Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 30.04.2009, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2009 5heilsa og útivist ● fréttablaðið ● Sumum reynist erfitt að losna við aukakílóin. Þá gæti verið sniðugt að fara á námskeið í Manni lifandi og læra réttu tæknina. MYND/GETTYIMAGES Hvað er málið með aukakílóin? Þeirri spurningu veitir heilsu- fræðingurinn Matti Ósvald svar við í Manni lifandi á fimmtudag- inn kemur. Margir þekkja það vandamál að langa til að grennast en vita ekki almennilega hvernig best sé að snúa sér í þeim efnum. „Hvað er málið með aukakílóin?“ spyr Matti Ósvald heilsufræðingur og veitir svar við því líka í fyrirlestri sínum í Manni lifandi í Borgar- túni 24 á fimmtudaginn kemur. Námskeiðið stendur frá 17.30 til 19.30 og er sérstaklega ætlað þeim sem eru ósáttir við óþarfa kíló. Tekin verða saman nokkur einföld og hagnýt ráð. Fundar- gestir munu meðal annars heyra um „gildruna“ sem flestir sem glíma við aukakíló lenda í. Veitt verða svör við því hvaða fæðutegund er mikilvægust til að komast í kjörþyngd og halda henni. Af hverju líkaminn ríghaldi í fituna og hvernig megi fá hann til að sleppa henni. Og síðast en ekki síst hvernig megi kenna lík- amanum að bræða af sér óþarfa fitu á meðan maður hvílist. - hhs Veitir ráð við aukakílóum Útilegukortið hentar þeim sem vilja ferðast um landið á hagkvæman máta. MYND/ÚR EINKASAFNI Útilegukortið er kort sem veitir eiganda þess auk maka og allt að fjórum börnum nær ótakmarkað- an aðgang að 31 tjaldsvæði víðs- vegar um landið. Útilegukortið kom fyrst út árið 2007 en markmið með stofn- un þess var að gefa íslenskum og erlendum ferðamönnum kost á því að ferðast um Ísland á ódýr- an og hagkvæman hátt með gist- ingu á sérvöldum tjaldsvæðum. Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Kortið gildir fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og hefðbundin tjöld. Á vefsíðunni www.utilegukort. is má einnig nálgast víðfeðmar upplýsingar um hin ýmsu tjald- svæði um allt land. Sölustaðir Útilegukortsins eru hjá N1, Vík- urverki, Seglagerðinni Ægi eða í gegnum vefinn. - sg Ferðast ódýrt Lýðheilsustöð heldur úti heimasíð- unni www.lydheilsustod.is þar sem finna má ýmsar gagnlegar upplýs- ingar sem tengjast lífsstíl og heilsu með einum eða öðrum hætti. Meðal þeirra þátta sem þar er fjallað um má nefna tannvernd, geðrækt, áfengis- og vímuvarn- ir, hreyfingu, næringu og holda- far, slysavarnir, tóbaksvarnir og skólafræðslu. Undir þessum liðum er síðan að finna alls kyns fróð- leik, fréttir, hollráð, rannsóknir og greinar, sem er reglulega upp- fært á síðunni. Síðan er hluti af starfi og yfir- lýstu markmiði Lýðheilsustöðvar um að samræma lýðheilsustarf í landinu, efla kennslu og rannsókn- ir á sviði lýðheilsu og vinna að lýð- heilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra sem og að byggja upp þekkingarsetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á þessu sviði. Þá er Lýðheilsustöð stjórnvöld- um til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu, tekur þátt í alþjóð- legu samstarfi og er í tengslum við aðra sem starfa á sviði lýðheilsu. Gagnlegar upplýsingar um lífsstíl og heilsu Hreyfing er á meðal þess sem fjallað er um á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.