Morgunblaðið - 15.11.2008, Side 49

Morgunblaðið - 15.11.2008, Side 49
Minningar 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 ✝ RagnhildurGíslína Ársæls- dóttir fæddist í Reynishólum í Mýr- dal, V-Skaft., 5. jan- úar 1929 og lést 11. nóvember 2008 á Dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík. Hún var þriðja barn þeirra hjóna Ársæls Jónssonar, fæddur í Reyn- ishólum, f. 18.5. 1888, d. 24.7. 1950 og Guðrúnar Gunn- steinsdóttur, f. í Vestmann- eyjasókn 19.7. 1891, d. 8.6. 1975. Systkini: Gunnsteinn Jón, f. 1923, Einar, f. 1925, Sigríður, f. 1931, Sigríður Guðjónína, f. 1933. Þau eru öll látin. Ragna eins og hún var ávallt kölluð giftist árið 1960 Guðlaugi Guðjónssyni, f. 1928, frá Ytri- móðir hennar þar til hún lést. Ragna gekk hefðbundna skóla- göngu í æsku en sótti einnig sauma- og matreiðslunámskeið í Vík. Á yngri árum vann hún við heimilishjálp hjá sængurkonum í Vík og dvaldi í heimahúsum við sauma í lengri og skemmri tíma. Auk húsmóðurstarfa tók Ragna að sér í fjöldamörg ár að sauma fyrir fólk heima og var mikil sauma- kona. Þegar börnin urðu eldri vann hún á haustin í sláturhúsi Matkaups í Vík en fór síðar í fulla vinnu á Prjónastofunni Gæðum og síðar Víkurprjóni þar sem hún vann til 67 ára aldurs. Ragna sá um þrif á Reyniskirkju frá því hún var vígð 1946 þangað til hún flutti til Víkur árið 1991 þar sem þau Laugi keyptu sér hús að Sunnu- braut 1 og bjuggu þar alla tíð síð- an. Ragna söng í kirkjukór Reyn- iskirkju frá unga aldri til efri ára. Þá starfaði hún með félagi eldri- borgara, Samherja, í Vík. Útför Rögnu verður gerð frá Víkurkirkju í Vík í dag kl. 14. Jarðsett verður í Reyniskirkju- garði. Lyngum í Með- allandi. Börn þeirra eru: a) Ársæll, f. 1961, kvæntur Bryn- dísi Fanneyju Harð- ardóttur. Þau eiga tvö börn, Rögnu Björg og Þráin. b) Jó- hann, f. 1965. c) Dag- rún, f. 1970, gift Sig- urði Ó. Jónssyni. Dagrún á einn son, Fannar Þór, með fyrri sambýlismanni, Benedikt Ragn- arssyni, d. 2000. Ragna ólst upp í Reynishólum og bjó þar stærstan hluta lífs síns. Hún stundaði búskap með bræðr- um sínum eftir að faðir hennar lést þar til Einar bróðir hennar tók við búskapnum. Í Reynishólum bjuggu einnig systir Rögnu, Sig- ríður Guðjónína, til ársins 1971 er hún flutti á Kópavogshælið og Elsku mamma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) „Strákarnir mínir“ biðja að heilsa. Takk fyrir allt. Þín dóttir, Dagrún. Elsku amma. Það er mjög erfitt að kveðja þig þó svo að ég hafi vitað í hvað stefndi í einhvern tíma. Loksins þegar það kemur að því að kveðja þá er maður einhvern veginn ekki alveg tilbúinn. Þú varst svo yndisleg og á ég ótrú- lega margar minningar sem ég hef hugsað um síðustu daga þó svo að ég fari ekki að telja þær allar upp hér. Gulur grautur með berjasaft var eitthvað sem við systkinin fengum bara hjá þér og þegar við vorum að borða fýl hjá þér og afa var guli grauturinn í eftirmat alltaf hápunkt- urinn hjá