Skinfaxi - 01.03.1925, Síða 37
SKINFAXI
37
að standa austan eða vestan pjórsár. Flestir munu þó
telja einsætt, að skólinn verði reistur í Árnessýslu, því
að þar eru víða hverir og laugar, sem nota má til hit-
unar og suðu við skólann. Er sjálfsagt að hagnýta þessi
náttúruöfl, en Rangæingar eiga þeirra ekki kost. Skifst
hafa skoðanir Árnesinga um, livar reisa beri skólann
i þeirra eigin sýslu.
Biskupstungnamenn hafa lofað að gefa Haulcadal, ef
skólinn yrði þar. Sagt er að Hreppamenn vilji hafa
hann hjá sér, en byggingameistari ríkisins og fjöldi
kunnugra manna telji æskilegt, að Laugavatn í Lauga-
dal verði valið fyrir lýðskólasetur, enda liefir sú jörð
margt til síns ágætis. ]?ar er útsýni mikið og fagurt,
austur yfir sveitir, upp til fjalla og út til sævar, og
heim á Laugavatni er frítt um að litast og búsældar-
legt. Hlíðarnar skógi grónar, túnið grösugt og slétt og
góðar engjar.
Allstórt veiðivatn er við túnið. Laugarnar eru heitar
og vatnsmiklar og liggja ágætl. við til notkunar. Nóg
er af möl og sandi þar sem byggingameistarinn telur
æskilegt að reisa skólabygginguna. Ekki spillir ná-
grennið fyrir þessu fyrirhugaða skólasetri. Laugavatn
stendur nær miðjum Laugardalnum, en dalur sá er
frægur af fegurð sinni, svo sem lcunnugt er.
Kunnugur maður hefir sagt mér, að nú beri Lauga-
vatn um 400 fjár, 10 kýr og 20 hross, og er þó langt
frá því, að jörðin sé ofsetin. Af þessu sést, að hér er
um allmikla bújörð að ræða, enda væri það óviðeig-
andi, ef ekki væri hægt að hafa gott bú á skólasetri
þeirra sveita, sem taldar eru einna best fallnar til bún-
aðar hér á landi, fyrir margra hluta sakir.
]?að mun vera einhuga ósk allra ungmennafélaga í
Árnes- og Rangárvallasýslu, að Suðurlandsskólinn verði
reistur sem fyrst, á vel völdum og í'ögrum stað. Og
að það verði sem hest til hans vandað, svo að hann
megi reynast þjóðnýt fyrirmyndarstofnun.