Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 8
8 30. apríl 2009 FIMMTUDAGUR STJÓRNMÁL Tveir þingmenn Sjálf- stæðisflokks féllu niður um sæti vegna útstrikana í alþingiskosn- ingum laugardags. Guðlaugur Þór Þórðarson, efsti frambjóðandi í Reykjavíkurkjör- dæmi suður, fellur niður í annað sætið. Árni Johnsen í Suðurkjör- dæmi fellur úr öðru sæti í það þriðja. Þeir komast þó báðir á þing. Aðrar útstrikanir höfðu ekki áhrif á stöðu þingmanna. Mikið hafði verið rætt um stöðu Steinunnar Valdísar Óskarsdótt- ur, frambjóðanda Samfylkingar, en hún féll ekki niður um sæti, þrátt fyrir margar útstrikanir. „Fréttirnar af þessum útstrik- unum hjá mér voru kannski dramatískari en raunveruleikinn,“ segir hún. „Ég held að kjósendur hafi uppgötvað þessa leið og beitt henni og það er hið besta mál. Ég fæ þessar útstrikanir líklega út af styrkjaumræðunni, hvort sem það er að ósekju eða ekki. Ég læt aðra um að dæma það, en ég held að ekki hafi öll kurl komið til graf- ar í því máli,“ segir Steinunn. Enn sé óupplýst um styrki til annarra frambjóðenda í öllum flokkum, frá öðrum fyrirtækjum en FL Group og Baugi. Hún telur útstrikanirnar ekki veikja stöðu sína innan flokksins, enda hafi fleiri fengið að kenna á þeim en hún. „En ég tók á mig ákveðinn skell fyrir flokkinn. Það var flokksleg ákvörðun að halda prófkjör og þau kosta háar upp- hæðir.“ Steinunn vill nú byggja upp traust kjósenda að nýju. Árni Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, telur að þröskuldur útstrikana sé of lágur, auðvelt sé fyrir litla hópa að breyta röð á lista. „Mér þykja þessar útstrikan- ir svolítið langsóttar aðferðir eftir velheppnuð prófkjör. Það geta alltaf verið ástæður fyrir útstrikunum, og við því er ekk- ert að segja, en mér finnst ekki mikið lýðræði í því að fimmtán prósent kjósenda geti ráðið meiru en hin 85 prósentin,“ segir Árni. Hann vill ekki tjá sig um hvort aðrir frambjóðendur Sjálfstæðis- flokks hafi unnið gegn honum í kjördæminu. Kolbrún Halldórsdóttir segist hafa spurt sig strax í prófkjörinu hvort grænar áherslur væru á undanhaldi í flokknum, þegar hún lenti þar í þriðja sæti. Hún segist enn vilja gegna starfi umhverfis- ráðherra, en missi ekki svefn yfir því. „Ég hef alltaf verið umdeild innan flokks og utan, og hef allt- af getað lifað með því. Það er líf eftir pólitík.“ Ekki náðist í Guðlaug Þór Þórð- arson, en hann var gagnrýnd- ur í kosningabaráttunni fyrir að þiggja háa styrki frá FL Group og Baugi og fyrir að hafa haft milli- göngu um styrki til Sjálfstæðis- flokksins. klemens@frettabladid.is 1. Hvað heita Bakkavarar- bræður? 2. Hvað heitir fráfarandi sendi- herra Bandaríkjanna á Íslandi? 3. Hvað eru margir alþingis- menn sköllóttir? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 SLYS Fúi í burðarvirki er talinn orsök þess að svalir Ölvers, sumarbúða KFUM og K, sem á stóðu tuttugu börn úr Grundar- skóla á Akranesi, gáfu sig í fyrra- kvöld. Sú er bráðabirgðaniður- staða eftir úttekt lögreglunnar í Borgarnesi, Vinnueftirlitsins og byggingarfulltrúa. Aðkomu lögreglunnar að mál- inu er lokið í bili en rannsókn hinna aðilanna heldur áfram. Börnum og foreldrum, sem voru í skólaferðalagi í húsi sumarbúð- anna, var