Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 22
22 30. apríl 2009 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is Verðbólga mælist nú 11,9 prósent og hefur hún ekki verið minni síðan í apríl í fyrra. Verðbólgan gæti náð verðbólgumarkmiðum Seðlabankans um áramót, að mati sérfræðings IFS Greiningar. „Þetta er lítillega yfir vænting- um,“ segir Snorri Jakobsson, sér- fræðingur hjá IFS Greiningu, um verðbólguna í þessum mánuði. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða í apríl og fór verðbólgan við það úr 15,2 prósentum í 11,9 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstof- unnar. Spá IFS Greiningar gerði ráð fyrir hækkun upp á 0,1 pró- sent og 11,5 prósenta verðbólgu. Snorri segir að frávikið frá spá IFS skýrist af meiri hækkun fasteignaverðs. Hann segir í raun tvenns konar fasteigna- verð í gangi; eitt sem Fast- eignaskrá ríkis- ins taki saman og annað hjá Hagstofunni, sem leiðrétti vegna makaskiptasamn- inga. Snorri bendir á að íbúðaverð í makaskiptasamningum sé oftast töluvert hærra en raunverulegt fasteignaverð, þar sem það borgi sig fyrir báða aðila að verðið sé sem hæst. Það geti skekkt verð- bólgutölurnar og dregið úr hjöðn- un verðbólgu ef ekki sé leiðrétt fyrir makaskiptum. Snorri bendir á að krónan vegi þó þyngra. „Ef hún verður til friðs og helst stöðug fellur verðbólgan hratt,“ segir hann. Spá IFS Greiningar gerir ráð fyrir að mjög hratt dragi úr verð- bólgu allt fram til loka næsta árs eftir snarpt verðbólguskot í árs- byrjun. Gangi spáin eftir verður verðbólga komin niður að 2,5 pró- senta verðbólgumarkmiði Seðla- bankans, en verðbólga hefur ekki verið minni en það síðan í mars 2004. jonab@markadurinn.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: xxx Velta: x.xxx milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 220 +0,84% 664 +1,37% MESTA HÆKKUN MAREL FOOD S. +5,12% ÖSSUR +4,11% CENTURY AL. +1,07% MESTA LÆKKUN FØROYA BANKI -1,67% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic Airways 173,50 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ... Bakkavör 1,15 +0,00% ... Eik Banki 90,00 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 118,00 -1,67% ... Icelandair Group 5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 47,25 +5,12% ... Össur 93,80 +4,11% Íbúar aðildarríkja Evrópusam- bandsins hafa ekki verið bjart- sýnni um horfur í efnahags- lífinu í tæp tvö ár, samkvæmt niðurstöðum könnunar á vegum framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins (ESB) sem birtar voru í gær. Væntingavísitala íbúa ESB- landanna fór úr 60,4 stigum í 63,9 stig, sem jafngildir 5,8 prósenta hækkun. Í evrulöndunum jukust væntingar um tæp 3,9 prósent. Væntingavísitalan hefur ekki hækkað síðan í maí í hittiðfyrra. Niðurstaðan er talsvert betri en hagfræðingar gerðu ráð fyrir og þykir bera þess merki að neyt- endur telji vera að draga úr nið- ursveiflu efnahagslífsins. Howard Archer, hagfræðing- ur hjá IHS Global Insight, segir í samtali við AFP-fréttastofuna niðurstöðuna vísa á gott „Þetta eru vísbendingar um að neyt- endur telja efnahagshvata og björgunaraðgerðir geta snúið þróuninni við,“ segir hann og bætir við að hjöðnun verðbólgu innan Efnahagsbandalagsins eigi hlut að máli. Á móti dragi mikið atvinnuleysi innan ESB úr þeim, að hans mati. - jab Bjartsýni innan ESB FÁNI ESB VIÐ HÖFUÐSTÖÐVARNAR Fólk í aðildarríkjum ESB-ríkjanna hefur ekki verið jafn bjartsýnt á efnahags- horfur síðan í maí í hittiðfyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Daniel Bouton, fyrrverandi for- stjóri og núverandi stjórnarfor- maður franska risabankans Soci- ete Generale, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næsta