Fréttablaðið - 09.05.2009, Qupperneq 57
heimili&hönnun ●
V iggó K. Jóhannsson vöruhönn-uður hefur búið til nýstárlega
dyrabjöllu. Hægt er að breyta ljós- og
hljóðmagni bjöllunnar eftir þörf-
um. Rafhlöðurnar sem eru tengdar
hátalaranum eru án hljóðgjafa, en
Viggó segir að hljóðið frá bjöllunni sé
einungis fimmtíu riða rafmagnsstuð.
Með verkinu er Viggó að skoða
hvernig fólk hefur samskipti sín á
milli. „Ég vil gjarnan greina viðfangs-
efni mín niður í marga hluta,“ segir
hann. „Allt snýst þetta um ákveð-
ið gegnsæi sem gengur út á að
sýna veruleikann eins og hann
kemur fyrir,“ segir Viggó
og bendir á hvernig raf-
magnsvírarnir í verkinu
eru notaðir í útsaum.
„Rafmagnið er það
grunnafl sem gerir
allar okkar hugsanir
og hreyfingar mögu-
legar. Aflið sem við
höfum beislað til þess
að knýja sköpunarverk
okkar áfram.“
Viggó er upptek-
inn af áþreifanlega og
óáþreifanlega heimin-
um. „Ég vil helst þurfa
að taka á hlutnum með
báðum höndum,“ útskýr-
ir hann og segir: „Það ætti að
vera upplifun í sjálfu sér að
nota hluti.“
Að sögn Viggós hefur
áhugi hans á náttúruvísind-
um töluverð áhrif á hönn-
un hans og hugsun. Og talið
berst að áhuga hans á raf-
magni, ljósi og hljóðbylgjum:
„Óáþreifanlegi heimurinn
er ævintýralegur,“ tiltekur
hann. - vg
„Grænlandspósturinn er meðal
elstu dagblaða í heiminum og eitt
það fyrsta til að prenta litmyndir.
Hinn nýi haus þess lýsir öllu sem
það stendur fyrir. Hann er tengdur
kjarnanum í sögu Grænlands auk
þess að höfða til nýrri tíma,“ segir
Hrafnhildur Júlíusdóttir, mark-
aðsráðgjafi auglýsingastofunnar
Hvíta hússins. Hún fór til Nuuk,
ásamt Sverri Björnssyni hönnun-
arstjóra og þar dvöldu þau í fjóra
daga við stefnumótunarvinnu með
útgefendum blaðsins sem hún segir
samstilltan hóp. „Samhliða því sem
við Sverrir vorum úti var starfsfólk
stofunnar heima að vinna að tillög-
um sem það sendi okkur í tölvunni.
Við þurftum að samræma gamla
og nýja tímann og halda í eitthvað
af arfleifðinni án þess þó að nota
hundrað ára gamalt letur.“
Grænlandspósturinn er skrifað-
ur á tveimur tungumálum, græn-
lensku og dönsku, og kemur út
tvisvar í viku en í ráði er að fjölga
útgáfudögum. Hann er blað fólks-
ins og á sér dygga lesendur jafnt
innan veiðimannasamfélagsins
sem ungs nútímafólks á Grænlandi
og í Danmörku, að sögn Hrafn-
hildar. Hún ber lof á fram-
kvæmdastjórann Ingu Dóru,
dóttur hins íslenska Guð-
mundar Þorsteinssonar og
Benediktu sem var ráðherra í
heimastjórninni á Grænlandi
um tíma. „Smekkur er alltaf
mismunandi eftir svæðum,“
segir Hrafnhildur. „Því er
nauðsynlegt að fara á staðinn
þegar unnið er fyrir fólk erlendis.
Hönnuðu nýjan blaðhaus
● Grænlandspósturinn sem gefinn er út í Nuuk hefur fengið nýtt andlit. Starfsfólk auglýs-
ingastofunnar Hvíta húsið hefur hannað það í samvinnu við útgefendur.
Fyrsta blaðið með nýjum haus komið úr prentun. Stúlkan heitir Arnaq.
Grænlandspósturinn eftir að hönnuðir
Hvíta hússins hafa lappað upp á útlitið.
Hægt er að breyta ljós- og hljóð-
magni dyrabjöllunnar.
Nýstárleg dyrabjalla
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við
húsnæði. Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði.
Hámarkslán eru 20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru
á þessum lánum og almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 2009 3