okkur. Amma var rosalega barngóð og hafa börn og krakkar alltaf hænst að henni. Það eru margir krakkar í Vík sem eiga hlut í ömmu minni og sóttu í að vera heima hjá henni að leika sér. Ég skil það vel, við vorum þarna líka vinkonurnar þegar við vorum litlar. Oft komum við í heimsókn eftir skóla eða um helgar til þín og afa þar sem við fengum eitthvað að borða, horfa á sjónvarpið, spila og stundum fengum við að leika okkur með skartgripina þína sem okkur fannst vera svo flottir og skreyttum okkur síðan með þeim. Oftar en ekki kom- um við síðan heim til okkar eftir heimsóknina með lakkaðar neglur og uppsett hár, sáttar með daginn. Amma var svo rólynd. Ég man held ég bara einu sinni eftir að hún hafi orðið mér reið, en ég átti það örugglega alveg skilið þar sem ég og bróðir minn vorum lítil og vorum eitthvað að slást og ömmu leist ekki orðið á blikuna. Ég man ennþá hvað ég varð hrædd þegar amma varð svona reið. Við ræddum þetta atvik nokkrum sinnum þar sem ég mundi þetta svo vel. Amma hló bara og sagðist ekki muna þetta. Amma var örugglega sú sem var stoltust af mér þegar ég ákvað að læra hjúkrunarfræði og ég var svo stolt að eiga ömmu sem þótti svona vænt um að ég yrði hjúkrunarfræð- ingur í framtíðinni. Hún gaf mér allt- af smá pening til að kaupa skólabæk- ur á hverri önn og þegar ég kom með þær í Víkina til að sýna henni fletti hún þessum bókum og skoðaði og strauk yfir myndirnar og fannst ég þurfa að kunna öll ósköpin. Ég verð örugglega alltaf hjúkkan hennar ömmu á himnum og ég veit að hún á eftir að fylgjast með mér í starfi í framtíðinni eins og hún gerði þegar ég var að læra. Amma, ég lofa að standa mig vel. Ragna Björg. Ragnhildur Gíslína Ársælsdóttir ✝ Gunnar Ein-arsson fæddist á Bæ í Lóni 3. mars 1922. Hann lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Upp- sölum á Fáskrúðs- firði 5. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Einar Högnason, f. 26.12. 1872, d. 28.2. 1940, og Þuríður Sigurðardóttir, f. 30.9. 1882, d. 11.2. 1958. Gunnar ólst upp hjá foreldrum sínum til 9 ára aldurs, var þá sendur í fóstur að Karlsstöðum á Berufjarð- arströnd. Systkini Gunnars, 1) Sigríður, f. 14.10. 1901, d. 26.5. 1989, 2) Helgi, f. 23.8. 1903, d. 8.5. 1981, 3) Marta, f. 22.11. 1905, d. 12.5. 1953, 4) Högni Halldór, f. 14.2. 1908, d. 2.2. 1965, 5) Þor- grímur Sigmar, f. 5.5. 1909, d. 7.7. 1997, 6) Bergljót, f. 9.1. 1911, d. 11.8. 1995, 7) Ragna Signý, f. 15.10. 1912, d. 25.12. 1991, 8) Signý, f. 7.10. 1916, 9) Nanna Ingibjörg, f. 7.11. 1919, d. 5.10. 1999, og 10) Fanney, 15.7. 1923, d. 30.1. 1956. og 11) Guðni, 11.5. 1926. Gunnar kvæntist hinn 29. maí 1949 Svövu Júlíusdóttur frá Berunesi á Berufjarðarströnd, f. 26.11. 1930, d. 28.7. 2006. For- eldrar hennar voru Þóra Stef- ánsdóttir, f. 21.8. 1913, d. 12.7. 1990, og Júlíus Svavar Hann- esson, f. 25.7. 1911, d. 6.4. 1930. Gunnar og Svava hófu saman bú- skap á Núpi á Berufjarðarströnd. Börn þeirra eru: 1) Einar Jóhann, f. 24.10. 