mán- uði. Ástæðurnar segir hann vægðar- lausa gagnrýni á störf sín. Bouton sat í bankastjórastóln- um þegar mál verðbréfamiðlar- ans Jerome Kerviels komst upp en það er það bíræfnasta í sögu verðbréfabrota innan bankageir- ans ef frá er talin svikamylla Bernie Madoffs. Verðbréfavið- skipti Kerviels voru langt út yfir heimildir. Grunur hefur leikið á að stjórn bankans hafi verið kunnugt um brotin en lokað augunum fyrir þeim þegar bankinn hagnaðist á þeim. Á endanum tapaði bankinn 4,9 milljörðum evra vegna þessa, tæpum 500 milljörðum íslenskra króna á þeim tíma þegar málið komst upp í janúar í fyrra. Bankinn hefur síðan þá glímt við verulega fjárhagserfiðleika og varð að leita til franskra stjórn- valda eftir 1,7 milljarða evra láni. Bouton stóð upp úr forstjóra- stólnum vegna málsins fyrir ári og tók við stjórnarformennsku. Hann fær engar starfslokagreiðsl- ur, að sögn breska ríkisútvarps- ins. Kerviel sat í fangelsi í tæpa tvo mánuði í fyrravor. Hann gengur nú laus því enn er verið að rann- saka mál hans. - jab Bouton kveður risabankann Afskráning hlutabréfa DeCode, móðurfélags Íslenskrar erfða- greiningar, af bandaríska Nas- daq-verðbréfamarkaðnum frest- ast á meðan endurskipulagning fyrirtækisins stendur. Þetta kom fram í bréfi frá endurskoðunarnefnd Nasdaq- markaðarins til stjórnar De- Code í fyrrakvöld. Hlutabréfin voru færð af aðal- lista Nasdaq í byrjun febrúar þar sem þau stóðust ekki skil- yrði um skráningu þar og hafa síðan þá verið skráð á Nasdaq Capital Market-listanum. Til stóð að félagið yrði tekið úr við- skiptum í dag. - jab Afskráningu DeCode frestað Verðbólga ekki minni í ár SNORRI JAKOBSSON 20 15 10 5 0 2008 2009 2010 Verðbólguspá Heimild: IFS Greining Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að ósk skilanefndar gamla Landsbankans skipað slitastjórn yfir hana í samræmi við breyt- ingar á lögum um slitameðferð fjármálafyr- irtækja, sem samþykkt voru á Alþingi á síð- ustu dögum þingsins fyrir hálfum mánuði. Skilanefnd Landsbankans mun ekki taka breytingum en sólarlagsákvæðið svokallaða, sem kvað á um að nefndirnar hættu störfum hálfu ári eftir að slitastjórnir væru settar yfir þær, var fellt úr frumvarpinu áður en það varð að lögum. Með skipan slitastjórnar geta kröfuhafar lýst kröfum í bú gamla bankans innan þess kröfulýsingarfrests sem slitastjórn ákveður. Hún mun taka afstöðu til krafna, gera skrá um þær og halda kröfuhafafund. Slitastjórn hefur einnig það hlutverk að beina ágrein- ingi sem kann að rísa um lýstar kröfur til úrlausnar dómstóla. Lárus Finnbogason, formaður skilanefnd- ar gamla Landsbankans, segir í tilkynningu skipunina jákvætt skref. Skilanefnd gamla Kaupþings hefur ekki óskað eftir því að slitastjórn verði sett yfir hana. Ekki náðist í fulltrúa skilanefndar Glitnis vegna málsins. - jab Slitastjórn komin yfir gamla LÍ LANDSBANKINN Gengi krónunnar styrktist um 1,33 prósent í gær og endaði gengisvísitalan í 222 stigum. Krónan hefur ekki verið sterk- ari í rúma viku. Ekki eru mikil viðskipti á bak við styrkinguna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyris- borði Íslandsbanka. Nokkuð hefur dregið saman á milli gengisvísitölu krónunnar hér og á erlendum mörkuðum en þar hefur krónan styrkst. Hér kostaði ein evra tæpar 169,4 krónur í gær en 210 á erlendum mörkuðum. Fátt ligg- ur fyrir um ástæðu styrkingar- innar en Greining Íslandsbanka telur líkur á að ummæli Sveins Haralds Öygard seðlabanka- stjóra frá síðustu helgi um hugsanlegt afnám gjaldeyris- hafta um mitt ár kunni að hafa haft áhrif. - jab Krónan styrkist um 1,33 prósent
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.