Fréttablaðið - 09.05.2009, Síða 40
● Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók mynd í versl-
uninni Epal Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson
roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@
frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s.
512 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009
GAMALT
ÖÐLAST
ANNAÐ LÍF
Deild með notuð húsgögn
og nytjahluti eftir þekkta
hönnuði hefur verið opnuð
í versluninni Epal.
BLS. 2
VEKJA
ATHYGLI
Þrjú íslensk
ungmenni eiga verk
í nýrri alþjóðlegri
ljósmyndabók sem
ber heitið Click. BLS. 2
ÓVENJULEGT Vöru-
hönnuðurinn Viggó
Jóhannsson fer ótroðnar
slóðir í hönnun sinni eins
og dyrabjallan eluxonia
blonde ber skýr merki um.
BLS. 3
● heimili&hönnun
A prílgabb varð kveikjan að þeirri hugmynd að byrja að kaupa og selja vel með farnar hönnunarvörur í Epal. „Við vorum búin
að velta þessu lengi fyrir okkur. Svo datt Mogganum í
hug að birta aprílgabb um að hér fengjust notaðir hlutir.
Við vildum gjarnan vera með í gabbinu og hér varð rosa-
leg ös. Það var hringt frá Þýskalandi og Færeyjum og við
fengum póst víða að. Þá sáum við hvað áhuginn var mikill
og nú erum við að koma þessu á koppinn.“ Þannig lýsir Eyjólf-
ur Pálsson tildrögum þess að Epal er að koma upp deild með
notuðum húsgögnum, ljósum og öðrum
nytjahlutum eftir þekkta hönnuði.
Það er Kjartan Páll, sonur Eyjólfs, sem
hefur umsjón með nýju deildinni. Hún
hefur fengið yfirskriftina Gamalt verður
nýtt aftur og þar hefur orðið nýtt tvö-
falda merkingu. „Viðtökurnar fyrstu dag-
ana hafa verið mjög góðar bæði hjá
þeim sem vilja selja og kaupa,“ segir hann
og tekur fram að munirnir séu teknir í um-
boðssölu hvort sem þeir séu upphaflega keyptir í
Epal eða ekki. Tryggt sé að starfsfólk Epals þekki ekta
hluti frá kópíum sem séu á markaðinum. - gun
Nýtt í tvöfaldri merkingu
Kjartan Páll í nýja nytjahorninu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þrjú íslensk ungmenni eiga myndir í nýrri ljós-
myndabók sem kom út nýverið í Bandaríkjunum. Í
bókinni, sem heitir Click – Ultimate Photography
Guide for Generation Now, er Júlía Runólfsdóttir,
fimmtán ára, með fjórar myndir, og þeir Anton
Eðvarð Kristensen, sautján ára, og Birkir Örn
Björnsson, fjórtán ára, með sína hvora.
Allar myndirnar í bókinni eru eftir unga ljós-
myndara, alls staðar að úr heiminum. Hún er
skrifuð af ungum Breta, Charlie Styr, og er ætluð
ungu fólki sem er að koma sér af stað í ljósmynd-
un. „Ég fékk bókina senda í síðustu viku og ég er
mjög ánægð með útkomuna,“ segir Júlía.
Hún hefur ekki haft ljósmyndun að áhugamáli
lengi, eða um tvö ár. Hún gæti sannfært hvern
sem er um hið gagnstæða og það er greinilegt að
hún hefur næmt auga fyrir fegurðinni. Þessu hafa
margir tekið eftir og er flickr-síða hennar vel sótt.
Þangað rataði einmitt höfundurinn Charlie Styr og
bauð Júlíu að vera með.
Útgáfa bókarinnar var mikil reynsla fyrir Júlíu,
sem var meðal annars í daglegum samskiptum
við útgáfufélagið Random House meðan á undir-
búningi hennar stóð. Nú er hún hins vegar á kafi í
prófum í Réttarholtsskóla, þar sem hún er á loka-
ári. Hún stefnir á að fara í Menntaskólann við
Hamrahlíð í haust og að halda áfram að mynda.
„Það er algjörlega draumurinn að halda áfram
að læra að mynda og fara út í það í framtíðinni,“
segir hún. - hhs
Íslensk ungmenni með verk
í alþjóðlegri ljósmyndabók
● Þrjú íslensk ungmenni eiga myndir í bókinni Click, sjálfshjálparbók fyrir unga ljósmyndara.
Sjálfsmynd af Júlíu Runólfsdóttur. Litli bróðir Júlíu speglast í glugga flugvallarins í Boston.
Júlía á fjórar myndir í bókinni Click. Við Meðalfellsvatn veturinn 2007.
Hið þekkta
egg eftir Arne
Jakobsson.
U ndanfarinn áratug hefur Vatnajökull, sem er stærsti jökull Evrópu og þekur um átta prósent af Íslandi, rýrnað að meðaltali um einn metra
á ári. Vegna hlýnunar jarðar verður rýrnunin eftir fimmtíu ár væntanlega
orðin um fimm metrar á ári. Þá er talið að mikill hluti
jökla utan heimskautasvæðisins hverfi að mestu á
150 til 200 árum.
Þessar dapurlegu framtíðarspár eru vöru-
hönnuðinum Árna Grétarssyni hugleiknar og
á hann heiðurinn að táknrænu kerti sem ber
nafnið In Memoriam Vatnajökull.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég og kötturinn
minn Bylur töluðum um ástand heimsins yfir frétt-
um. Hann sagði mér að hann hefði áhyggjur af því
að í kjölfar efnahagskreppunnar myndi umhverfis-
vernd gleymast. Þar sem alþjóðleg fyrirtæki eru að
nýta sér vatnsfall jökulsins fannst mér kertið gefa
tilvalin skilaboð,“ segir Árni. „Með kertastjakanum
fylgir aðeins eitt jöklakerti og þegar það er brunnið
er minningin ein eftir. Eldspýtustokkurinn sem fylg-
ir er táknrænn fyrir verksmiðjur sem ásamt öðru hafa áhrif á bráðnunina.“
Sem stendur fást kertin á www.arnigretars.com en hann vonast til að
geta komið þeim í verslanir í sumar. „Þar sem Vatnajökull er stærsti jökull
Evrópu snertir kertið ekki bara okkur heldur alla Evrópubúa. Ég bind því
vonir við að hægt verði að koma því út fyrir landstein-
ana líka.“
- ve
Minningin ein eftir
Kveikt er á kertinu með eldspýtum úr
eldspýtustokki sem er táknrænn fyrir
verksmiðjur sem ásamt öðru hafa
áhrif á bráðnunina. MYND/ÚR EINKASAFNI
Undanfarinn áratug
hefur Vatnajökull
rýrnað að meðaltali
um einn metra á ári
og eftir fimmtíu ár er
talið að hann muni
rýrna um fimm metra
á ári.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
viðarparket
9. MAÍ 2009 LAUGARDAGUR2