Skinfaxi - 01.03.1925, Side 15
SKINFAXI
15
Æskan leitar að æðstu visku
i íslands dölum og' Noregs sölum. —
Æskan leitar að æðsta þroska
á íslands fjöllum og Noregs völlum.
Hvildarlaus leit að eilífum eldi
alstaðar tengir góða drengi.
— paðan er komin þýðan i hljóðið,
þegar vér mælum: Heilir og sælir!
Jóh. B. Jónasson.
Heimboð.
Seint í fyrravetur bauð sambandsstjórn Ivjalarnes-
þings ungmennasamb. norska, að senda hingað ung-
mennafélaga í kynnisför. Norðmenn tóku heimboðinu
með þökkum og sendu fimm ungmennafélaga; komu
þeir hingað til Rvikur 17. júni s.l. — Allir voru þeir
félagar þroskaðir menn og hinir mannvænlegustu, enda
liafa þeir allir unnið mikil og margbreytt trúnaðar-
störf ungmennafélaga, heima á fósturjörð sinni. —
Með þeim var i för norskur regluboði. — Sambands-
þing U. M. F. í. var sett sama dag og Norðmennirnir
komu. Forseti þingsins, Björn Guðmundsson frá Núpi,
mælti fyrir minni þeirra og norsku ungmennafélags-
hreyfingarinnar, en foringi Norðmanna þakkaði með
ræðu.
íþróttamót íslands var haldið hér i Reykjavík, dag-
ana sem Norðmennirnir dvöldu hér. Höfðu þeir góða
skemtun af mótinu og létu vel yfir flestum íþróttun-
um, sem sýndar voru. — Eftir viku dvöl í iiöfuðstað
landsins hófu Norðmennirnir för um Sunnlendinga-
fjórðung. Heimsóttu þeir þá mörg ungmennafélög.
Sagðist þciin svo frá, að alslaðar hefði þeim verið vel