts. Hér er önnur sam- líking við samtímann því vinsældir frysti- kistna hafa aukist að undanförnu, líkt og greint var frá á síðum þessa blaðs fyrir nokkru. Árin 1975 - 2000 Að lokum er eitt herbergi á sýningunni lagt undir árin 1975- 2000 en á þessum árum varð til sú alþjóðlega matarmenning sem Reykvíkingar þekkja nú. Ljóst er að hún hverfur aldrei þótt þjóðlegur matur eigi vænt- anlega eftir að njóta meiri vin- sælda í nánustu framtíð. Sýningin verður opin til 23. nóvember og er leiðsögn um hana á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20. Nánari upplýsingar er að finna á mat- arsetur.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.