veitt áfallahjálp eftir slysið. „Við hörmum þetta mjög og erum afar þakklát fyrir að eng- inn slasaðist alvarlega,“ segir Guðni Már Harðarson, gjaldkeri stjórnar Ölvers. - kg Börnin fengu áfallahjálp: Fúi í burðar- virki var orsök svalahruns www.urvalutsyn.is Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Úrval-Útsýn – Lágmúla 4 – Reykjavík – Sími 585 4000 Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. F ít o n /S ÍA Það er afskaplega auðvelt að komast í gott frí á sólarströnd með fjölskylduna með því að skipta kostnaðinum í fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur á greiðslukort. Áratuga reynsla Úrvals-Útsýnar og þaulreyndir fararstjórar tryggja farþegum okkar ljúft og þægilegt frí á frábærum kjörum. Marmaris í Tyrklandi og Albufeira í Portúgal hafa laðað Íslendinga til sín sumar eftir sumar. „...og nú allir af stað með Úrval-Útsýn“. F ít o n /S ÍA Skiptu kostnaðinum í fjórar vaxtalausar og jafnar greiðslur á www.urvalutsyn.is. Miðað við að greitt sé með greiðslukorti eða bókað á netinu. Færslugjald leggst ofan á uppgefið verð, frá 2%. Fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur Við greiðum þér leið í sólina MARMARIS MARMARIS Grand Cettia Brottför 3. júlí Fallegt fjölskylduhótel með bæði herbergi og íbúðir. Allt innifalið til kl. 23 á kvöldin; máltíðir, innlendir drykkir með mat, drykkir að degi eða kvöldi og skemmtidagskrá. VERÐDÆMI 104.280 kr. á mann miðað við 2 með 2 börn í viku með öllu inniföldu. 2 fullorðnir í viku, allt innifalið, verð 122.440 Allt innifalið! Tyrkland Guðlaugur og Árni falla niður um sæti á framboðslistum Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks féllu um sæti vegna útstrikana í kosningunum. Steinunn Valdís segir að ekki hafi öll kurl komið til grafar um styrki. Árni Johnsen telur of auðvelt að fella þingmenn um sæti. SUÐVESTURHORNIÐ Suðvesturkjördæmi: 1. Þórunn Sveinbjarnardóttir S: 1.168 2. Þorgerður K. Gunnarsdóttir D: 909 3. Siv Friðleifsdóttir B: 359 Reykjavíkurkjördæmi suður: 1. Kolbrún Halldórsdóttir V: 1.990* 2. Guðlaugur Þór Þórðarson D: 1.933** 3. Össur Skarphéðinsson S: 1.284 Reykjavíkurkjördæmi norður: 1. Steinunn V. Óskarsdóttir S: 1.443 2. Helgi Hjörvar S: 657 3. Mörður Árnason S: 656 * Útstrikun Kolbrúnar hefur ekki áhrif á þingflokk VG, því hún náði hvort eð er ekki kjöri. ** Fellur niður um sæti. LANDSBYGGÐIN Norðvesturkjördæmi: 1. Einar Kristinn Guðfinnsson D: 248 2. Ásmundur Einar Daðason V: 160 3. Lilja Rafney Magnúsdóttir V: 159 Norðausturkjördæmi:* 1. Kristján Þór Júlíusson D: Á þriðja hundrað 2. Birkir J. Jónsson B: Á þriðja hundrað 3. Kristján L. Möller S: Á annað hundrað Suðurkjördæmi: 1. Árni Johnsen D: 1.355** 2. Björgvin Guðni Sigurðsson S: 600 3. Ragnheiður Elín Árnadóttir D: 149 * Tölvuforrit brást í Norðausturkjördæmi og nákvæmari tölur eru ekki komnar. ** Fellur niður um sæti MESTAR ÚTSTRIKANIR EFTIR KJÖRDÆMUM: GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON ÁRNI JOHNSEN STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR ...ég tók á mig ákveðinn skell fyrir flokkinn. Það var flokksleg ákvörðun að halda prófkjör og þau kosta háar upp- hæðir STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.