Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 35
Daglegt líf 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 Fátt hefur borið hærra á heimaslóð Sauðkrækinga sem og annarra Skagfirðinga að undanförnu, en yf- irgengileg bölsýni og heimsend- isspádómar sem vart verður séð fyr- ir endann á. Herra biskupinn kemur fram í sjónvarpi og lýsir því yfir að þjóðin „sé í losti“, forseti vor gengur í hús og faðmar þegna sína nánast á sama tíma og hann húðskammar jafnt vini sem óvini fyrir ræfildóm og óheilindi. Ráðherrar og alþing- ismenn tala í hverri setningu um „brimróður, holskeflur, hamfarir“, og eru þó ekki teknir nema af handa- hófi einhverjir orðalepparnir. Ný- kjörinn forseti ASÍ telur ástandið verra eða að minnsta kosti ekki betra en í móðuharðindunum, þegar þriðjungur þjóðarinnar féll úr ófeiti, og aðrir minnast á líkingu við heims- kreppuna miklu á fyrri hluta síðustu aldar sem hafi vart verið nema hjóm hjá þessu. En allir hvetja til þess að nú sé bökum snúið saman og með bjartsýnina að vopni verði kreppan sigruð. Hafa þessir aðilar verið að tala bjartsýni í þjóðina?    Hinsvegar gengur lífið hér fyrir norðan sinn vanagang, sumt gengur betur, en annað er þyngra í vöfum.    Á síðasta ári tók til starfa á Sauð- árkróki jarðgerðarstöð, þar sem unnin er molta úr lífrænum úrgangi, ýmsum stoðefnum og íblöndunar- efnum sem gert er ráð fyrir að verði þegar á næsta vori til notkunar í sveitarfélaginu. Að sögn fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins hefur þróun framleiðslunnar miðað vel, og á liðnu hausti tók stöðin á móti öllum sláturúrgangi sem ekki nýttist til loðdýrafóðurs, frá sláturhúsi KS sem er stærsti sláturleyfishafi landsins svo og frá fyrirtækinu Fisk Seafood. Hefur þessi vinnsla vakið verðskuldaða athygli og orðið til þess að fleiri sveitarfélög hafa hugs- að sér til hreyfings með nýtingu líf- ræns úrgangs, meðal annars á Eyja- fjarðarsvæðinu.    Móttökustöðin Flokka, sem tekur á móti öllum flokkuðum úrgangi frá fyrirtækjum og heimilum, hefur einnig gengið vel og segir eigandi Flokku nú þegar hafa verið flutt út á annað hundrað tonna af pappír og pappa til endurvinnslu, auk rúllu- baggaplasts eða bændaplasts sem einnig er sent út yfir pollinn sömu erinda. Vegna þessa hefur líka orðið verulegur samdráttur þess heim- ilissorps sem urða þarf.    Loks er hafin uppbygging á veit- ingahúsinu Kaffi Krók, sem varð eldi að bráð fyrir tæpu ári, en lengi hafa framkvæmdir tafist, og meðal annars vegna þess að svo gamalt hús þarf að endurbyggja í sem líkustu útliti og upphaflega var. Þá hafa tryggingamál ekki flýtt fyrir fram- kvæmdum. Er það Sauðkrækingum sérstakt gleðiefni að nú er búið að hreinsa brunarústina burt og bygg- ingamenn önnum kafnir við að hefja gerð nýs húss sem væntanlega mun setja svip sinn á götumynd gamla Króksins.    Nú verður björninn endanlega unn- inn, þegar Þverárfjallsbjarndýrið frá síðastliðnu sumri verður var- anlega komið í vörslu Náttúrustofu Norðurlands vestra og til sýnis fyrir gesti og gangandi þann 29. þessa mánaðar, en það er sami dagur og tendruð verða ljósin á vinabæjar- jólatrénu, sem árlega berst til Sauð- árkróks frá vinabænum Kongsberg í Noregi.    Þann 18. þessa mánaðar mun Einar K. Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, opna nýja líf- tæknismiðju á vegum fyrirtækisins Matís, sem starfrækt verður í Verinu, háskólasetri við Sauð- árkrókshöfn. Ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Arnljótur Bjarki Bergsson, en auk hans munu a.m.k. fimm starfsmenn vinna við smiðj- una.    