Morgunblaðið - 26.10.2008, Page 47

Morgunblaðið - 26.10.2008, Page 47
Auðlesið efni 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Mikið hvass-viðri gekk yfir landið síðast-liðinn fimmtu-dag en seint um kvöldið slotaði veðrinu nokkuð. Á Vest-fjörðum var ekki um það ofsa-veður að ræða sem spáð hafði verið sam-kvæmt lög-reglunni á Ísa-firði. Fjórum flug-vélum Ice-landair og Ice-land Express á leið til Kefla-víkur var snúið frá Kefla-víkur-flugvelli vegna veður-ofsa og þess í stað lent á flug-vellinum á Akur-eyri og á Egils-stöðum. Í Hafnar-firði losnaði flotbryggja frá landi og í Kópa-vogi losnaði togari frá bryggju og strandaði í innsiglingunni. Snjókoma og hvassviðri á landinu Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Elísabet Gunnarsdóttir mun taka við þjálfun sænska kvenna-knatt-- spyrnu-liðsins Kristianstad en hún sagði starfi sínu hjá Íslands-meistara-liði Vals lausu fyrir skömmu. Elísabet mun vera braut-ryðjandi á sínu sviði því þegar hún skrifaði undir samning um að þjálfa meistara-flokk kvenna hjá Kristianstad, varð hún fyrsti Íslendingurinn til að þjálfa kvenna-lið í efstu deild utan Íslands. Þjálfar í Svíþjóð Finnur Sveinbjörnsson, formaður skila-nefndar Kaupþings, hefur verið ráðinn banka-stjóri Nýja Kaupþings. Birna Einarsdóttir, fyrr-- verandi fram-kvæmda-stjóri við-skipta-banka-sviðs Glitnis, hefur verið ráðin banka-stjóri Nýja Glitnis. Nýir banka- stjórar Finnur Svein- björnsson Birna Einarsdóttir Ríkis-stjórnin hefur formlega óskað eftir sam-starfi við Alþjóða-gjaldeyris-sjóðinn um að koma á efnahags-legum stöðug-leika á Íslandi. Við-ræður á milli fulltrúa Íslands og sjóðsins um fyrir-komulag sam-starfsins hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Fyrir liggur samkomu-lag á milli íslenskra stjórn-valda og sendi-nefndar Alþjóða-gjaldeyris-sjóðsins sem verður borið undir stjórn sjóðsins til endan-legrar af-greiðslu eins fljótt og auðið er. Megin-markmið efnahags-áætlunar ríkis-stjórnarinnar eru:  Að endur-vekja traust á íslenskum efna-hag og ná stöðugu gengi krónunnar með mark-viss-um og öflugum að-gerðum.  Að undir-búa mark-vissar að-gerðir til að styrkja stöðu ríkis-sjóðs.  Að endur-reisa íslenskt banka-kerfi. Sam-starf Íslands og Alþjóða-gjald-eyris-sjóðsins felur í sér lán-veitingu frá sjóðnum að jafn-virði 2 milljarða bandaríkja-dala og koma 830 milljónir af þeirri fjár-hæð til greiðslu, þegar við stað-festingu stjórnar sjóðsins. Jafn-framt eru íslensk stjórn-völd full-viss um að sam-starf við Alþjóða-gjaldeyris-sjóðinn muni skapa forsendur fyrir frekari lána-fyrir-greiðslu frá öðrum löndum. Óskað eftir sam-starfi við Alþjóða-gjaldeyris-sjóðinn Morgunblaðið/Golli Rúm vika er þar til kosið verður um forseta í Banda-- ríkjunum. Enda-- spretturinn er hafinn í kosninga-- baráttunni og er Barack Obama í væn-legri stöðu en John McCain. Sam-kvæmt könnun Pew-rannsókna-- miðstöðvarinnar er helsta skýringin á auknu for-skoti Obama sú að kjósendur bera minna traust til McCains en áður. Hún bendir til þess að kjósendur treysti Obama betur í öllum mál-efnunum, m.a. í Íraks-málinu og baráttunni gegn hryðju-verkum. Aukið for-skot Obama Barack Obama Gunnar Theodór Eggertsson byrjaði að spinna fram-halds-sögu fyrir krakkana sem hann gætti á frí-stunda-heimili Hlíða-skóla. Á endanum óx hún upp í bókar-stærð og hlaut hann Íslensku barna-bóka-- verð-launin fyrir söguna, sem ber nafnið Stein-dýrin. „Krakkarnir eiga mikinn þátt í því að þessi bók kláraðist,“ segir Gunnar. Gunnar er 26 ára og var að hefja doktors-nám í bók-mennta-fræði í haust og er þetta hans fyrsta bók. „Þetta er ævintýra-saga sem hefst í íslensku þorpi þar sem hópur af krökkum upp-götvar að dýrin í þorpinu eru að breytast í steina. Fullorðna fólkið gleymir því um leið að dýrin hafi verið til. Krakkarnir átta sig á því að það er eitt-hvað dular-fullt í gangi og fara að kanna hvaðan þessi á-lög komi.“ Íslensku barna- bóka-verðlaunin Morgunblaðið/Ómar Gunnar Theodór Eggertsson Knatt-spyrnu-félagið Fram og ung-menna-félagið Fjölnir hafa ákveðið að slíta við-ræðum um sam-einingu félaganna. Á dögunum ákváðu aðal-stjórnir félaganna að skipa vinnu-hópa til að fara yfir hvort mögu-leiki væri á sam-einingu. Búið er að slíta við-ræðum og því verður ekkert af því að félögin renni saman í eitt félag. Ekkert verður af sameiningu Dr. Páll Þórðarson, dósent og efna-fræðingur við New South Wales-- há-skólann í Sydney, Ástralíu, hlaut ný-verið hvatningar-verðlaun fyrir unga vísinda-menn, svo-nefnd Young Tall Poppy Science Awards. Páll hefur verið bú-settur í Ástralíu síðustu fimm ár. Hvatningar- verðlaun Gylfi Arn-björnsson, sem verið hefur fram-- kvæmda-stjóri Alþýðu-- sambands Íslands síðan 2001, bar sigur úr býtum í forseta-kjöri á ársfundi sam-bandsins. Greidd voru 283 atkvæði og hlaut Ingibjörg R. Guðmundsdóttir 114 atkvæði, en Gylfi 166 atkvæði. Gylfi nýr forseti ASÍ Íslenska kokka-lands-liðið vann til fernra verð-launa á Ólympíu-leikum mat-reiðslu-- meistara í Erfurt í Þýskalandi sem fór fram 19. til 22. október. Liðið fékk tvenn gull-verðlaun og tvenn silfur-verðlaun. Íslenska liðið lenti í 10. sæti á mótinu, en 32 þjóðir kepptu á Ólympíu-leikunum. Lið Noregs hreppti 1. sætið. Lands-lið kokka fékk gull og silfur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.