Fréttablaðið - 09.05.2009, Side 67
LAUGARDAGUR 9. maí 2009 39
Vandræðalegasta augnablikið?
Varðar nekt en get ekki farið
nánar út í það.
Gáfulegustu orð sem þú hefur
heyrt? Eltið gamla manninn.
Hvaða íslenska örnefni finnst
þér fallegast? Vonarskarð.
Sumarið er skemmtilegt því
þá... ...er almennilegt veður, oft-
ast.
Gott leikverk þarf að vera...
...sett upp á svið.
Ef ég væri ofurmenni í einn
dag, myndi ég... ...sinna eigin-
hagsmunum til hins ýtrasta.
Mér finnst best að panta mér
pizzu með.... ...tómötum og oreg-
ano kryddi. Finnst samt viðbjóð-
ur að panta pizzur, miklu betra að
gera þær sjálfur frá grunni.
Þú ferð í skemmtiferð til Akur-
eyrar. Nefndu fjögur atriði sem
þú munt gera í bænum. Sjá eitt-
hvað í leikhúsinu, fara á Amor og
Karólínu, fara í sund. Það er ekki
hægt að gera neitt meira.
Þú færð það verkefni að mála
og skreyta Perluna – hvernig
læturðu hana líta út? Ég myndi
aldrei nenna því. Þó kannski láta
klæða hana með hrafntinnu eins
og Þjóðleikhúsið. Það þarf að
brjóta upp öll þessi Hrafntinnu-
sker sem eru á víð og dreif.
Yfir hverju hefurðu mestar
áhyggjur í augnablikinu? Fram-
tíð þjóðarinnar.
Hvaða kæki ertu með? Enga,
alls enga.
Þú ert að fara á grímuball og
mátt fara í hvaða búningi sem er.
Í hverju ferðu? Ég þarf alltaf að
vera í búningum í vinnunni svo
ég nenni aldrei að taka þátt í svo-
leiðis rugli.
Hvað er það besta sem þú
hefur bragðað um ævina? Sushi
á Ó-Sushi lestinni í Iðuhúsinu,
það er best.
Hvaða frasa ofnotar þú? All in,
herra minn!
Eftirlætissjónvarpsþáttur?
Seinfeld, Klovn og The Simp-
sons.
Frægasti ættinginn þinn? Ég á
fullt af frægum ættingjum í Fær-
eyjum, allt tónlistarmenn.
Hvaða leikverk hefur þér þótt
skemmtilegast, íslenskt, sem þú
hefur sjálfur ekki leikið í? Þú ert
hér! Í Borgarleikhúsinu. Alger
snilld.
Hvernig persónur er erfiðast
að leika? Venjulegar.
Eftirlætiskvikmynd? Þessa
dagana er það The Sound of
Music.
Að lokum – ef þú byggir í Aust-
urríki og ættir þar herragarð
með sundlaug og sjö börn – hvað
myndirðu ráða margar barn-
fóstrur? Eina fyrir hvert barn
og þar á meðal yrðu útrásarvík-
ingar, þeir hafa ekkert að gera
núna. Og þó, veit ekki hvort ég
myndi treysta þeim fyrir börnun-
um mínum, ætli þeir myndu ekki
reyna að selja þau.
Á fræga
ættingja í
Færeyjum
Kapteinninn í Söngvaseið söng sig inn í hjörtu
ófárra kvenna þegar hann kyrjaði um alparósina
í austurríska Ölpunum. Jóhannes Haukur Jó-
hannesson fer með hlutverk kapteinsins í nýrri
uppfærslu í Borgarleikhúsinu á verkinu. Júlía Mar-
grét Alexandersdóttir tók leikarann í yfirheyrslu.
VENJULEGU TÝPURNAR ERFIÐASTAR Jóhannes Haukur Jóhannesson segir að
erfiðast sé að leika venjulegar persónur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
að ættleiða barn héðan. Þau fengu
litlu Sóleyju til sín og allar götur
síðan hafa þau veitt okkur algjör-
lega ómetanlega hjálp. Þau hafa
styrkt okkur gífurlega mikið, til
dæmis stækkað skólann, borg-
að fyrir okkur rafmagn svo að
við getum kveikt ljós á nóttunni,
hjálpað með sjúkrakostnað, uppi-
hald og fleira. Koma þeirra var
eins og sólargeisli sem lýsti upp líf
okkar og það er sannarlega guðs
blessun að við kynntumst þeim.“
Victo segir að markmið styrktar-
félagsins sé að mennta börnin svo
þau geti unnið fyrir sér og séð um
sig sjálf í framtíðinni. „Til dæmis
hefur verið sett á fót klæðskera-
verkstæði þar sem lærður klæð-
skeri kemur tvisvar í viku og
kennir börnunum. Önnur læra til
dæmis smíði, hárgreiðslu og aðrar
iðngreinar og þau sem eru á skóla-
aldri ganga í skóla. Svo erum við
með matjurtagarð og seljum örlít-
ið af grænmeti þaðan. Markmiðið
er svo að safna styrktarforeldrum
til þess að sjá fyrir uppihaldi og
skólagöngu barnanna.“ Victo seg-
ist þó þrá það heitast að börnin á
heimilinu finni fjölskyldur. „Það
er svo sárt að eiga enga foreldra
að. Mín heitasta ósk er að einhver
barnanna geti eignast pabba og
mömmu sem elska þau.“
Lýðveldið Tógó er á hinni svokölluðu
þrælaströnd vestur Afríku. Það liggur í
mjórri lengju á milli Ghana og Benín. Þar
sem Evrópubúar teiknuðu Tógó sjálfir
upp á landakort Afríku líkt og önnur lönd
álfunnar búa þar saman þrír ættbálkar -
þeir Ewé, Kabré og Mina – samtals 6,3
milljónir manna. Í landinu ríkir slæmur
efnahagur, þar er lítil sem engin
þjóðarframleiðsla og nærri fimm-
tíu prósenta þjóðarinnar er ólæst.
Í Tógó ríkir ekki hungursneyð
sem slík, en vatnið er mengað
og hundruð deyja vegna mal-
aríu og næringarskorts. Börn
látast vegna niðurgangs,
vannæringar eða umönn-
unarleysis þegar foreldrar
og fjölskylda hrynja niður
úr sjúkdómum eins og
malaríu, lifrarbólgu,
mænusótt, eyðni og
kóleru. Mæður sem því
miður eru oft á tíðum
of ungar til þess að geta
fætt barn deyja iðulega
úr barnsburði og í kjöl-
farið eru nýburar oft
skildir eftir á götunni
þar sem einhver er
líklegur til að finna
þau. Því miður eru
örlög götubarna
oftast aðeins
ein: dauðinn
bíður þeirra.
➜ BÖRN Á GÖTUM ÚTIÉg fór oft
með börn
af göt-
unni heim til móður
minnar og bað hana
um að gefa þeim mat,
gera að sárum þeirra
eða hugga þau.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Jóhannes Hauk-
ur Jóhannesson
FÆÐINGARÁR: 1980. Sama ár
gaf Bubbi út Ísbjarnarblús.
Á HUNDAVAÐI: Víðistaða-
skóli, Flensborg, Leiklistar-
skólinn, Leikfélag Akureyrar,
Þjóðleikhúsið, Borgarleik-
húsið.