1949, maki Aðalheiður Jónsdóttir, f. 1955. Dætur þeirra: Bjarki, f. 1979, maki Hafrún Sig- urðardóttir, f. 1981. Sonur þeirra Baltasar Bói, f. 2008. Synir henn- ar Benedikt Bent, f. 2002 og Bjartmar Óli, f. 2007. 5) Ómar Valþór, f 27.5. 1961, maki Guðleif Sigurjóna Einarsdóttir, f. 1956. Sonur þeirra er Einar Ingi, f. 1984, maki Alda María Ingadótt- ir, f. 1987. 6) Þuríður Ósk, f. 4.7. 1962, maki Steinar Þór Ólafsson, f. 1960. Dætur Þuríðar: a) Anna Lára, f. 1985, maki Máni Ólafs- son, f. 1985. Sonur þeirra Reginn Freyr, f. 2006, b) Arna Bára, f. 1987, maki Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson, f. 1983. 7) Stefán Benedikt, f. 15.2. 1970, maki Hólmfríður Sólveig Pálsdóttir, f. 1971. Börn þeirra Rúnar Páll, f. 1993, og Berglind, f. 1998. 8) Björgvin Rúnar, f. 18. 11. 1971, maki Vilborg Friðriksdóttir, f. 1969. Börn þeirra Kolbrún Rós, f. 1993, Friðrik Júlíus, f. 1995, og Katrín Birta, f. 2001. Gunnar var bóndi af lífi og sál og unni sveitinni mikið og bar hag hennar ætíð fyrir brjósti. Gunnar og Svava bjuggu að Núpi á Berufjarðarströnd í hartnær 50 ár og ráku þar blandað bú. Þaðan fluttu þau að Hrauntúni 1, Breið- dalsvík. Gunnar var einn af stofn- félögum félags eldri borgara á Suðurfjörðum og formaður þess um langa hríð. Hann var virkur félagsmaður í Lions- hreyfing- unni Svani á Breiðdalsvík. Á efri árum nýtti hann frítímann í ýmis handverk, tálgaði hann þá að- allega út fugla og húsdýr ásamt smíðum á bátslíkönum. Gunnar fluttist á dvalar- og hjúkr- unarheimilið Uppsali á Fáskrúðs- firði í júní 2007 og var þar til dánardags. Útför Gunnars fer fram frá Heydalakirkju í Breiðdal í dag og hefst athöfnin klukkan 13. a) Hrafnhildur, f. 1974, maki Georg Valur Geirsson, f. 1974. Börn þeirra Árndís Birgitta, f. 2000 og Alex Logi, f. 2004. Sonur Hrafn- hildar er Einar Þór, f. 1993. b) Svava Þórey, f. 1975, maki Helgi Kristinsson, f. 1972. Börn þeirra Aðalheiður Sjöfn, f. 1999, Kristinn Vikt- or, f. 2002 og Árni Valtýr, f. 2007. 2) Hólmar Víðir, f. 31.5. 1951, maki Jarþrúður Baldursdóttir, f. 1952. Börn þeirra: a) Guðmundur, f. 1970. b) Svava Júlía, f. 1974. Dóttir hennar Júlía Sól, f. 2007. c) Sóley Hulda, f. 1975, maki Magnús Ninni Reykdalsson, f. 1970. Dóttir þeirra: Hólmfríður Erla, f. 1998. d) Gilbert Árni, f. 1980, maki Ingibjörg Steinunn Sæmundsdóttir, f. 1987. Sonur þeirra Sæmundur Hólm, f. 2008. Sonur Gilberts Árna er Andri Freyr, f. 2002. 3) Sigurður Borg- þór, f. 16.11. 1953, maki Hrafn- hildur Sveinveig Þórarinsdóttir, f. 1955. Börn þeirra a) Þórunn Bylgja, f. 1980, maki Guðjón Hilmarsson, f. 1979. b) Gunnar Rafn, f. 1981, maki Sigrún Ýr Magnúsdóttir, f. 1983. Dóttir þeirra Embla Dís, f. 2005. c) Þór- arinn Máni, f. 1985. d) Unnur Arna, f. 1991. 4) Svavar Júlíus, f. 8.4. 1959, maki Sigríður Helga Georgsdóttir, f. 1959. Börn þeirra: a) Ágústa Randrup, f. 1979, d. 20.5. 