Skinfaxi - 01.03.1925, Qupperneq 16
16
SKINFAXI
fagnað, og víða þóiti þeim gott um að litas,t, enda sáu
þeir ýmsa merka sögustaði, svo sem þingvelli, Skál-
holt, Hlíðarenda og Geysi.
pingvellir heilluðu hugi þeirra mest, enda var veður
fagurt, er þeir dvöldu þar, og leiðsögnin svo góð, að
ekki var hægt að kjósa aðra betri. þar lásu þeir ýmsa
kafla úr Njálu, meðal annars um bardagann á þing-
völlum, en próf. Sigurður Nordal skýrði söguna og
sagði þeim margt um örnefni og útsýn hinna forn-
heígu valla.
Norðmenn höfðu mikinn hug á því að kynna ser
sveitasamkomur og iþróttamót ungmennafél., enda
gafst þess kostur. TJ. M. S. K. hélt fund á Akranesi og
bauð Norðmönnunum þangað. Yar fundur sá all fjöl-
mennur og lmgðu flestir gott til hans, en hann gaf
lakari raun en til var ætlast, því að veður var óliag-
stætt. En Norðmenn komu líka á íþróttamót Borgfirð-
inga og fund ungmennafél. í Árnessýslu. Sögðu Aust-
menn, að á báðum þessum stöðum hefði þeim þótt goít
að vera, því að þar vann islenska vorið, með íslenskri
æsku að því, að fagna þeim.
Skinfaxi þakkar stjórn U. M. S. Iv., ungmennasamb.
Borgfirðinga og ungmennasamb. „Skarphéðinn“ fyrir
heimhoð Norðmannanna og allar þær alúðar viðtök-
ur, sem þeir fengu. För austrænu frændanna hingað
liefir orðið íslenskum ungmennafél. og alþýðu íslands
til sóma.
Norðmenn hafa víðfrægt þessa Islandsferð sína i
norskum blöðum og borið Islendingum söguna ágæt-
lega; þó væri það órétt að segja, að greinar þeirra séu
rakalausl lof, svo sem oft vill verða, er menn vilja að
orð sín láti vel í eyrum annara. Greinar Norðmann-
anna sanna spakmælið forna, að „glögt er gests augað“.
Frændur okkar hafa tekið vel eftir því, sem fyrir þá
bar, og gera góða grein fyrir því í ritum sinum. Holt