Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1925, Blaðsíða 46

Skinfaxi - 01.03.1925, Blaðsíða 46
46 SKINFAXI Sá er hinn i'yrsti, aö sýna,,að íslendingasögur og önn- ur ágætisrit, er. færð hafa verið í letur í fornöld, bera vitni um enn þá meiri listfengi, en menn hefir jafnvel áður grunað. pað mun láta nærri sanni að segja, að flestar muni sögurnar eins vel „ortar“ og kvæðin, er skáldin kváðu i fornöld. Margir kaflar þeirra eru svo vel sagðir, að orðhagir menn einir og skáld fá vikið þar svo til orðum, að ekki spillist hrynjandi. Er þeim líkt farið og vísum, þar sem hagmælsku þarf til þess, að hnika til orði, svo að ekki raskist kveðandi. Er því lik- legt, að enn þá meira orð fari af fornritum, er mönn- um skilst, live höfundarnir ísJensku settu sér íastar reglur um málfar. IJtlendingum þeim, er þýða þær, verður þá ljóst, að sögurnar niissa mikils, ef hrynj- andi glatast í þýðingu, svo að frásögnin vcrði liáttlaus. pær eru iþá þvi nær sem ljóð, sem hafa verið svift kveð- andi og eru birt i lausu máli. Sá er annar tilgangur þessarar bókar, að benda á það, að miklar eru líkur til þess, að hrynjandin geti orðið styrkur nokkur, þegar forn rit eru rannsökuð, til þess að grafast fyrir um höfunda. Gerum ráð fyrir þvi, að vafi leiki á um það, livort einhvcr saga hafi orðið til úr tveimur sögum eða fleirum, og sé því ekki einn höf- undur hennar. Málfarshættir koma best í ljós, þegar hending hver er rannsökuð. Sumar hendingar eru ein- um höfundi tamar, þótt aðrir beiti þeim sjaldan. Er þvi eins háttað, sem sumum skáldum lætur betur að yrkja undir einum hætti en öðrum. Hugsanlcgt er, að langt vcrði komist í þessum rannsóknum, þegar ekki er að eins að styðjast við orðaval, setningaskipun, held- ur og hrynjandi, auk ýmissa annara líkinda. Úrslita- rök verða þó ekki í'ærð fram fyrir þessari skoðun, hvorki hér né i sjálfu ritinu. pess má þó geta, að snild- arverk tvö eru til, er hafa svo ólíka hrynjandi, að furðu gegnir. Annað iþeirra er Njáls saga. par er fátt um þrí-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.