1984, b) Hrefna Sif, f. 1982, c) Róbert, f. 1987, maki Fanney Haraldsdóttir, f. 1989, og d) Júlía 1992. Sonur Svavars er Elsku Gunnar afi er látinn 86 ára að aldri. Hann var farinn að þrá að kveðja þennan heim, lungun hans voru búin og það var ekki það sem hann vildi að liggja eins og aumingi eins og hann sagði. Afi var bóndi að líf og sál. Síðustu ár smíðaði afi mikið af dýrum og bátum, og er þetta listasmíði hjá honum, afrakst- urinn má til dæmis sjá á Safnasafn- inu á Svalbarðseyri. Margar minningar leita á huga minn nú að leiðarlokum. Margar voru stundirnar í sveitinni heima á Núpi sem barn og unglingur, alltaf jafn gaman að koma til ömmu og afa í sveitina. Svo eftir að amma og afi hættu búskap og bjuggu um hríð á Fáskrúðsfirði, eftir að þau keyptu sér hús á Breiðdalsvík og ekki voru fáar ferðirnar sem við fórum saman og keyrðum um allar sveitir á Hér- aði. Og ekki síst allar þær nætur sem þau gistu hjá okkur Helga. Þessar minningar eru mér mikils virði. Afi varð aldrei samur eftir að amma dó fyrir rétt rúmum tveimur árum. Síðasta eina og hálfa árinu eyddi hann á dvalarheimilinu Upp- sölum á Fáskrúðsfirði og þar leið honum vel. Þar gerði starfsfólkið allt sem það gat til að honum liði sem best og það ber að þakka. Elsku afi minn, bestu þakkir fyrir allt og við sjáumst síðar, því að ég veit að þegar minn tími kemur mun- uð þið amma taka á móti mér. Blessuð sé minning þín. Þín afastelpa, Svava Þórey. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra máli ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.) Hvíldu í friði, elsku afi. Takk fyrir allt. Þín barnabörn, Bylgja, Gunnar, Þór- arinn og Unnur. Ég var í útlöndum þegar þú kvaddir. Ég var sá eini í fjölskyld- unni sem vissi ekki að þú værir far- inn. Ég hafði verið að tala svo mikið um þig, ég sagði sögu af þér og ömmu og sagðist halda að þig lang- aði til þess að fara að komast til hennar. Í hádeginu næsta dag var hringt í mig frá Íslandi. Afi minn var dáinn. Ég á alltaf eftir að geyma mynd- ina sem ég hef í huganum af þér, afi minn. Myndin sú lýsir þér svo vel, lýsir þér með mínu hjarta. Svo góð- um, rólegum manni. Þú vildir hafa alla ánægða, gerðir ekki upp á milli manna og elskaðir alla þína. Ef ég hefði vitað að þetta yrði síðasta skiptið sem ég sæi þig þá hefði ég horft aðeins lengur á þig, faðmað þig aðeins fastar og kvatt þig aftur áður en ég fór. Það var erfiður dagur fyrir þig þegar amma var lögð til hinstu hvílu. En þú tókst á móti mér eins og alltaf þegar við hittum hvor ann- an, frá því að ég kom fyrst í sveitina og fram á þennan dag. „Sæll nafni minn,“ sagðir þú, kysstir mig á kinnina og faðmaðir mig þétt að þér. Þú faðmaðir alltaf svo fast og þétt. Þennan dag varst þú að kveðja ástina í lífi þínu. Það er myndin sem ég gleymi aldrei og hef hugsað um reglulega síðan. Þú stóðst yfir kist- unni, svo innilegur, ástfanginn, sorgmæddur. Þú varst svo góður maður, afi minn. Ég mun ávallt minnast þess og mun alltaf muna þig. Núna ertu kominn aftur