Nýlega voru árlegir bændadagar haldnir í Skagfirðingabúð á Sauð- árkróki, en þetta mun vera í fjórða sinn sem verslunin býður bændum í héraði að kynna framleiðsluvörur sínar. Var fullt út úr dyrum báða dagana þegar bændur af báðum kynjum buðu gestum að bragða á ljúffengum réttum öllum unnum úr skagfirsku hráefni og hefur þessi viðburður spurst svo vel út að gestir komu líka úr öðrum héruðum til að taka þátt í hátíðinni og byrgja sig upp fyrir jólin.    Loks eru Skagfirðingar farnir að sjá fyrir endann á endurgerð gamla Miðgarðs sem menningarhúss og hefur flestum þótt fulllengi beðið. Kunna íbúar gömlu hreppanna og eignaraðilar að félagsheimilinu sér vart læti af fögnuði vegna þeirrar fullvissu að þeir geti eftir langt hrakhólatímabil blótað þorra á eðli- legan hátt í sínu gamla húsi. SAUÐÁRKRÓKUR Björn Björnsson fréttaritari Morgunblaðið/Þorkell Nýtt líf Flokka hefur flutt út mikið magn af pappír og pappa. Hagyrðingakvöld verður haldið íAratungu í kvöld kl. 21. Þar koma fram Sigrún Haraldsdóttir húnvetningur og hestakona, Jón Ingvar Jónsson hugbúnaðarfræð- ingur hjá Hafró, Séra Hjálmar Jónsson, Jón Kristjánsson fv. ráð- herra og Sigurjón V. Jónsson frá Skollagróf. Stjórnandi verður Ólaf- ur G. Einarsson fv. ráðherra og for- seti Alþingis. Allur ágóði rennur til líknarmála. Sigrún Haraldsdóttir var á göngu í dásamlegri blíðu og orti fallega náttúrustemningu: Glettur hlýrrar golu þiggur, geisla sólar nýtur, á gangstéttinni gráu liggur gildur hundaskítur. Rúnar Kristjánsson á Skaga- strönd veltir fyrir sér örlögum Bjarna Harðarsonar: Valgerður situr á sínum stað og sveiflast þar enn í hringi. Böl þykir mörgum að búa við það, en Bjarni sé farinn af þingi! Umsjónarmanni var bent á þriðja vers úr sálmi eftir Matthías Joch- umsson: Krjúp lágt, þú litla þjóð, við lífsins náðarflóð. Eilífum Guði alda þú átt í dag að gjalda allt lánsfé lífs þíns stunda með leigum þúsund punda. Loks Sigurður Sigurðarson: Í sálarkima er býsna bjart, börnin lýsa húsið allt. Yndislegra ekkert skart er í þessum heimi falt. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Hagyrðingar hittast ÞÆR konur sem neyta fitandi fæðu á meðgöngu kunna að hafa varanleg áhrif á matarlyst barna sinna, segir breska dagblaðið Daily Telegraph. Kaloríurík fæða er að mati vísindamanna við Rockefeller University í New York líkleg til að hafa varanleg áhrif á heila fóstursins og valda því að barnið dregst að fituríku fæði seinna á lífsleiðinni. Þetta eykur síðan líkur á að barnið muni eiga við offituvandamál að stríða. Rannsókn sína gerðu vísindamennirnir á rottum og komu þar fram skýr tengsl milli fæðunnar sem rotturnar neyttu þegar þær voru ungafullar og matarvals rottuunganna síðar meir. „Þessi rann- sókn veitir fyrstu sannanirnar fyrir tengslum á miklu magni fitu í blóði móður á meðgöngu og ofáts og þyngdaraukningar barnsins eftir að það hefur verið vanið af brjósti,“ hefur Daily Telegraph eftir Sarah Leibowits, einum aðstandenda rannsókn- arinnar. „Við forritum börn okkar til að verða feit.“ Varanleg áhrif á matarlyst barnanna Reuters Matarlyst Fæðuval móður á meðgöngu hefur áhrif á mat- arval barna hennar seinna meir. Helgi Guðmundsson rithöfundur fléttar hér saman eigin reynslu við hreinan skáldskap. Hann fer í smávægilega aðgerð en eftir- köstin eru hörmuleg. Hann lýsir heiminum innan veggja sjúkra- hússins og hugurinn fer víða. Heillandi saga um mann sem horfðist í augu við dauðann en sneri Til BAKA. HORFST Í AUGU VIÐ DAUÐANN SPÆNSKI listamaðurinn Pablo Pi- casso naut töluverðrar kvenhylli á ævi sinni, en hefði þó líklega seint verið kallaður sykursætur. Hún er þó engu að síður vænt- anlega í sætari kantinum portrett- myndin sem ástralski listamað- urinn Sid Chidiac málar hér af Picasso. Myndagerðin var meðal viðburða á súkkulaðisýningunni Xocolating sem nýlega var haldin í Barcelona á Spáni. Reuters Algjört súkkulaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.