Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1925, Side 22

Skinfaxi - 01.03.1925, Side 22
22 SKINFAXI Margt er þar fleiri fugla. Mergð svana heldur sig á Álftavatni og Soginu, einkum er sumri hallar. Hljómar söngur þeirra um skóginn á kyrrum kvöldum frá Ing- ólfsfjalli. Getið skal þess, í lok lýsingar þessarar á prasta- skógi, að sá, sem ritar iiana hefir scð ýmsa skóga vöxtu- lcgri og stórfegurri en hann, bæði heima og erlendis. En fáa þekkir hann jafn-smáfríða staði og yndislega og prastaskóg, einkum norður við Álftavatnið. III. Drepið er á það í l'yrsta kafla greinar þessarar, að hirðing prastaskógar sé ekki svo góð sem skyldi. Skal nú gerð nokkru nánari grein fyrir því. pegar U. M. F. í. fekk eignarhald á skóginum, var hann girtur af. Lögð var sjöþætt gaddavírsgirðing frá Sogsbrú, norður í Álftavatn. Girðing þessi hefir án efa verið góð i fyrstu, enda mun Guðmundur Davíðsson hafa unnið að lienni. En „tönn timans“ hefir unnið á henni, svo sem öðru, og viðhaldinu hefir verið ábóta- vant. Nú um nokkur ár, hefir mikið vanlað á að girð- ingin væri sauðheld. Liggja til þess ýmsar orsakir, en ekki síst sú, að hlið fyrirfinst ekkert; hafa því skógar- gestir riðlast á girðinguna og smogið hana, hvar sem að var komið. — 1 grendinni búa fjármargir hændur, og heita þeir fé sínu í hraunið. Fer ekki hjá því, að tölu- verður strjálingur kinda gangi í prastaskóg, árið um kring.¥ Stafar vitanlega af þvi skemd, og má ekki svo húið standa, því að alger friðun er eitt helsta skilyrði þess, að skógurinn geti dafnað og lili vel út. En við þessum leka vona eg að verði gert á næsta vori — ef fjárskortur hamlar ekki öllum framkvæmdum. Skylt er að geta l>ess, að nágrannarnir eru mjög vin- veittir Þrastaskógi, og beita hann alls ekki viljandi. Sökin liggur í hrörleik girðingarinnar.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.