Fréttablaðið - 09.05.2009, Síða 66
38 9. maí 2009 LAUGARDAGUR
A
llt frá því að ég var
lítil stúlka vissi ég
að hlutverk mitt í
lífinu væri að hjálpa
börnum sem voru
ekki jafn heppin
og ég,“ útskýrir Soeur Victorien,
kaþólsk nunna frá landinu Tógó í
Vestur-Afríku. Victo, eins og hún
er kölluð, er stödd hér á landi á
vegum styrktarfélagsins Sóley &
félagar sem var stofnað til þess
að styðja við starf hennar með
munaðarlausum börnum í þorp-
inu Aneho í Tógó. Félagið var sett
á fót af hjónunum Gunnari Smára
Egilssyni og Öldu Lóu Leifsdóttur
en þau ættleiddu litla stúlku, Sól-
eyju, í gegnum klaustrið.
„Ég hef verið nunna í 32 ár en
vissi frá unga aldri að ég hefði
þessa köllun,“ segir Victo. „Þegar
ég var í skóla með bræðrum
mínum tók ég eftir börnunum á
götunni sem þjáðust, sem bjuggu
á götunni og áttu ekki foreldra sem
elskuðu þau eins og ég átti. Ég fór
oft með börn af götunni heim til
móður minnar og bað hana að gefa
þeim mat, gera að sárum þeirra
eða hugga þau,“ útskýrir hún.
Tógó er eitt fátækasta land Afr-
íku og dánartíðni er há. Ungbörn
eru oft skilin eftir úti á víðavangi,
börn missa foreldra sína úr eyðni
eða öðrum sjúkdómum og verða
því að draga fram lífið sjálf á göt-
unum. „Þegar ég varð nunna byrj-
aði ég fljótlega að fara með börn í
klaustrið. Fyrst var það aðeins ég
sem fann þau úti en eftir ákveð-
inn tíma kannaðist fólk við mig og
vissi að það var hægt að koma með
börn til mín. Til dæmis fundu her-
menn oft ungbörn úti á víðavangi
og komu þeim fyrir hjá mér. Það er
geðveikrahæli í nágrenninu og þar
hafa margar konurnar verið mis-
notaðar kynferðislega og verða
ófrískar. Barnungar ógiftar stúlk-
ur sjá þess oft ekki annan kost en
að skilja nýfætt barn eftir ein-
hvers staðar þar sem mögulegt er
að fólk finni það. Stundum komu
líka þriggja eða fjögurra ára börn
til mín. Börnin eru oft í skelfilegu
líkamlegu ástandi, vannærð og
veik. Sum eru líka með eyðni.“
Markmiðið að kenna börnunum
að sjá um sig sjálf
Það var fyrir um tíu árum sem
Victo flutti til Aneho til þess að
kenna við barnaskólann þar. „Nú
eru liðin níu ár síðan fólk fór fyrst
að leita til okkar. Við tökum á móti
yfirgefnum börnum, móðurlaus-
um börnum, stundum móður- og
föðurlausum börnum, börnum
sem fá enga hjálp og eiga engan
að. Á tímabili sváfu átta unga-
börn inni í litla herberginu mínu
í klaustrinu,“ segir Victo og hlær
dátt. „Mér varð lítið úr svefni þá
en stundum fékk ég mér blund á
daginn. Það má segja að það sé alls
ekki aðstaða fyrir börn í klaustr-
inu en við erum að reyna að bæta
úr því.“ Victo kynntist hjónun-
um Gunnari Smára og Öldu Lóu
þegar þau ættleiddu litla stúlku í
umsjá hennar fyrir tæpum tveim-
ur árum. „Við fundum lítið stúlku-
barn í ánni skammt frá skólanum.
Hún var ekki meira en fjögurra
eða fimm mánaða og hafði bless-
unarlega sloppið frá drukknun þar
sem hún hafði fest í sefi. Hún var
öll þakin sárum og rispum og grét
mikið og ástand hennar fékk alla
sem sáu hana til að tárast. Gunn-
ar Smári og Alda Lóa höfðu sam-
band við mig, en þau höfðu áhuga á
Köllun mín er að hjálpa börnum
Victo, sem er kaþólsk nunna frá Tógó, er stödd á Íslandi á vegum styrktarfélagsins Sóley & félagar sem var stofnað af hjónunum
Gunnari Smára Egilssyni og Öldu Lóu Leifsdóttur. Félagið styrkir nunnurnar við að halda uppi heimili fyrir munaðarlaus börn en
neyð þeirra er sár í þessu fátæka Afríkulandi. Anna Margrét Björnsson átti stutt spjall við Victo um ævistarf hennar með börnunum.
SYSTIR VICTORIEN „Hermenn finna nýfædd börn oft úti á víðavangi og koma þá með þau til mín.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Togo to go
Á Skólavörðustíg 22 er
nú til húsa lítið klæð-
skeraverkstæði þar sem
klæðskeri frá Tógó saumar
föt. „ Þetta er verkefni
sem við settum á fót til
að styrkja við samfélagið
úti,“ útskýrir Alda Lóa
Leifsdóttir. „ Við erum
með verkstæði í Tógó hjá
Victo þar sem fimmtán
nemendur eru að læra að
sauma og sníða. Klæð-
skerinn okkar, Dieudonné,
er mjög vinsæll klæðskeri
i Lome og hann kemur í
verkstæðið tvisvar í viku
til þess að sauma föt með
elstu nemendunum. Hann
er hérna á Skólavörðustíg
í maí að kynna fatalín-
una „Togo to go“. Hann
saumar úr vaxprentuðum
efnum frá Hollandi, og þar
er meðal annars að finna
kjóla, jakka og barnaföt.“
Frekari upplýsingar eru á
www.soleyogfelagar.is