til ást- arinnar þinnar, afi minn. Sameinuð á ný og nú til eilífðar. Fyrir hönd systkina minna kveð ég þig, afi okkar, nafni minn. Gunnar Rafn Borgþórsson. Elsku afi. Nú ert þú búinn að kveðja þenn- an heim og vona ég að þú sért búinn að hitta hana ömmu. Þegar ég sit hér við tölvuna til að koma ein- hverju niður á blað þá er mér efst í huga þegar við systur vorum börn og unglingar. Þær voru ófáar ferð- irnar sem við fórum með pabba og mömmu í sveitina til ykkar ömmu. Það var alltaf nóg að gera, sama á hvaða árstíma það var, alltaf var margt fólk hjá ykkur og mikill gestagangur. Þú sagðir oft við mig að ég yrði bóndakona, ég held að það hafi verið af því ég vildi alltaf vera úti að brasa með ykkur í stað þess að vera inni, mér þótti alltaf vænt um að heyra þig segja þetta. Langt fram eftir aldri fannst mér engin jól nema ég kæmist í sveitina, þá var oft mikið spilað, hlegið og gert grín. Í heyskapnum man ég eftir þér með hrífu að raka dreif og við krakkarnir hjálpuðum þér. Þegar þið svo fluttuð úr sveitinni og bjugguð um tíma á Fáskrúðsfirði þá vorum við Georg Valur nýbyrjuð að búa og þá komum við mikið til þín og ömmu og við spiluðum kana og það var ansi mikið búið að hlæja og hafa gaman, ykkur þótti svo gaman að spila. Mér er einnig mjög minnisstætt þegar ég og mín fjölskylda, pabbi, mamma, Svava og hennar fjölskylda fórum með ykkur ömmu í bústað í Lónið. Við fórum niður að Bæ í Lóni þaðan sem þú varst ættaður. Þú sagðir okkur frá húsinu sem stóð þarna, að foreldrar þínir hefðu byggt þetta hús en þú hélst að þau hefðu aldrei flutt inn í það. Við rúntuðum um sveitina og fórum á Höfn, við fengum alveg rosalega gott veður og þú varst svo glaður með þetta allt saman. Það er okkur mikil ánægja að þú skulir hafa komist í brúðkaupið okkar í sumar þó þú hafir verið orð- inn þó nokkuð slappur þá en þú barst þig vel eins og alltaf. Svo var það um verslunarmannahelgina sem við fórum með þig í sveitina. Það var þitt líf og yndi að komast þang- að. Daginn sem þú yfirgafst þennan heim kom Alex Logi heim með krukku sem hann málaði á í leik- skólanum, hann sagði að langafi ætti að fá krukkuna en við ætlum að hafa hana hjá okkur og setja kerti í hana þegar við viljum minnast þín. Elsku afi, hvíl í friði. Þín afastelpa, Hrafnhildur og fjölskylda. Gunnar Einarsson Elsku afi ég sakna þín. Þín langafastelpa, Aðalheiður Sjöfn. Takk fyrir allt elsku afi. Þinn langafastrákur, Kristinn Viktor. Moldin er þín. Moldin er trygg við börnin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móðurbarm. Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð á leiðinu þínu. Moldin er hljóð og hvíldin góð … (Davíð Stefánsson) Samúðarkveðjur Stefán, Bára Björk, Guð- rún og börn. Elsku langafi ég sakna þín svo mikið. Þín langafastelpa, Árndís Birgitta. Elsku langafi hvíl í friði þín er sárt saknað. Þínir langafastrákar, Einar Þór og Alex Logi. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.